Tíminn - 22.06.1993, Síða 8
12Tíminn
Þriðjudagur 22. júnf 1993
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1993
Dregið veröur I Sumarfiappdrætti Framsóknarflokksins 9. júll 1993. Velunnarar
flokksins eru hvattir til að greiða heimsenda giröseðia fyrir þann tima.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu flokksins eða I sima 91-28408 og
91-624480.
Framsóknarmenn Nl. eystra
Muniö útivistarfielgina f Vaglaskógi 25.-27. júni n.k.
Gróðursett verður að lllugastöðum laugardag.
Nánar augiýst siöar. NeAxfln
Landsþing LFK
6. landsþing Landssambands framsóknarkvenna veröur haldið 8.-10. október n.k.
á Austurtandi.
Nánar auglýst slðar.
r~,.Iiijimiili rln i «I|T„. I
rramKvæmaasgom Lrt\
Þórsmerkurferð
Sambands ungra
framsóknarmanna
Hin ártega Þórsmerkurferö SUF og FUF á Suöuriandi verðurfarin heigina 2.-4.
júlf. Lagt veröur af staö frá Umferðarmiðstöðinni (BS() föstudaginn 2. júll ki.
20.00. Þar sem sætaframboð er takmarkaö, er fólki bent á að panta tfmanlega
I slma 91-624480.
Framkvæmdasifóm SUF
Frystihús til sölu
Fiskveiöasjóður Islands auglýsir til sölu fiskvinnslu- og frysti-
hús aö Brimbrjótsgötu 10, Bolungarvík (áöur eign Einars Guö-
finnssonar hf.).
Húsið selst með öllum tækjum og búnaöi sem i þvl er, þ.e.
með öllu því fylgifé sem sjóöurinn eignaöist meö kaupsamn-
ingi við þrotabú Einars Guðfinnssonar hf.
Um er að ræða ca. 30.000 mmmetra hús með frystivélum, fry-
stiklefum, fiskvinnslutækjum og öðmm búnaði, þ.á m. tækjum
til rækjuvinnslu.
Frestur til að skila tilboðum rennur út 12. júli 1993 kl. 15:00.
Tilboð skulu send á skrifstofu sjóðsins i lokuöu umslagi merkt
„Frystihús i Bolungarvlk”.
Allar nánari upplýsingar em veittar á skrifstofu F.Í., Suöur-
Iandsbraut4, Reykjavlk (slmi 679100).
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboöi sem er eða hafria öll-
um.
Fiskveiöasjóður blands.
Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðja til sölu
Fiskveiðasjóður íslands auglýsir til sölu slldar- og fiskimjöls-
verksmiðju austan Gmndarstlgs (Þurlöarbraut 15), Bolungar-
vík (áður eign Hóla hf.).
Eignin selst með öllum mannvirkjum, tækjum og búnaði, sem
henni tilheyra, þ.e. meö öllu þvl tylgifé sem sjóöurinn eignaöist
með kaupsamningi við þrotabú Hóla hf.
Um er að ræða verksmiðjuhús, byggt 1963, um 11.250 rúm-
metra, hráefnisþrær (1963) um 4.830 rúmmetra, meltuvinnslu
(1985) um 1.970 rúmmetra, meltugeymi (1985) um 170 rúm-
metra, mjölgeymslu (1977) um 5.300 rúmmetra, lýsistanka
(1963) um 1.040 rúmmetra, lýsistank (1978) um 1.190 rúm-
metra, beinaþró (1963) um 340 rúmmetra, auk dæluhúss o.fl.
Einnig fylgir Grundarstlgur 13 (baðhús), byggt 1956, 52 fer-
metrareða um 161 rúmmetri.
Frestur til að skila tilboðum rennur út 12. júlí 1993 kl. 15:00.
Tilboö skulu send á skrifstofu sjóðsins I lokuöu umslagi merkt
„fiskimjölsverksmiöja I Bolungarvík".
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu F.Í., Suöur-
Iandsbraut4, Reykjavik (slmi 679100).
Áskilinn er réttur til aö taka hvaða tilboði sem er eöa hafna öll-
um.
Ftskveiöasjóður (stands.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
Sigríðar Elínar Þorkelsdóttur
Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða.
Þorkell Jóhannesson Vera Tómasdótör
Jóhanna J. Thoriaclus ÓfafurThoriadus
bamaböm og bamabamaböm
Baldur Hólmgeirsson
Fæddur 14. maí 1930
Dáinn 9. júní 1993
Föstudaginn 18. júní var jarðsung-
inn frá Hallgrímskirkju Baldur
Hólmgeirsson, Bragagötu 38,
Reykjavík. Hann andaðist á Borgar-
sjúkrahúsinu aðfaranótt 9. júní s.l.
eftir Ianga og stranga baráttu við
erfiðan sjúkdóm.
Baldur var fæddur 14. maí 1930 að
Kálfagerði í Saurbæjarhreppi, Eyja-
fjarðarsýslu, sonur hjónanna Hólm-
geirs Pálssonar bónda þar og konu
hans, Freygerðar Júlíusdóttur.
