Tíminn - 04.03.1993, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 4. mars 1993
Tíminn 9
DAGBOK i
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17.
Bridgekeppni ki. 13.
Miöstöö fólks í atvinnuleit
í dag, fimmtudag, kl. 15 koma Hali-
grímur Jónasson forstjóri og Emil Karls-
son blaðafulltrúi frá Iðntæknistofnun,
og ræða um þátt einstaklinga í nýsköpun
atvinnu.
Miðstöðin er f Lækjargötu 14. Opið er
mánudaga til föstudaga frá kl. 14 til 17.
Síminn er 628180.
Gerðuberg 10 ára
Menningarmiðstöðin Gerðuberg er 10
ára í dag, 4. mars. Af því tilefni verður
mikið um dýrðir í Gerðubergi. Gefinn
verður út tvöfaldur geisladiskur, ,Á
Ljóðatónleikum Gerðubergs III" með
söng tíu íslenskra söngvara, haldnir
verða sérstakir hátíðatónleikar þar sem
tólf söngvarar flytja íslensk sönglög, og
opnuð verður sýning á verkum Medúsu-
hópsins.
í kvöld kl. 20.30 verða sérstakir hátíðar-
tónleikar þar sem söngvarar, sem prýtt
hafa efnisskrá Ljóðatónleika Gerðubergs,
koma fram: Anna Júlíana Sveinsdóttir
mezzosópran, Bergþór Pálsson baryton,
Elsa Waage kontraalt, Ema Guðmunds-
dóttir sópran, Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir mezzosópran, Ingibjörg Guðjóns-
dóttir sópran, John Speight baryton,
Ólöf Kolbrún Harðardóttir sópran, Signý
Sæmundsdóttir sópran, Sigrún Hjálm-
týsdóttir sópran, Sigríður Gröndal sópr-
an, Sverrir Guðjónsson kontratenór og
Jónas Ingimundarson píanó. Tónleikar
þessir eru ætlaðir vinum og velunnurum
hússins, en mánudaginn 8. mars verða
þeir endurteknir og er þá aðgangur
ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm
leyfir.
Laugardagur 6. mars kl. 16 verður opn-
uð sýning á verkum súrrealistahópsins
Medúsu, en þeir eru: Einar Melax, Matt-
hías S. Magnússon, Ólafur J. Engilberts-
son, Sjón (Sigurjón B. Sigurðsson) og
Þór Eldon. í tengslum við sýninguna
verður flutt leikdagskrá byggð á verkum
Medúsumanna og ýmsar aðrar uppá-
komur.
Námskeið um gæðastjórnun
Á morgun, 4. mars, hefst námskeið um
gæðastjómun í fyrirtækjum sem Endur-
menntunarstofnun Háskólans stendur
að í samstarfi við Gæðastjómunarfélag
íslands og Félag fsl. iðnrekenda.
Námskeiðið skiptist í þrjá sjálfstæða
þætti, sem alls taka fimm hálfa daga.
Kennt er einu sinni í viku og unnin verk-
efni milli tíma úr fyrirtækjum viðkom-
andi þátttakenda, en námskeiðið er ætl-
að stjómendum fyrirtækja og þeirra
starfsmanna sem fara með skipulag
gæðamála.
Æskilegt er að fleiri en einn séu frá
hverju fyrirtæki. Nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu Endurmenntunar-
stofnunar í símum 694923, 694924 og
694925.
Björgvin Björgvinsson sýnir
í Portinu í Hafnarfiröi
Björgvin Björgvinsson heldur nú
myndlistarsýningu í Portinu, Strand-
götu 50 í Hafnarfirði. Björgvin sýnir
málverk, grafík og skúlptúrverk.
Björgvin er fæddur 26. nóvember 1955.
Hann stundaði nám á eftirfarandi stöð-
um: í Myndlista- og handíðaskóla íslands
1975-79, síðan myndlistamám í London
1980- 81 og listaakademíunni í Belgrad
1981- 82, og loks nám í listmálun í borg-
inni Lahti í Finnlandi 1987-88.
Hann hefur haldið sjö sýningar, hér á
landi og í Finnlandi.
Sýningunni lýkur 14. mars.
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIDÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BILA ERLENDIS
interRent
Europcar
J
Eiginkona mfn, mágkona, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Jóna Ingibjörg Ágústsdóttir
Álftamýrí 40, Reykjavfk
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. mars kl. 10.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á
llknarstofnanir.
