Tíminn - 05.03.1993, Side 5

Tíminn - 05.03.1993, Side 5
8 Tíminn Föstudagurö. mars 1993 Jóna Ingibjörg Ágústsdóttir Fædd 22. ágúst 1914 Dáin 27. febrúar 1993 Látin er í Reykjavík merkiskona og kær vinur, Jóna Ingibjörg, í daglegu tali nefnd Inga. Andlátsfregnin var óvænt, banalegan stutt en ströng. Hún lést á Landspítalanum aðfaranótt laugar- dagsins 27. febr. úr illkynjuðum sjúk- dómi. Inga var fædd að Borgarlæk í Skefik- staðahreppi, Skagafirði, 22. ágúst 1914. Foreldrar hennar voru Sigurrós Inga Jónsdóttir og Ágúst Hreggviðs- son, smiður og verkstjóri um langt ára- bil hjá Vitamálastofhun, annálaður at- orku- og skapfestumaður. Fór víða um Iandið og stjómaði gerð hafharmann- virkja, einkum bryggjusmíði. Man ég Innilegar þakkir færum viö þeim sem auðsýndu samúö og vináttu viö andlát og útför sonar mfns og bróöur okkar Agnars Helga Vigfússonar Mávahlfö 19 Öllum þeim, sem heimsóttu hann, og á einn eöa annan hátt veittu honum styrk I erfiöum veikindum hans, svo og læknum og hjúkmnarliði deildar 11E á Landspftalanum fæmm viö alúöarþakkir. Elfn Helga Helgadóttir Guðmundur Hákon Vlgfússon Höröur Blrglr Vlgfússon Þórhildur Vlgfúsdóttlr Krlstján Bjömsson Agnes Helga Vigfúsdóttir Baldur Jón Vlgfússon og systkinaböm Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu Gunnþórunnar Kiöru Karlsdóttur Blrkivöllum13, Selfossi veröur gerð frá Selfosskirkju laugardaginn 6. mars kl. 13.30. Sveinn J. Sveinsson Björg Siguröardóttlr Nfna S. Sveinsdóttir Arnór Hannibalsson Ingibjörg S. Sveinsdóttir Freysteinn Sigurðsson Sigurður G. Sveinsson barnaböm og bamabamaböm DAGBÓK BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLTÍ KRINGUM LANDIÐ. MUNIDÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar Skaftfellingafélagiö í Reykjavík Félagsvist sunnudaginn 7. mars kl. 14 í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178. Frá Hana nú í Kópavogi Vikufeg Iaugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað frá Fannborg 4 kl. 10. Nýlagað molakaffi. Húnvetningafélagið Félagsvist á laugardag kl. 14 í Húnabúð, Skeifunni 17. 4 daga keppni hefsL Allir velkomnir. Góukaffi hjá Skagfirö- ingafélaginu Kvennadeild Skagfirðingafélagsins í Reykjavík verður með góukaffi í Drang- ey, Stakkahlíð 17, sunnudaginn 7. mars kl. 14. Þar verður tískusýning og kvennakór með gítarundirleik skemmtir. Hafnargönguhópurinn: Gengiö um miöbaeinn meö Pétri þul og suöur í Skerjaf jörö Laugardaginn 6. mars stendur Hafnar- gönguhópurinn fyrir tveimur göngu- ferðum. Báðar verða famar frá Hafnar- húsinu, Grófarmegin. Kl. 14 fer Pétur Pétursson, þulur og fraeðimaður, í sína sjöundu gönguferð um miðbæinn og heldur áfram að segja frá mönnum og málefnum á fyrri tíð og rifja upp byggðasögu. Tíminn hf. óskar eftir umboösmanni í Vestmannaeyjum frá 1. maí 1993. Upplýsingar gefur Marta Jónsdóttir í síma 98-12192 hann vel austan úr Neskaupstað, laust fyrir 1950. Foreldramir höfðu á Borg- arlæk smábúskap, en Ágúst stundaði að mestu vinnu utan heimilis. Móðirin, Sigurrós Inga, féll frá langt um aldur fram, þegar Inga var aðeins 6 ára. Tvo bræður átti hún. Á þessum tímamót- um flyst Inga á