Tíminn - 25.02.1993, Page 7

Tíminn - 25.02.1993, Page 7
Fimmtudagur 25. febrúar 1993 Tíminn 7 Öskudag- urmeð glensi og gamani í gær, öskudag, var frí í skólum landsins. Skólakrakkar gáfu sér þó ekkert frí og margir tóku daginn snemma og gengu grímuklæddir í margvíslegum gervum í hús og fyr- irtæki og sungu fyrir fólk og þágu góðgerðir að launum. Þá voru skemmtanir í skólum, félagsmið- stöðvum og útisvæðum víða um landið þar sem kötturinn var sleg- inn úr tunnunni. Við birtum hér myndir af öskudagsbúnum krökk- um bæði í Reykjavík og á Akureyri. Byggingavöruverslunin Skafti á Akureyrí var vinsæli við- komustaöur hjá grímubúnum krökkum á Akureyri í gær, enda var tekið vel á móti þeim þar. Tímamyndlr K.B.Þ. öskudaginn, m.a. þeir Olli og Hópar krakka úr Arbæjarskóla heimsótti fyrírtæki í Hálsahverfi í Gunni, starfsmenn Landfiutn- Reykjavík, þeirra á meðal rítstjóm Tímans. Hér eru m.a. júdókapp- inga. Tlmamynd Ami Bjama ar ásamt Andrési Önd og fleiri görpum. Tímamynd Aml Bjama „Gufubað fjár- málaráðherra“ A Frá Bæjarskipulagi Kópavogs Hverfaskipulag Vesturbæjar Kópavogs í kvöld, fimmtudaginn 25. febrúar, kl. 20.30 veröur haldinn kynningarfundur í samkomusal Þinghólsskóla þar sem starfsmenn Bæjarskipulags munu kynna í máli og myndum tillögu aö hverfaskipulagi Vesturbæjar Kópavogs. Ennfremur er vakin athygli á því að til og með 28. febrúar nk. verður haldin sýning í anddyri Sundlaug- ar Kópavogs á tillögu að hverfaskipulagi Vesturbæj- ar Kópavogs ásamt ýmsum öðrum gögnum varð- andi skipulagsvinnuna. Skipulagsstjóri. FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRiNGUM LANDIÐ. MUNIb ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar Greinargerð frá rekstrarstjórn stjórnarráðsbygginga við Arnarhól vegna byggingar sturtuaðstöðu á Sölvhólsgötu 4. Daqgblaðinu Tímanum hefur orðið tíðrætt um framkvæmdir við það sem blaðið kallar „gufubað fjár- málaráðherra í Amarbváli." Til þess að fyrirbyggja misskilning á því hvaða framkvæmdir eiga sér stað, telur rekstrarstjóm stjómar- ráðsbygginga við Amarhól, ástæðu til að birta eftirfarandi greinargerð þar sem rétt þykár að ýmsar stað- reyndir þessa máls komi betur fram en veríð hefur. Á svæðinu í kringum Amarhól starfa nokkur ráðuneyti og stofhanir sem þeim tengjast. Það eru fjár- málaráðuneyti, dóms- og kirkju- málaráðuneyti, iðnaðar-' og við- skiptaráðuneyti, menntamálaráðu- neyti, Hagstofa íslands, ríkisbók- hald, ríkisfjárhirslan og embætti ríkislögmanns. Þessi ráðuneyti og stofnanir em til húsa í Amarhváli, Sölvhólsgötu 4, Sölvhólsgötu 7 og Skuggasundi 3. Á þessum vinnu- stöðum starfa 335 starfsmenn. Auk þess starfa við þessi hús húsverðir, vaktmenn, hreingemingafólk og starfsfólk í mötuneyti, sem er alls um 40 manns. Á árinu 1991 kom fram tillaga um það að skipuð yrði rekstrarstjóm þeirra ráðuneyta og stofnana sem kringum Arnarhól starfa þannig að samræmi fengist í ýmsan sameigin- legan rekstur, s.s. rekstur húseigna, hreingemingar, notkun bflastæða og ýmsar viðhaldsframkvæmdir. í ársbyrjun 1992 var rekstrarstjómin formlega skipuð og skipa hana nú fulltrúar frá fjármálaráðuneyti, rík- isbókhaldi, dóms- og kirkjumála- ráðuneyti, iðnaðar- og viðskipta- ráðuneyti, menntamálaráðuneyti og Hagstofu íslands. Sameiginleg þjón- usta og viðhald er fjármagnað með þeim hætti að rekstrarstjóm ákveð- ur ár hvert húsaleigu sem