Að grunnskólanámi loknu fór Bald-
ur í Menntaskólann á Akureyri og
lauk þar stúdentsprófi; hann var
einnig í leiklistarnámi meðfram
skólanámi. Síðan stundaði hann
nám í íslenskum fræðum við Há-
skóla íslands.
Hann hóf nám í prentiðn, Iauk þar
sveinsprófi og fékk síðar meistara-
réttindi í þeirri grein.
Ævistarf Baldurs tengdist að mestu
leyti prentun og útgáfustörfum.
Hann starfaði einnig við bama-
kennslu og um tíma sem fréttamað-
ur og öryggiseftirlitsmaður hjá
vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli.
Hann annaðist um árabil erlendar
bréfaskriftir tyrir innflutningstyrir-
tæki, enda hafði hann góða þekk-
ingu á mörgum erlendum tungu-
málum.
Hann starfaði lengi sem setjari hjá
prentsmiðjum hér á landi og erlend-
is og hlaut sérstaka viðurkenningu í
Svíþjóð vegna þekkingar sinnar á
grafískum fræðum.
Útgáfustörf voru honum hugleikin
og var hann útgefandi og ritstjóri
margra blaða og tímarita, s.s. Nýrra
vikutíðinda í Reykjavík, Suðumesja-
tíðinda í Keflavík, vikublaðsins Am-
ar í Keflavík, auk margra annarra
fræðslu- og skemmtirita.
Hann var afkastamikill þýðandi er-
lendra bóka og rita og virtist oft ekki
skipta máli á hvaða tungumáli bæk-
umar vom ritaðar, hann snéri þeim
óðar á íslensku. Þekking hans og
skarpur skilningur á máli og fram-
setningu var sérstök.
Hann var um árabil blaðamaður á
dagblaðinu Tímanum og naut þar
álits og vinsælda fyrir störf sín sem
annarstaðar.
Leiklist var honum kær og tók
hann þátt í fjölda sýninga, bæði leik-
rita, skemmtiþátta og söngleikja.
Oft kom fyrir, ef efnivið vantaði, að
hann settist niður og samdi ýmist í
lausu máli eða orti ljóð, því allt lék
honum í hug og hönd, enda átti
hann ekki Iangt að sækja skáldskap-
argáfuna, amma hans var Kristín
Sigfúsdóttir skáldkona og margir
góðir hagyrðingar I ættinni. Má þar
til nefna eitt ástsælasta ljóðskáldið,
Jónas Hallgrímsson.
Baldur var tvígiftur. Fyrri kona
hans var Valgerður Bára Guð-
mundsdóttir. Þau skildu. Þeirra son-
ur er Guðmundur lögreglumaður í
Reykjavík.
23. desember giftist Baldur Þuríði
Sveinbjörgu Vilhelmsdóttur. Hún er
nú verslunareigandi og kaupmaður
í Reykjavík. Synir Baldurs og Þuríð-
ar eru Hólmgeir, f. 6.8.1963, frkvstj.
og Birgir Ragnar, f. 23.10.1965, for-
stjóri. Þeir búa báðir í Reykjavík.
Sambúð þeirra Baldurs og Þuríðar
var farsæl. Fjölskyldan var mjög
samhent, áhugamál hvers einstak-
lings voru jafn rétthá, hvort sem það
voru áhugamál sonanna eða for-
eldra. Öll mál voru rædd af virðingu
og vinsemd og teknar ákvarðanir
sem öll fjölskyldan virti.
í erfiðum veikindum síðustu árin
auðsýndu synirnir föður sínum um-
hyggju og kona hans reyndist sem
ætíð áður hin styrka stoð og veitti
honum kraft til að berjast til hinstu
stundar. Baldur mat konu sína mik-
ils, enda Þuríður mikil mannkosta-
kona.
Sá er þetta ritar varð þeirrar gæfu
aðnjótandi að kynnast Baldri og vera
í vináttusambandi við fiölskyldu
hans um árabil.
Það lætur engan ósnortinn að
kynnast manni eins og Baldur var.
Persónuleiki hans var slíkur að sam-
ferðamenn hans hlutu að hrífasL
Hugur hans var einlægur, hreinn og
opinn. Lífsviðhorf hans einkenndist
af bjartsýni og trú á það góða í til-
verunni.
í návist hans virtust áhyggjur af
daglegu amstri næsta óþarfar. Lífið
væri of stutt og of dýrmætt til að sóa
því með neikvæðum lífsmáta. Það
væri ætíð hægt að horfa til sólar og
ef hún byrgði sig bak við ský um
stund mætti treysta því að hún birt-
ist á ný og þá enn fegurri en áður.
Eg minnist margra stunda í návist
Baldurs. Oft leitaði eg til hans varð-
andi útgáfu á blöðum sem voru gef-
in út við ýmis tækifæri. Þó að hann
væri jafnan önnum kafinn, þá leit
hann yfir efniviðinn og innan stund-
ar var blaðið fullunnið og prentað.