Sauðárkrók til móður- foreldra sinna. Þar á hún heimili næstu 2 árin, eða þar til Jón afi hennar fellur frá. Átta ára gömul fer hún í vist til hjónanna Ófeigs Bjömssonar og Guð- bjargar Tómasdóttur og er þar í upp- vexti og strangri vinnumennsku fram yfirfermingu. Á sextánda ári liggur leiðin til Reykja- víkur, þar sem Inga er um skeið, þén- andi sem vinnukona. Á þeim tíma er feðir hennar Ágúst fluttur þangað og giftur aftur. Leiðin liggur síðan aftur norður í land. Á Skagaströnd kynnist hún Sigurgeiri Jóhannssyni 1934, þá tvítug kona. Þeirra fyrsta bam feeðist 1935, en bömin urðu fimm: Jóhann f. 1935, Ingólfúr f. 1936, Ásthildur f. 1937, Erla f. 1939, Soffia f. 1941. Heimili þeirra var á nokkmm stöðum úti á landi, en síðustu árin í Reykjavík. Heilsuleysi fellur uppá Sigurgeir á besta aldri og hann deyr í sepL 1943. Þá stendur Inga ein uppi með hópinn sinn. Þessi fyrri hluti lífshlaupsins var strangur og mikill reynslutími, sem Inga stóðst af prýði, en hún var kona skapfestu, traustíeika og yfirvegunar. Uppgjöf var ekki til í hennar huga. Árið 1950 takast kynni með Ingu og Sverri G. Meyvantssyni, kenndum þá við Eiði á Seltjamamesi. Þau hefja búskap í okt 1951. Einkasonur þeirra er Hreggviður Sigurbjöm, f. 07.09.1952. Hann er kvæntur Huldu Jósepsdóttur og eiga þau 3 böm og búa á Selfossi. Á heimili Ingu og Sverris em um ára- bil dætur þrjár, svo og Vilhelm sonur Sverris, f. 1941, en hann kom alfarið til þeirra 1953. Veit ég að þau hjón voru bömum sínum umhyggjusöm og reyndust þeim vel í lífsbaráttunni. Mik- ið þurfti til fyrir hópinn og framlag húsmóðurinnar var ótæpileg vinna, ástúð og umhyggja. Kært var með Ingu og Sigríði Elísabetu, dóttur Sverris, f. 1940, en hún bjó hjá sínu móðurfólki. Kynni mín af þessum góðu hjónum byrja haustið 1958, þegar ég bý á Nýja stúdentagarðinum, en þá em þau þar húsverðir. Höfðu tekið við því starfi eft- ir langa setu heiðurshjónanna Mey- vants Sigurðssonar og Elísabetar Jóns- dóttur. Það var gott að tylla sér f eldhúskrók- inn hjá Ingu á Nýja-Garði, fé hressandi kaffisopa, uppbyggilegar umiæður og hlýju og glaðværð í meðlæti. Gestrisni var henni eðlislæg. Margur Garðbúinn naut umhyggju og „endurreisnari' þeirra Ingu og Sverris eftir ströng æv- intýri helganna, en þá var nú ekki dreg- ið af sér á hálum brautum gleðinnar. Inga var fróð og vel lesin. Áhugi henn- ar á hverskonar lesmáli byijaði strax á bamsaldri. Hún varð að fara vel með þá fróðleiksiðkun í uppvextinum, enda þótti rétt að tökuböm héldu sig fremur að vinnu en bóklestri. Inga og Sverrir vom mjög samhent og áhugamál þeirra vom mörg. Þau gripu gjaman í spil og fóm á gömlu dansana. Að blanda geði og gleðjast með vinum var Ingu gjamt Hún var alla tíð reglu- söm og taldi að gæta yrði varúðar í líf- inu og þess freistingum. Inga var þó aldrei að predika bindindi eða annað f þeim dúr, það var henni fjarri. Hún gekk á undan með góðu fordæmi, hafði heillavænleg áhrif á sitt um- hverfi, vini og vandamenn. Einlægasta áhugamál Sverris og Ingu vom ferðalög um landið. Um liðlega 40 ára skeið áttu þau fiölmargar ferðir, raunar öll sumur, þá ekki síst í