Tíminn - 04.03.1993, Page 12
AUGLYSINGASIMAR
686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NYTT OG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELU 13 - SÍMI73655
Jif HOGG-
> DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
varahlutir
H,
lamarsbolöa 1 - s. 67-67-44
]
9
Tniiinn
FIMMTUDAGUR4 mar.c iqqi
„Ég get varla talað, mér finnst svo hræðilegt að horfa upp á þessa
bústaði héma,“ segir sumarbústaðareigandi við Meðalfellsvatn en
unglingagengi vann gríðarleg skemmdarverk á sex sumarbústöðum
þar í gærmorgun.
Séð inn um brotinn glugga á einu sumarhúsanna við Meðalfells
vatn eftir heimsókn unglingagengis í „leit aö hlýju“.
Það var um tíuleytið í morgun sem
bóndi, er var á leið til að sinna
hrossum, varð var við mannaferðir
Ný stjórn Vinnueft-
irlits ríkisins:
Guðrún Agnars
nú stjórnar-
formaður
Félagsmálaráöherra hefur skip-
að nýja stjóm yfir Vinnueftirlit
ríkisins til næstu fjögurra ára.
Formaður nýju stjórnarinnar er
Guðrún Agnarsdóttir læknir.
Varamaður hennar er Skúli
Johnsen borgarlæknir.
Aðrir stjórnarmenn eru til-
nefndir af Alþýðusambandi ís-
lands, Vinnuveitendasambandi
íslands, Vinnumálasambandi
samvinnufélaganna, Bandalagi
starfsmanna rfkis og bæja og
Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Þeir eru þessir: Björn Grétar
Sveinsson, Grétar Þorleifsson,
Kristín Hjálmarsdóttir, Óskar
Maríusson, Jón Rúnar Pálsson,
Hjörtur Eiríksson, Helgi Andrés-
son og Hersir Oddsson.
við sumarbústaðina. Hafði hann þá
þegar samband við lögreglu. Er
lögreglan kom á staðinn fann hún
sex ungmenni sem voru búin að
hreiðra um sig í einum bústaðnum
og valda miklum skemmdum á
fimm öðrum og var einn þeirra
sýnu verst farinn.
Hafði fólkið ekið stolinni bifreið
sem það var á inn á sólpall á bústað
sem stendur við vatnið og brotist
síðan inn í hann. Bifreiðin hafði
raunar verið notuð sem jarðýta og
henni ekið í gegn um stóra plexi-
glerrúðu á sólpallinum og hefði
farið inn í stofuna ef ekki hefði ver-
ið fyrir rörstoð sem hefti för bif-
reiðarinnar. Var aðkoman þarna
eins og eftir loftárás og stóð vart
steinn yfir steini og flestallar rúður
bústaðarins brotnar. Voru innan-
stokksmunir einnig mjög illa farn-
ir og hafði jafnvel verið hent út um
gluggana í gegnum rúðurnar. Er
allt innanstokks í bústaðnum nán-
ast ónýtt.
Þegar fólkið hafði lokið sér af við
fyrsta bústaðinn fór það að bústöð-
um sem standa í afgirtum reit ofan
við vatnið. Þar braust það inn í
verkfærageymslu og stal þaðan
fjórhjóli, auk þess sem unnar voru
skemmdir á verkfærageymslunni.
Sem dæmi um skemmdarfýsnina
hafði verið sagað í hurð geymsl-
unnar með hjólsög innanfrá. Auk
þess var tekin keðjusög og hún
prófuð á trjánum. Að því loknu var
fjórhjólinu ekið um gróðurreitinn
og með því unnar skemmdir á
gróðri og trjám.
Fólkið braust síðan inn í fimm bú-
staði og stal þaðan áfengi. Er lög-
reglan kom á staðinn var fólkið við
drykkju og má sjá af ummerkjum
að ekki hefur gefist tími til að klára
gleðina, því sjá mátti hálfdrukknar
bjórflöskur á borðum.
Að sögn sjónarvotts að handtöku
fólksins var það á aldrinum í kring-
um sextán ára. Þegar fólkið var
Tímamynd Áml Bjarna.
spurt um ástæður verknaðarins,
var svarið; „við erum bara að leita
okkur að hlýju“. Þegar spurt var
hvort þau væru ekki í skóla, svör-
uðu þau: „Við erum flest komin af
skólaaldri," flest, — ekki öll.
—Starfsfræðsla, SJJ/GV
Skemmdarverkagengið notaði þennan Saab-bíl sem jaröýtu og ók honum á flaggstöng við þennan
sumarbústað og þaðan í gegnum plexiglervegginn í kringum sólpallinn. Bíllinn er stórskemmdur og
sumarbústaðurinn er í rúst eftir heimsóknina. Tímamynd Ámi Bjama.
..ERLENDAR FRÉTTIR...
