Tíminn - 22.06.1993, Blaðsíða 7

Tíminn - 22.06.1993, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 22. júní 1993 Tíminn 11 6 efstu I töltinu. Sigurbjörn og Oddur, Elsa og Kolbakur, Atli og Þráinn, Sveinn og Hljómur, Trausti Þór og Hlökk og Guðni og Svartur. Hart barist í skeiöinu. Andri liggur hjá Sveini Jónssyni en Ragnar Ólafsson hleypir Breka viö hliö hans til aö gefa hon- um meiri ferð. Hestamannafélagið Sörli: 7 efstu í fimmgangi. Atli og Reynir, Hulda og Stefnir, Guömundur og Brimir, Sveinn og Andri, Siguröur og Hildur, Daníel og Spænir og Sigurbjörn og VI- dalín. Umsjón: Guðlaugur Tryggvi Karlsson Glæsileg reiöhöll Söriamanna setur nú svip sinn á hestamót í Firöinum. Þaö er Hulda Gústafsdóttir, sem situr Stefni frá Tunguhálsi I fimmgangskeppninni. Nú koma stórmót hestamannafé- laganna á færibandi og er skemmst að minnast fjórðungsmóts á Norð- urlandi, sem byrjar eftir rúma viku. Þá fer að halla undir heims- meistaramótið í Hollandi og var greinilega kominn alþjóðablær á Hafnfirðinga um helgina, því þeir héldu hestamót með yfirþjóðleg- um svip og kölluðu það FIBO. Á þessum mótum geta menn hækk- að upp í A úrslit ef þeir vinna B úr- slitin og verða þá sex í úrslitaröð- un. Knapar hafa meira að segja um röð gangtegunda f sýningaratrið- unum, en á venjulegum íþrótta- mótum, og þyngingar mega vera upp í 300 gr. Einkunnir gilda bæði í undankeppni, sem í röðuninni sjálfri og dómarar með alþjóða- réttindi dæma. TVaustur svipur er nú kominn á mótahöld þeirra Sörlamanna, með hina glæsilegu reiðhöll að bak- hjarli og geta áhorfendur jafnt set- ið í kaffi og horft á sýningaratriði út um gluggann, sem „spókað" sig úti á hlaði. Þá setur hin mjóa kapp- reiðabraut svip sinn á kappreið- amar og var núna Ld. keppt í ell- efu riðlum í 250 m skeiði og allt einvígi. Hafði Sveinn Jónsson sig- ur í skeiðinu á heimavelli á Ósk og fengu þau tímann 22,45 sek. Sig- urður Sæmundsson og Grani runnu skeiðið á 22,70 sek. og Hin- rik Bragason og Eitill á 22,80 sek. Gæðingaskeiðið sigraði Atli Guð- mundsson á Reyni, Sveinn Jóns- son og Andri komu næstir og Gísli G. Gylfason og Kolur voru í þriðja sæti. Björgvin Jónsson á flugaskeiði á Pæper frá Varmadal. Sá jarpi heitir eftir flug- vél Jóns f Varmadal, Piper Warrior, og standa þeir félagar sig vel I bardagan- um og stutt I flugiö. 6 efstu í fjórgangi. Sigurbjörn og Oddur, Atli og Þráinn, Sveinn og Kolur, Sveinn og Hljómur, Barbara og Háfeti og Adolfog Glókollur. B töltiö sigraöi Vignir á Rúbln, þá kom Sævar á Bráni, Barbara á Háfeta og Siguröur á Bessa. Hallar undir heims- meistaramót

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.