Fréttablaðið - 28.02.2009, Blaðsíða 45
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Þjóðgarðsvörður á Kirkjubæjarklaustri
Önnur verkefni þjóðgarðsvarðar eru:
• Umsjón með landvörslu og yfirstjórn landvarða.
• Að aðstoða svæðisráð við gerð tillögu að
verndaráætlun fyrir viðkomandi rekstrarsvæði.
• Að koma verndaráætlun þjóðgarðsins til
framkvæmda innan þess fjárhagsramma sem
viðkomandi rekstrarsvæði er ætlaður hverju sinni.
• Að hafa eftirlit með því að farið sé eftir ákvæðum
laga og reglugerðar um
Vatnajökulsþjóðgarð og að ákvæði verndaráætlunar
fyrir þjóðgarðinn séu virt.
• Fræðsla um náttúruvernd á sínu rekstrarsvæði og
um Vatnajökulsþjóðgarð.
Eftirfarandi kröfur um menntun, reynslu
og þekkingu eru hafðar til viðmiðunar við
val á umsækjendum:
• Háskólamenntun eða sambærileg menntun sem
nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur
• Mikil þekking á umhverfismálum og náttúruvernd.
• Reynsla af almennum rekstri og mannaforráðum
• Reynsla eða þekking á fræðslu til mismunandi hópa
• Góð íslensku- og enskukunnátta, frekari
tungumálakunnátta er kostur.
Eftirfarandi kröfur um hæfni eru hafðar til
viðmiðunar við val á umsækjendum:
• Tekur ákvarðanir og fylgir þeim eftir.
• Sýnir frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
• Er skipulagður og með ríka þjónustulund.
• Sýnir lipurð í mannlegum samskiptum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og
hlutaðeigandi stéttarfélags. Bæði konur og karlar eru hvött
til að sækja um starfið. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf 1. maí 2009.
Umsóknir um ofangreint starf skulu hafa borist
Vatnajökulsþjóðgarði, Klappastíg 25-27, 101
Reykjavík, eigi síðar en 16. mars nk.
Upplýsingar um starfið veita Elín Heiða Valsdóttir, formaður
svæðisráðs Vestursvæðis, elinhv@simnet.is og
Þórður H. Ólafsson, framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs,
thordur@vatnajokulsthjodgardur.is eða í síma 575 8400.
Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir starf þjóðgarðsvarðar á Kirkjubæjarklaustri laust til umsóknar.
Vatnajökulsþjóðgarður er ríkisstofnun, sem tók fyrr á þessu ári við rekstri landsvæða sem ná
alls yfir u.þ.b. 12.000 km2 og tilheyra Vatnajökulsþjóðgarði.
Vatnajökulsþjóðgarður skiptist í fjögur rekstrarsvæði: Norðursvæði, Austursvæði,
Suðursvæði og Vestursvæði. Starf þjóðgarðsvarðar á Kirkjubæjarklaustri tilheyrir Vestursvæði.
Á öllum rekstrarsvæðum starfa svæðisráð sem eru þjóðgarðsverði og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs til ráðgjafar
um málefni þjóðgarðsins á viðkomandi rekstrarsvæði. Svæðisráðin gera tillögu um ráðningu þjóðgarðsvarðar.
Næsti yfirmaður þjóðgarðsvarðar er framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs.
Þjóðgarðsvörður annast daglegan rekstur og stjórn Vestursvæðis í samráði við framkvæmdastjóra og ræður
starfsfólk á sínu svæði.
VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐUR
PO
RT
h
ön
nu
n
SÍMI 440 1000
WWW.N1.IS
N1 er leiðandi verslunar- og þjónustufyrirtæki á sviði bílatengdrar starfsemi fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ómar Jóhannsson, rekstrarstjóri þjónustustöðva, í síma 440 1021.
Áhugasamir sendi umsóknir á netfangið atvinna@N1.is fyrir 13. mars næstkomandi.
STÖÐVARSTJÓRI
N1 ÍSAFIRÐI
Hæfniskröfur:
Haldgóð menntun sem nýtist í starfi
Reynsla á sviði verslunar og stjórnunar
Rekstrarþekking
Almenn tölvukunnátta
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Leiðtogahæfni og samskiptalipurð
Jákvætt viðhorf og atorkusemi
Helstu verkefni:
Daglegur rekstur
Verkstjórn og eftirlit
Starfsmannamál
Innkaup og samskipti við birgja
Birgðastýring og kostnaðareftirlit
Önnur verkefni á stöðinni
N1 óskar eftir að ráða stöðvarstjóra til að annast daglegan rekstur og stjórnun
þjónustustöðvar N1 á Ísafirði.
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9,
110 Reykjavík, sími 530 4200
Vanur kranastjóri óskast á Demag AC kranabíl
sem verður í notkun á höfuðborgarsvæðinu.
Umsóknum skal skila um heimasíðu ÍAV,merkt
kranastjóri.
Umsóknum skal skila fyrir 7. mars n.k.
Upplýsingar veitir Stefán B. Guðjónsson í síma
660-8127.