innheimt er af hverju ráðuneyti eða stofnun fyrir sig. Þessum gjöldum er ætlað að standa undir öllum sameiginleg- um kostnaði s.s. húsvarða- og vakt- mannaþjónustu, hreingemingum, rekstri mötuneytis, fasteignagjöld- um, rafmagni og hita, snjómokstri, almennu viðhaldi og endurbótum og hverju öðm sem er sameiginlegt Á s.l. ári var innheimt húsaleiga rúmar 103 millj. kr. Um 77% Ieig- unnar var varið til almenns rekstrar, en um 23% til viðhalds og endur- bóta á eignum. Á árinu 1991 komu fram athuga- semdir og óskir um að aðstaða starfsmanna varðandi hreinlætisað- stöðu væri bætt, m.a. vegna þess að reglum um aðbúnað og hollustu- hætti á vinnustað væri ekki full- nægt Ákveðið var að fara út í að koma upp sturtuaðstöðu á svæðinu en framkvæmdum var frestað þar sem önnur verk þurftu að ganga fyr- ir, s.s. múrviðgerðir og utanhússlag- færing á Amarhváli, framkvæmdir við mötuneyti, endurbætur á bygg- ingardeild menntamálaráðuneytis o.fl. Á árinu 1992 var ákveðið að hefja framkvæmdir við lagfæringu í kjail- ara Sölvhóls, þ.e. húsi menntamála- ráðuneytis. Kjallarinn lá undir skemmdum vegna viðvarandi leka- vandamála og að auki vom skólp- lagnir skemmdar. f tengslum við þetta var ákveðið að koma upp sturt- um fyrir starfsmenn á svæðinu sem þeir hefðu aðgang að utan vinnu- tíma. Auk þess hafi iðnaðarmenn sem á staðnum starfa og umsjónar- menn fasteigna þar aðgang. Fram- kvæmdir hófust í október s.l. þar sem lögð var áhersla á að þétta hús- ið til að fyrirbyggja frekari skemmd- ir. Jafnframt hefur, með hléum, ver- ið unnið við það að koma upp sturt- um og stefnt er að því að fram- kvæmdum við það ljúki í apríl n.k. Plássið sem ætlað er fyrir þessa starfsemi er um 65 fermetrar. Bún- ings- og baðaðstaða er á 35 fermetr- um, aðskilið fyrir karla og konur. Gert er ráð fyrir fjórum sturtum í hvorum klefa. Afgangurinn af pláss- inu, um 30 fermetrar, verður í fram- tfðinni notaður til þess að koma upp leikfimiaðstöðu og e.t.v. gufubaði eftir því sem síðar verður ákveðið. Eins og skýrt hefur verið hér að framan tekur málið til mun fleiri að- ila en fjármálaráðuneytisins. Rekstr- arstjórnin er reiðubúin til að veita frekari uppiýsingar um þetta mál sé þess óskað, en væntir þess að þessi greinargerð upplýsi meginatriði málsins. Almennir stjórnmálafundir Atvinnumál, stjómmálaviðhorfið og staða EES-samninganna verður til umræðu á almennum stjómmálafundum á Austur- landi dagana 28. febnjar-2. mars. Fund- imir verða á eftirföldum stöðum: Slysavamahúsinu Eskifirðl sunnudaginn 28. febrúar kl. 20.30. Frummaelendur: Jón Kristjánsson, Guð- mundur Bjamason og Karen Erta Ertings- dóttir. Verkalýösfélagshúsinu Reyöarfiröi mánudaginn 1. mars kl. 20.30. Frummælendur: Jón Kristjánsson, Finnur Ingólfsson og Karen Eria Ertingsdóttir. Djúpavogi þriðjudaginn 2. mars. Frummælendur: Jón Kristjánsson, Finnur Ingólfsson og Karen Eria Eriingsdóttir. Nánar auglýst á viðkomandi stöðum. Allir velkomnir. Fundarboðendur Kópavogur— Opið hús Opið hús er alla laugardaga kl.10.00 - 12.00 aö Digranes- vegi 12. Kaffi og létt spjall. Inga Þyri, formaður félags- málaráðs, verður til viötals. Framsóknarfélögin Framsóknarfélögin í Hafnarfirði Opið hús að Hverfisgötu 25 alla þriðjudaga kl. 20.30. Komiö og fáið ykkur kaffisopa og spjallið. Framsöknarfélögin Inga Þyri

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.