Tíminn - 05.06.1993, Blaðsíða 11

Tíminn - 05.06.1993, Blaðsíða 11
Laugardagur 5. júní 1993 Tíminn 11 Verslunargata f Taipei, höfuöborg Taívan: innrás fjármagns, ekki hers. hræddir við að gera ráðstafánir til að draga úr verðbólgunni, af ótta við ný Pekingvor. Ýmsir erlendir sérfræðingar um efnahagsmál telja þó að horfurnar á slíku séu minni nú en var fyrir nokkrum árum. Sem ástæðu nefnir Ld. Petersen að vegna batnandi lífs- kjara fyrir marga á Dengtímanum njóti kommúnistaflokkurinn veru- legra vinsælda, einkum í sveitum þar sem um 80% landsmanna búa enn. Aminnstir sérfræðingar halda því og fram að meira jafnvægi sé nú orðið í efnahagslífinu en var á síðari hluta níunda áratugar, og ættu því verðbólgustöðvandi ráðstafanir ekki að þurfa að koma mjög illa við fólk. Mikilvægasta ástæðan til þessa aukna jaftivægis, segja sérfræðing- amir, eru milljarðafjárfestingar Kínverja utan Kína í alþýðulýðveld- inu. Sérstaklega allrasíðustu árin hefur fjármagn þannig streymt inn í landið einkum frá Táívan og Hong- kong, en einnig frá Kínverjum dreifðum um alla Suðaustur-Asíu og víðar. Kínverjar „erlendis" eru þegar orðnir efnahagsveldi á við sum þeirra stærri af Vesturlanda- ríkjum. Margir kínversku fjármála- mannanna erlendis flýðu Kína und- an kommúnistum eða em synir slíkra flóttamanna. Þegar Sjang Kaí-sék stökk undan kommúnist- um út á Taívan 1949, hét hann því að koma aftur. Ef til vill mætti segja að hann væri nú að standa við það táknrænt, þótt á land á kínverska meginlandinu gangi nú fjármagn en ekki her, eins og Sjang mun hafa hugsað sér. Þjóðflutninjgar innanlands Sú stefna Dengs að taka upp kapít- alisma í efnahagsmálum, en halda fast við alræði kommúnistaflokks- ins í stjómmálum, er sem sé ofan á í Kína. En hinn hraðvaxandi kapít- alismi er óðum að yfirtaka eftia- hagslífið sem heild og við það á sér stað valdatilfærsla í raun ffá Flokknum til stórlaxa í fjármálum og atvinnurekstri. í Flokknum munu margir hafa af þessu veruleg- ar áhyggjur, og er talið að þar eigi sér stað talsverð togstreita milli íhaldsmanna og annarra sem fjöl- miðlar kalla frjálslynda. Helsti odd- viti þeirra síðamefndu kvað vera Zhu Rongji varaforsætisráðherra, mjög handgenginn Deng og yfir- stjómandi efnahagsmála. Eftir hon- um er haft að verði ríkisgeirinn í iðnaðinum, sem rekinn er með miklu tapi, ekki skorinn niður, muni hann valda hrikalegum óför- um í bjóðarbúskapnum á næstu ár- um. Ihaldsmenn eru sagðir beggja blands, hikandi við að gera ráðstaf- anir gegn verðbólgunni af ótta við nýja mótmælaöldu, og uggandi út af vaxandi áhrifum kapítalista á kostnað ríkisflokksins. Einnig eru þeir grunaðir um að standa gegn verðbólguhindrandi ráðstöfunum með það íýrir augum að verðbólgan valdi ringulreið í efnahagsmálum, en þá muni íhaldsmönnum í Flokknum veitast tækifæri til að verða ofan á í valdabaráttunni við þá frjálslyndu. íhaldsmenn hafa mikil ítök í hernum og í stjórnmálaráði og miðstjóm Flokksins er mikið um herforingja. Margra mál er að ef íhaldsmenn verði ofan á, þýði það í raun að herinn