Tíminn - 22.12.1992, Síða 11

Tíminn - 22.12.1992, Síða 11
JÓLABLAÐ 1992 Tíminn 11 Skólameistari kynntur Guðni rektor Enga mélkisuhegðun Ómar valdimarsson tekur Guðna rektor á teppið. Vaka Helgafell Þarmig er þetta rit kynnt á titilsíðu. Guðni rektor rekur minningar sínar og gerir grein fyrir frændfólki og reynist skemmtilegur sögumaður. Inn á milli er svo skotið vitnisburði samferðarmanna. Skólabræður, nem- endur, samstarfsmenn og félagar frá ýmsum tímum skrifa minningarorð um söguhetjuna. Og áður en yfir lýk- ur verður þetta samtalsbók þar sem hinn margreyndi skólamaður segir ýmislegt mntalsvert um skólamál þjóðarinnar á llðandi stund. Þetta verður því I reynd nokkuð gimileg bók. Okkur fslendingum er þannig farið, að við viljum vita hverra manna það fólk er sem verður á vegi okkar. Og ég verð t. d. að játa það að ég vissi ekki fyrr en nú að Guðni rektor er bróðir Bjama Guð- mundssonar, blaðafulltrúa, sem ég á góðar minningar um, auk þess sem ég man hann sem frábærlega skemmtilegan útvarpsmann. Um ætt- artengsl Guðna verður ekki frekar rætt hér en bókin er til vitnis um frændsemi hans við Jón forseta og fleiri. Guðni er hispurslaus í tali og reynir að orða mál sitt svo að líkur séu til að eftir verði tekið. Og víst eru skóla- málin þess verð að á þau sé litið og um þau rætt frá ýmsum hliðum. Þannig verður þessi kynningarbók um rektorinn verðugt umhugsunar- efni. H. Kr. Bangsímon Vaka-Helgafell hefur gefið út nýja bók frá Disney-fyrirtækinu um bangsann vinsæla, Bangsímon og vini hans. Bókin heitir Bangsímon og jólin. Þar koma við sögu auk Bang- símons, þeir Eymaslapi, Tumi tigur, Grislingur og allir hinir. Komið er fram á aðfangadagskvöld og Bang- símon bíður þess eins að jólin gangi í garð. Hann er búinn að öllu en finnst samt eins og eitthvað vanti. Og allt í einu man aumingja Bangsímon hvað það er: Hann steingleymdi öllum gjöfunum handa vinum sfnum! Nú er úr vöndu að ráða. Hann má engan tfma missa ef hann ætlar að bjarga sér úr þessari klfpu. Hvað á hann að gera? Bangsfmon og jólin er prýdd fjölda litmynda og er tilvalin fyrir yngstu kynslóðina. sannkölluð jólabók. Utgefandi er Vaka-Helgafell hf. verð kr. 980. Úrval 19. aldar skálda Út er komin hjá Máli og menningu stórbókin Þjóðskáldin — Úrval úr bókmenntum 19. aldar. Guðmimdur Andri Thorsson valdi efnið. Bókin geymir úrval úr ljóðum eftir helstu skáld 19. aldarinnar: Bjama Thorarensen, Sveinbjöm Egilsson, Rósu Guðmundsdóttur, Bólu-Hjálm- ar, Sigurð Breiðfjörð, Guðnýju Jóns- dóttur frá Klömbrum, Jónas Hall- grímsson, Jón Thoroddsen, Grím Thomsen, Pál Ólafsson, Steingrím Thorsteinsson, Matthías Jochumsson, Júlíönu Jónsdóttur, Kristján Jónsson, Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Timinn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aöstoöamtstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason Skrifstofur: Lynghálsi 9,110 Reykjavik Simi: 686300. Auglýsingasimi: 680001. Kvöldsímar: Áskríft og dreifing 686300, ritstjóm, fféttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tfmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,- , verð i lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Stephan G. Stephansson, Olöfu Sig- urðardóttur frá Hlöðum, Þorstein