Tíminn - 05.06.1993, Side 2

Tíminn - 05.06.1993, Side 2
2 Tíminn Laugardagur 5. júní 1993 Undirbúningur Óháöu listahátíöarinnar er haflnn f Faxaskála og hér rýna aöstandendur hennar í dagskrána. Tfmamynd Aml Bjama Óháða listahátíðin að heijast: Vei þeim sem út úr bæn- umætlar „Ólótt 1993“ er heitl óháðu listahátíðinnar sóm hleypt verður af stokkunum 9. þessa mánaðar, annað sumarið f röð. „Undirbúningi hátíðarinnar má líkja við meðgöngu bams. Því ákváðum við að nefna hana „Ólétt“, segir Halldór Auðarson, fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar. „700 manns taka þátt í hátíðinni að þessu sinni og hún fer að mestu leyti fram í Faxaskálanum þar sem tvö svið verða reist, annað helgað leiklist en hitt tónlist. En einnig verða atriði í Tjamarsal Ráðhússins og á ýmsum kaffihúsum borgarinnar," segir Halldór. Allar listgreinar verða í hávegum hafðar á hátíðinni en rokkhljóm- sveitir setja þó óneitanlega mikinn svip á hátíðina enda em þær um 80 talsins. „Við fengum 500.000 króna styrk frá Reykjavíkurborg í ár og nemur það um fimmtungi þess fjármagns sem við þurfúm," segir Halldór. Kunnir listamenn koma fram í bland við þá sem óþekktari eru og leikur engin vafi á því að allir geta fúndið eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin stendur dagana 9.-27. júní. -GKG. Frá Háskóia íslands Skrásetning nýrra stúdenta Skrásetning nýrra stúdenta til náms f Háskóla (slands háskóla- árið 1993-1994 fer fram f Nemendaskrá Háskólans dagana 1.- 15. júní 1993. Umsóknareyðublöð fást f Nemendaskrá, sem opin er kl. 10:00- 15:00 hvem virkan dag á skráningartfmabilinu. Einnig verður tekið við beiðnum um skrásetningu nýrra stúd- enta dagana 6.-17. janúar 1994. Viö nýskrásetningu skrá stúdentar sig jafnftamt í námskeið á komandi haust- og vormisseri. Umsóknum um skrásetningu skal fylgja: 1) Ljósrit eða staðfest eftirrit af stúdentsprófsskfrteini. 2) Skrásetningargjald: kr. 22.500,-. Ljósmyndun vegna nemendaskfrteina fer fram f skólanum f september 1993. Ekki er tekið á móti beiðnum um nýskrásetningu eftir að aug- lýstu skráningartfmabili lýkur. Góéar veislur fl endavel! M Eftir einn -ei aki neinn /cdm y É UMFERÐAR up RÁÐ Leigubílareikningar Hrafns leyndarmál? Hrafn hótar starfs- fólki Sjónvarpsins Eins og fram hefur komið í fjölmiölum eyddi Hrafn Gunnlaugsson á fyrstu tíu dögum sínum f embætti framkvæmdastjóra Sjónvarps rúmum 55 þúsund krónum af fjármunum stofnunarinnar f leigu- bíla. Kristín Ámadóttir spurðist fyrir um málið á fundi útvarpsráðs í gær og um hvort rétt væri að leigubfla- kostnaður Hrafns væri svona hár og staðfesti fjármálastjóri Sjónvarpsins það á fundinum. Greinilegt er að Hrafn telur að þar hafi einhver innan stofnunarinnar tekið sig til og lekið því út sem leynt átti að fara, því að á fúndi útvarps- ráðs í gær var fjallað um bréf sem Hrafn sendi Sigmundi Emi Am- grímssyni, dagskrárstjóra innlendr- ar dagskrár. Bréfið er svona: „Ýmsar upplýsingar sem fara á með sem trúnaðarmáf innan Sjónvarps- ins hafa komist í hendur óviðkom- andi. Hjálögðum texta úr almennum hegningarlögum hefúr starfs- mannastjóri vakið athygli mína á. Viltu vinsamlegast brýna eftirfar- andi Iagaákvæði fyrir starfsmönnum IDD.