Tíminn - 05.03.1993, Blaðsíða 9
Föstudagur 5. mars 1993
Ttminn 9
Kópavogur —
Opið hús
Opiö hús er alla laugardaga kl. 10.00 -12.00 aö Digranes-
vegi 12. Kaffi og létt spjall. Siguröur Geirdal bæjarstjörí
veröur til viötals
Framsóknarfélógin
Siguröur
Vík í Mýrdal
Jón Helgason Guöni Ágústsson Þuriöur
Bemódusdóttlr
Almennur fundur um stjómmálaviöhorfiö veröur haldinn f Brydebúö mánudaginn
8. mars kl. 21.
Reykjavík — Létt
spjall á laugardegi
Laugardaginn 6. mars n.k. kl. 10.30-12.00 aö Hafnar-
stræti 20, 3. hæö, mætir Finnur Ingólfsson alþingismaður
og ræöir stjómmálaviöhorfiö og svarar fyrírspumum.
Fulltrúaráðið
Finnur
Ásta
Reykjavík —
Framsóknarvíst
Framsóknarvist veröur spiluö n.k. sunnudag 7. mars I
Hótel Lind, Rauöarárstíg 18, og hefst kl. 14.00.
Veitt veröa þrenn verölaun karía og kvenna.
Asta Ragnheiöur Jóhannesdóttir varaþingmaöur flytur
stutt ávarp i kaffihléi.
Aögangseyrir kr. 500,-. Kaffiveitingar innifaldar
Framsóknarfélag Reykjavikur
Kópavogur —
Framsóknarvist
Spilum aö Digranesvegi 12 sunnudaginn 7. mars kl. 15.00. Góö verölaun og
kaffiveitingar.
Freyja
Akranes — Bæjarmál
Fundur veröur haldinn I Framsóknarhúsinu laugardaginn 6. mars kl. 10.30. Far-
ið veröur yfir þau mál sem efst eru á baugi i bæjarstjóm.
Morgunkaffi og meölæti á staönum.
Bæjarfulltrúamlr
Kópavogur—
Bæjarmál
Opinn fundur um bæjamnál veröur haldinn að Digranes-
vegi 12 mánudaginn 8. febriiar kl. 20.30.
Siguröur Geirdal bæjarstjóri mun kynna skipulagsbreyt-
ingar á tæknideild bæjaríns.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélögin
Slgurður
VELKOMIN TIL U.S.A.
Sértilboð frá bandarísk-
um stjórnvöldum
Bandarísk stjómvöld gefa þér kost á að sækja um og öölast
varanlegt dvalar- og atvinnuleyfi samkvæmt áætlun AA-1.
Dregið verður úr umsóknum og þú getur þannig hreppt tæki-
færi til að setjast að I Bandaríkjunum og stunda þar vinnu.
(orðið handhafi „græna kortsins“). Umsóknarfrestur um dval-
arieyfi rennur út 31. mars nk. og þvl nauösynlegt aö bregð-
ast viö strax, svo umsókn þín nái fram í tíma.
Allir þeir, sem eru fæddir á íslandi, Bretlandi eöa (riandi
og/eða eiga foreldri eða foreldra af sömu þjóðemum, hafa
rétt til að sækja um þetta leyfi.
Sendið 45 Bandaríkjadala greiðslu fyrir hvem umsækjanda
til okkar ásamt nafni umsækjanda, fæðingardegi, fæðingar-
stað, nafni hugsanlegs maka og nöfnum og dvalarstað
ógiftra bama undir 21 árs aldri.
Heimilisfangið er: VISA USA, P.O. Box no. 822211 Dallas,
Texas, 75382, USA.
Fyrsta hjartaígræösl-
an fyrir 25 árum
Þau eiga öll llf sitt aö þakka starfi frumkvööuisins Christiaans Barnard. Þau fengu nýtt hjarta á Groote
Schuur-sjúkrahúsinu, þar sem hann græddi fyrstur manna nýtt hjarta í sjúkling sem ekki var hugaö líf.
Christiaan Barnard:
Allt er þegar þrennt er, gæti Barnard sagt um umrótiö I einkallfinu.
Hann viröist loks hafa fundiö ró, sjötugur, meö þriðju konuhni, Kar-
in, sem aöeins er þrftug aö aldri, og syni þeirra Armin.
Fyrir 25 árum urðu tveir lítil-
vægir atburðir til þess að sex
tíma skurðaðgerð markaði
tímamót í læknavísindunum
og komu óþekktum suður-afr-
ískum lækni á forsíður blaða
um allan heim. Annan desem-
ber 1967 ók bíll á Denise
Darvall, 25 ára konu, þegar
hún hljóp yfir götu í Höfða-
borg til að kaupa köku.
