Fréttablaðið - 28.02.2009, Blaðsíða 35
Velkomin í Garðyrkjufélag Íslands!
Skoðaðu kosti þess
að vera félagi Öflug heimasíða www.gardurinn.is
Frakkastíg 9 - 101 Reykjavík - Sími 552 7721 og 896 9922 - gardurinn@gardurinn.is
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/N
AT
4
40
74
1
0/
08
Gæludýrin
Nagdýr eru alltaf vinsæl hjá
krökkum. Kanínur og naggrísir
eru tilvalin gæludýr fyrir litla
krakka en þau minnstu ráða
ekki við kvikar hreyfingar
hamstra. Hamstrar eru
vinsælustu gæludýrin.
SÍÐA 3
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
fjölskyldan
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ]
febrúar 2009
H
anna, dóttir Aðalheiðar Atladóttur,
er tveggja ára og hætt að nota bleiu,
reyndar er langt síðan hún fór að
vera bleiulaus heima hjá sér. „Þegar
hún var fjögurra mánaða þá byrjaði
ég að setja hana á kopp, hélt henni
einfaldlega yfir koppnum og var
mikið með hana bleiulausa heima
á daginn,“ segir Aðalheiður. „Svo
þróaðist þetta og hún fór að ná að
gefa mér til kynna, svona oftast
nær hvort hún þyrfti að pissa. Ég
fór svona aðallega eftir minni til-
finningu og hvernig hún lét. Hún þróaði
fljótlega sínar tímasetningar og takt, pissaði
mikið á morgnana en ekkert eftir hádegi.“
Aðalheiður var heima með yngri dóttur
sína þangað til hún var fjórtán mánaða og
þegar pabbinn tók við þá hélt hann sama
striki, hafði hana bleiulausa heima en reynd-
ar notuðu þau bleiu á hana þegar haldið var
út.
Aðalheiður notaði tau- og pappírsbleiur
í bland. „Ég notaði oft gamlar og lélegar
bleiur heima, til þess að finna þegar hún var
blaut,“ segir Aðalheiður sem segir engan
galdur búa á bak við það að sleppa bleium
að mestu leyti. „Þetta er meira svona tilfinn-
ing, að vera opinn fyrir táknum, ryþma og
fleiru.“
Stefna um bleiuleysi
Ástæða þess að Aðalheiður fór þessa leið var
bók sem hún rakst á er hún átti von á dóttur
sinni, bókin heitir Diaper free eftir Ingrid
Bauer, og hún segir að hún hafi opnað þessa
leið fyrir sér. Lítið samfélag hefur mynd-
Á koppinn fjögurra mánaða
FRAMHALD Á SÍÐU 2
Foreldrar barna á bleiualdri velta
mikið vöngum yfir gæðum og
verði. Fleiri nota taubleiur
en áður að mati
þeirra sem til
þekkja Svo eru
þeir til sem sleppa
bleium alveg.