Tíminn - 22.01.1993, Síða 5

Tíminn - 22.01.1993, Síða 5
Föstudagur 22. janúar 1993 Tíminn 5 SAGA KEFLAVIKUR 1766-1890 Bjaml Guðmarsson: Saga Keflavíkur Gert að fiski með gamla laginu á Hafnargötunni í Kefiavík 1912. Knudtzons- verslun I baksýn, síðar hús Ungmennafélagsins. 1766-1890. Keflavíkurbær 1992. 302 bls. í 1. kafla þessa 1. bindis af Sögu Keflavíkur lýsir höfundur næsta ná- grenni sögusviðsins og gerir grein fyrir viðfangsefni sínu með eftirfar- andi orðum: „Strangt til tekið fjallar þessi saga um þróun byggðar þar sem heitir Keflavík, og var þegar við kom- um til sögu, aðeins lítil kotjörð. Þessi jörð greindi sig þannig frá öðrum bú- jörðum, að þar var rekin verslun hluta úr ári. Hafði svo verið um langt árabil. En Keflavík var ekkert eyland þá fremur en nú og sagan teygir því vísast anga sína um Suðumesin, jafn- vel alla leið til Kaupmannahafnar. Það er því ekki úr vegi að skyggnast lítið eitt um nærsveitimar í upphafi sögunnar, gæta að áttunum, huga að fólki í amstri dagsins og landshögum almennt." Þessu næst leiðir höfúnd- ur lesandann upp á Háaleiti og bend- ir til átta, sýnir næsta nágrenni sögu- sviðsins, greinir frá helstu kostum þess og göllum og tekur síðan að gera grein fyrir bújörðinni Keflavík og rekur sögu hennar í aldanna rás í stuttu máli. Þar virðist hann þó fljót- lega hafa rekið sig á sama vegg og fleiri, sem kanna vilja sögu þessa landsvæðis á öldum áður: Heimilda- fæðin er mjög til trafala, þótt sagan sé mikil. Um það bil sem saga sú hefst, er rak- in er í þessari bók, var Keflavík ekki annað og meira en rýr kotjörð. En hún lá vel við sjósókn í sunnaverðan Faxaflóa og því settust kaupmenn þar að í upphafi fríhöndlunar. Var verslun f plássinu lífleg og um skeið höfðu Keflavíkurkaupmenn útibú f Reykja- vík. Sjórinn var það, sem allt byggðist á, og þegar vel aflaðist fjölgaði fólk- inu og margir töldu sýnilega þurra- búðarvistina á mölinni vænlegri en hokur og húsmennsku í yfirfullum sveitum. Hér segir gjörla frá fyrstu Keflavík- urkaupmönnum, frá fólkinu sem byggði upp þorpið á ofanverðri 18. öld og lengst af þeirri 19., lífi þess og kjörum, og skemmtilegir kaflar eru um verslunar- og sjávarhætti, auk þess sem glögg grein er gerð fyrir því sem helst gagntók hugi manna, svo sem deilum um netaveiðar. Skemmtilegir og fróðlegir kaflar eru um daglegt Iíf og viðurværi fólks, kryddaðir sögum af breyskum körl- um og konum og viðhorfi samfélags- ins til hrösunar þess og ævintýra. Undir lok sögunnar var þorpslífið komið í nokkuð fastar skorður, þétt- býlið var orðið fast í sessi og Keflvík- ingar teknir að mynda með sér félög um ýmisleg áhugamál. Þar fóru borg- arar og aðrir fyrirmenn í fararbroddi, en alþýða manna fylgdist með eftir föngum. Höfundur hefur lagt sig fram um að skrifa skemmtilega sögu og tekst það vel. Hann hefur kannað mikinn fjölda heimilda, sem hann nýtir á athyglis- verðan hátt, og tekst oft að varpa skýru ljósi á þá þætti, sem við viljum helst fá vitneskju um: hvers vegna þéttbýlið myndaðist íKeflavík, hvem- ig það byggðist og hvemig háttað var lífsbaráttu fólksins, sem þarna settist að. Stíllinn er einkar lipur og læsileg- ur, en verður þó á stöku stað full gáskamikill fyrir alvarlegt fræðirit. Bókin er prýdd miklum fjölda mynda, sem sumar hafa mikið heimildagildi, og allur frágangur er til fyrirmyndar, að því undanskildu að prentvillur em helsti margar. Fiskþvottur ! Keflavfk 1912. Duushús á miðri mynd. Miðpakkhúsið til vinstri. Myndin tekin 1912. Jón Þ. Þór Leikfélag eldri borgara í Risinu við Hverfisgötu: SÓLSETUR Leikfélag eldri borgara, Snúður og Snælda, sýnir um þessar mundir leikritið Sólsetur eftir Sól- veigu Traustadóttur í Risinu við Hverfisgötu. Bjami Ingvarsson leikstýrir. Sólsetur er nafn á elliheimilinu þar sem verkið gerist. Við fylgj- umst með opnun þess og sam- skiptum starfsfólks og heimilis- manna. Einnig kemur sjálfs- ánægður sýslumaður mikið við sögu ásamt konu sinni. Þetta er gamanleikrit með ástarbralli, framhjáhaldi og léttri kölkun. Húmorinn ein- kennist af kven- fyrirlitningu, blótsyrðum, spælingum og svo er ýjað að kyn- ferðislegum athöfnum. Slíkt bregst sjaldnast. Átta leikarar taka þátt í sýning- unni og eru það þau Þorsteinn Ól- afsson, Brynhildur Olgeirsdóttir, Sigrún Pétursdóttir, Anna TVyggvadóttir, Ársæll Pálsson, Ið- unn Geirdal, Sigurbjörg