Tíminn - 29.06.1993, Blaðsíða 3
Þríöjudagur 29. júní 1993
Tíminn 3
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ: H Kristján Ragnarsson, formaöur LÍÚ:
Atvinnuleysi meðal fisk- Það lifa ekki
vinnslufólks mun aukast allir þetta af
JVðalákvörðun var að skera niður þorskaflann úr 230 þúsund tonnnm niður í
165 þúsund tonn, eða sem nemur 65 þúsund tonnum. Það er stóra ákvörðun-
in og það sem fylgdi í kjölfarið er afleiðing af því. Við styðjum þessa ákvörðun
um þorskaflann enda teljum við ekki ásættanlegt að táka einhverja áhættu í
þeim efnum. Þorskurinn er raunveruleg forsenda byggðar hér á landi í núver-
andi mynd. Hins vegar er viðbúið að atvinnuleysi meðal fiskvinnslufólks muni
aukast þegar afleiðingar niðurskurðarins í þorskaflanum fara að birtast," segir
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvaemdastjóri VSÍ.
Þórarinn V. segir að á móti skerðingu
þorskaflans komi aukning í loðnu-
veiðum þannig að niðurstaðan sé 6%
samdráttur í sjávarvöruframleiðsl-
unni.
„Við erum fyrst og fremst að horfa á
minnkandi útflutnings- og þjóðartekj-
ur. Þannig að þessi ákvörðun um 7,5%
gengisfellingu er viðurkenning á þess-
um forsendum; tilraun til að færa út-
gjöld þjóðarbúsins að minnkandi
þjóðartekjum. Að auki styrkir gengis-
fellingin rekstrarforsendur fyrirtækj-
anna og ferðaþjónustunnar. Þar fyrir
Ólafur Ragnar Grímsson:
Við hefðum farið í
víðtækar aðgerðir
„Þessi niðurstaða veldur miklum
vonbrigðum," segir Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins. Jtíkisstjómin virðist vera
gjörsamlega sneidd allri hugmynda-
auðgi og dugnaði. Þessar aðgerðir
munu ekki með neinum hætti koma
nýjum krafti í hagkerfið á íslandi eða
breyta hugarfarinu f átt að nýrri sókn.
Atvinnuleysið mun ekkert minnka og
f raun og vem blasir við sú spuming,
hvenær komi að næstu gengisfell-
ingu.“
- Hver hefði nlðurstaðan orðið ef al-
þýöubandalagsmenn hefðu setið á
fundl yfír helgina?
„Við hefðum í fyrsta lagi farið hér í
víðtækar og flölþættar aðgerðir til
þess að styrkja sóknarstöðu, ekki bara
sjávarútvegarins, heldur einnig marg-
víslegra greina í iðnaði, ferðaþjónustu
og menningarstarfi. Ríkisstjómin er
þvert á móti að veikja grundvöll þess-
ara greina með skattaaðgerðum sín-
um. Við hefðum bent á það, að þótt
þorskaflinn sé auðvitað mikilvægur,
þá búum við yfir margvíslegum öðr-
um auðiindum f sjávarútvegi, eins og
tæknikunnáttu, markaðsþekkingu og
ónýttum flota. Þannig að við hefðum
farið inn á þá braut sem ég hef kallað
alþjóðavæðingu sjávarútvegarins. Það
þarf að gera okkar þekkingu og
reynslu að alþjóðlegri markaðsvöm
og nýta möguleikana í samvinnu við
önnur ríki. Það em fjölmargir mögu-
leikar til þess, eins og sýnt hefur verið
fram á baeði af mér og Steingrími Her-
mannssyni, og ýmsum öðmm á und-
anfömum mánuðum," segir Ólafur.
Jteynslan sýnir að hagvöxtur er bú-
inn til af saman-
safni fjölmargra
slíka smárra að-
gerða, þar sem
púslað er saman
fjölda fyrirtækja,
miðlungsstórra og
smárra til þess aö
koma hagkerfinu í
gang á nýjan leik.
En það þarf auðvitað til þess hug-
myndaríka og duglega ríkisstjóm."
- Nú hafa forystumenn í sjávarútvegi
sagst vera ánægðir með gengisfell-
ingu. Hefðuð þið ekld gripið til geng-
isfellingar?
„Ég hef nú bara heyrt Kristján Ragn-
arsson og Amar Sigurmundsson lýsa
yfir ánægju og ég er ekkert hissa á því
að þeir klappi, því þetta em hinar
klassísku, hefðbundnu aðgerðir, sem
furstamir í sjávarútveginum vilja. Hitt
finnst mér merkilegra að Jón Baldvin
og Össur Skarphéðinsson skuli standa
svona þegjandi og hljóðalaust að
þessu. Össur sagði þegar hann varð
ráðherra að hann væri kominn í ríkis-
stjómina til þess að styrkja málflutn-
ing Alþýðuflokksins í sjávarútvegs-
málum og kreflast nýrra vinnubragða
og kerfisbreytinga í sjávarútvegi. Hins
vegar er niðurstaðan sú, að Þorsteinn
Pálsson í samvinnu við Kristján Ragn-
arsson reiðir fram matseðil og Jón
Baldvin og Össur virðast hafa borðað
forréttinn, aðalréttinn og eftirréttinn
með bestu lysL Það er greinilegt að
það hefur engu máli skipt hvort að AI-
þýðuflokkurinn var á þessum ríki-
stjómarfundi eða ekki,“ segir Ólafur.
