Tíminn - 05.03.1993, Page 3

Tíminn - 05.03.1993, Page 3
Föstudagur 5. mars 1993 Tíminn 3 Rannsókn á hitastigi og seltu- hann hefur verið síðustu ár. Hiti er undir meðallagi og má heist 1981-ÍS^og Vlð 1989-U199oI Kannsóknimar voru gerðar á rannsóknaskipinu Bjama Sæ- mundssyni 10.-24. febrúar. Slðdr leíðangrar hafa verið famir á þessutn árstíma allt frá árinu 1970. Rannsókniraar fo'kja gefa góða vfsbendingu um hfsskil>'rði fiskistofna við Island. Sjávarhiti og selta f hlýsjónum fyrir Suður- og Vesturiandi var undir meðaliagi (4,5-6,50C/ 35,11%). Hiýsjórinn náði fyrír Kögur (3-4°C) en austur á Norð- kaldur svalsjór (1,5°C). Er það breyting til hins verra frá því sem var veturinn 1991 og 1992 og munar um 1-2DC í hitastigi. Sömu sögu er að segja frá Aust- fjarðamiðum. Þar var hitastig í vetur 0-1,2°C, og hlýsjávar gactti heldur ekki djúpí út af Austur- Íandi, þ.c.a.s. á svokaliaða. Djúpt út af Norðaust- uriandi í Austur-íslandsstrauml var selta í vetur tiltöluiega há sem bendir hvorid né ísreks úr þeirri átt Sldlin miili kalda og hlýja sjávarins við Suð- austuriand vom að vanda við Lónsbug. Hitastig gmnnt með Suðuriandi á Íoðnuslóð var frem- ur iágt (6°C) og svo var einnig vestar á Selvogsbanka (4,5- 6,5DC). Ferskvatnsáhrif virtust vera Jítil við Suðvesturland, eink- um f Faxafióa. í leiðangrinum f vetur var einn- átu í sjónum fyrir Norður- og Suðurlandi, einnig á kolefni í sjó á nokkrum stöðum í heita o; •Ei Af hverju ekki bara að skjóta hreindýrið með netadræsuna? Páll Hersteinsson veiðistjóri: Ekki verið að láta undan dýravinunum PáU Hersteinsson veiðistjóri segir að ekki sé verið að hopa fyrir dýravemdunarfélögum og -sinnum með því að gera til- raun til að ná netadræsu af hreindýri í Lóni með því að skjóta það með deyfilyfi í stað íslenskt fyrirtæki haslar sér völl í A-Evrópu: ÞÝZK-ÍSLENZKA MEÐ SKRIFSTOFU í MOSKVU Þýzk-íslenzka hf. hefur sett á fót eigin verslunarskrifstofu í Moskvu sem annast mun viðskipti fýrirtæk- isins í löndum A-Evrópu í framtíð- inni. Forstöðumaður skrifstofunnar hef- ur verið ráðinn. Hann heitir Yuri Kudinov og var til skamms tíma yf- irmaður viðskiptadeildar rússneska sendiráðsins á íslandi og áður þess sovéska. Hann hafði um árabil um- sjón með viðskiptasamningum ís- lands og Sovétríkjanna en gegndi áður sams konar störfum í Svíþjóð, Belgíu og víðar. Með tilkomu verslunarskrifstof- unnar sem rekin verður sem sérstök deild innan fyrirtækisins undir nafninu A- Evrópudeild Þýzk-ís- lenzka hf, hyggst fyrirtækið stór- auka viðskipti sín við A-Evrópulönd með sérstakri áherslu á Rússland. Meðal vörutegunda sem Þýzk-ís- lenzka hyggst bjóða frá Rússlandi á þessu ári verður timbur til bygginga og smíða. Mikið framboð er á öðmm vömm ýmsum og verða viðskiptamöguleik- ar með þær kannaðir, ýmist með til- liti til beinna kaupa, vöruskipta eða þríhliða viðskipta. —sá Höfuöstöðvar Þýzk-íslenzka í Reykjavík. þess að farga því. „Vissulega koma þó einnig dýravemdunar- sjónarmið inn í málið,“ segir Páll. „Líkurnar fyrir því að netadræsan verði hreindýrinu að aldurtila eru mjög litlar," segir Páll. Hann segir að dýrið sé vel á sig komið og því fylgi tveir hreindýrskálfar. Þetta ásamt því að nú er ekki hefðbund- inn veiðitími segir hann ástæðu þess að ekki sé farið út í það að farga dýrinu. Fyrr í vikunni var sagt frá hrein- dýri í Lóni sem flækt hefði horn sín í netadræsu. Eftirlitsmaður á veg- um veiðistjóra gerði tilraun til að nálgast dýrið, sem er með nokkrum öðmm í hóp, til að reyna að komast að raun um hvort um tarf eða kú væri að ræða þar sem tarfar fella horn fljótlega en kýr ekki fyrr en í vor. Páll telur að líkurnar séu ekki miklar á því að dýrið festist nema annað horn þess detti af á undan hinu. Þá gæti það átt á hættu að stíga í dræsuna eða festa hana í vír. Hann segir að ekki sé endanlega ákveðið hvort og hvenær verði reynt að skjóta deyfiefni í dýrið. „Það á að athuga það mál en það er ekkert endanlega ákveðið. Aðstæð- ur þurfa að vera alveg réttar því það þarf að vera bæði logn og frost," segir Páll. Það skýrist af því að til að ná að deyfa dýrið þarf að komast í minnst 40 metra færi við það. Til samanburðar nær skytta að fella