Sverrir Meyvantsson
Jóhann B. Slgurgeirsson
Ingólfur Kr. Sigurgeirsson
Ásthildur Fr. Sigurgeirsdóttlr
Ería Sigurgeirsdóttir
Soffía H. Sigurgeirsdóttir
Sigriöur E. Sverrísdóttir
Vilhelm Sverrisson
Hreggviður Sverrisson
barnabörn og barnabarnabörn
Elísabet Meyvantsdóttlr
Sigrún Þorgeirsdóttir
Gerða Pálsdóttir
Eggert Andrésson
Benedikt Bjarnason
Gunnar Hilmarsson
Hulda Jósepsdóttir
Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og útför
Axels A. Ólafssonar
Kristín Kristjánsdóttir
Ólafur Axelsson Jóhanna Þórðardóttir
Kristján Axelsson Katrín Júlíusdóttir
Svanhildur Axelsdóttir Guðmundur Steindórsson
Elnar Axelsson Vilborg Þórarínsdóttir
bamaböm og bamabamabörn
---------------------------------------------------------/
Hertoga-
ynjan af
Yorkí
góðgerða-
starfi
Sarah, hertogaynja af York, sýndi
sína bestu hlið þegar hún var
viðstödd fínan góðgerðakvöld-
verð á Savoy-hótelinu í London
fyrir skömmu. Gestirnir voru
fulltrúar 300 göfúgustu ætta
landsins og klöppuðu hertoga-
ynjunni lof í lófa, þegar hún hélt
ræðu til stuðnings „Tommy’s
Campaign", góðgerðasjóði sem
hefur að markmiði að aðstoða
mæður til að eignast hraustari
böm. Ræða hennar snart við-
stadda, en þar sagði hún m.a.:
„1992 var ekki gott ár hjá mér,
en ég held áfram að berjast fyrir
Tommy. Vinnan við sjóðinn
stendur hjarta mínu mjög nærri
og hjarta þeirrar einu móður af
hverjum 10, sem standa við hita-
kassa barna sinna sem hafa fæðst
fyrir tímann og berjast fyrir lífi
sínu. Þessir harmleikir hafa
snortið mig og ég er þakklát fyr-
ir að eiga tvær hamingjusamar
og hraustar stúlkur."
í veislunni fínu fór fram vín-
uppboð til styrktar sjóðnum og
þakkaði Charles Benson upp-
boðshaldari Sömh fyrir að vera
verndari sjóðsins. Hann sagði
hana hafa verið duglega að halda
áfram störfúm sínum og daglegu
lífi, þrátt fyrir alla erfiðleikana á
árinu 1992, og Iófatakið var
ósvikið þegar hann sagði: „Mér
finnst hún alveg ágæt!“
Hertogaynja af York er hún ennþá, en er oft auðkennd með upphaflega
nafninu sfnu, Sarah Ferguson. Hún hefur ekki átt sjö dagana sæia íher-
togaynjuhlutverkinu, en gerir sitt besta til að bæta fyrir það sem aflaga
hefur farið.
Breska þingiö:
Opinberar skammir
fyrir misnotkun
á bílastæði!
Forseta breska þingsins, Betty Boot-
hroyd, var mikið niðri fyrir þegar hún
ávarpaði breska þingið fyrir skömmu. Til-
efnið var að óbreyttur þingmaður Verka-
mannaflokksins, Ann Clwyd, hafði hvað
eftir annað lagt bíl sínum, silfurlitum
Ford Granada, í frátekið bflastæði þing-
forseta, rétt við dyrnar á skrifstofum
embættisins. Þau bflastæði hefur enginn
leyfí til að nota nema forseti þingsins
sjálfur og örfáir aðrir, sem hann hefur
veitt sérstaka heimild til þess.
Fyrir framan þingheim flutti Betty Boot-
hroyd yfirlýsingu þar sem hún sagði:
„Þetta ástand er óviðunandi og verður
ekki þolað framvegis. Ég hef gefið skipun
um að ef hún skilur bílinn sinn þar eftir
eftir daginn í dag, verði henni ekki leyft að
hreyfa bílinn íyrr en hún hefur gefið há-
tíðlegt loforð um að hún muni héðan í frá
nota bflastæði annars staðar.“
Þingmaðurinn Ann Clwyd frá Cynon
Valley hefur ekki í annan tíma orðið fræg-
ari.
Betty Boothroyd, forseti neðri deiidar breska
þingsins, gaf óbreyttum þingmanni ofanígjöf á
þingfundi fyrir að stelast í bfiastæöið hennar.