Tíminn - 25.02.1993, Side 1
Fimmtudagur
25. febrúar 1993
38. tbl. 77. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Veikt fólk er farið að neita sér um lyf og læknisþjónustu. Hörð gagnrýni stjórnarandstöðu á
stefnu ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum. Davíð Oddsson:
Sighvatur er vaskur
og á heiður skilinn
í umræðum um heilbrigðismál á Alþingi, sem fram fóru í gær að
friimkvæði stjórnarandstöðunnar, kom fram að þess eru dæmi að
fólk hafi hætt við að kaupa lyf eða nýta sér læknisþjónustu vegna
þess hvað þjónustan er orðin dýr. Nefnt var dæmi um foreldra sem
hættu við að láta setja rör í eyru barna sinna sem þjást af eyma-
bólgu. í umræðunum kom fram að lyfjakostnaður jókst um 10,5%
á síðasta ári, en það er í andstöðu við yfirlýsingar heilbrigðisráð-
herra um lyfjakostnað.
Ingibjörg Pálmadóttir (Frfl.) sagði
um tal stjómvalda um nauðsyn þess
að auka kostnaðarvitund sjúklinga:
„Ég gef lítið fyrir kostnaðarvitund
hjartasjúklinga og krabbameins-
sjúklinga". Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir (Kvl.) sagði varasamt að yfir-
færa hugtök markaðsfræðinnar á
heilbrigðiskerfið, en forsætisráð-
herra talaði einmitt um að stjóm-
völd vilji leita markaðslegra lausna.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
lýsti stuðningi við heilbrigðisráð-
herra og sagði að hann hafi gengið
vasklega fram. Hann eigi heiður
skilið en ekki árásir í líkingu við þær
sem hann hefur mátt þola. Davíð
sagði að haldið yrði áfram óbreyttri
stefnu í heilbrigðismálum. Hann
sagði heilbrigðisráðherra vinna með
hagsmuni ríkissjóðs og sjúklinga í
huga.
Margrét Frímannsdóttir (Alb.)
sagði að það geti verið rétt að heil-
brigðisráðherra hafi tekist að spara
eitthvað á sjúkrahúsunum í Reykja-
vík. Það hafi hins vegar verið gert
með því að fresta kaupum á tækja-
búnaði, fresta nauðsynlegu viðhaldi
og lokunum deilda. —EÓ
Sjá blaðsíðu 2
Hörð viðbrögð við þeirri ákvörðun stjórnar
Herjólfs að segja upp undirmönnum. „Fá-
ránlegt," segir forseti ASÍ. Stjómarform.
Herjólfs:
Uppsagnir eru
aðfrum-
kvæði VSI
„Þessi aðgerð er framkvæmd í
fullu samráði við Vmnuveitenda-
sambandið. Þeir mátu þetta hreint
og klárt og lögðu það reyndar til
að þetta væri það sem bæri að gera
í stöðunni. Þannig að þetta er ekki
ákvörðun sem tekin er í einhveij-
um flýti. Hún var tekin fyrir síð-
ustu helgi og búið að tilkynna
fólkinu það og jafnframt að henni
yrði ekki framfylgt ef að eitthvað
breyttist í þá veru að menn færu
að talast við. Það eina sem við
höfum farið fram á eru viðræður
en það virðist vera of stór biti til
að kyngja," segir Grímur Gísla-
son, stjómarformaður Herjólfs.
Hörð viðbrögð hafa komið fram
við þeirri ákvörðun stjómar Her-
jólfs að segja upp undirmönnum á
ferjunni sem em í Sjómannafélag-
inu Jötni í Vestmannaeyjum með
samingsbundnum uppsagnar-
fresti. En eins og kunnugt er þá
eru það stýrimenn á ferjunni sem
eru í verkfalli en þeir fara fram á
30%-35% launahækkun sam-
kvæmt upplýsingum frá fram-
kvæmdastjóra Stýrimannafélags-
ins.
Elías Bjömsson, fomaður Sjó-
mannafélagsins Jötuns í Eyjum,
segir þessi vinnubrögð vera ólíð-
andi og hafi komið á óvart.
Benedikt Davíðsson, forseti Al-
þýðusambands íslands, segir að
þetta sé fáránleg framkvæmd í
vinnudeilu og trúlega einsdæmi.
Hann segist ekki minnast þess að
svona lagað hafi gerst áður.
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands, tekur
undir skoðun forseta ASÍ og telur
að þessi gjörningur muni aðeins
herða enn frekar á þeim hnút sem
deilan var þegar komin í. í harð-
orðri ályktun samninganefndar
Sjómannasambandsins, em þessi
vinnubrögð fordæmd og jafnframt
skorar nefndin á stjóm Herjólfs að
endurskoða afstöðu sína í málinu
enda sé verið að gera undirmenn
að blórabögglum í kjaradeilu
stjómar Herjólfs og stýrimanna.