óbyggð- ir. Áttu þau lengst af sérstaka tveggja drifa ferðabfla, en húsbfl síðustu árin. Góð verkaskipting var hjá þeim, þar sem Inga var siglingafræðingurinn og með fróðleikslesningu, en bflstjómin var í ömggum höndum Sverris, en hann er af ræktuðu ökuþórakyni. Ferðalögin vom þeirra lífselexír, þar söfnuðu þau orku fyrir andann, hresstu sál og líkama. Inga fór ekki varhluta af veikindum, sem hún þó aldrei kvartaði undan, enda engin skræfa. Illa gekk að greina veikindi Ingu, sem átti marga spítala- vist eftir 1964. En 1967 er hún greind með alvarlegan ofnæmissjúkdóm og þá send á Vífilsstaði í aðgerð, þar sem hún dvaldi næstu 13 mánuðina. Síðan átti hún marga ferðina og legur á Víf- ilsstöðum. Hún bar afar hlýjan hug til þeirrar stofnunar og starfsfólks henn- ar. Nú að leiðarlokum vil ég og mitt fólk þakka vináttu, mikla greiðasemi og margar ánægjulegar samverustundir. Sverrir minn, megi minningin um traustan förunaut veita þér huggun harmi gegn. Mínar innilegustu sam- úðarkveðjur til bama og allra ástvina Ingu. Hvfli hún í friði. Friðjón Cuðröðarson Heimspeki fyrir böm Nýlega kom út hjá Almenna bókafé- laginu hf. bókin Draumur eða veru- leiki eftir Sigurð Björnsson. Hér er á ferðinni ævintýri, sem auk þess að vera skemmtilegt vekur barnið til heimspekilegra íhugana. Höfundur bókarinnar, sem lokið hefur fram- haldsnámi í heimspeki fyrir börn og stundar kennslu við Heimspekiskól- ann, fléttar inn í sögu sína heim- spekilegum viðfangsefnum og verk- efnum við hæfi 6-9 ára barna. í sög- unni kynnumst við Jóa og undarleg- um draumi hans, þar sem dís úr öðrum heimi fer með hann yfir í heim sinn og kynnir hann fyrir hin- um ótrúlegustu persónum sem þar búa. í heimi dísarinnar er flest á annan veg en í heimi Jóa og fær draumurinn hann til að velta fyrir sér ýmsu sem fram fer í hans eigin heimi. Vinátta, fegurð og réttlæti eru meðal viðfangsefna bókarinnar, sem einnig inniheldur verkefni fyrir börnin og leiðbeiningar fyrir for- eldra og kennara um hvemig nota megi bókina. Bókin er skreytt myndum eftir Erlu Sigurðardóttur. Markmiðið með bókinni er að vekja börnin til umhugsunar um heim- spekileg viðfangsefni og þjálfa hugs- un þeirra. Það ævintýri, sem er sagt í bókinni, getur þjónað sem grunn- ur fyrir heimspekilegar samræður. í lok hvers kafla eru spurningar, sem em til þess ætlaðar að styðja sam- ræðuna og færa hana nær þeim heimspekilega kjama sem er falinn í textanum. Heimspekilegar samræð- ur em einstaklega góð aðferð fyrir foreldra til þess að nálgast hugar- heim barna sinna. Það er svo sjaldan Ein mynda Erlu Sigurðardóttur í bókinni. sem við spyrjum börnin okkar spuminga sem snerta afstöðu þeirra til mikilvægustu þátta lífsins. Hvað er sanngjarnt? Hver erum við? Hver er tilgangur lífsins? O.s.frv. Spum- C Bókmenntir V_________________> ingar sem þessar koma sífellt upp í heimspekilegum samræðum og geta skoðanir barnanna komið mörgum foreldmm skemmtilega á óvart og orðið aflvaki að fjörugum og innihaldsríkum samræðum, sem geta verið jafnt foreldrum sem böm- um til gagns og gamans. (Fréttatilkynning)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.