Tíminn - 04.03.1993, Qupperneq 8
8 Tíminn
Fimmtudagur 4. mars 1993
FUNDIR
Kópavogur—
Opið hús
Opið hús er alla laugardaga kl. 10.00 -12.00 aö Digranes-
vegi 12. Katfi og létt spjall. Sigurður Geirdal bæjarstjóri
verðurtil viötals
Framsóknarfélögin
Slgurður
Skagfirðingar — Sauðárkróksbúar
Guðnl
Péll
Stefán
Almennur stjórnmálafundur
Almennur stjómmálafundur verður haldinn I Safnahúsinu við Faxatorg fimmtudag-
inn 4. mars kl. 20.30.
Frummælendur um ástand þjóðmála og málefni Skagafjaröar: Guðni Ágústsson,
Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson.
Fundurinn er öllum opinn.
Fundarboðendur
Reykjavík — Létt
spjall á laugardegi
Laugardaginn 6. mars n.k. kl. 10.30-12.00 að Hafnar-
stræti 20, 3. hæð, mætir Finnur Ingólfsson alþingismaöur
og ræðir stjómmálaviðhorfið og svarar fyrirspumum.
Fulltrúaráðlö
Flnnur
Ásta
Reykjavík —
Framsóknarvist
Framsóknarvist verður spiluð n.k. sunnudag 7. mars I
Hótel Lind, Rauöarárstig 18, og hefst kl. 14.00.
Veitt verða þrenn verðlaun karia og kvenna.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir varaþingmaður flytur
stutt ávarp I kaffihléi.
Aðgangseyrir kr. 500,-. Kaffiveitingar innifaldar
Kópavogur —
Framsóknarvist
Spilum að Digranesvegi 12 sunnudaginn 7. mars kl. 15.00. Góð verðlaun og
kaffiveitingar.
Freyja
Akranes — Bæjarmál
Fundurverður haldinn f Framsóknarhúsinu laugardaginn 6. mars kl. 10.30. Far-
ið verður yfir þau mál sem efst eru á baugi I bæjarstjóm.
Morgunkaffi og meðlæti á staðnum.
Bæjarfulltrúamlr
Sértilboð
frá bandarískum
stjórnvöldum
Bandarísk stjómvöld gefa þér kost á aö sækja um og öðlast
varanlegt dvalar- og atvinnuleyfl samkvæmt áætlun AA-1.
Dregiö verður úr umsóknum og þú getur þannig hreppt tæki-
færi til að setjast að i Bandaríkjunum og stunda þar vinnu.
(orðið handhafi „græna kortsins“). Umsóknarfrestur um dval-
arleyfi rennur út 31. mars nk. og þvi nauösynlegt að bregð-
ast við strax, svo umsókn þín nái fram í tíma.
Allir þeir, sem em fæddir á (slandi, Bretlandi eða (rlandi
og/eöa eiga foreldri eða foreldra af sömu þjóðemum, hafa
rétt til að sækja um þetta leyfi.
Sendið 45 Bandarikjadala greiðslu fýrir hvern umsækjanda
til okkar ásamt nafni umsækjanda, fæðingardegi, fæðingar-
stað, nafni hugsanlegs maka og nöfnum og dvalarstað
ógiftra bama undir 21 árs aldri.
Heimilisfangiö er: VISA USA, P.O. Box no. 822211 Dallas,
Texas, 75382, USA.
Úr sýningu Þjóðleikhússins á Irska leikritinu Dansað á haustvöku. Frá vinstri: Anna Kristín Arngrímsdóttir, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Erlingur Gíslason, Ólafla Hrönn Jónsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir.
Þjóðleikhús, Stórn sviðið:
Dansað á haustvöku
Dansaft á haustvöku eftir írann Brian Friel hefur verið tekift til sýninga á
Stóra sviði Þjóðleikhússins undir leikstjóm Guftjóns Pedersen.
Verkiö gerist síftsumars árið 1936 skammt utan vift smábæinn Ballybeg.
Fimm einhleypar systur búa saman á bóndabæ. Tvær vinna við aft pijóna
flngravettlinga, ein er kennslukona og hinar sjá um störfln á bænum.
Á heimilinu er líka sonur einnar
þeirra, Michael, en hann er jafn-
framt sögumaður. Bróðir systranna
hefur nýlega verið sendur heim frá
Afríku, þar sem hann starfaði sem
prestur á holdsveikraspítala. Svo
kemur faðir sögumannsins líka við
sögu.
Systurnar eiga í basli með bróður-
inn, sem hefur ruglast eilítið í Afr-
íkudvölinni og eru hanafórnir orðn-
ar honum hugleiknari en Drottinn
Guð almáttugur. Systrunum er lítið
um svo heiðið tal gefið og þama
verður alvarlegur árekstur milli
tveggja menningarheima. Michael,
sem litið hafði svo mikið upp til
frænda síns í útlöndum, missir
þarna hetjuna sína.
Sigurður Skúlason fer vel með
hlutverk Michaels. Textameðferð
hans er skýr og eðlileg.