SARAJEVO
S.þ. vilja flytja sjúka
og særöa burt
Sameinuðu þjóðimar reyndu i gær að fá upp-
reisnarmenn Serba lil að hleypa áfram lest
flutnlngablla sem blður þess að komast til
austurhluta Bosniu til að flytja burt sjúka og
særða óbreytta borgara sem komast ekki frá
múslima-héraðinu Cerska vegna bardaga. Út-
varpið I Sarajevo, sem er undir stjóm mús-
lima, sagði að álitið værí að allt að 20.000
manns væru á flótta frá héraöinu þar sem
sagt var að Serbar gætu faríð um aö vild og
rænt heimili. IWASHINGTON var tilkynnt úr
Hvlta húsinu að loftflutningar Bandarlkja-
manna með hjálpangögn til Austur-Bosníu
myndu halda áfram.
MOSKVA
Herinn vill aö Jeltsín
taki af skariö
Bóris Jeltsin Rússlandsforseti sagði I gær að
margra alda stríð biði Rússlands ef núverandi
stjómmálakreppa færí úr böndunum, að þvi
er Itar-Tass fréttastofan sagði i gær. Dagblað-
ið Izvestia sagði að æðstu yfirmenn rúss-
neska hersins legöu fast að Jeltsin aö gripa til
afgerandi aögeröa til að binda enda á stjóm-
málakreppuna.
WACO, Texas
Sértrúarflokkur enn
umsetinn
Spenna ríkti enn I gær milli sértrúarsafnaöar
og mörg hundruð alrikislögreglumanna fjóröa
daginn I röð þrátt fyrir að forystusauður safn-
aöarins hefði lofað aö gefast upp og frásagnir
um að allt að 15 úr flokki hans væru látnir.
DURBAN, Suður-Afriku
Barnamorö í stjórn-
málaskyni
Stjómmálahópar svartra sögðu I gær að
fjöldamorðið á sex skólabömum I púðurtunrv
unni Natal-héraöi I Suður- Afriku hefði verið
vísvitandi tilraun til að ónýta lýðræðisviðræð-
ur.
ISLAMABAD
Friöarviöræöur Afgana
Tveir öflugustu keppinautamir I vopnuðum
átökum i Afganistan komu til fyrstu friöarvið-
ræðna sinna i marga mánuöi i Islamabad I
gær og samþykktu friðarforskrift sem veitir
erkióvinunum heimild til að deila völdum I Ka-
búl, að sögn embættismanna.
JERÚSALEM
Arabakona særir
Israela
Palestínsk kona stakk Israelskan öryggisvörð
i bakið innan múranna I gömlu borginni I
Jerúsalem I gær. Hnlfsstungan setti gat á
lunga hans. Þetta er I þriöja sinn á þremur
dögum sem árás er gerð á einstaklinga. Ann-
ar öryggisvöröur handtók konuna.
BAGDAD
Vopnasérfræöingar
S.þ. komnir
Hópur vopnasérfræðinga S.þ. komu til Bagd-
ad i gær og sögöust ætla aö kanna nýja staöi
til að gá hvort Irakar væru enn að vinna að
fyrri leynilegri kjamorkuvopnaáætlun.
ROSTOCK, Þýskalandi
Saksóknarar falla
frá kæru
Saksóknarar felldu í gær niöur kæru um
morötilraun gegn atvinnulausum málara sem
sakaöur var um að hafa kastaö bensín-
sprengju að lögreglumanni I verstu útlend-
ingahatursóeirðum I sameinuöu Þýskalandi á
fyma ári.
RÓM
Stjórnin íhugar vægari
dómsmeðferö
Italska rikisstjómin virtist I gær ætla að
hrinda I framkvæmd umdeildum áætlunum
um að bjóða þeim sem gmnaðir em um
mútuþægni takmarkaöa sakaruppgjöf. Gio-
vanni Conso dómsmálaráðherra staðfesti að
stjómi i væri hlynnt skilorðsbundnum dómum
á henojr þeim sem gmnaðir væm um mútu-
þægni en játa og endurgreiða illa fenginn
ágóða.
WASHINGTON
Sabin látinn
Albert Sabin, fmmkvöðull I læknavísindum
sem fann bóluefni gegn lömunarveiki, dó I
gær vegna hjartabilunar á sjúkrahúsi Georg-
etown University, að sögn talsmanns sjúkra-
hússins. Sabin var 86 ára.
KATMANDÚ
Díönu vel tekiö
Breskir og nepalskir embættismenn bám til
baka æsifréttir Lundúnablaöa um aö Dlana
prinsessa hefði fengiö kaldar móttökur i Him-
alajafjöllum I fýrstu utanlandsferð sinni eftir að
hún skildi að borði og sæng við Karí prins.
DENNI DÆMALAUSI
„Hvað ætti ég svosem að gera annað við dyrabjölluna hjá þér en
að hríngja henni?“