Guðlaugur Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Stýrimannafélags
íslands, segist vera alveg undrandi
á þessu.
„Við fordæmum svona vinnu-
brögð og ég bara trúi því ekki að
VSÍ hafi ráðlagt stjóm Herjólfs að
gera þetta.“
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari sagði í gær að deilan
virtist nær óleysanleg og nánast
stál í stál. Þá hafði ekki verið boðað
til nýs sáttafundar eftir þá nýju
stöðu sem komin er upp í deilunni
með uppsögnum undirmanna,
sem em 12 með afleysingarmönn-
um.
Herjólfur hefur nú verið bundinn
við bryggju í 3 vikur og er verkfall
stýrimanna þegar farið að hafa víð-
tæk áhrif á bæjarlífið. í gær var
varið að gæta mjólkurskorts í Eyj-
um og óttast menn að vömverð
kunni að hækka ef deilan leysist
ekki von bráðar. Þá hefur verið
boðað til borgarafundar í Eyjum
um verkfallið. -grh
Tveir slösuðust í
hörðum árekstri
Tveir ökumenn slösuðust nokkuð í sinni í hálku sem rann í veg fyrir
hörðum árekstri þriggja bifreiða í tvær bifreiðar sem komu úr gagn-
Átúnsbrekku í Rcykjavík í gær- stæðri átt. Tvær bifreiðanna
morgun. skemmdust mikið og ökumenn
Áreksturinn varð með þeim hætti þeirra vom fluttir á slysadeild.
að ökumaður missti stjóm á bifreið -HÞ
Tóbaksvarnanefnd óttast
ad afnám einkasölu rikis-
ins af tóbakssölu muni
ieiða til verðlækkunar á
tóbaki. Heigi Guðbergs-
son iæknir;
„Það er ákveðinn hópur sem
hefur lagt kapp á að einkavæða
áfengis- og tóbakssöluna eins og
allt annað. En við segjum að
tóbak sé fíkniefni og við getum
ekki séð að lögmál um frjálsa
verslun gildi um slik efni þótt
það geti átt við um aðrar neyslu-
vörur. Út af fyrir sig er ég sam-
mála því að verslun eigi að vera
frjáls en ekk) verslun með fflcni-
efni. Við skulum hafa það hug-
fast að á hverju ári deyja 300 fs-
lendingar af völdum tóbaksreyk-
Inga,“ segir Helgi Guðbergsson
læknir og fulltrúi í Tóbaksvama-
nefnd.
Von bráðar mun ríkisstjómin
leggja fyrir Aiþingi frumvarp til
laga um afnám einkasölu ríkis-
ins á tóbaki. Verði frumvarpið
samþykkt er gert ráð fyrir að
þessi breyting tald gildi um mitt
sumar. Samkvæmt frumvarpinu
mun ríkissjóður halda óskertum
tekjum þrátt fyrir þessa breyt-
ingu því gert er ráð fyrir sér-
stöku tóbaksgjaldi. Jafnframt
mun hluti þess gjalds renna tð
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þar
sem fyrirsjáanlegt er að hagnað-
ur ÁTVR munl eitthvað minnka
og sömuleiðls iandsútsvarið.
Helgi segist ennfremur óttast
að boðuð einkavæðing muni
verða til þess að verð á tóbaki
muni lækka í framtíðinni með
aukltttt) samkeppni þótt verðið
kunni sennilega eitthvað að
hækka í byijun.
JÞað er viðbúið að þeim muni
fjölga sem hagsmuni eiga að
gæta varðandi sölu á tóbaki og
hætta á að tóbakstegundum
muni fjölga á markaðnum og
einnig að fluttar verði inn ódýr-
ari tegundir.“
Helgi segir að virkasta vömin
gegn neyslu tóbaks sé hátt verð
og það sé pyngjan sem ráði
miklu um það að reykingamenn
hætti að reykja og hafl ennfrem-
ur miki! áhrif á það hvort ung-
lingar byrji að reykja eða ekki.
Á sama tíma og ríkisstjómin
hyggst einkavæða söiu á tóbaki,
hefur í tvö ár verið tilbúið frum-
varp um tóbaksvamir.
„Okkur finnst það skjóta dálít-
ið skökku við að allt í einu hafa
menn mikinn áhuga að gefa
þetta fijálst, en lítinn áhuga á
því að bæta tókbaksvaraalögin
og reyna að styrkja þá iöggjöf og
hamla gegn þvi að ungt íólk fari
að nota tóbak.“ -gri»