Tíminn - 25.02.1993, Page 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 25. febrúar 1993
Tíminn
MÁLSVARI FRJÁLSLYNPIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Tíminn hf.
Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson
Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm.
Aóstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson
Stefán Ásgrimsson
Auglýsingastjóri: Steingrfmur Glslason
Skrifstofur: Lynghálsi 9,110 Reykjavfk Síml: 686300.
Auglýsingasíml: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300,
ritstjóm, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setnlng og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Oddi hf.
Mánaöaráskrift kr. 1200,- , verð i lausasölu kr. 110,-
Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Banvæn faðmlög?
Enn ein skoðanakönnun hefur verið birt, að
þessu sinni frá Félagsvísindastofnun um fylgi
stjórnmálaflokkanna. Það sem er athyglisvert við
þessa könnun er fylgishrun Alþýðuflokksins,
sem tapar samkvæmt henni helmingi þess fylgis
sem hann hafði við síðustu kosningar. Fylgi rík-
isstjórnarinnar er aðeins 24,6% og athyglisvert
er að aðeins helmingur svarenda, sem lýstu yfir
stuðningi við Alþýðuflokkinn, studdu ríkis-
stjórnina.
Þessi niðurstaða, sem sýnir andann í garð
stjórnarflokkanna þessa dagana, hlýtur að vera
krötum mikið áhyggjuefni. Forustumenn
flokksins hljóta að hugleiða það mjög vandlega
hvaða ástæða er fyrir svo hraklegri útkomu
flokksins.
Enn er nokkur hluti Alþýðuflokksmanna sem á
rætur í hugsjónum um jöfnuð og réttlæti. Það
þarf ekki mikla spámenn til að gera sér í hugar-
lund hvert svar fólks við spurningum félagsvís-
indadeildar hefur verið. Það kann að fara svo að
lokum að faðmlög Jafnaðarmannaflokks íslands,
eins og Alþýðuflokkurinn heitir nú, við Sjálf-
stæðisflokkinn verði banvæn.
Það er við erfiðleika að etja í þjóðfélaginu og að-
gerða þörf. Það skiptir þá mestu máli þegar ráð-
ist er í aðgerðir að þær séu réttlátar. Þegar talað
er um réttlæti er átt við að tekið sé tillit til þeirra
sem minna mega sín, en byrðar lagðar á þá sem
betur eru staddir. Jöfnuður er í þessu fólginn.
Þessu er ekki til að dreifa í ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar. Aðgerðir koma við alla þjóðfélags-
hópa. Þjónustugjöld í heilbrigðiskerfinu, lækk-
un persónuafsláttar, hækkun vaxta í félagslega
kerfmu og lækkun tryggingabóta eru ekki í anda
jafnaðarmenn^ku, né hraðvaxandi atvinnuleysi.
Margt bendir til að nú sé að renna upp ljós fyrir
stuðningsmönnum Alþýðuflokksins — Jafnaðar-
mannaflokks íslands um hve gjörsamlega flokk-
urinn er genginn í björg frjálshyggjunnar.
Þegar Viðreisnartímabilinu lauk munaði
minnstu að Alþýðuflokkurinn þurrkaðist út af
þingi. Slíkt gæti endurtekið sig. Umræður um
ráðherrastóla og feit embætti auka ekki trú og
traust almennra flokksmanna á forustunni.
Það er staðreynd að atvinnuleysi heggur nú nær
fleiri flölskyldum á íslandi en nokkru sinni fyrr.
Fréttir berast af tekjulausu fólki, sem hefur ekki
efni á því að kaupa heilbrigðisþjónustu. Það er
ekki furða þótt það renni tvær grímur á íslenska
jafnaðarmenn, þá sem ekki hafa þegar gengið í
björg og eru til hægri við Sjálfstæðisflokkinn.
Það er athyglisvert að ekkert bendir til að for-
ustulið Alþýðuflokksins muni sjá að sér. Allir
ráðherrarnir og hjörð þeirra berja hausnum við
steininn og neita að viðurkenna staðreyndir:
ranglátar aðgerðir ríkisstjórnar sem verndar sér-
staklega þá sem betur mega sín.
Samkvæmt nýnri skodanakönn-
um sem Félagsvísindastofnun
H.í. hefur gert fyrir Morgun-
blaftiö, kemur f Ijós aö mikili
meirihJuU þjóöarinnar er and-
yfgur rfltísstjóminni á meðan
aðeins tæpur fjórftungur kjós-
enda styftur hana. Stjómarflokk-
amir tapa fylgi og Alþýöuflokk-
urinn er þegar efUr aöeins tvö
ár, kominn niftur fyrir þaö fyigi
sem hann haföi eftír 12 ára sam-
starf vift Sjálfstæftisflolddnn í
Viftreisn eða tæptega 7%. ólflc-
iegt er aö Alþýftuflokknum muni
ganga vel aft endurheimta þetta
fylgi og trúlega gæti það tekift
um 10-12 ár ef marka raá
reynsluna frá því síftast. Þar
meft hefur Aiþýftuflokkurinn
dæmt sig í póiitfska útiegft fram
yfir aldamót frá og meft þeim
degi sera núverandi ráðherrar
standa upp úr stóiunum. Raunar
hafa sumir verift aft gera því
skóna aft Alþýðuflokkurinn og
forustusveit hans ætti raeiri vin-
sældura að fagna í Malaví en hér
á íslandl, en slfltt keraur víst aft
litlu gagni.
