Tíminn - 04.03.1993, Qupperneq 5

Tíminn - 04.03.1993, Qupperneq 5
Fimmtudagur 4. mars 1993 Tíminn 5 Stundin, sem allir óvinir frétta- fiölmiðla höfðu beðið eftir, var runnin upp. Á sjónvarpsskerm- inum birtist Jane Pauley, aðal- fréttastjama sjónvarpsins, og fé- lagi hennar í fréttastjórastótaum, Stone Phillips. Þau lásu langa og dapuriega afsökunarfoeiðni þar sem viðuriœnnt var að vinnuveit- anda þeirra, NBC-fréttum, heföi orðið á í messunnL General Motors, stærsta og öfl- ugasta bflaframleiðslufyrirtæki Bandaríkjanna, hafði sannað svo ekki varð um villst að frétt NBC, þar sem sjá mátti bíl frá GM springa í Ioft upp, hefði verið vill- andi, byggð á ýktri tækni „sorp- sjónvarps“. Fréttamenn NBC urðu að þola nið- urlæginguna og éta aftur ofan í sig „stórfréttina". í þetta sinn var troðið ofan í þá ósigr- inum með látum og hefur það hleypt afstokkunum enn einu angistartíma- bilinu, sem bandarískri ffétta- mennsku hættir svo til að hella sér út í. Sjónvarpsmenn og gagnrýnendur þess spyija nú hvort fréttamennska á skjánum eigi eftir að ná heilsu aftur. Vopnið slegið úr hönd- um væntanlegra skaða- bótakreQenda Hættuástandið skall á mánudaginn 8. febrúar, þegar úrvalslið háttsettra forstjóra NBC- sjónvarpsrisans safh- aðist saman við sjónvarpstæki í for- stjórahúsakynnunum þeirra í Rocke- feller Plaza í New York til að fylgjast með beinni útsendingu ffá blaða- mannafúndi sem Harold Pearce, að- allögfræðingur GM, hafði boðað til í Detroit Forstjóramir vissu að Pearce ætlaði að hrinda af stað stórárás á útsend- ingu á Dateline NBC, fféttaþátt þar sem haldið var fram að margar teg- undir bfla GM væru varasamar. En sjónvarpsmennimir höfðu Iátið fara ftam sína eigin athugun á málinu og vom þess fúllvissir að þeir hefðu enga ástæðu til að vera áhyggjufúllir. Á næstu tveim tímum tætti Pearce sjálfumgleði þeirra í tætlur. Dateline NBC hafði kannað fullyrð- ingar um að sumar gerðir vörubíla ffá GM ættu það til að springa í loft upp ef þeir fengju þungt högg á hlið- ina, vegna þess að bensíngeymamir em á utanverðri grindinni. í lok frétt- arinnar sást vömbfll verða fyrir slíku höggi og standa í ljósum logum á eft- ir. Þetta var sönnunargagn af því tagi sem kynni að verða stuðst við í mögulegum lagalegum aðgerðum gegn GM með alvarlegum afleiðing- um, væri því látið ósvarað. GM setti eigin rannsókn í gang og hafði upp á slökkviliðsmanni, sem hafði fylgst með prófúninni og áleit að brögðum heföi verið beitt við hana. Hann sagði að á bflinn heföu verið festar leikfangaflugeldar til að kveikja eld, og hann haföi undir höndum myndband þar sem sjá mátti að það sem virtist vera logandi eldkúla, sem gleypti bflinn, var í rauninni blossi sem stóð aðeins í 15 Aðallögfræöingur GM, Harold Pearce, stendur hér við einn vörubllanna sem málið snýst um. ingi em. Stórfyrirtækinu hefúr í meira en aldarfjórðung sviðið eftir að það beið lægri hlut í kostnaðarsamri orrustu við gamalreynda neytendabaráttu- manninn Ralph Nader vegna einnar bflagerðar þess. Nú er rætt um