Tíminn - 22.12.1992, Qupperneq 16
16 Tíminn
JÓLABLAÐ 1992
JóÍol/Iol&ol
225 gr smjör
225 gr Ijós púðursykur
4egg
Raspað hýði af einni sítrónu
250 gr hveiti
1 tsk. lyftiduft
1/2 tsk. kanill
1/2 tsk. negull
Örlítið salt
2 msk. sérrí eða romm
Fylling: 200 gr rúsínur, 200 gr
kúrennur, 60 gr smátt saxaðar
döðlur, 60 gr muldar möndlur, 60
gr söxuð kokkteilber, apríkósumar-
melaði og 300 gr marsipan.
Byrjið á að setja fyllinguna í skál
og hella sérríinu eða romminu yfir.
Látið bíða í 2 klst. Smjör og sykur
hrært vel saman. Eggjunum bætt í,
einu í senn, og hrært vel á milli. Si-
trónuraspinu, hveitinu, lyftiduft-
inu, kanilnum og negulnum bætt
út í hræruna ásamt fyllingunni.
Sett í vel smurt kringlótt, lausbotna
form ca. 24 sm. Kakan bökuð í 1
1/4 - 1 1/2 tíma við 160-175“. Látið
kökuna kólna. Smyrjið kökuna að
utan og ofan með apríkósusultunni.
Marsipanið flatt út (á milli pappírs
eöa plasts). Skerið undan diski
stærð kökunnar og leggið ofan á
kökuna. Þar næst fletjum við út
Iengju eins og þykkt kökunnar og
setjum utan á kökuna. Skreyta má
kökuna með rauðum kokkteilberj-
um eða hnetum. Kakan er mjög
drjúg og það má frysta hana.
dDöfeutn télagömönnum
borurn, ötarfðl'iöi og
lanbömönnum öUum
#ltíjilcgra 3Tóla
og farsælö feomanbi árö
mrö þökfe ftrir þaö,
öcmeraö liöa
I
Kaupfélag Húnvetninga
Blönduósi -
Sann&öffloð
Jóíaterta
250 gr smjör
250 gr sykur
4 egg
125 gr hveitl
125 gr kartöflumjöl
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanillusykur
Smjör og sykur hrært létt og Ijóst.
Eggjunum bætt út í einu í senn,
hrært vel á milli. Blandað saman
hveiti, kartöflumjöli, vanillusykri
og lyftidufti. Þessu bætt út í eggja-
hræruna. Bakaðir 5-6 þunnir botn-
ar í lausbotnamótum. Botnarnir
settir saman með góðri sultu, t.d.
apríkósusultu. Kakan sett á fallegan
disk. Ca. 50 gr af súkkulaði brætt í
vatnsbaði og smurt yfir efsta botn
kökunnar. Skreytt með hnetum
og/eða rauðum kokkteilberjum
með stilk, ef þau fást. Marsipan flatt
út, skorin lengja með kleinujárni,
ca. 5 cm breið eða hæð kökunnar,
og sett utan um kökuna þegar
súkkulaðið er storknað. Gott er að
hafa rjóma með kökunni, en þó al-
veg óþarfi.
BrouJnies
175 gr hveiti
200 gr súkkulaði
175 gr sykur
3 msk. vatn
125 gr smjör
1 tsk. vanillusykur
3egg
1 tsk. vanillusykur
125 gr gróft hakkaðar hnetur
75 gr súkkulaði til að smyrja yfír
kökuna.
Súkkulaði, sykur, vatn og smjör
brætt saman. Látið aðeins kólna.
Eggin hrærð út í. Vanillu, lyftidufti
og hnetum blandað saman við
hveitið og hrært saman við súkku-
laðihræruna. Sett í smurt form, ca.
26 cm x 18 sm. Bakað við 180° í ca.
30 mín. Látin kólna aðeins, skorin í
ferkantaða bita. Brætt súkkulaði
smurt yfir.
Jóður, ^amadda^s
„desert ájóda/n
1 kg epli
150 gr rasp
3 msk. smjör
4 msk. sykur
4 dl ijómi
Rifsberjahlaup
Skræld og smátt skorin eplin soð-
in í litlu vatni og hrærð í mauk.
Sykur og sítrónusafi settur í eftir
smekk.
Rasp, smjör og sykur sett á stóra
pönnu og brúnað við vægan hita.
Hrært stöðugt í — má ekki brenna.
Rjóminn þeyttur.
Sett í skál, fyrst lag af eplamauki,
þá rasp og rjómi til skiptis. Þykkt
lag af rjóma efst og skreytt með
rifsberjahlaupinu.
SörcL Bwnk'ardfe
dödar
20-25 möndlumakkarónukökur
Fylling:
150 gr suðusúkkulaði
1 msk. smjör
3/4 dl ijómi
200 gr hjúpsúkkulaði
Súkkulaðið brætt við vægan hita.
Smjör og rjómi látið sjóða saman
og hrært út í brædda súkkulaðið.
Látið kólna þar til það er orðið
þykkt og stíft. Setjið nú súkkulaði-
kremið á flötu hliðina á kökunum
og Iátið þær vera í kæliskáp í að
minnsta kosti 1 klst., svo þær séu
gegnkaldar áður en þær eru hjúp-
aðar með súkkulaði. Bræðið hjúp-
súkkulaðið við vægan hita og hjúp-
ið alveg yfir kremið á kökunum.
Geymist á köldum stað eða í frysti.