Krötum að kenna
Eðiilega spyrja menn sig þeirr-
ar spumingar hvers vegna Al-
þýðuflokkurinn geldur óvin-
sælda ríkisstjórnarínnar f svo
raiklu ríkari raæli en sarastarfs-
flokkurinn sera þó fer raeð for-
ystu í rfkisstjóminni. Svarið
iiggur trúlega í því aft Sjálfstæft-
isflokkurinn og forsætisráft-
herra hafa Íátið ráðherrum Al-
þýftuflokksins, einkum Sighvati
Björgvinssyni, þaö eftir aö vinna
skftverkin fyrir rfldsstjómina en
sjálflr staftiö til hiés. Þannig
hefur td. forsætisráðherra eHd
hikað vift aft svetja af sér vinnu-
brögft kratanna opinberiega fshr.
Sögufundinn fræga) ef gagnrýn-
israddir gerast háværar, og flár-
málaráftherra hefúr látíð eins og
niðurskurfturinn í heilbrigöís-
málum sé sér óviðkomandi.
Sighvatur heilbrigðisráðhem
var einmitt spurður að því í við-
tali sera birtíst f Tfraanum fyrir
skörarau hvort honum þætti
sjálfstæðisraenn í rfltíssflóm
styðja sig nægjanlcga í þeim að-
gerðum sem hann stæðí í og
Skoðanakönnun Félagsvfsinda-
stofnunar staðfestír einmitt
þessa ímynd rikisstjómarinnar.
þ.e. að það eru kratamir, með
Sighvat f fararbroddi sem f aug-
um kjósenda bera fyrst og
fremst ábyrgft á óvinsælum
ákvörftunum og svokölluðum
aðgerðum ríkisstjómarinnar.
Örlög smala-
hundsins
Þaö grátbroslega við þctta
ástanð alit, er það hversu fast
hann þá aft svo væri.
Fróftlegt væri að vita hvort hann
er enn sömu skoðunar.
Allur þessi stuðnlngur samróð-
herra Sighvats hjýtur að koma
fram inni f lokuðum herijcrgj-
um, e.t.v. á rfldssflómarfund-
um, því Garri man ekki eftír
öðru en Sighvatur haf! staðið
einn og óstuddur í sinni baráttu
og þeir sem Garri spuröi um
þetta raundu ekki eftir því að
aðrir ráðherrar hafl teldft upp
hanskann fyrir heflbrigftisráft-
herra á opinberum vettvangi,
nema þá helst alþýftuflolisráft-
herramir.
ast í þessa aftstöftu, aft sifla f
sflóm raeft Sjálfstæðisflokki.
Öll vfti eru með einhverjum
hætti sjálfskaparvíti og þaö að
Aiþýðuflokkurinn er nú í hlut-
verki smalahunds Sjálfstæðis-
flokksins, hunds sem eltir uppi
krónumar og aurana hjá ad-
mennu launafólki og sraælingj-
ura þjóðfélagsins á raeftan aftrir
eru látnir í frifti. Þetta er í raun
sú aftstaöa sera flokkurinn kaus
að koraast í. Á meftan hafa hús-
bændumir f Sjálfstæftisflokki
það náftugt, enda gelta katamir
samviskusamlega þegar þeim er
sigaft. „Urrdan bítlan“ segja
sjálfstæðismenn og benda kröt-
ura á heilbrigðis- og vclferftar-
kerflö. En þegar keraur aft
skuldadögura er þaft ekld sá sera
sigafti, húsbóndinn, sem svarar
tfl saka, heldur sá sera geltí
Hagræðing í
1 í kam sr æktinni
Gufubaðsframkvæmdunum í
fjármálaráðuneytinu miðar vel
að því er Tíminn upplýsti í gær.
Verið er að slá upp fyrir sturtu-
klefum og búið að velja gólfefnin
í líkamsræktarsalinn. Góðar von-
ir standa til að hægt verði að
ljúka kropparæktartöðinni í
valdatíð núverandi ríkisstjórnar,
en hún er ætluð embættismönn-
um og starfsfólki fjármálaráðu-
neytis.
Vaskhús ráðuneytisins er í nýju
byggingunni við Ingólfsstræti en
beint á móti er Seðlabankinn í
öllu sínu veldi, heldur dimmleit-
ur á að sjá. Hamraborgin hýsir
einnig Þjóðhagsstofnun og eru
innvígðir í hana því heldur spá-
mannlega vaxnir og fara hag-
deildirnar létt með að segja fyrir
um sveiflur efnahagslífsins langt
fram í tímann og má mikið vera
ef einhver þeirra spádóma á ekki
eftir að ganga eftir.
