Fréttablaðið - 28.02.2009, Blaðsíða 66
38 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
A
llt frá því að SPES-samtökin
voru stofnuð árið 2000 hefur
Njörður P. Njarðvík, prófess-
or í íslenskum bókmenntum
við Háskóla Íslands, einbeitt
sér að því að hjálpa foreldralausum börn-
um í Tógó í Vestur-Afríku. Fyrsta barna-
þorp SPES í höfuðborg Tógó, Lomé, er nú
fullbyggt og er heimili fyrir 94 börn. Hinn
14. febrúar síðastliðinn var nýtt barnaþorp
í Kpalimé formlega vígt en borgin er í um
tveggja klukkutíma akstursfjarlægð frá
Lomé. „Bygging þorpsins hefur tekið rúm-
lega tvö ár og við höfum verið í miklu og
góðu sambandi við borgarstjórann í Kpal-
imé sem styður framtakið dyggilega, enda
mikil neyð í borginni eins og annars staðar í
Tógó þar sem fjöldinn allur af börnum lend-
ir á götunni sökum dauða eða veikinda for-
eldra.“ Nú eru fimm börn á nýja heimilinu
en þar munu rúmast tuttugu börn til þess að
byrja með, en SPES tekur við börnum um
og undir fimm ára aldri. Húsin í Kpalímé
eru, eins og barnaheimilið í Lomé, litrík og
fallega hönnuð af innfæddum arkitekt. „Við
stefnum svo á byggingu leikskóla í borginni
en þar er enginn slíkur. Markmið okkar er
ávallt að börnin gangi í almenna skóla og
blandi geði við önnur börn utan SPES-heim-
ilisins.“
Stuðningur við barnaskólann
Í þessari ferð hjónanna til Tógó voru þau
einnig viðstödd formlega afhendingu nýs
húss fyrir barnaskólann í Kélégougan en
hann sækja börnin frá SPES-heimilinu í
Lomé. „ Við gáfum skólanum tvö vegleg
hús með níu nýjum kennslustofum,“ útskýr-
ir Njörður sem segir að í bekkjunum séu
145 nemendur undir leiðsögn eins kennara.
„Nýju húsunum fylgdu þau tilmæli að ráð-
herra skólamála gerði sitt ýtrasta til þess að
fjölga kennurum við skólann svo að náms-
árangur batni. Hann lofaði því að þrír nýir
kennarar kæmi til starfa 2. mars og aðrir
þrír næsta haus og svo yrðu aldrei fleiri en
75 í hverjum bekk. Ég sagði honum að yfir-
völd í Tógó eyddu of miklum fjármunum í
herinn en ekki nægilegum til menntamála,
en auðvitað er menntun þessara barna lyk-
illinn að velfarnaði þjóðarinnar. Með því að
virða menningu barnanna, ráða heimafólk
til starfa í þorpinu og senda þau í hverfis-
skólann vonumst við til þess að þau í kjöl-
farið verði nýtir þegnar þessa lands,“ segir
Njörður. Nú í febrúar var ræðisskrifstofa
Íslands í Tógó formlega vígð en fyrsti ræðis-
maður okkar þar í landi er Claude Gbedey
sem hefur stutt starfsemi SPES þar í landi
dyggilega.
Styrktarforeldrum hefur ekki fækkað vegna
kreppunnar
SPES-samtökin byggja starfsemi sína á fjár-
magni sem fæst í gegnum styrki og styrkt-
arforeldra barnanna á Íslandi, í Frakklandi
og í Belgíu en það kostar 77 evrur að sjá
einu barni fyrir öllum helstu nauðsynjum
á mánuði. Á krepputímum hefur styrktar-
foreldrum ekki fækkað en erfiðara reynist
að finna nýja. „Við höfum líka hvatt til þess
að fleiri en einn aðili taki að sér að styrkja
eitt barn, til dæmis tveir fjölskyldumeðlim-
ir eða samtök þar sem þetta er dálítið dýrt.
En mikilvægt er samt að börnin finni teng-
ingu við sinn styrktaraðila og það eru oft-
ast þó nokkur samskipti milli barnanna og
styrktarforeldranna. Í sumum tilfellum geta
styrktarforeldrar komið og heimsótt börn-
in á barnaheimilið eða þá skipst á bréfum,
ljósmyndum og pökkum.“ Þreifingar hafa
verið um að stofna fleiri barnaþorp í öðrum
Afríkulöndum en Njörður vill fara varlega í
sakirnar og einbeita sér að Tógó. „Við verð-
um að gera þetta með fyllstu gát og fara
hægt í sakirnar. Við berum mikla ábyrgð á
öllum þessum börnum.“
Þeim sem vilja gerast styrktarforeldar
SPES eða styrkja samtökin á annan hátt er
bent á www.spes.is
Nýtt barnaþorp rís í Tógó
Dr. Njörður P. Njarðvík og eiginkona hans Bera Þórisdóttir hafa unnið mikið mannúðarstarf í lýðveldinu Tógó þar sem börn
lenda á götunni sökum örbirgðar og sjúkdóma. Anna Margrét Björnsson spjallaði við hjónin en þau eru nýkomin úr þriggja vikna
ferð til Afríku þar sem þau voru viðstödd opnun nýs barnaheimilis á vegum SPES-samtakanna.
NÝJA HÚSIÐ Tvö ár tók að reisa barnaheimilið nýja.
Nú eru fimm börn þar en verða tuttugu er fram í
sækir.
BÖRNIN FAGNA SPES-samtökin gáfu skólanum í
Kélégougan tvær nýjar byggingar nú í febrúar en
þar eru yfir hundrað nemendur í hverjum bekk.
RÆÐISMAÐUR ÍSLANDS Hér sést Claude Gbedey,
ræðismaður Íslands, taka formlega við ræðis-
mennsku á skrifstofu sinni í Lomé.
NÝTT BARNAHEIMILI Glaðlegar byggingar barnaheimilisins í Kpalimé sem var vígt nú í febrúar. Á myndinni
sést Eyjólfur Guðmundsson læknir sem einnig var með í för.
NJÖRÐUR P. NJARÐVÍK OG BERA ÞÓRISDÓTTIR, EIGINKONA HANS Hér eru hjónin með Felix, styrktarbarni sínu á barnaheimilinu í Lomé, og félaga hans Olivier.