fremur en Flokkur- inn taki öll völd. Víst er að mikil ólga er um þessar mundir í kínverska samfélaginu og margt gæti komið þar á daginn án mikils fyrirvara. T.d. eiga sér nú stað í landinu stórfelldir fólksflutningar frá vanþróaðri svæðum til þeirra sem eru í uppgangi. Fjöldi vill og komast úr landi, einkum til Vestur- landa sem sagt er að margir Kín- verjar haldi nú að sé vandamálalítil paradís. í Kína vilja allir komast til Bandaríkjanna, er haft eftir (ólög- legum) kínverskum innflytjendum nýlega þangað komnum. Sendi- nefnd frá þýsku stjórninni hafði ekki alls fyrir löngu orð á því við Li Peng, forsætisráðherra Kína, að æskilegt væri að Kínastjórn yrði Iýðræðis- og mannréttindasinnaðri, leyfði fólki t.d. að ferðast úr landi að vild þess. Allt það gæti verið til at- hugunar, sagði Li Peng, en væruð þið Þjóðverjar þá tilbúnir að taka við svo sem tíu milljónum Kínverja áári? Með sínu nefi í þættinum í dag verða gefnir hljómar við tvö lög, sem sungin eru við ljóð Sigurðar heitins Þórarinssonar, en bæði eru þessi lög mjög vinsæl sönglög. Fyrra lagið er „Jarðarfarardagur", sem er sungið við lag Þóris Baldurssonar, en umsjónarmanni þáttarins er ekki kunnugt um eftir hvem seinna lagið er. Það er spaugsöm en nokkuð magnþrungið lag sem heitir „Lifandi er ég“. Góða söngskemmtun! JARÐARFARARDAGUR Am E7 Am Það gerðist hér suður með sjó Dm G7 Cmaj7 að Siggi á Vatnsleysu dó, B og ekkjan hans, Þóra, Am var ekki að slóra, E7 Am til útfararveislu sig bjó. Dm og ekkjan hans, Þóra, Am Am 4 > 4 t 4 > X O 2 3 1 0 C maj7 TTi : < * 1 ! f | 1 T X 3 2 0 oí> var ekki að slóra, E7 Am E7 Am til útfararveislu sig bjó. E Það var logndrífa og ládauður sjór er hinn látni í gröfina fór, og ekkjan með sjarmi, brá svuntu að hvarmi, menn sáu að hryggðin var stór.:,: Klerkur sagði: „Holdið er hey, vér hryggjumst og kveinum ó vei. :,: Þann gæðamann tel ég, sem guði nú fel ég, við gleymum hans trúmennsku ei.:,: Þegar gengin frá garði var drótt, kom granninn og talaði hljótt: :,: „Þó góðan með sanni þú syrgir nú manninn, má sorginni gleyma í nótt.“ :,: En Þóra sagði: „Því skal ei leynt að þetta er fallega meint. :,: En sorgina ég missti er ég kistusmiðinn kyssti, þú kemur því, góði, of seint.:,: Dm í TT « ► I i ! < ► X 0 0 2 3 1 G7 LIFANDI ER ÉG Am Það skeði hér eitt sinn í útkjálkasveit, ú-ú, Dm Am Dm Am að koma skyldi skindauðum í kristinna manna reit. 3 2 0 0 0 1 Viðlag: Dm Am Dm Am Korrí, orrí, ó, korrí, orrí, ó, Dm Am E Am korrí, orrí, orrí, orrí, orrí, orrí, ó. Sorgmæddar hræður þar sáust í för, ú-ú, En sagt var að ekkjan hefði sigurbros á vör. Viðlag.... B(Aís) X X 2 3 * 1 Er fylgdin var komin í kirkjugarðshlið, ú-ú, reis líkið upp og stundi: Æ staldrið þið við. Viðlag... Lifandi er ég og útförin plat, ú-ú. Við löbbum okkur heim, því mig langar í mat. Viðlag... En ekkjan hún mælti í óblíðum tón, ú-ú: Að þú skulir ekki kunna að skammast þín, Jón. Viðlag... Ligg þú í kistu sem líki ber, ú-ú. Betur trúi ég lækninum en bullinu í þér. Viðlag...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.