Tíminn - 22.12.1992, Page 12

Tíminn - 22.12.1992, Page 12
12 Tíminn JÓLABLAÐ 1992 Læröi skólinn I Reykjavlk nokkru fyrir aldamótin. Einar Hjörleifsson Kvaran. Bertel E.Ó. Þorieifsson. MISGRIP ÓÞEKKT LEIKRIT EFTIR NOKKRA ÞJÓÐKUNNA MENN Þorsteinn Antonsson rithöfundur bjó til prentunar og ritar aðfararorð Oft veltir litil þúfa þungu hlassi, segir máltæki. Á konunglegu bókhlöðunni í Kaupmannahöfn er varðveitt handrit að íslensku leikriti, sem samið var árið 1878 af fjórum námsmönnum í Lærða skólanum í Reykjavík, sem allir uröu þjóökunnir á fullorðinsár- um sinum. Leikritið er bærilega samræmt um stíl og efni, þrátt fyrir að höfundar voru þetta margir og ekki eldri en þeir voru. Ekki er að sjá að leikrit þetta sé nokkursstaðar skráð meðal islenskra leikrita og virð- ist svo sem tilvera þess sé á fárra vitoröi, ef nokkurra. Heim- ild um að þaö hafi einhvern tíma verið til er óbirt frásögn Hann- esar Hafstein af átökum meðal námssveina í Lærða skólanum sem leiddi af sýningu á leikriti þessu í skólanum snemma árs 1878. Um þær mundir var helsta nemendafélag í skólan- um Bandamannafélagiö og er frásögn Hannesar, sem hann nefnir „Byltingarsögu“, varöveitt meöal gagna þess. Árið 1878 stjórnaöi Bandamannafélaginu af miklu ráðriki Sigurður Stef- ánsson, siöar prestur. Nokkrir yngri menn stofnuðu nokkru fyr- irjól 1877 félag til að halda uppi leiksýningum í skólanum á sunnudagskvöldum og líkaði Sigurði þessi sjálfræðishneigð illa. I riti sínu um ráðherrann og skáldið Hannes Hafstein skrifar Kristján Albertsson um þessar deilur og sækir upplýsingar sín- ar i „Byltingarsögu" Hannesar. „Hin yngri skáldaklika, Hannes Hafstein, Einar Hjörleifsson, Bertel Þorleifsson og Jónas Jónsson (síöar kenndur við Hrafnagil) setur nú saman gam- anleik og lætur sýna hann i einni bekkjarstofunni. Byltingar- saga vill ekki mikið gera úr bók- menntagildi þessa verks, en segir að geta verði höfuðper- sónunnar „með því að hún kem- ur mjög við þráð sögu vorrar. Það er burtrekinn búðarstrákur einn, óþokki mesti og ónytjung- ur, er biður rikrar bóndadóttur, en einfaldrar, lýgur þá ýmsu sér til ágætis... Einar Hjörleifsson lék búðarstrákinn og tókst hon- um það hvorki betur eða verr en svo að Sigurður Stefánsson kvaö hann hafa leikið sjálfan sig og hæddist mjög aö...“ Kristján bætir við: „Verða nú viðsjár miklar með „leikmönnum“ og Sigurðungum, eins og Bylting- arsaga kallar þá. Einkum slær í hart með Hannesi og Sigurði. „Þeir mæltust ekki orð við en áttu i ritdeilu í félaginu lítt mjúk- yrta. Skólinn tók mjög þátt i deilu þessari." Skemmst er frá því að segja að nefndum félögum og vitorðs- mönnum þeirra tókst með klækjum að ná öllum völdum í Bandamannafélaginu um hrið, en hinni fyrri stjórn með enn frekari harðdrægni að ná völd- unum aftur. „Voru nú helztu uppreisnarmenn reknir harðri hendi úr félaginu, allir með tölu; en aðrir fylgdu þeim í útlegðina af frjálsum vilja," ritar Kristján Albertsson. Menn þessir stofn- uðu þá nýtt félag, Ingólf, og var það félag starfrækt um nokk- urra ára skeiö af mikilli launung. Félagsstörf voru einkum tengd ritgerðasmíð. Á fundum báru fé- lagar upp ritsmiöar sínar, Ijóð, sögur og ritgerðir, síðan var allt skráð i bækur til varðveislu fyrir komandi tima. Afköstin urðu mikil og sumpart merk, jafnvel sem bókmenntir. Mest fór fyrir Einari Hjörleifssyni (síðar Kvar- an) og Bertel Þorleifssyni, sem á þessum tíma lifði blómaskeið sitt sem skáld. Þau ár sem þessir sömu ár- gangar námu við Hafnarhá- skóla, báru flokkadrættir meðal íslenskra námsmanna i Höfn sama svipmót og verið hafði er kom til stofnunar félagskaparins Ingólfs veturinn 1878-79. Bandamannafélagið og Ingólfur voru sameinuð 1882, en ekki greri um heilt með þeim mönn- um sem að klofningnum höfðu staðið. Á árunum upp úr 1880 var djúpstæður ágreiningur milli vinstri og hægri manna í dönsku þjóölífi, svo djúpstæöur að viö borð lá aö likja megi við uppreisnarástand, þótt aldrei gengi svo langt. Um sama leyti mynduðust svipaðar andstæður í félagslífi íslenskra stúdenta í Höfn og áttust þá við hinir sömu menn og fyrr höfðu gert i Lærða skólanum. Á þessum árum urðu til fyrstu drög hins islenska flokkakerfis. Og ekki fritt við að enn kenni merkja upprunans. Altént er Jón búðarloka, sem Sigurður formaður sagði vera Einar Hjörleifsson sjálfan, í vissum skilningi forfaðir ís- lenskra stjórnmálamanna. Af þessum sögulegu ástæðum er umrætt leikrit merkilegt, þótt svo þyki fleirum sem Hannesi i Byltingarsögunni að verkið sé engar stórbókmenntir. Fram til ársins 1878 höfðu islensk leikrit verið samin af menntaskólapilt- um eða mönnum nátengdum þeim, og ekki um aðra leiklistar- hefð að ræða í landinu en þessa stúdentsefnanna. Full- unnin verk voru fá til — enn

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.