“ Með bréfinu fylgja ljósrit úr al- mennum hegningarlögum og lög- um um réttindi og skyldur opin- berra starfsmanna og hefur Hrafn sérstaklega merkt við 32. grein síð- amefndu laganna þar sem segir að hverjum starfsmanni sé skylt að gæta þagmælsku um atriði er hann fói vitneskju um í starfi sínu og Ieynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrir- mælum yfirboðara eða eðli málsins. Þagnarskylda haldist þótt látið sé af starfi. í hegningarlögunum hefur Hrafn merkt sérstaklega við 136. grein þar sem segir að refsingar við því að leka út leyndarmálum séu varðhald eða fengelsi allt að einu ári og jafnvel allt að þremur árum hafi sá lausmálgi ætlað að hagnast á vitneskju sinni. Auk þess að skrifa þetta bréf hefúr Hrafn kallað nokkra starfsmenn Sjónvarpsins til viðtals vegna „leigu- bflamálsins" að kvöldlagi og spurt þá hvort þeir væm sökudólgamir. —si Minnihlutinn í borgarstjórn vann í fyrsta sinn á kjörtímabilinu hlutkesti um sæti í borgarráði: Sigrúnvann hlutkestið Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins verður fulltrúi í borgarráði til eins árs eða út kjörtímabilið. Hún sigraði þegar varpað var hlutkesti mllli hennar og Júlíusar Hafstein, borg- arfulltrúa Sjálfstæðisfiokksins á nýliðnum fundi borgarstjómar. Þar var kosið um fimm fulltrúa í borgarráði en einnig um forseta og tvo varaforseta borgarstjómar. Sjálf- stæðismenn lögðu fram tillögu um fjóra fulltrúa í borgarráði en minni- hlutinn um tvo. Hlutkesti var því varpað um fjórða mann sjálfstæðismanna og annan mann minnihlutaflokkana. í fyrsta sinn á kjörtímabilinu tapaði meiri- hlutinn hlutkesti um borgarráðs- sæti. Minnihlutinn hefúr átt einn fúll- trúa í borgarráði og nú tekur Guð- rún Ögmundsdóttir Kvennalista sæti Ólínu Þorvarðardóttur sem set- ið hefur í borgarráði fyrir minni- hlutann síðasta ár. Af hálfu meirihluta Sjálfstæðis- manna eiga sæti í borgarráði þau Katrín Fjelsted, Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson og Ámi Sigfússon. Sigurjón Pétursson og Ólína Þor- varðardóttir eru varamenn í borgar- ráði fyrir minnihlutann en Júlíus Hafstein, Anna K. Jónsdóttir og Guðrún Zoéga eru varamenn meiri- hlutans. Magnús L. Sveinsson var endur- kjörinn forseti borgarstjómar og þau Páll Gíslason og Katrín Fjeld- sted varaforsetar. -HÞ Þegar hugmyndin að sjó- mannadeginum fæddist Vorið 1929 fékjc Henry A. Hálfdansson, þáverandi lofskeytamaður um borð í bv. Hafsteini, hugmyndina að sérstökum hátíðisdegi sjómannastéttarinnar Sjómar.nadagurinn er nú haldinn há- tíðlegur í 56. sinn en fyrsta sjómanna- deginum var fagnað 6. júní 1938. Skal hér á eftir farið nokkrum orðum um upphaf hans og er vitnað til frásagnar Ásgeirs Jakobssonar rithöfundar í bók hans, Siglingasögu Sjómannadags- ráðs, sem úr kom á 50 ára afmæli sjó- mannadagsins 1988. Segir af því þegar Henry A. Hálfdansson, sem þá var loft- skeytamaður um borð í botnvör- pungnum