Systumar eru leiknar af þeim Lilju
Guðrúnu Þorvaldsdóttur, Ragnheiði
Steindórsdóttur, Önnu Kristínu
Amgrímsdóttur, Ólafíu Hrönn Jóns-
dóttur og Tinnu Gunnlaugsdóttur.
Ólíkir persónuleikar systranna
koma vel í ljós og þær eru mjög vel
leiknar. Ragnheiður Steindórsdóttir
náði sérstaklega að fanga athygli
mína í hlutverki Maggie sem er sí-
fellt með glens á takteinum, þó und-
ir brosinu búi mikill sársauki.
Erling Gíslason hef ég sjaldan séð
eins góðan og í hlutverk Jacks.
Hann á við andlega vanheilsu að
stríða og er dálítið mglaður í upp-
hafi, en fer brátt að hressast og
breytingin á honum er skýr. Erling-
ur hefur jafnframt gott vald á húm-
ornum.
Kristján Franklín Magnús er ágæt-
ur sem flagarinn Gerry Ewans, föð-
ur sögumannsins. Ég fékk að
minnsta kosti svipaða tilfinningu
fyrir honum og barnsmóðir hans,
bæði heillaðist um Ieið og ég fyrir-
leit háttalag hans.
Leikmynd og búninga hannaði
Guðrún Sigríður Haraldsdóttir og
heyrði ég hana segja í sjónvarpsvið-
tali að hún hefði reynt að hafa sviðs-
myndina eins og málverk. Gylltur
rammi afmarkar sviðsmyndina, sem
er alltaf hin sama. Búningarnir eru í
ljósum litum og fara vel við rauð-
hærðar konurnar. Þetta myndar
mjög fallega heild. Páll Ragnarsson
sér um Ijósin og gerðu þau landslag-
ið síbreytilegt.
Jóhann Guðmundur Jóhannsson
semur frumsamda tónlist fyrir leik-
ritið og mér fannst hún mjög góð.
írska lagið, sem systurnar fóru ham-
förum yfir, var skemmtilegt og ég
stalst til að stappa fótunum með.
Dansatriðin voru líka góð, en Sylvia
von Kospoth annaðist þau.
Verkið er fallegt, ljóðrænt og fynd-
ið. Það tekur á sígildum hlutum, s.s.
vonbrigðum, samheldni, samskipt-
um kynjanna og fjarlægri bemsk-
unni, sem ómögulegt er að hverfa
inn í, en hægt er að gleðjast yfir —
eins og fallegu málverki á vegg.
—Gerftur Kristný
Fiat, Olivetti og
Pirelli í mótbyr
í yfirliti Financial Times í janúar
1992 yfir 500 stærstu fyrirtæki í
Evrópu féll Fiat úr 15. sæti árið áður
í 53. sæti, Olivetti úr 178. í 375. sæti
og Pirelli Spa úr 257. í 362. sæti.
Þykir það bakfall þeirra nær dæmi-
gert um stöðu ítalskra iðnfyrirtækja,
sem sein mundu hafa verið að taka
til við endurskipulagningu og end-
urnýjun.
Fiat hefur 80% tekna sinna af fram-
leiðslu bíla, en framleiðir líka her-
gögn og flugvélar og veitir verk-
fræðilega og fjármálalega þjónustu,
og leggur það til 4% af vergri lands-
framleiðslu Ítalíu.
Hafði Fiat um 300.000 manna
starfslið 1991, en þriðjungur þess
var ekki í fullu starfi. í bílasölu á
Ítalíu 1991 féll markaðshlutdeild Fi-
at úr 60% í 45%; seldi það 147.000
færri bfla en 1990, en keppinautar
þess 139.000 fleiri. Stjórnarformað-
ur Fiat hefur í allmörg ár verið Gio-
vanni Agnelli.
Olivetti er fjórða stærsta fyrirtækið
í upplýsinga-iðnaði í Evrópu. Tapaði
það um 200 milljörðum líra 1991,
og í nóvember það ár var Carlo De
Benedetti aftur kvaddur til að taka
við starfi aðalforstjóra þess
(en hann starfaði hjá Fiat
frá 1978). Fækkaði Olivetti
starfsmönnum sínum í
heimi öllum 1991 úr 53.700 í
47.000.
Pirelli, hjólbarða- og kaplagerð-
inni, mistókst 1990-91 að ná kaup-
um á Continental, þýsku hjólbarða-
gerðinni, þrátt fyrir mikil fjárútlát,
sögð um 340 miíljarðar líra. Kveðst
Pirelli nú munu selja ýmis tengd
fyrirtæki sín, sem ekki leggja til
hjólbarða eða kapla. Stjórnarfor-
maður er Leopoldo Pirelli, sonar-
sonur stofnandans.
Ur viðskiptalifinu
Velta (millj-
arðar Ifra)
Starfsmenn
1991
Rekstrarstaða Fiat, Olivetti og Pirelli 1989-1991
Fiat Olivetti
1990 1989 1991 1990 1989
57.209 52.019 — 9.037 9.037
1991
Pirelli
1990 1989
10.139 10.342
294.766 303.238 286.294
47.000 53.679 56.937 68.703 68.703 63.329
Heimild: Financial Times 21. janúar 1992