Tíminn - 22.12.1992, Side 23

Tíminn - 22.12.1992, Side 23
JÓLABLAÐ 1992 Tíminn 23 Jólagjafir Það er í miðjum nóvembermán- uði; þ.e.a.s. „aðeins“ rúmar fimm vikur til jóla. Og drengirnir eru farnir að búa til kommóður úr eld- spýtustokkum, sem þeir líma sam- an með hveitilími, til að gefa hver öðrum. Aðrir möguleikar eru glæru glossasteinarnir úr Hellis- fjörunni, sem skjóta neistum þeg- ar þeim er slegið saman. Og ekki má gleyma fuglunum, sem hægt er að tálga úr ýsubeini. Þar fyrir utan á Helgi fáeina eirpeninga; og Þorvarður einn fimmeyring. Pen- ingarnir voru alveg tilvaldir í sjó- og herskipaorustum. Frakkar á móti Þjóðverjum! Grímur fer með föður þeirra í fjárhúsið, og pabbi hans bregður upp skriðljósinu, svo að bjarminn fellur framan á jórtrandi snopp- urnar. Elsti bróðirinn á hrútshorn, sem hægt er að nota eins og lúður, og því hélt hann honum leyndum fyrir hinum tveimur, sem hugsan- lega jólagjöf. Jafnvel móðirin hlakkar óvenju- mikið til aðfangadagskvölds. Á sín- um tiltölulega fáu ánægjustund- um hefur henni oft orðið hugsað til litlu hlutanna, sem læstir voru niður í betri stofunni, þegar þau hjónin komu heim úr ferðinni til Seyðisfjarðar í sumar sem leið. Fyrir allt sem okkur er dýrmætt í Iífinu höfum við orðið, eða verð- um að borga. Frá því að sláturtíðin loksins var um garð gengin, hefur hún verið að keppast við að endurbæta og endurnýja vetrarklæðnað fjöl- skyldunnar. Það sem ríður á, er að hafa komið eins miklu í verk og mögulegt er, áður en byljirnir og frostharkan setjast að. íslensku leðurskóna, sem bóndi hennar og drengirnir eiga, svo og sokkana þeirra þarf alltaf að bæta og staga. Að öðrum kosti verður að gera nýja skó og prjóna nýja sokka. Auk þess hafði hún ákveðið að búa til bryddaða sauðskinnsskó handa öllum drengjunum fyrir jól. Vett- lingar Helga og Varða voru líka að verða útslitnir. En eins og stendur er hún að prjóna bónda sínum þykkan trefil; hann myndi vissu- lega þarfnast hans úti í vetrar- hörkunum. Vonandi tækist henni að ljúka tóvinnunni, sem brýnust nauðsyn bæri til, áður en hún byrjaði á jólabakstrinum. Að vísu verður hún að fara ákaflega spar- lega með mjöl og sykur og allt annað efni, er nota þarf við bakst- urinn. En jól eru aðeins einu sinni á ári. Og það yrðu a.m.k. að vera tólf brauð- og kökutegundir. Það var fastur vani. Því næst yrði að hreinsa til í öllu húsinu. Það var gefið óvenjuvel á jötuna seinni partinn þennan dag. Ásvaldur hefur hengt lugtina sína á nagla, sem stendur út úr einni stoðinni, og þeir feðgarnir njóta þess að horfa á ærnar, sem ákafar háma í sig ilmandi fjallaheyið. Síð- an er haldið til hesthússins. Brúnn heilsar þeim með vinalegu hneggi og sveigir hálsinn, þegar faðirinn skýtur lokunni frá hurðinni. „Heldurðu hann viti, að jólin eru að koma?“ spyr Grímur. „Já, að minnsta kosti, þegar þú réttir honum rúgbrauðsskorpuna og þegar hann finnur síldarbitana í moðinu sínu,“ svarar pabbi hans fjörlega. Loksins er kominn tími til þess að gefa kúnum og litla kálfinum í sameiginlegu fjósi tvíbýlinganna. Himinninn er skýjaður; en það er kyrrt í Iofti, og mjallhvítt snjólag- ið dregur úr skammdegismyrkr- inu. Inni í bænum brennur kolaeldur, og ofan á honum snarka rekaviðar- bútar. Indæl hangikjötsiykt bland- ast angan af laufabrauði. Á miðju gólfinu stendur þvottabalinn og búið er að sækja margar fötur af tæru vatni úr niðandi læknum úti og hita það á eldstónni. Allir verða drengirnir að vera tárhreinir, segir móðir þeirra, áður en þeir fara í jólafötin! Hún hefur látið Varða, sem fyrsta mann, fara ofan í bal- ann og er byrjuð að þvo honum. „Neil“ hrópar hann. „Það er allt of heitt, mamma!" Móðirin dýfir hendinni í vatnið. „Hvaða vitleysa!" segir hún og heldur áfram að skrúbba á honum bakið. „Er það ekki notalegt?" ,Jú —“ viðurkennir Þorvarður. „En nú hlýt ég samt að vera bú- inn!