Tíminn - 29.06.1993, Qupperneq 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn...68-76-48...Frétta-Tíminn...Frétta-síminn...68-76-48...Frétta-Tíminn...Frétta-síininn...68-76-48
Þriðjudagur
29. júní 1993
119. tbl. 77. árg.
VERÐí LAUSASÖLU
KR. 110.-
Aðgerðir ríkisstjórnar í kjölfar ákvörðunar um hámarksafla s.s. 7,5%
gengisfelling, afborganir lána frystar, ókeypis úthlutun aflaheimilda hag-
ræðingarsjóðs og boðað frumvarp um þróunarsjóð:
Kvalastillandi
til skamms tíma
Vinnuslys í Vestmanna-
eyjum:
Varð undir
hjólaskóflu
Maður á fimmtugsaldri lést í
vinnuslysi í Vestmannaeyjum
um kl. 10:30 í gærmorgun.
Hann var að stjóma svokall-
aðri hjólaskóflu í nýrækt við
Eldfell þar sem verið er að
græða upp land. Vélin var í
nokkrum halla þegar hún valt
með þeim afleiðingum að mað-
urinn varð undir henni. Tálið
er að hann hafi látist sam-
stundis.
Ekki er hægt að greina frá
nafni hins látna að svo stöddu.
-GKG.
Svo virðist sem þær sértæku aðgerðir sem ríkisstjómin hefur
gripið til í tengslum við niöurskurð aflaheimilda í þorski fyrir
næsta fiskiveiðiár, s.s. með því að lækka gengi krónunnar um
7,5%, frysta tímabundið afborganir af lánum sjávarútvegs og
skuldbreyta lánum ásamt því að úthluta aflaheimildum hagræð-
ingarsjóðs ókeypis til jöfnunar og boðað frumvarp um þróunar-
sjóðinn, séu í mesta lagi kvalastillandi til skamms tíma fyrir sjáv-
arútveginn.
Að hinu Ieytinu virðist sem afleið-
ingum niðurskurðarins í aflaheimild-
um sé skotið á frest til haustsins. Við-
búið er að afleiðingamar verða gríð-
arlegar í sjávarplássum landsins með
tilheyrandi atvinnuleysi og byggða-
röskun.
Tálið er að 7,5% gengisfelling muni
hafa í för með sér allt 3% kjararýmun
fyrir launafólk á þessu ári og miðað
við líklega tekjuþróun er gert ráð fyr-
ir því að kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna á mann verði um 4% minni á
næsta ári en á þessu ári. Auk þess
mun gengisfellingin koma til með að
auka á erlendar skuldir sjávarútvegs-
ins og leiða til kostnaðarhækkana
innanlands og spenna upp vexti í kjöl-
far aukinnar verðbólgu. Á móti kem-
ur að sjávarútvegurinn fær tíma-
bimdið auknar tekjur sem nemur
gengislækkuninni en ekki er búist við
að afurðaverð munui hækka á næst-
unni. Það mim m.a. bæta afkomu
hans tímabundið um 3,5% þannig að
halli á vinnslu og veiðum er áætlaður
að verði um 4,5%-5%. í stað 8%. Aft-
ur á móti þykir einsýnt að öllu
óbreyttu að tap á rekstri atvinnu-
greinarinnar fari í sama horfið þegar
áhrifa af niðurskurði aflaheimilda fer
að gæta af fullum þunga á næsta fisk-
veiðiári
Þá er talið að frestun afborgana á
lánum sjávarútvegs muni minnka
greiðslubyrði fyrirtækjanna um 1800-
2000 miljónir hvort ár, 1994 og 1995.
En ætlunin er að afborganir af lánum
Atvinnutryggingadeildar Byggða-
stofnunar til sjávarútvegsfyrirtækja
áðumefnd ár verði færðar aftur fyrir
aðrar afborganir og lánstími lánanna
lengdur um 4 ár. Ennfremur mun rík-
isstjómin beina þeim tilmælum til
Fiskveiðasjóðs að hluti afborgana
verði færður til á hliðstæðan hátt. Þá
verði einnig athugað með skuldbreyt-
ingu lána hjá Byggðastofnun og í Rík-
isábyrgðarsjóði.
Á þessu ári er búist við að landsfram-
leiðsla dragist saman um 1% og um
2% á því næsta. Þá benda áætlanir til
þess að viðskiptahallinn í ár verði um
2,5% af landsframleiðslu sem er
helmingi minna en árið 1991. -grh
Sjá nánar á bls. 2,3 og 11.