Það skipti ekki máli þó hann sæi
ekki út úr verkefnum, hann hafði
alltaf tíma til að rétta öðrum hjálp-
arhönd.
Lífsviðhorf hans var þannig að erf-
iðleikar væru ekki til að óttasL held-
ur takast á við þá og gera gott úr öllu
sem að höndum ber. Þó að eitthvað
gæfi á skipið af og til, væri ekki
ástæða til að æðrasL heldur skyldi
hver taka sínum forlögum með
reisn og bros á vör. Eftir kynni mín
af Baldri skil eg betur en áður hvað
felst f orðtakinu að lifa lífinu Iifandi.
Nú, þegar Baldur er horfinn héðan
úr heimi, er efst í huga söknuður, en
einnig þakklæti fyrir samfylgdina á
liðnum árum.
Eg og fjölskyldan vottum Þuríði og
sonum þeirra ásamt fjölskyldum
innilega samúð. Þó að þau hafi vitað
um stund hvert stefndi, þá er sökn-
uður eftir eiginmann og föður sár.
Minningin um lífsskoðanir Baldurs
mun verða þeim styrkur.
Blessuð sé minning hans.
Ari Sigurðsson
Osiðlegt tilboð
Indecent Proposal ★★
Handrít: Amy Holden Jones. Byggt á
samnefndrí skáldsögu Jack Engelhard.
Framlelðandl: Sherry Lansing.
Lelkstjórí: Adrían Lyne.
Aðalhlutverk: Robert Redford, Deml Mo-
ore, Woody Harrelson, Ollver Platt og
Seymour Cassel.
Háskólabíó og Blóhöllln.
Öllum leyfð.
Það er sjaldan að Adrian Lyne sendi
frá sér mynd án þess að eitthvert
fjaðrafok fylgi í kjölfarið og Ósiðlegt
tilboð er engin undantekning. Bæði
Fatal Attraction og 9 1/2 Weeks
vöktu mikla athygli og þá sérstak-
lega fyrir efnistök. Sú fyrmefnda var
mjög góð spennumynd, en sú síðar-
nefnda var yfirborðskennd og vit-
laus uppáferðamynd. Eins og áður
sagði þá hefur efrii Ósiðlegs tilboðs
vakið athygli og vakið upp ýmsar
spumingar, en hún byggir á krafti
nokkurra siðferðilegra spurninga
sem em nokkuð sniðugar. Úrvinnsl-
an er hins vegar ekki upp á marga
fiska og vandamálin eru leyst á ein-
staklega bamalegan hátt.
Hér segir af David (Harrelson) og
Díönu (Moore) sem eru hamingju-
söm ung hjón, en þau eru hins veg-
ar með miklar skuldir á bakinu. Þau
fara í spilavítin í Las Vegas þar sem
þau reyna fyrir sér, en enda algerlega
gjaldþrota. Þau hitta milljónamær-
inginn John Gage (Redford) sem
býður þeim eina milljón dollara
gegn því að fá að sofa hjá Díönu eina
nótt. Eftir umhugsun ganga þau að
tilboði hans og Gage og Díana sofa
saman eina nótt, en sambúð Davids
og Díönu fer hríðversnandi eftir
þennan atburð sem þau héldu að
yrði lítið mál að takast á við. David
getur engan veginn hætt að hugsa
um nóttina, en Díana vill gleyma
henni og aldrei um hana tala. Af-
brýðisemin nær svo tökum á David
og John Gage hefur ekki sagt sitt
síðasta í málinu.
Eins og sést er efni myndarinnar
athyglisvert og án efa hefði verið
hægt að gera betri mynd en hér er
raunin. Sagan verður aldrei nógu
trúverðug, hvort sem um er að
kenna vondum leik eða handriti,
endirinn er verulega ósannfærandi
og aldrei næst upp almennileg
spenna með nokkrum undantekn-
ingum. Það er hreint og beint ömur-
legt á að horfa hve illa er unnið úr
verulega góðri hugmynd. Allt ytra
útlit er hins vegar í góðu lagi og
kvikmyndatakan einn besti hluti
myndarinnar.
Það eru frægar stjörnur í aðalhlut-
verkunum með sjálfan Robert Red-
ford í fararbroddi. Hann leikur greif-
ann John Gage stórslysalaust, en þó
án mikilla tilþrifa. Samleikur Demi
Moore og Woody Harrelsons er
ágætur, en líklegt er að Woody í
Staupasteini og leigulíkamar verði í
hugum margra áhorfenda myndar-
innar þegar fylgst er með leik þeirra.
Eftir fréttum frá Bandaríkjunum að
dæma var þessi mynd mjög vinsæl
þar í landi, en þær vinsældir eru lítt
verðskuldaðar og sjálfsagt á auglýs-
ingaskrum einhvem þátt f þeim.
Ósiðlegt tilboð er dæmigert fyrir
kreppuna í Hollywoodframleiðsl-
unni, en fagmennska skýtur upp
kollinum öðru hverju í myndinni,
en þó allt of sjaldan.
öm Markússon
í RAUTT Luhin, RAUTT }
UOS cŒZ, UOS!
I Uráð J