Trúlega eru einir 15 metrar á
milli leikfimisala og baðhúsa
Seðlabankans og þeirrar íþrótta-
og hreinlætisaðstöðu sem verið
er að koma upp fyrir fjármála-
ráðuneytið. En af því að Seðla-
bankinn er talinn vera við Kalk-
ofnsveg og fjármálaráðuneytið í
Arnarhváli og Sölvhólsgötu, hafa
skipuleggjendur vaskhúsa og
hreystitækjasala ekki áttað sig á
nálægðinni, enda skilur blað
bakka og egg.
Léleg nýting
Haft er fyrir satt að góð nýting
sé á hreystileikjasal og ágætri
baðaðstöðu Þjóðhagsstofnunar
og Seðlabanka, enda starfar mik-
ill mannfjöldi í húsinu og er allt
það fólk vel á sig komið og hrein-
legar manneskjur.
En hvort nýtingarhlutfall miðað
við rúmmetra og tilkostnað við
ræktunarstöðina er eins og hag-
kvæmnistuðlar segja til um, er
annað mál. Aðstaðan er opin
tvær klukkustundir hvern vinnu-
Gufubaðsframkvæmdum
miðar vel í ráöuneyti
3*1UWV6««t»>aTwía
dag, eða tíu tíma á viku.
Hvort nýtingin verður betri á
hreystiverkstæði fjármálaráðu-
neytisins á eftir að koma í Ijós.
Þær stofnanir sem búa svona vel
að embættismönnum sínum eru
Vitt ofl bieitt
óþreytandi að boða öðrum hag-
kvæmni og samdrátt og að sam-
eina þetta og hitt í hagræðingar-
skyni. Nú er spurning hvort ekki
væri eðlileg hagræðing að nýta
líkamsrækt Seðlabankans betur
en gert er og veita embættis-
mönnum fjármálaráðuneytisins
aðgang að gufuböðum og
hreystileikjasal. Tíminn sem fer í
að rölta á milli góðbúanna er tal-
in í sekúndum, og það örfáum,
en ekki mínútum. Þótt bekkir
baða og róðrarvéla Seðlabankans
séu þéttsetnir í tvo tíma á dag,
mætti sem best lengja opnunar-
tímann og þá væri sem best hægt
að koma starfsfólki fjármálaráðu-
neytisins þar fyrir og allt eins
bæta emmbættismönnum
kirkjumálaráðhuneytisins og
sjávarútvegsráðuneytisins við.
Menntamálaráðuneytið er að
vísu einnig á næstu grösum, en
varla dugar minna en Laugar-
dalslaug til að baða þann mann-
grúa sem þar starfar samtímis.
Bætt nýtingar-
hlutfall
Þar sem öruggt má telja að marg-
nefndar stofnanir séu mun fúsari að
hagræða og draga saman hjá öðr-
um en sjálfum sér, mun ekki farið
að neinum skynsamlegum tillög-
um um sameiningu gufubaða og
Ieikjasala. Fjármálaráðuneytið mun
ljúka sínum hreinlætismannvirkj-
um samkvæmt áætlun og Seðla-
bankinn hafa sín lokuð í 22 tíma á
sólarhring.
En af því að fjármálaráðuneyti og
ráðgjafastofnanir ráðherranna eru
með hagræðingu og betri nýtingu
á heilanum, má vel hugsa sér að ná
betri hagkvæmni í rekstri baðhúsa
og líkamsræktarstöðva.
Seðlabankabaðið er eins og vænt-
anlegt þvottahús fjármálaráðu-
neytisins eign þjóðarinnar. Því er
ekkert nema sanngjamt að al-
menningur hafi aðgang að frábær-
um líkamsræktarstöðvum og bað-
aðstöðu sem standa að langmestu
ónotaðar og engum til gagns.
Til að mæta auknum kostnaði
mætti sem best selja aðgang eins
og að sundlaugum og baðhúsum
sveitarfélaganna. Ef embættis-
menn sætta sig ekki við að stunda
líkamsrækt og sánaböð með al-
múganum, gætu þeir haft sína tvo
tíma á dag fyrir sig eins og hingað
til.
Ef þetta þykir óviðunandi nýting
er allt eins hægt að nýta aðstöðuna
fyrir afmarkaða hópa, svo sem aldr-
aða sem sárvantar aðstöðu til lík-
amsræktar og svo eru alls kyns
hópar aðrir sem eru heftir að einu
eða öðru sem mundu verða mjög
þakklátir fyrir að fá aðgang að
vönduðum líkamsræktarstöðvum.
Það er hin mesta fjarstæða að
halda að bygging gufubaða og lík-
amsræktarstöðva í opinberum
byggingum sé óhóf. Það þarf aðeins
að nýta aðstöðuna betur en nú er
gert og leyfa hinum eiginlegu eig-
endum hinna ýmsu stofnana vel að
njóta. OÓ