Tíminn - 21.04.1993, Blaðsíða 12

Tíminn - 21.04.1993, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 L«TT* .. .alltaf á iraövikudögum NYTT OG FERSKT DAGLEGA 88, eiðholtsbakarí VÖLVUFELL113 - SÍMI73655 -ys/if HOGG- DEYFAR Verslió hjá fagmönnum l GÍvarahlutir ' Haounböfði 1 - s. 67-67-44 3 ríniiim ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1993 Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra segist ekkert vita um bréf sem send eru til eða frá ráðuneyti hans og sömuleiðis ekkert vita um —, fundi sem haldnir eru í ráðuneytinu: Olafur þrætir enn „Þeim sem vilja stimpla mig ósannindamann hefur bæst öflugur liös- auki, þar sem er fyrrverandi ráöuneytisstjóri í menntamálaráöuneytinu ef rétt er eftir honum haft í tveimur dagblöðum í dag,“ sagöi Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra á Alþingi í gær í tilefni oröa Knúts Hallssonar, fýrrverandi ráðuneytisstjóra í menntamálaráöuneytinu, í fjölmiólum í gær. Knútur hefur sagt að mennta- málaráðherra hafí séð bréf það sem Hrafn Gunnlaugsson sendi ráð- herra um Norræna kvikmyndasjóð- inn. Svavar Gestsson (Alb.) spurði ráðherra á Alþingi í gær hvor færi með rétt mál, ráðherrann eða ráðu- neytisstjórinn? Olafur ítrekaði það sem hann hef- ur áður sagt að hann hafi ekki séð bréf Hrafns Gunnlaugssonar til ráðherra eða bréf það sem Knútur Hallsson sendi framkvæmdastjóra Norræna kvikmyndasjóðsins í framhaldi af því, fyrr en eftir að Knútur sendi bréfið. Ólafur sagðist einnig ekkert vita um þann fund sem haldinn var í menntamála- ráðuneytinu þar sem bréf Hrafns var m.a. til umfjöllunar. Atvinnumál námsmanna Um 500 manns hafa nú sótt um sumarvinnu hjá Atvinnumiðlun námsmanna sem er svipað og var á sama tíma í fyrra. í fyrra gat At- vinnumiðlunin útvegað um 520 manns vinnu. Fremur fá stöðutilboö hafa nú bor- ist Atvinnumiðlun námsmanna og óttast námsmenn um sinn hag, ekki hvað síst vegna breyttra reglna LÍN sem gera námsmönnum nauðsyn- legra en áður að afla sér sumar- tekna. Svavar sagðist hafa upplýsingar um að athugasemdir hafi komið fram á þessum fundi við málaleitan Hrafns. Sú skoðun hafi þar komið fram að eðlilegra væri að senda full- trúa íslands í stjórn kvikmynda- sjóðsins bréfið en ekki fram- kvæmdastjóra sjóðsins. Knútur hefur sagt að rætt hafi ver- ið um að ráðherra tæki mál Hrafns upp á óformlegum fundi mennta- málaráðherra Norðurlanda. Ráð- herra hafi m.a. tekið með sér gögn um málið á fundinn. Ekki hafi hins vegar komið til þess að málið væri fært í tal við ráðherrana. Ólafur hef- ur sagt að hann hafi neitað beiðni Knúts um að ræða málið á fundum með menntamálaráðherrum Norð- urlandanna. Ólafur ítrekaði þetta á Alþingi í gær, en svaraði ekki full- yrðingum Knúts um að ráðherra hafi tekið gögn um málið með sér til fundar við ráðherra menntamála á Norðurlöndum. Páll Pétursson (Frfl.) ræddi þessi bréfaskipti á Alþingi í fyrradag og sagði þá m.a.: „Standist staðhæfing menntamálaráðherra að hann hafi ekkert um bréfið [bréf Hrafns til menntamálaráðherra] vitað fyrr en Tíminn birti það þá eru starfshætt- ir í menntamálaráðuneytinu næsta furðulegir. Þá hefur ráðuneytis- stjórinn rifið upp persónulegt bréf Hrafns Gunnlaugssonar til menntamálaráðherra Ólafs G. Ein- arssonar og svarað því fyrir hönd ráðherrans að honum forspurðum. Þetta eru næsta furðuleg vinnu- brögð,“ sagði Páll. -EÓ Ami Gestsson, formaður umhverfisnefndar Rotaryhreyfingarinnar á ís- landi, afhendir Sveini Runólfssyni eina miiljón króna til aö græða upp Haukadalsheiði. Rotarymilljón í Haukadalsheiði Umhverfisnefnd hefur um skeið starfað á vegum Rotaryhreyfingarinnar á fslandi og hefur m.a. safnað fé til landgræðslumála. Nýlega afhenti nefndin eina milljón króna sem safnast hefur meðal félaga hreyfingar- innar Landgræðslu ríkisins. Féð á að nota til uppgræðslu á Haukadals- heiði og verður uppgræðslusvæðið sérstaklega merkt Rotaryhreyfing- unni. Stjómarflokkamir vísa tillögu stjórnarandstöðunar um rannsókn á Hrafnsmálinu frá: Rannsakar fjárlaganefnd Hrafnsmálið? Alþingi samþykkti í gær meö 33 atkvæðum gegn 25 að vísa frá þings- ályktunartillögu nokkurra þingmanna stjómarandstööunnar um kosn- ingu sérstakrar rannsóknamefndar til að rannsaka ráöningu Hrafns Gunnlaugssonar í stöðu framkvæmdastjóra Sjónvarpsins. Tveir þingmenn Alþýðuflokks