“ Þá kemur röðin að Helga. Og síð- ast stígur Grímur ofan í balann. Rúna er frammi á ganginum að ljúka við að þvo gólfið þar, öll hin er búið að hvítskúra. Á eftir fær hún heitt vatn í þvottaskál og fer inn í herbergiskytruna sína. Drengirnir fá eitt par af nýjum sokkum hver, hrein ullarnærföt og brydda sauðskinnsskó, sem hafa verið litaðir svartir. Loksins fara bæði pabbi og mamma að þvo sér og hafa fata- skipti. Jólin eru komin! Foreldrarnir talast við í lágum hljóðum og hverfa að svo búnu inn í hliðarherbergið og loka hurðinni vandlega á eftir sér. Allir bræðurnir, en þeim hefur verið sagt að bíða úti fyrir, finna það á sér, að eitthvað stórkostlegt er í aðsigi. Já, viðburður, sem eng- inn þeirra gleymir til æviloka. Þeim er gefið — ekki aðeins eitt- hvað nýtt til fata eins og venjulega, heldur regluleg leikföng, sem for- eldrar þeirra hafa keypt í búð í kaupstaðnum og komið með frá Seyðisfirði! Þegar dyrnar eru opn- aðar, opinberast dásemdirnar. Grímur fær dýrlegt barna-knatt- borð; Helgi skrautlegan tréhlut, sem reynist vera hljóðpípa; og Þor- varður gríðarmikinn, marglitan bolta, sem er límdur saman úr pappa. Auk þess gefur pabbi þeirra þeim þrjú jólakerti hverjum. Af kertum Varða er eitt blátt, eitt rautt og eitt hvítt. Af Helga kert- um eitt grænt, eitt blátt og eitt rautt. Og af kertum Gríms eitt rautt, eitt blátt og eitt gult. Ilmurinn af jólakertunum og fínu búðarleikföngunum gerir dreng- ina öra af hrifningu. Og ofan á allt þetta fá þeir sinn eldspýtustokkinn hver og mega kveikja eins oft og þeir vilja. Þeir fara allir ofan stig- ann með pabba sínum og fram í skúr með jólamatinn handa Hrekk; stærðarbein, með ofurlitlu kjöti á, og smá-mjólkursopa. Pabbi þeirra lætur loga á lugtinni sinni hjá Hrekk, meðan hann er að gæða sér á jólakræsingunum. Það á að vera bjart í hverjum krók og kima á aðfangadagskvöld, segir faðir þeirra. Eftir að þeir hafa allir klappað Hrekk og óskað honum gleðilegra jóla, fara feðgarnir smástund út að ganga. Það marrar hátt í saman- þjöppuðum snjónum fyrir framan húsið undan svörtu, útlendu stíg- vélunum hans pabba; og eilítið Iægra undan nýju, flötu sauð- skinnsskónum þeirra bræðra. Þeir nálgast sjávarbakkann; og faðirinn nemur eitt augnablik staðar og hlustar á öldusogið fyrir neðan; hann er með nýja trefilinn sinn um hálsinn. Drengirnir kveikja aftur og aftur á eldspýtunum og þeyta gullnum blossum út í nátt- myrkrið. Þeir ganga fram hjá gluggum Höskuldar og Helgu og Grétu Iitlu og sjá að logar glatt á steinolíu- lömpunum þeirra. Höskuldur er byrjaður að syngja jólasálm. Meðan á þessu stendur er hús- freyjan uppi á lofti ásamt vinnu- konunni, sem fengið hefur sápu og ísaumaðan vasaklút í jólagjöf. Þær eru farnar að leggja á borðið fín- asta borðbúnaðinn sem til er á heimilinu. Og um leið og móðirin gengur fram og aftur og augu hennar hvarfla að dýrlega knattborðinu, fallegu hljóðpípunni og stóra marglita boltanum, ljómar andlit- ið og hjartað er fullt af innilegri gleði og þakklæti. Þetta eru líka stærstu gjafirnar, sem henni hafa nokkurn tíma verið gefnar. Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Þökkum gott samstarf og viðskipti á liðnum árum Kaupfélag Langnesinga

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.