það í bílaiðnaðinum að GM sé á tímamót- um — og hagsmunahópar neytenda ráðastáNBC. Sjónvarpsumfjöllun og skaðabótamál Aðrir ftölmiðlaþættir, sem byggjast á rannsóknum, hafa Iíka verið fljótir að afneita Dateline og halda því ffam að þeir styðjist við aðrar mælistikur. Don Hewitt, yfirframleiðandi þáttar CBS „60 Minutes", segir að ef stjóm- endur Dateline hafi haft við eitthvað að styðjast, hafi þeir vissulega ferið heimskulega að. „Það er ekki hægt að leika tveim skjöldum fyrir framan áhorfendur, þeir segja bara skilið við þáttinn." En það var í Wall Street Joumal sem beiskustu pillunni var úthlutað. Þar var því haldið fram að skaðabótamál heföu myndað geysilega áfergju í jafnvægislausa og melódramatíska sjónvarpsumOöllun um „brjósta- stækkun, Wghóstabóluefhi, há- spennulínur, bamanáttföt, tölvu- skerma, lausa stiga, garðsláttuvélar, aspirínglös, kjamorkuvopnatilraunir, jólaleikföng, getnaðarvamartóí o^.frv., o.s.ffv.“. ,4 þijátíu ár höfúm við beðið eftir að þessi ósköp gerðust," segir þar. Bandorísk sjónvarpsstöð: DYRT KLUÐUR sekúndur. Það mátti heyra slökkvi- menn hlæja að Iitla bálinu og einn þeirra heyrist segjæ „Þama fykur þessi kenningin.“ Bflamir, sem notaðir vom við próf- unina, fúndust eftir leit á 22 bfla- partasölum og vom keyptir fyrir 400 dollara. Á palli eins þeirra var eftir- mynd af eldflaugarhreyfli. Prófenir, sem gerðar vom á bensíngeymi sem NBC hélt ffam að heföi fengið á sig gat í árekstrinum, leiddu í ljós að hann var stráheill. Meira klúður hjáNBC Með þessi sönnunargögn upp á vas- ann haföi GM haft samband við NBC og ferið fram á að fféttin yrði dregin til baka. En ekki var nóg með að for- stjórar fféttaþáttarins stæðu við ffétt- ina, þeir létu undir höfúð leggjast að láta háttsetta yfirmenn NBC vita. Yfirmenn NBC, sem safnast höföu saman á 52. hæð Rockefeller Plaza umræddan mánudag, komu þess vegna af fjöllum þegar þessar upplýs- ingar flæddu yfir þá. Þennan sama morgun haföi Michael Gartner, æðsti maður fféttadeildar NBC, skrifeð til GM og varið þáttinn. Þar sagði hann: „NBC álítur að ekki ein einasta fúllyrðing þar hafi verið röng eða villandi. Fréttin í Dateline var og er algerlega í samræmi við staðreyndir og stenst nákvæma skoð- un.“ En þegar Pearce haföi slegið botn- inn í gagnárásina, vissi NBC hins veg- ar að fyrirtækið yrði að leita útgöngu- leiða. Allan næsta dag hafói sjón- varpsstöðin samvinnu við GM um að koma saman afsökunarbeiðni, sem að lokum var fallist á um það leyti sem Dateline-þáttur kvöldsins var sendur út f lok þáttarins skiptust Pauley og PhiIIips, fréttastjórar þáttarins, á um að lesa upp þriggja og hálfrar mínútu langt undanhald sem ekki á sinn líka. Þar sagði Pauley m.a.: „Óvísindalegar sýniaðgerðir ættu ekki að eiga sér stað í beinhörðum fféttum hjá NBC. Fyrirtækin hrædd við átökvið Qölmiðla Yfirleitt eru bandarísk stórfyrirtæki dauðhrædd við að lenda í átökum við fjölmiðlana, sem taka allri gagnrýni með helgisvip hins syndlausa. Til að spara sér langa þrautagöngu um dómssali, réðst