Tíminn - 05.06.1993, Qupperneq 4

Tíminn - 05.06.1993, Qupperneq 4
4 Tíminn Laugardagur 5. júní 1993 Tíminn IIÁLSVARI FRJÁLSLYNPIS, SAMVIHNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tlminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar. Birgir Guömundsson Stefán Ásgrimsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Glslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavik Slml: 686300. Auglýslngaslml: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fféttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verö I lausasölu kr. 110,- Gmnnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Þáttaskil í sam- vinnustarfinu Aðalfundur Sambands íslenskra samvinnufélaga var haldinn í gær. Sá fundur var haldinn í mjög breyttu umhverfi í samvinnustarfínu í landinu. Kaupfélögin um allt land reka mikla starfsemi í samvinnufélags- forminu, en hins vegar hefur Sambandinu verið skipt upp í hlutafélög og stórar einingar hafa verið seldar til Landsbankans og einkaaðila. Þrátt fyrir þessa miklu endurskipulagningu og breytt form rekstrar, er langt í frá að samvinnustarf- inu í landinu sé lokið. Það verkefni bíður samvinnu- manna að fínna félagslegum þætti starfseminnar form á landsvísu, nú þegar Samband íslenskra sam- vinnufélaga er orðið að litlu eignarhaldsfélagi. Samvinnumenn hafa ærin verkefni að reka þá starf- semi sem rekur rætur til Sambands íslenskra sam- vinnufélaga. Efnahagsumhverfíð er ekki björgulegt um þessar mundir. Enn þarf að bregðast við minnk- andi umsvifum í sjávarútvegi, og landbúnaðurinn er í mikilli vamarbaráttu. Vonandi verður hin nýja um- gjörð til þess að auðveldara og einfaldara verður að bregðast rekstrarlega við breyttum aðstæðum. Upphaf samvinnufélaganna var þannig að bændur bundust samtökum um útvegun á vörum. Af þessu starfí spratt síðan margvísleg starfsemi sem rekin var með samvinnufélagsforminu. Nú em tímamir allt aðrir. Sérhæfmg og samkeppni í þjóðfélaginu hefur aukist og þess vegna em sérhæfð fyrirtæki með sem minnsta yfirbyggingu lífvænlegust. Hin margvislega startsemi, sem Samband íslenskra sam- vinnufélaga rak, er nú komin í þetta form. Ekki hef- ur rekstur allra hlutafélaganna gengið sem skyldi, svo sem rekstur Miklagarðs h/f. Kaupfélögin í land- inu hafa nú stofnað sameiginlegt innflutningsfyrir- tæki, sem er tilraun til þess að fylkja þeim saman um innkaup á vörum. Þama er farið af stað undir merkjum sérhæfingar og vonandi standa félögin vel saman um þetta íyrirtæki. í nútíma rekstri, þar sem samkeppni og sérhæfmg er mikil, gengur það ekki upp að ein rekstrareining, sem hefur afgang, borgi upp halla annarrar. Fái slíkt að ganga fram til lengdar, verður viðkomandi fyrir- tæki undir í samkeppni við önnur. Aðilar með sameiginlega hagsmuni eiga sér vett- vang í hinum sérhæfðu hlutafélögum, sem hafa af- markað starfssvið. Samvinna framtíðarinnar verður í ríkara mæli með þeim hætti. Þetta er þróun sem samvinnumenn verða að skilja. Tilvera þeirrar starfsemi, sem komið var á fót und- ir merkjum samvinnumanna, er afar mikilvæg til þess að spoma við fámennisstjóm og einokun og hringamyndun í landinu. Til þess að gegna þessu hlutverki og vera til hagsbóta fyrir fólkið í landinu, þarf hún að dafna í nýju formi. Atli Magnússon skrifar Bergt af sagnabrunninum beiska Sumar eru þær kimur dægurum- ræðunnar, sem svo ríkulega er aus- ið í að menn hætta öldungis að gefa því gaum hve ótt flýtur út af börmum þeirra. Því getur litlu skipt þótt hér verði nú bætt svo sem ausu f (og þó fremur yfir) eitt slíkt kerald — sem sé umræðuna um söguþætti Baldurs Hermanns- sonar. Að hyggju þess sem þetta skrifar var það heldur af því góða að þætt- imir skyldu verða til — því eins og Guðbergur Bergsson benti ágæt- lega á í grein fyrir nokkru í Dag- blaðinu, þá hafa þeir orðið til þess að þjóð sem löngu er hætt að nenna að lesa rífst nú hvað af tekur um réttan eða rangan skilning á sögu sinni. Auðvitað er efnistúlk- unin í þessum þáttum einfölduð og kannski á suman hátt rammgötótt. En þættimir hafa óvefengjanlega orðið landslýðnum eins og fullri matskeið af pipar hafi verið stungið upp í menn — og enginn kemst hjá að segja hvemig honum þótti bragðið. *7l • . ^ /l.