Tíminn - 17.06.1993, Síða 1
FréttaT(mnnFrétta-síminn...68-76-48...Frétta-TíminnFrétta-síminn,..68-76-48...FréttaTíminnFrétta-síminn...68-76-48.
Lútfiskur frá
Selfossi til
Svíþjóöar
Fyrirtækiö Sjávarfang á Selfossi hefur hafiö framleiöslu á lútfiski,
en hann er þurrkuð langa bleytt upp í sérstakrí tegund af lút Fram-
leidd veröa 50 tonn af lútfiski hjá Sjávarfangi á þessu árí og fér öll
framleiöslan til Svíþjóðar. Aö sögn Grétars Péturssonar hjá Sjáv-
arfangi er veröið þokkalegt Langan gegnir svipuðu hlutverki (
matarmenningu Svía og hangikjöt gegnir í matarhefð islendinga.
Hún er aðallega borðuð um jól.
Framleiðslan hér á landi er einföld.
Langan er flökuð, sett í kalt vatn og
þurTkuð þannig að rakinn í flakinu er
um 16%. Vinnslan tekur um 14 daga.
Efdr að fiskurinn hefur verið fluttur
út til Svíþjóðar er hann settur í
ákveðna tegund af lút sem veldur því
að hann bólgnar út og fær hið sér-
staka bragð sem Svíar sækjast sem
mest eftir.
Framleiðslan á Selfossi er nýlega haf-
in og sagðist Grétar gera ráð fyrir að
henni yrði haldið áfram fram á haust,
en Svíar vilja vera búnir að fá ársfram-
Ieiðsluna þremur mánuðum fyrir jól.
Fram að þessu hafa Norðmenn nær
einir setið að lútfiskmarkaðinum.
Samningar Sjávarfangs á Selfossi gera
ráð fyrir að fyrirtækið framleiði 50
tonn af fullverkuðum lútfiski. Um 360
tonn af löngu upp úr sjó þarf til að
framleiða þetta magn.
Grétar sagði að verðið sem fengist
fyrir lútfiskinn væri þokkalegt, a.m.k.
vonuðust menn eftir að þessi fram-
leiðsla gengi upp rekstrarlega. Við
ffamleiðsluna starfa 6-7 manns. í dag
er framleiðslan á lútfiski eina fram-
leiðsluvara fyrirtækisins.
Grétar sagði að ekki væru uppi áform
um að bjóða íslendingum upp á lút-
fisk, a.m.k. ekki á næstunni. -EÓ
Sjö umsækjendur um stöðu Seðlabankastjóra.
Ákvörðun tekin í næstu viku:
Spennan
magnast
Sjö einstaklingar hafa sótt um stöðu Seðlabankastjóra, en um-
sóknarfrestur rann út sl. þríðjudag.
Umsækjendur eru Bjami Einarsson,
fyrrverandi aðstoðarforstjóri Byggða-
stofnunar, Eiríkur Guðnason, aðstoð-
arbankastjóri Seðlabankans, Ingi-
mundur Friðriksson, forstöðumaður í
alþjóðadeild Seðlabankans, Jón Sig-
urðsson, fyrrverandi alþingismaður,
Kristján Kristjánsson rafvirkjameist-
ari, Már Guðmundsson, forstöðumað-
ur í hagfræðideild Seðlabankans og
Ingvi Öm Kristinsson, forstöðumaður
tölffæðisviðs Seðlabankans.
Á bankaráðsfundi í gær var farið yfir
umsóknimar og þær ræddar. Að sögn
Ágústs Einarssonar, formanns banka-
ráðs, verður málið afgreitt á banka-
ráðsfundi á mánudaginn.
— Verða umsækjendur kallaðir í við-
tal?
JVei, umsóknimar sjálfar em mjög
ítarlegar og góðar og við áttum okkur
vel á umsækjendum,“ segir Ágúst
„Þetta eru allt góðir menn og við er-
um mjög ánægðir með það hvað vel
hefur tekist til.“
í kjölfar atkvæðagreiðslu innan
bankaráðsins verða gerðar tillögur til
viðskiptaráðherra, sem skipar síðan í
stöðuna. Þangað til bíða menn
spenntir. GS.
Þorgeir Baldursson, forstjóri Prentsmiðjunnar Odda:
Versnandi ástand í
prentiðn í sjónmáli
„Búast má við að virðisaukaskatturínn auki atvinnuleysi og bága
afkomu fyrírtækja í prentiðnaðinum," segir Þorgeir Baldursson,
prentsmiðjustjórí Prentsmiöjunnar Odda.