Hafsteini, fékk hugmynd- ina. Draumlyndur loft- skeytamaður Vorið er tími nýrra hugmynda með mannfólkinu. Nú er það ekki sagt vit- að í sögunni, hvort það var þessi glaði morgunn sem verkaði á frjótt ímynd- unarafl loftskeytamannsins á Haf- steini, en hann var sagður jafnan fúll- ur af allskyns hugmyndum, eða hvort honum fannst þama gefast næði til að lýsa hugarfóstri sem hann hefði geng- ið lengi með. Nema það verður, þegar hann kemur fram í brúna að færa stýrimanni fréttir af aflabrögðum annarra togara um nóttina, að hann tekur að halda ræðu yfir stýrimannin- um. Hann var flugmælskur þessi ungi loftskeytamaður, meðalmaður á vöxt, ljóshærður, björt augun og fjörleg. Þar sem ræðan var ekki fest á blað fyrr en þrjátíu árum eftir að hún var haJd- in, er hún ekki til orðrétt, en margt mundi stýrimaðurinn frá orði til orðs og um annað er vitað að hafi sagt ver- ið, vegna þess sem loftskeytamaður- inn sjálfur ritaði síðar. Hann mun nefnilega hafa lýst því fyrst að vegur togaramannsins með þjóðinni væri ekki eins og hann ætti skilið miðað við sína erfiðu atvinnu, en mikilvægi starfsins fyrir alla þjóðina ómælt. En þessi loftskeytamaður var líka skáld- lega sinnaður og það var skáldskapur- inn sem stýrimaður mundi gleggst, enda var hann skemmtilegri en veru- leikinn. Þá er gott, ef það var ekki ein- hver vottur af skáldi í stýrimanninum líka. Þau voru mörg ófullburða skáld- in um borð í þennan tíma, þegar brauðstritið var fólki allt og veruleik- inn kæfði allan skáldskap. Ræðan fræga Þessi var ræðan fræga: , ,Á fögrum vormorgni eins og þessum að lokinni vertíð, þegar flotinn er í höfn til viðgerðar og þrifa, munu sjó- menn helga sér einn dag á vori hverju og nefna hann sjómannadag og þeir munu halda daginn hátíðlegan með skrúðgöngu, íþróttum, ræðuhöldum, dansi og drykkju að kvöldi í vistlegum húsakynnum höfuðstaðarins. Daginn eftir munu þeir byrja með kappróðri milli skipshafna. Þátttakan mun verða mikil, hver fleyta sem þá verður í höfn mun eiga sína bátshöfh í róðrarkeppninni. Þá verður keppt í sundi, stakkasundi og björgunar- sundi. Sú keppni verður efdrlætis- keppni sjómanna og þáttakan mikil. Sjómennimir munu sýna hin vanda- sömu og margslungnu störf sín, sem þeir inna af hendi á skipunum. Keppt verður í bætingu neta, vírasplæsi, lóðabeitingu o.s.frv. Þeir munu gefa út sérstakt blað á hverjum sjómanna- degi, skrifað af þeim sjálfum og prýtt myndum úr lífi þeirra og starfi. Sjómannadagurinn mun reisa sjó- mannastéttinni verðugan minnis- varða við Reykjavíkurhöfn..." Þannig er ræðan skráð í 20. tbl. sjó- mannadagsblaðsins 1957 af Sæmundi Ólafssyni stýrimanni á Hafsteini vorið 1929, en það mun hafa verið vorið sem ræðan var haldin. Loftskeytamað- urinn sem þannig talaði varð síðar landsfrægur maður, forystumaður í tveimur fjölmennum landssamtök- um, skrifstofustjóri Slysavamafélags- ins í 28 ár. Þetta var sem sé Henry A. Hálfdansson. En hugmynd hans varð eftir úti á sjó. Langt var þar til hún náði landi."

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.