Yflrfýslng ríklsstjómarínnar skoöuð á fundi hjð ASÍ (gærmorgun. F.v. Guömundur Gylfl Guömundsson hagfræö-
Ingur, Arl Skúlason hagfræðlngur og Benedikt Davfösson fbrseti ASÍ. Tlmamynd Ami Bjama
■
Heimsþingi Sameinuðu þjóð-
anna um mannréttindi sem
hófst fyrir háifum mánuði í Vín,
fauk á miðnætti sfðastliðinn
ins. Þingfulltrúar urðu ásáttir
um að geta umboðsmanns
mannréttinda f ályktuninni og
vfsa málinu tíl alsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna. Einnig
náðíst samkomulag um að
komáá ftit éftírlitsstofríun öl að
kanna ásakanir um mannrétt-
Indabrot á konum og verulegar
réttarbætur náðust fyriir frum-
byggja, þjóðarbrot og minni-
ekki samkomuiag um stofnun
alþjóðamannréttindadómstóls.
stöður þingsins í blaðinu á
Guðmundur Arni Stefánsson heilbrigðisráðherra um útgjaldaramma ráðuneytisins:
Utilokar ekki
þjónustugjöld
„Þetta verður heitt sumar hér í hellbrigðisráðuneytinu og því er
ekki að neita að þetta verður dálítið erfitt viðfangsefni," segir Guð-
mundur Ámi Stefánsson heilbrigðisráöherra um væntanlegan út-
gjaldaramma ráðuneytisins. Hann hafnar ekkl þjónustugjöldum
sem leið til spamaðar. Ráðherrann ætlar að flýta sér hægt í að
koma á tilvísunarkerfi.
Samhliða efnahagsaðgerðum
ríkisstjómarinnar var hverju ráðu-
neyti ákveðinn gárlagarammi. Það
er ljóst að mikið mun mæða á nýj-
um heilbrigðisráðherra þar sem út-
gjöld til heilbrigðismála eru fyrir-
ferðamest ríkisútgjalda. í fjárlögum
þessa árs er gert ráð fyrir tæpum 46
og hálfum milljarði til þessa mála-
flokks.
„Við erum að fara yfir allt sviðið f
saumnálaleiL Nú eru menn á þessu
frumstigi að yfirfara alla mögulega
og ómögulega þætti í stöðunni.
Þetta skýrist ekkert að marki fyrr
en um miðjan ágústmánuð," segir
Guðmundur Ámi aðspurður um
niðurskurð í heilbrigðismálum.
Á honum er samt að heyra að fjár-
veiting til heilbrigðismála verði lík-
lega nær óbreytt frá síðasta ári „Það
er ljóst að ramminn er með þeim
hætti að það sem á að fara í gang á
næsta ári verður að Qármagna af
upphæðum sem em þekktar frá síð-
asta ári,“ segir Guðmundur Ámi.
Hann vill þó ekki greina frá þeim
fjárveitingum sem ráðuneytið hafi
úr að spila á næsta ári. „Ég vil fyrst
kynna það fyrir hlutaðeigandi aðil-
um innan kerfis áður en farið er að
veifa þeim tölum. Ég ætla fjármála-
ráðherra að gera nánari grein fyrir
því ef hann telur ástæðu til þess,“
segir Guðmundur Ámi.
Um það hvort komi til greina að
leggja þjónustugjöld á sjúklinga í
einhverri mynd segir Guðmundur
Ámi: „Ég er ekki sérstakur aðdá-
andi þjónustugjalda. Sérstaklega
hef ég varað við hugmyndum í þá
vem að koma á innritunargjöldum
á sjúkrahús. Hins vegar em þjón-
ustugjöld ekkert „tabú“ í mínum
huga. Þau gegna því hlutverki fyrst
og fremst að vera langvirkasti eftir-
litsþáttur í heilbrigðiskerfi og raun-
ar í allri þjónustustarfsemi.
Gallamir em þeir að í jafrívið-
kvæmum málaflokki og heilbrigð-
ismálum gangi menn svo langt að
fólk þurfi að horfa í budduna áður
en bráðnauðsynlegrar þjónustu er
leitað. Það er þessi þrönga millileið
sem ég ætla mér að reyna að feta,"
segir Guðmundur Ámi.
Áður en Guðmundur Ámi tók við
embætti hafði forveri hans, Sig-
hvatur Björgvinsson, ákveðið að
taka upp tilvísunarkerfi en hafði
ekki tiltekið gildistíma þess. „Ég
ætla að flýta mér hægt í því og
skoða það mjög gaumgæfilega og
vil ekki nefría neinar dagsetningar í
því,“ segir Guðmundur Ámi.
-HÞ