Hann segir álögumar vera skelfi-
lega ráðstöfun af hendi stjómvalda.
„Það hefur verið minna að gera hér
en oft áður það sem af er árinu í
greininni og menn óttast auðvitað
að skatturinn skemmi enn meira
fyrir henni. Ég held að þegar upp er
staðið verði enginn hagnaður af
þessu fyrir þjóðarbúið heldur aukist
kostnaður bara annars staðar," segir
Þorgeir.
-GKG.
Reykjavfk mun Ifklega lettun að IJótara tró en þessu grenitré sem „prýðlr" baklóð stjómarráöshússlns, embstt-
Ishúss forseta (slands og forsætisráöherra. Annar hrfsluræflll stendur sfðan vlð þann enda hússins sem snýr að
Hverfisgötu og Amarhóll og er þar með upptalin trjársktin á stjómarráöslóðlnni. Timamynd Aml Bjama.
Garðyrkjustjóri segir borgina annast umhirðu stjórnarráðslóðar-
innar en húsameistari ákveði breytingar:
Ekki óskað eftir því að
við fjarlægðum þetta tré
„Þvi miður verð ég að segja það, að mér finnst þessi tré ekki
hæfa húsinu eöa vera því til sóma, hvorugt þeirra. Og raun-
verulega held ég að það sé nú orðið tlmabært aö búa þessu
húsi fallegt umhverfi, því húsiö er fallegt. Nú er veríð að hefj-
ast handa við að ganga frá Amarhóli og ég held að það værí
mjög gaman ef tekið yröi til hendinni við umhverfi þessa húss
líka,“ sagöi garðyrkjustjórínn í Reykjavík, Jóhann Pálsson.
Hann var spurður um umhirðu lóðar stjómarráöshússins og
hvort þeim sem hana annast þætti virkilega prýði að þeim trjá-
ræksnum sem þar standa. Hvort ekki værí til bóta að fjaríægja
þær.
Jóhann sagðist vera sammála því að
prýði yrði tæpast talin af þessum
trjágróðri. Gömul hefð væri fyrir því
að Reykjvíkurborg sæi um fram-
kvæmdir og árlegt viðhald á nokkr-
um opinberum lóðum ríkisins og
þar á meðal stjómarráðslóðinni. En
það sem hins vegar flokkaðist sem
skipulagsbreytingar á henni eða
slíkt mundi að öllum líkindum falla
undir húsameistara ríkisins að
ákveða. „Og það hefur ekki verið
óskað eftir þvf að við fjarlægðum
þessi tré,“ sagði garðyrkjustjóri.
Hann sagði að stundum væri talað
um rétt tré á réttum stað. Þessi tré
hefðu augsýnilega ekki verið sett á
réttan stað á sínum tíma og þama
væri kannski heldur ekki alveg
heppilegasti staðurinn til trjáræktar.
„Ég veit ekki hvað er að þessu
grenitré, það hefur aldrei þrifist
þama. Ég man eftir ákaflega falleg-
um vfði þama í gamla daga þegar ég
var strákur, sem einhver kallaði líf-
víðinn, þó ekki viti ég hvemig það
var til komið. Það tré var fjarlægt
fyrir löngu sfðan. Síðar var fluttur
þangað áskaflega fallegur silfurreyn-
ir, nokkuð stór, og var mjög sjald-
gæft á þeim tíma að svo stór tré
væru flutt Þetta tré fór mjög vel
þama og silfurreynirinn þolir allvel
sjávarrok og kulda. En hann dó þó
fýrir nokkrum árum og ekki veit ég
hvers vegna. Þar með hefúr lfklega
þetta grenitré verið sett þama og
sennilega ekki verið nógu vel frá því
gengið f þann tíð,“ sagði Jóhann.
Þetta hefði enda allt þetta gerst fyrir
sfna tíð sem garðyrkjustjóra borgar-
innar.
„Við fjarlægjum ekki svona tré
nema að þess sé óskað af þeim sem
sjá um framkvæmdir við húsið eða
embætti húsameistara ríkisins,"
sagði garðyrkjustjóri. Húsameistari
var upptekinn á fundum þegar Tím-
inn reyndi að hafa tal af honum í
gær. - HEI