< iiqur og eivKí yivjur Margur hefur tekið til máls um nefndar einfaldanir og er nýlegast af því tagi er grein Halldórs Krist- jánssonar frá Kirkjubóli í Morgun- blaðinu sl. miðvikudag. Þar víkur Halldór í örstuttu máli af vanalegri rökvísi, þekkingu og gáfum að fleiri snöggum blettum á þessum þáttum en öðmm hefur tekist að opinbera í langhundum. En annars er tæplega sanngjamt að ætla Baldri annað en að honum sé sjálf- um ljóst að hann hefúr þama dreg- ið upp all fjörlega krítaða mynd af elskulegum forfeðmm vomm og formæðmm. Og víst á hann sér góðar málsbætur í því að ýkjur þurfa hreint ekki að vera tóm skreytni. Það er af og frá. Fortakslaust er lofsvert að sjá nú dregið fram í dagsljósið það dóma- dags afturhald í atvinnuháttum, sem öldum saman þmmdi yfir ætt- jörð vorri. Hvað sem um Dani og Danakónga má segja, þá gerðu þeir ýmsar virðingarverðar tilraunir til þess að koma hér einhverjum úr- bótum til leiðar — mest allt án ár- angurs, út af þráa og kannski leti. Þeirra á meðal var Friðrik 4., sem mest gys er gert að í íslandsklukk- unni fyrir heimsku. (Hve margir skyldu vita að þessi kóngur bjarg- aði Flateyjarbók eigin hendi úr klónum á hinum hálfsturlaða Þor- móði Torfasyni, sem sat á henni í kofaskrifli á eyju norður við Nor- egsströnd?) Og er það til dæmis ekki maka- laust að „hjólið" getur varla talist þekkt á íslandi fyrr en á 19. öld? Ekki var landið nú allt slíkt karga- þýfi að menn þyrftu að bera hvem hlut á sjálfum sér í stað þess að koma saman einhverslags kerm — þó ekki væri nema á stöku stað? Og víst er hin aldalanga andúð á sjáv- arfanginu og þeim sem við sjóinn bjuggu íhugunarvert fyrirbæri. Þannig varð einn einlægasti fyrir- lítari sjávarútvegs sem um getur á íslandi, Eggert Ólafsson, að guð- 1**— (S UX1—Í.-ÍI-- -■ •< !tg! i vc!u \i uuRsuuiegum SKlin- ingi) í Hulduljóðum Jónasar Hall- grímssonar. Fjölnismenn, sem þó stundu yfir efnahagslegri niður- lægingu ættjarðarinnar, voru eig- inlega samtímamenn Eggerts þeg- ar að þessu efni kemur. Svo fór lyr- ir Eggert að sjórinn gleypti hann, eins og þessir svömu féndur hefðu þurft að gera upp sakimar á endan- um hvor við annan. Spurningin um „móralinn“ Margur hefur orðið til að finna að alhæfingum, sem þeim þykir vera reistar á hinum og þessum atvik- um er varða nefnda einstaklinga, gjama sakamálum. Þær aðfinnslur em vitanlega réttmætar. Mörg hafa atvikin einmitt verið í annála færð vegna þess að þau vom frávik frá hinu almenna. Eins er það ógætilegt, þegar menn skoða söguna, að mæla ,,móral“ til dæmis sextándu, sautjándu, eða átjándu aldar manna á mælistiku „mórals" sem viðtekinn er í lok tuttugustu aldar. Hver hefði trúað því upp á hinn vegsamlega Skúla fógeta að hann hefði látið húð- strýkja vegalausa konu og hungrað bam hennar fyrir smástuld? Þetta gerði hann þó sem ungur valds- maður. En ekki skyldi vera að í hópi íslenskra sýslumanna nútím- ans sé fleiri en einn að finna sem farið hefðu mjög svipað að — þeir hefðu aðeins þurft að vera uppi hálfri þriðju öld fyrr og sannarlega ekki endilega norður á íslandi. Það er allt og sumt. Kúgarar og kúgaðir Eins er með þau dæmi sem rakin em af siðferðinu. Hvemig á annars að meta og vega það fólk, sem bjó í einu rými undir lágu toríþaki þar sem svo margar náttúmlegar at- hafnir urðu að fara fram í allra aug- sýn — eða svo gott sem. Svo má þrefa um fleira: Hjúin á ís- lenskum sveitabýlum og kotum vom ekki alls staðar kúguð, þótt þau væm það víða. Sums staðar kúguðu hjúin húsbændur sína, svo þeir stóðu ráðalausir. Hér er dæmi um það: Nærri 1500 dæmdi Magnús prúði svonefndan „marköngladóm". Dómurinn kom af því að vinnu- menn, sem sendir vom til róðra, máttu samkvæmt gamalli hefð eiga pann HSK sem Vcmuist á tiltekna öngla á færinu þeirra. Þessir önglar kölluðust „markönglar". Með tím- anum æxluðust mál svo að nær engir önglar vom á fæmnum í heilum verstöðvum nema „mar- könglar". Búandkörlunum, sem bátana áttu, þýddi ekkert að mögla. Húskarlamir fóm sínu vægðar- laust fram. Ótal dæmi svipaðs eðlis hafa ör- ugglega gerst öld fram af öld. Kannske hefúr víða ekki þurft ann- að en að skreppa á milli bæja svo endskipti væm orðin á því hvor kúgaði hvom — húsbændur eða hjú. Mannlífið á íslandi var nefni- lega furðu fjölbreytilegt í fábreyti- leika sínum. En margt er mjög vel um þætti Baldurs Hermannssonar að segja, sem vegur upp á móti því sem gert kann að vera á hluta sannfræðinn- ar. Þá má ekki gleyma að sjón- varpsþáttur er knappt form og meginskylda þess er hann gerir að gera hann forvitnilegan og helst nýstárlegan. Það hefur Baldri tek- ist, hvort sem mönnum er ljúft eða leitt að kannast við það. En vel á minnst: Kannski hefur hann unnið hið óþarfasta verk með því að svipta þjóðina dýrðarljóman- um af háhelgum vesaldómnum — nú í miðri kreppunni. Um það má deila.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.