lýstu yfir stuöningi við hugmyndir um aö fjár- laganefnd Alþingis rannsaki þetta mál. Allir þingmenn Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks samþykktu tillögu um að vísa málinu frá. Allmargir þing- menn gerðu grein fyrir atkvæði sínu. Þeirra á meðal var Davíð Oddsson forsætisráðherra en þetta var í fyrsta skipti sem hann opnar munninn á Alþingi um þetta mál. Davíð gagnrýndi málflutning stjómarandstöðunnar og sagði þingnefnd ekki best fallna til að rannsaka og fella dóm í þessu máli. Gunnlaugur Stefánsson og össur Skarphéðinsson, þingmenn Al- þýðuflokks, lýstu því yfir að þeir styddu að fjárlaganefnd rannsaki í samvinnu við Ríkisendurskoðun fjárhagsleg samskipti Hrafns Gunn- laugssonar við Sjónvarpið og menntamálaráðuneytið, en ákvæði um slíka rannsókn er að finna í þingskaparlögum. Guðmundur Bjarnason, annar fulltrúi Fram- sóknarflokks í fjárlaganefnd, sagði að látið yrði reyna á þessar yfirlýs- ingar í nefndinni. Gunnlaugur Stefánsson á sæti í fjárlaganefnd og sagði í samtali við Tímann að hann myndi ekki hafa frumkvæði að því að nefndin fjall- aði um málið. Hann myndi hins vegar styðja tillögu um rannsókn komi hún fram í nefndinni. Ein meginástæðan fyrir því að stjórnarmeirihlutinn vísaði tillögu um að kjósa níu manna þingnefnd til að rannsaka mál Hrafns frá, var sú að þingmenn væru ekki best fallnir til að rannsaka þetta um- deilda og hápólitíska mál. Gunn- laugur var spurður hvort þessi rök eigi ekki einnig við um fjárlaga- nefnd og þá menn sem í henni sitja. „Ég treysti Alþingi mjög vel til þess að safna upplýsingum og kanna hvemig framkvæmdavaldið fer að ráðum sínum. Ég treysti þjóðkjörnum fulltrúum vel til þeirra starfa, ef ekki þeir hverjir þá?“ sagði Gunnlaugur. -EÓ ERLENDAR FRETTIR... D E N N I D Æ M A L A U S I WACO, Texas Fjöldasjálfsmorö Sértnjarflokksleiötoginn David Koresh og yfir 80 fylgismanna hans frömdu fjöldasjálfsmorð eftir að alrlkislögreglu- menn réðust til atlögu við vlgbúna húsaþyrpingu hans með skriðdrekum og táragasi, að sögn alrikislögreglunnar FBI. FBI sagði að Koresh hefði gefið safnaðamieðlimunum skipun um aö kveikja bál I húsaþyrpingunni svo að sýn hans um Armageddon mætti veröa að veruleika. SARAJEVO Leyfa yfirvöld brottflutn- ing? Flóttamannahjálp Sameinuöu þjóðanna undirbjó sendingu neyöarflutningalestar til bæjarins Srebrinica I Bosniu I gær, á þriöja degi vopnahlés milli umsáturs- manna Serba og múslimsks vamariiös. En S.þ. sögðu að engin trygging væri fyrir þvl að yfirvöld I Srebrenica leyfðu lestinni að hefja brottflutning óbreyttra borgara. JÓHANNESARBORG Suöur-Afríkustjórn varar Afríska bjóöarráöiö viö Stjóm Suður-Afrlku hefur varað Afrlska þjóöarTáöið viö aö áætlanir ráðsins um herferö sem byggist á óhlýðni óbreyttra borgara gagnvart stjóm hvitra kunni að leysa úr læðingi stjómmálalegt ofbeldi sem ekki veröi komiö stjóm yfir. RÓM Breytingar á kosningafyr- irkomulagi fá eindreginn stuöning Yfirgnæfandi meirihluti kiósenda I þjóð- aratkvæðagreiöslunni á Italiu kaus aö hætta að velja fulltrúa til þings með hlut- fallskosningum. Endanlegar niðurstöður úr kosningunum sýndu að 82,7% kjós- enda höfðu valið tillögu að einmenrr- ingskjördæmafyrirkomulagi I kosningum til öldungadeildarinnar. TÓKÝÓ Dollar lækkaöi Við lokun kauphallarinnar I Tókýó I gær var dollarinn lægri þar en áöur hefur gerst eða 110,25 jen. Á sama tima hélt japanski gjaldmiöillinn áfram aö æða upp og miðlarar reyndu á sálfræöilega markiö, sem miðast við 110 jen. MOSKVA Rútskoj og Khasbúlatov vilja fram gegn Jeitsín Alexander Rútskoj varaforseti sagðist I gær ætla að bjóöa sig fram til forseta ef Bóris Jeltsln, fyrrum samherji hans og núverandi andstæöingur, neyddist til að segja af sér eftir þjóðaratkvæðagreiðsl- una um traust á forsetanum nk. sunnu- dag. Fréttastofan Interfax haföi eftir öðr- um andstæðingi Jeltsins, Rúslan Khas- búlatov þingforseta, aö svo kynni aö fara að forsetinn ynni sigur I kosningun- um en þá „aðeins með svikum, enda- lausum launráðum og þrýstingi". AMMAN Arafat talar viö fulltrúa Palestínumanna Jasslr Arafat, leiötogi PLO, kom I gær til Jórdanlu frá Sýrtandi til funda við fulF trúa Palestinumanna til aö ræöa um hvort eigi að taka aftur upp friöarvið- ræöur um Miðausturtönd.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.