GM í þetta skipti á NBC á eigin vígvelli, sviði almenn- ingsálitsins. ,J>egar maður berst í dómsmáli er sviðið réttarsalurinn," segir Pearce. Æn þegar fiölmiðill ræðst á mann, veit ég engan annan tiltækan vett- vang en almenning." Sigur lögffæðings GM í þessu máli gæti gefið af sér drjúgan arð. í vik- unni fyrir blaðamannafúndinn hafði Fréttakonan Jane Pauley var neydd til að lesa langa yfirlýs- ingu í sjónvarpinu þar sem hún dró til baka fréttaflutning sinn. dómstóll dæmt hæstu skaðabætur sem um getur, 105 milljón dollara, til fiölskyldu manns sem hafði látið lífið í eldi, sem kviknaði eftír árekstur sem hann lenti í í GM- vömbfl útbúnum hinum umdeildu eldsneytísgeymum. Nú áffýjar GM þessum úrskurði og ætlar að berjast gegn öðrum skaða- bótakröfumálum, sem í undirbún- STEFNURÆÐA FORSETA BANDARÍKJANNA Forseti Bandaríkjanna, William Jef- ferson Clinton, flutti þjóðþingi Bandaríkjanna stefnuræðu sína 17. febrúar. Meginefni ræðunnar var svo saman dregið í Independent 21. febrúar: „... bað hann Bandaríkja- menn að fallast á 253 milljarða $ aukningu skatta á næstu fjómm ár- um til að draga úr 300 milljarða $ árlegum halla á fjárlögum Banda- ríkjanna. Að auki (boðaði hann) 247 milljarða $ niðurskurð ríkisútgjalda á þessum (fiómm) ámm... Stefnir Clinton að því að hafa minnkað hall- ann (á ríkisbúskapnum) niður fyrir 200 milljarða $ 1997 — eða í 2,7% vergrar landsframleiðslu í stað 5,4% nú.“ ,Að tillögunum verða þyngstar klyfiar lagðar á herðar þeirra, sem helst höfðu ávinning af skattastefnu repúblikana á níunda áratugnum: 60% skattahækkunarinnar falla á 2% bandarískra fiölskyldna, sem hafa umfram 200.000 $ árstekjur. Samt sem áður hefst hæsta skatt- þrepið, 39,6%, aðeins við 250.000 $ tekjumörkin, og er það vægari sköttun (og hærri mörk) en í nokkm evrópsku landi. En að dreif- ingu skattahækkananna yfir lands- menn koma 55% bandarískra fiöl- skyldna til að greiða hækkaða skatta að tillögum Clintons. Á fiölskyldu með 40.000 $ árstekjur nemur hækkunin 118 $ eða 3%. Skattar á fyrirtækjum hækka að auki, í efsta þrepi úr 34% í 36%.“ „í tillögum Clintons em þrír meg- inþættir: Minnkun halla á fiárlögum fyrir sakir hækkunar skatta og nið- urskurðar útgjalda, m.a. til land- varna um 76 milljarða $; framlag 30 milljarða $ í bráð til opinberra fram- kvæmda og atvinnuaukningar (employment projects), sem 1994 munu hafa veitt 500.000 mönnum atvinnu; og fiögurra ára 160 millj- arða $ áætlun um fiárfestingu, sem taka mun til bráðabirgða (tempor- ary) skattalána til stórra fyrirtækja og varanlegs til lítilla fyrirtækja og ennfremur til iðnaðarsvæða í borg- um og aukinna framlaga til tækni(rannsókna) og umhverfis- mála." Þá segir í Independent: „Landssam- tök framleiðenda iðnvamings héldu fundi í Washington til að leggja á -ráð um andstöðu við hækkun skatta á stómm fyrirtækjum. Orkufyrir- tæki, stór og smá, þjöppuðu sér saman gegn hinum (boðaða) nýja orkuskatti (BTU-skatti miðuðum við hita-vinnslu).“

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.