Ann Washkansky, sem átti leið
hjá slysinu á leiðinni heim eftir að
hafa heimsótt langsjúkan mann
sinn Louis á sjúkrahúsið, sá — en
veitti enga athygli líkama Denise
á götunni og þaðan af síður vissi
hún um heiladauðann sem orðinn
var.
Degi síðar var hjarta Louis
Washkansky fjarlægt úr líkama
hans og hjarta Denise Darvall sett
í staðinn. Það sama kvöld var nafn
óþekkts ungs skurðlæknis,
Christiaan Neethling Barnard,
orðið heimsfrægt
Það afrek, sem þarna var unnið,
var ekki stundarfyrirbæri. Þó að
Louis Washkansky héldi ekki lífi
nema í 18 daga eftir aðgerðina,
hélt Barnard áfram aðgerðum sín-
um og þeir, sem vildu feta í fót-
spor hans í öðrum löndum, áttu
bágt með að átta sig á hversu auð-
velt honum virtist að ná árangri.
Sjötti sjúklingurinn hans, Dirk
van Zyl, sem fékk ígræðsluna áð-
ur en mikilvægt lyf fannst gegn
höfnunaráhrifum líkamans, er
enn á lífi og er sá hjartaígræðslu-
sjúklingur sem lengst hefur lifað í
heiminum. Nú er þessi aðgerð
gerð á meira en 3.500 sjúklingum
á ári um heim allan.
En þessi tímamótaaðgerð mark-
aði ekki aðeins djúp spor í lækna-
vísindunum, hún gerbreytti líka
lffi Christiaans Bernard. Hann,
óþekkti, suður-afríski læknirinn,
varð skyndilega dýrðlingur fjöl-
miðla, og komst fljótt að raun um
að það þótti honum geysilega
skemmtilegt. Hann hitti helstu
áhrifamenn heimsins á öllum
sviðum (þótti mest koma til Páls
VI páfa af stórmennunum sem
hann hitti) og fagrar og heillandi
konur voru á hverju strái. Auðvit-
að komu fljótt sprungur í langvar-
andi hjónaband hans og hjúkrun-
arkonunnar Louwtjie, sem hann
hafði gifst 26 ára gamall. Steininn
tók þó úr, þegar hún fann ástar-
bréf frá Ginu Lollobrigidu til
manns hennar, en hann var
bendlaður við fleiri frægar og
hrífandi konur.
Christiaan segist nú hafa orðið
að segja skilið við Ginu vegna
þrýstings frá bókaútgefandanum
sínum, en hann var þá þegar sest-
ur við skriftir, sem hann stundar
enn. 16. bókinni hans er nýlokið,
framhaldi ævisögunnar sem áður
er komin út.
Læknirinn var þó ekki af baki
dottinn í kvennamálum. Hann
kynntist fljótlega og giftist 19 ára
suður- afrískri fegurðardís, Bar-
bara Zoéllner, milljónamærings-
dóttur sem aldrei hefur kynnst því
umhverfi sem Christiaan ólst upp
í, fátækur, berfættur í litlum, ryk-
ugum bæ.
En í byrjun níunda áratugarins
fór að halla undan fæti hjá lækn-
inum góða. Hann hélt uppteknum
hætti, ferðalög og fagrar konur
höfðu áður verið aðdáunarverður
lífsstíll, en lagði nú hjónabandið í
rúst. Elsti sonur hans drukknaði í
baði eftir að hafa tekið inn lyf við
þunglyndi. Og liðagigtin, sem
hafði angrað hann frá því áður en
hann hóf hjartaígræðslumar, tók
sig upp af fullum krafti og lagðist
ekki hvað síst á hendurnar, dýr-
mætustu eign læknisins. Skilnað-
urinn við Barböru olli honum
slíkri afbrýðisemi og þunglyndi að
hann barðist við sjálfsmorðshug-
myndir í heilt ár.
Að lokum hafði þó óbilandi vilja-
styrkur, starfsstolt og meðfædd
lífsgleði hans þó sigur. Nú lifir
hann rólegu lífi, fer stöku sinnum
í fyrirlestraferðir og á læknaráð-
stefnur, en hefur góðan tíma til að
vera í félagsskap Karinar, konunn-
ar sem hann giftist fyrir 5 árum
og er fjörutíu árum yngri en
hann, og syni þeirra Armin. Og
samband þeirra hjóna við Barböru
og synina tvo úr því hjónabandi er
gott.
Sjötugur að aldri lítur Christia-
an Barnard yfir farinn veg og er
sáttur við lífsgönguna.