Fréttablaðið - 28.02.2009, Blaðsíða 61
HÁRGREIÐSLA OG GJAFAVÖRUR
,,Litla leyndarmálið í Starmýri”
Full búð af fallegum vörum fyrir heimilið.
EVITA
EVÍTA – hárgreiðsla og gjafavörur - Starmýri 2 – 108 Reykjavík – s. 553 1900 – www.evita.is
Mikið úrval af fallegum lömpum, einnig ljósakrónur,
lugtir, kerti, klukkur, glervörur og margt fl eira.
Gott verð. Sjón er sögu ríkari.
Sýnishorn, myndir og verð á heimasíðu.
Verið velkomin
Lára og Eva
Öll hárþjónusta
Dæmi úr verðskrá virka daga:
Klipping 2.900 kr.
Blástur frá 2.200 kr.
Lagning frá 1.700 kr.
Permanent frá 5.500 kr.
Álstrípur frá 5.800 kr.
Fermingargreiðslur samkvæmt pöntunum
Á
lft
am
ýr
iKr
in
gl
um
ýr
ab
ra
ut
H
áaleitisbraut
Miklabraut
StarmýriH
amstrarnir eru alltaf
vinsælastir og það hefur
ekkert breyst. Naggrís-
irnir eru ekki jafn vin-
sælir og þeir voru en á tímabili
voru þeir alltaf uppseldir. Nú eru
kanínurnar vinsælli en naggrís-
irnir,“ útskýrir Bylgja Haralds-
dóttir starfsmaður í gæludýra-
versluninni Dýralandi.
Hún telur að þar spili verðlagið
inn í en hamstrarnir eru ódýrastir
og minnsta umstangið í kringum
þá, þeir verði því oftar fyrir val-
inu hjá foreldrunum.
„Foreldrarnir velja hamstrana.
Þeir lifa í 2 til 3 ár en naggrísir
lifa í sjö ár svo það er meiri skuld-
binding. Krakkarnir eru yfirleitt
sáttir við hamstur sem fyrsta
gæludýr en þau sem eiga hamst-
ur fyrir vilja gjarnan fá kanínu.
Það er meira hægt að gera með
kanínuna, fara með hana út og
fleira meðan hamsturinn sefur
allan daginn og vakir á nóttunni.“
Bylgja segir eldri krakkana á aldr-
inum 10 til 14 ára frekar fá kan-
ínur en yngri börnin á aldrinum
fimm til tíu ára fá hamstur. Hún
segir hamsturinn þó ekki heppi-
legastan fyrir yngstu krakkana
þar sem þeir eru litlir og snögg-
ir og erfitt fyrir litlar hendur að
meðhöndla þá. - rat
Hamsturinn
alltaf vinsæll
Nagdýr hafa alltaf verið vinsæl sem gæludýr yngsta fólks-
ins. Hamstrar, naggrísir og kanínur njóta yfirburða vin-
sælda hjá yngri fjölskyldumeðlimum.
Skemmtilegt gæludýr Líf Kjartansdóttir með naggrís en þeir geta lifað í 7 ár
og eru því meiri skuldbinding en hamstur sem lifir í tvö til þrjú ár og heldur
stöðugum vinsældum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kanínur Sívinsæl gæludýr.
FJÓLA OG FJÖLSKYLDA Fjóla og fjölskylda hennar lifa
hamingjusömu lífi þar til mamma Rós og Fífill pabbi ákveða að
slíta blómabandinu. Bókin Blómlegt fjölskyldulíf segir hvernig
Fjólu reiðir af höfundurinn er Huginn Þór Grétarsson.
SKREYTUM HÚS Það er um að gera að skreyta þegar
barnaafmæli eru haldin. Skrautið getur verið af ýmsum
toga, litríkt pappírsskraut er líflegt og fallegt, blöðrur eru
klassískar og prýðileg leikföng í afmælið um leið.
fjölskyldan 3