Sveins- dóttir og Sveinn Sæmundsson. Það örlaði á dálítilli taugaspennu í upphafi sýningar en þegar á leið, náðu leikarar sér ágætlega á strik. Að öðrum ólöstuðum þótti mér Ársæll Pálsson í hlutverki róttæk- lingsins Kristins einna bestur. Hlutverk hans er líka skemmtilegt og honum tókst fljótt að vinna mann á sitt band. Sömuleiðis átti Sigurbjörg Sveinsdóttir góða spretti sem Hildur. Mér fannst slæmt að sjá hvað leikararnir gátu verið aðgerðalitlir á sviðinu meðan einhverjir tveir áttu í samræðum. Þeir fengu kannski að skjóta inn einni setn- ingu en stóðu bara kyrrir í fæturna og gerðu ekkert í lengri tíma. Slíkt jók oft á taugatitring leikara og í eitt skipti veitti ég því athygli að einn þeirra mímaði með þeim sem orðið hafði. Leikstjóri hefði átt að taka fyrir þetta athafnaleysi. Ljósahönnun var í höndum Kára Gíslasonar og var vel úr garði gerð. Búninga sá leikhópur- inn um og eru þeir jafnframt til prýði. Leikmyndin er eðlileg en hana hannaði Bjarni leikstjóri og smíðaði sjálfur. Þótt Sólsetur sé vissulega gaman- leikrit er ekki eintómt grín þar á ferðinni því það fjallar líka um al- varleg mál svo sem eins og það hvort „viðeigandi" sé að verða ást- fanginn og gifta sig á gamals aldri. Efniviðurinn höfðar þó til allra aldurshópa og var ekki annað að heyra en áhorfendur skemmtu sér ágætlega. —Gerður Kristný. Úr sýningu Leikfélags eldri borgara á Sólsetri. Ásgeir Hannes: Föstu- dags- pistill PRÍVATSTÓRIÐJA Ólafur Ó. Johnson heitir for- stjóri Ó. Johnson og Kaaber hf. ( Reykjavik. Hann er kom- inn af stórri fjölskyldu duglegs athafnafólks. Ólafur las á sln- um tfma við skóla I Bandaríkj- unum og ræktaöi þar seinna traust viðskiptasambönd. En því er Ólafur nefndur til sög- unnar að kunningjar hans ytra virðast ætla að nýtast vel Is- lenskri þjóð um þessar mund- ir. Islendingar hafa oft lent I vandræðum I svokölluöum stóriðjumálum og er þar ekkl við neinn sérstakan að sakast. Oftar en ekki hefur það verið kappsmál landans að láta rlk- issjóð eiga dágóðan hlut I verksmiðjunum og skipa menn I stjórnir og ráð. Fyrir bragðið fær ríkiskassinn áfall I hvert skipti sem harðnar á dalnum hjá einhverri verksmiðjunni. Islenska rikið á ekki að vas- ast I verksmiðjurekstri frekar en verslunarrekstri. Ef útlend- ingar vilja reisa verksmiðjur hér á landi, á rlkið að greiða götu þeirra til að hrinda verk- inu I framkvæmd og búið. Þaö er stopul krónuvon að treysta á arð utan úr heimi, sem hægt er að breyta I tap á svipstundu með einni færslu I bókhaldi eða hækkun I hafi. Raunverulegur ábati þjóðar- búsins er ekki fólginn I að klippa arömiða frá öðrum löndum, heldur að fá lifandi starfsemi inn fyrir lögsöguna. Láta útlendingana um að bera ábyrgðina og taka áhættuna. Islendingar eiga að láta sér nægja að hirða skatta og önn- ur gjöld af rekstrinum. Skapa landsmönnum atvinnu og selja verksmiðjunni vörur og þjón- ustu. Lofa útlendingunum að græða peninga ef þeir geta. Til skamms tlma vonuðu menn að álver mundi rísa á Reykjanesi næstu árin og hefði það orðið búhnykkur fýrir Suðumesjamenn og þjóðina alla. En þvl miður hljóp snurða á þráðinn og málið var lagt í salt. Nú berast þær fréttir að Svisslandsál dragi saman seglin og loki hverju álveri sinu á fætur öðru. Ekki er lengur spurt hvort álverið I Straumsvík verðí stækkað, heldur hvenær þvi verði lokað. En mitt I þessu umkomuleysi hnippir (slenskur kaupmaður I félaga sinn bandarfskan og bendir honum á að reisa slípi- efnaverksmiðju á Grundar- tanga. Félaginn brást vel við og nú er sjálfur iðnaðarráð- herra á leið vestur um haf til skrafs og ráðagerða. Þá kom- um við að boðskap þessa pist- ils: Skólanámið er bæði gott og gilt og daglega nær fólk sjálf- sagt að láta bókvitiö I askana. En þar með er ekki öll sagan sögð. Við námið vex ungt fólk úr grasi með jafnöldrum slnum úr öðrum áttum og oft endast þau kynni á meðan báðir lifa. Þau eru ekki slður mikilvæg en sjálft bóknámið, þegar upp er staðið. Á sama hátt binst fólk böndum I viðskiptum. Einn góðan veðurdag getur kunningsskapur af þessu tagi borið af sér góðan ávöxt. Hvort sem er innanlands eða á milli tanda. Það verðurfróð- legt og spennandi að fylgjasí með framvindu þessa nýja stóriðjumáls. Vonandi verður niðurstaðan sú að við tossarn- ir úr skóla getum vel við unað.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.