Er- lingsson, Hannes Hafstein og Einar Benediktsson. Að auki eru í bókinni sögur eftir þá höfunda sem atkvæða- mestir voru í því að endurvekja sagnalistina hér á landi: Jón Thor- oddsen, Benedikt Gröndal, Þorgils gjallanda, Gest Pálsson og Einar H. Kvaran. Guðmundur Andri Thorsson skrifar stutta kynningu á hverjum höfundi. Bókin er 769 bls., gefin út í stórbóka- flokki Máls og menningar sem mið- ast við að gera mikið lesefni aðgengi- legt á Iágu verði. Bókin kostar 2980 kr., en 3980 í öskju. Örlagasaga f egurð- ardrottningar Iðunn hefur gefið út bókina Thelma - - Saga Thelmu Ingvarsdóttur. Rósa Guðbjartsdóttir skráði. Þetta er saga stúlkunnar úr Skerja- firðinum, sem sautján ára gömul hélt ein út í heim til að láta drauma sína rætast. Hún var kjörin fegurðar- drottning Norðurlanda og var um skeið ein eftirsóttasta fyrirsæta heims. Hún kynntist tignarmönnum og frægum stjömum, ferðaðist um heiminn og skreytti forsíður tisku- blaða, giftist ungum og glæsilegum auðmanni og lifði við velsæld og alls- nægtir. En eftir nær tuttugu ára hjónaband komst hún að því að ham- ingjan er hverful, önnur kona hafði tekið manninn hennar frá henni. Bókin er piýdd flölda mynda. Prentbær hf. prentaði. 6. bindi Vestur- íslenskra æviskráa Skjaldborg hefur sent frá sér 6. bindi ritverksins Vestur-íslenskar æviskrár eftir Jónas Thordarson. í kynningu forlagsins segir m.a.: „Útgáfa „Vestur-íslenskra æviskráa" þjónar tvenns konar tilgangi. Annars vegar er þar skjalfestur og um leið gerður heyrin kunnur á íslandi nokk- ur þáttur af þeirri sögu, sem landar vorir hafa skapað í Vesturheimi, og gefið sýnishom af þeirri þjóðfélags- aðstöðu, sem þeir hafa skapað sér, þar sem þar er getið starfa og stöðu mikils fjölda manna af íslenskum stofni. A hinn bóginn á bókin að skapa möguleika á, að koma á fót beinum persónulegum kynnum milli manna yfir hafið. Ættfærslur til manna á íslandi gera mönnum hér heima kleift að hafa upp á ættmenn- um sínum vestra, og þeim vestan hafs gefur hún einnig möguleika til að leita uppi frændur á íslandi. Þann- ig geta skapast ný tengsl á milli þjóð- anna. En umfram allt er rit þetta mik- ilvægt tiUag til íslenskrar ættfræði og persónusögu, og það hefur mikið þjóðemislegt gildi." Verð kr. 2990. Bakkus við höfnina Grandakaffi er ný skáldsaga ungs höfundar, Baldurs Gunnarssonar, sem Fjölvi gefur út. Sagan gerist að mestu leyti við höfnina og í gamla vesturbænum. Hetjur hafsins, sem siglt hafa um heimsins höf og mega muna fífil sinn fegri, snúa heim og eiga hvergi höfði sínu að halla eftir skipbrot á skerjum Bakkusar. Þegar ekkert virðist framundan nema bar- dagi við skipsrottur og deleríum tre- mens, kemur þjóðhöfðingi f heim- sókn og teningunum er kastað. Tveir góðvinir rísa úr öskustó. Annar gerist trúarleiðtogi, en hinn endurheimtir æskuástina sina. Skáldsaga Baldurs Gunnarssonar lyktar af þangi og söltum sæ, ólmast í forkostulegu gríni hinna uppflosn- uðu róna, og Iýkur á Kýklópaþætti, svo mögnuðum að allt leikur á reiði- skjálfi í villtum losta elskendanna. Sannarlega djörf, spennandi og um- fram allt vel skrifuð skáldsaga upj>- rennandi höfundar. Bókin er 218 bls., prentuð hjá Prent- stofu G. Ben.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.