hreindýr á 150 metra færi -HÞ Söfnunarátak vegna krabbameinssjúkra barna er í dag. Nauðsynlegt er að vinna gegn þekkingarskorti á högum krabbameinssjúkra barna. Þau einangrast oft frá öðrum börnum sem trúa hinu ómögulega og segja: „Ég gæti smitast af þér“: Otrúleg þolraun fyrir börnin og aðstandendur Samtök aðstandenda krabbameinssjúkra barna gangast í dag fyrir söfnun í neyðarsjóð sem gæti styrkt foreldra og forráðamenn barn- anna. Jóhanna Guðbrandsdóttir er einn af talsmönnum söfnunar- innar. Hún átti sjálf krabbameinssjúkt barn sem nú er látið. Hún telur umfjöllun um krabbaneinssjúk börn af hinu góða þó ekki væri til annars en draga úr fordómum og skilningsleysi sem ekki síst birtist í viðhorfum bama. „Ég get ekki farið heim með þér; ég gæti smitast," sögðu böm við dóttur hennar þegar bróðir hennar lá veik- ur heima. Milli sex og átta börn greinast með krabbamein á ári og segir Jóhanna að talið sé að börn sem greinist eigi helmings lífslíkur. Hún segir það samt vera misjafnt eftir áhættuhóp- um. Hún nefnir hvítblæði sem dæmi og segir að það sé hægt að hjálpa flestum. „Framfarirnar eru miklar og það er alltaf eitthvað að gerast í þessum málum," bætir hún við. Hún bendir á að hvítblæði sé al- gengast og um þriðjungur krabba- meinssjúkra barna greinist með þann sjúkdóm sem er samt á mjög misjöfnu stigi. „Það er til margs konar hvítblæði eftir því hvaða frumur era sýktar," segir Jóhanna. Hún segir að þótt söfnunin byrji formlega í dag hafi viðbrögð nú þegar verið ótrúlega góð. „Fólk hringir hingað allan daginn, bæði einstaklingar og fyrirtæki. Það er verið að bjóða alls konar aðstoð og viðtökurnar fara fram úr okkar björtustu vonum,“ bætir hún við. Samtök aðstandenda krabba- meinssjúkra barna eru frekar ungt félag sem var stofnað fyrir tæpum tveimur árum. Nú era félagsmenn um hundrað að sögn Jóhönnu. Hún segir að markmið félagsins sé að standa við bakið á krabbameins- sjúkum börnum og fjölskyldum þeirra. „Þá eigum við bæði við inni á sjúkrahúsum og utan þeirra," seg- ir Jóhanna. Hún segir að yfirleitt þurfi börn að gangast undir tveggja til þriggja ára lyfja- og geislameðferð þegar um hvítblæði sé að ræða. Það sé á þeim tíma sem foreldrar þyrftu að eiga aðgang að styrktarsjóði. „Sú aðstoð sem fæst frá ríkinu er svo takmörk- uð að það er nauðsynlegt að gera eitthvað í þessum málum. Fólk ræður ekki bæði við tilfinninga- stríðið og fjárhagsáhyggjumar," segir Jóhanna. Gott á þig að bróðir þinn fékk krabbamein Jóhanna vonast til að átakið verði jafnframt til þess að opna umræðu um þessi mál. „Það er ótrúlega margt fólk sem veit ekki að börn fá krabbamein og hefur einnig rang- hugmyndir um hvað krabbamein er sérstaklega í börnum,“ segir Jó- hanna. Þar talar hún út frá eigin reynslu þar sem hún átti son sem lést af völdum krabbameins. Hún segir ranghugmyndirnar birtast með ýmsum hætti. „Þótt ótrúlegt megi virðast heldur fólk að það geti smitast af krabbameini," segir Jó- hanna. Þá segir hún að veikindin snerti ekki aðeins veika barnið og for- eldra þess heldur ekki síður systk- ini þess sem jafnvel verði fyrir að- kasti. „Þetta er ótrúlegt en satt því þau verða jafnvel fyrir aðkasti frá félögum sínum og kunningjahóp- um í skólum. Krakkarnir eru svo illa upplýstir um þetta og halda jafnvel að hægt sé að smitast af krabbameini," segir Jóhanna. Dóttir hennar upplifði að sagt var við hana: „Ég get ekki farið heim til þín því ég gæti fengið krabba- mein.“ „Hún var átta ára þegar bróðir hennar greindist með krabbamein. Börn geta verið miskunnarlaus. Það er ekki mjög langt síðan þetta var sagt við hana: „Það er gott á þig að bróðir þinn fékk krabbamein.“ Þau vissu að þarna gátu þau sært hana,“ segir Jóhanna. Hún segist hafa haft samband við skólann sem tók á málinu en það dugði skammt. „Það var bara í augnablik því umræðan stóð í einn dag og síðan ekki söguna meir. Manni finnst ósanngjarnt hvað börnin eru ómeðvituð um þetta inni í skólunum. í þessu tilviki er það krabbameinssjúka barnið sem er í hættu vegna þess að varnar- kerfi þess er í molum og það gæti sýkst af minnsta kvefi af skólafé- lögunum," segir Jóhanna. -HÞ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.