GS.
Ágústa Gísladóttir, Kvennalista:
Getum ekki alltaf
fundiö upp hjólið
„Astandið gefur kannski tQefni til
gengisfellingar núna vegna þess að
það hefnr orðið verðlækknn og hall-
inn er rosalegnr. Það verður að gera
eitthvað," segir Ágústa Gísladóttir, 1.
varaþingmaður Kvennalistans á Ve-
stjörðum, um aðgerðir ríkisstjómar-
innar. „En ég sé satt að segja ekkert í
þessum tillögum sem gefur tilefni tfl
vaxtalækkana, því miður. Við vfljum
gjaman að vextimir fari niður. Ég
held að það yrði mesta hjálpin í þess-
um skuldsettu greinum."
Ágústa segir að kvennalistakonur séu
sammála því að fara eftir tillögum
Hafrannsóknarstofnunar um afla-
heimildir. „En hins vegar er ég ansi
hrædd um að það verði veitt meira,
því kvóti sem ekki næst á þessu ári
verður líklega fluttur á milli, eins og
er að gerast á þessu ári. Þar er brota-
löm sem við erum hræddar við, vegna
þess að tillögur Hafrannsóknarstofti-
unar koma rétt í veg fyrir að við göng-
um ekki alveg frá stofninum. Eg er
hrædd um að það taki langan tíma,
meira að segja með þessari skerðingu
að ná stofninum upp,“ segir Ágústa.
„Við vitum alveg að við erum í Iægð og
þessi lægð verður áfram. En við get-
um ekki endalaust skorið niður. Við
verðum að fera að finna leiðir til að
auka tekjumar. Við verðum að horfa
til iðnaðargreina sem hafe einhverja
vaxtamöguleika, eins og td. ferða-
málaiðnaðar. Þá verðum við Ifka að
hvetja stóru togarana til að fara út fyr-
ir 200 mílumar og leita að nýjum teg-
undum. Við getum ekki verið að finna
upp hjólið aftur og aftur." GS.
utan eiga kostnaðarhækkanir sem
þessu verða samfara að verða í lág-
marki."
Framkvæmdastjóri VSÍ segir að í
kjarasamningunum hafi verið við það
miðað að afli yrði svipaður og verðlag
mundi hækka aftur. Að vísu ekki alveg
til þess vegar sem það var í sl. nóvem-
ber, en færi þó 3% yfir það sem það var
að meðaltali á fyrsta ársfjórðungi.
„Núna vantar einhver 7,5% upp á þá
viðmiðun og þriðji ársfjórðungur að
sönnu ekki kominn. En því miður em
fó teikn á lofti um að verð muni
hækka. Þannig að eins og staðan er
um þessar mundir þá vantar okkur 6%
að magni til og 7,5% í verðinu til þess
að jafnvægispunktur samninganna sé
til staðar. Menn voru sammála um það
að viðbrögð upp að þessum mörkum
gætu verið eðlileg."
Þórarinn V. segir að eftir standi gríð-
arlegur atvinnu- og byggðavandi og þá
einkum úti á landi. Hann er þó á því að
með þessum aðgerðum ríkisstjómar-
innar sé skotið nýjum stoðum undir
gengisstefnuna og gengisfellingin sé
viðurkenning á staðreyndum.
Hann segir að verkefnið sem fram-
undan er, sé að draga úr þeirri gríðar-
legu miklu afkastagetu í vinnslu og
veiðum sem miðist við allt að 400 þús-
und tonna þorskafla á ári.
„Það verður aldrei hægt að ná jafn-
vægi þar með aðgerðum á sviði pen-
inga- eða gengismála. Þar getur held-
ur aldrei náðst þolanleg afkoma fyrir
alla þessa afkastagetu og úr henni þarf
að draga. Sátt stjómarflokkanna um
Þróunarsjóðinn miðar að því,“ segir
framkvæmdastjóri VSÍ. -grh
„Mér fínnst vera gerft þarna virftingarverð tflraun tfl aft byggja þorskstofh-
inn upp og því styðjum við þessa ákvðrðun um aflamarldð. Hins vegar tefj-
um vift ekld nóg aft gert í málefnum útgerðarinnar tfl aft bæta hennar stöftu
eftir þetta. Þó er gerft þarna tflraun tfl að lina þjáningar útgerftarinnar í
greiftslustöðunni upp á tæpa 2 milljarða þannig að við erum aft vona aft þaft
geri okkur kleift aft Ufa þetta af, en aft vísu ekki aflir. Þaft er alveg (jóst eins
og dagur fylgir nóttu,“ segir Kristján Ragnarsson, formaftur Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna.
Kristján Ragnarsson segir að breyt-
ingar á gengi krónunnar og tíma-
bundið afnám tryggingagjalds hafi í
för með sér að halli útgerðarinnar
lækki um 3,5 prósentustig, eða úr
8% í 4,5%.
„Síðan hækkar tapið aftur upp í 8%
vegna skerðingar aflaheimilda og ef
aðstæður á mörkuðum batna ekki.
Þessi rekstrarstaða er að sjálfsögðu
ekki viðunandi og mjög þungbær.
Þegar litið er á þetta í heild má segja
að ávinningurinn sé sá að við séum
að byggja upp en séum engu að síð-
ur í sömu rekstrarlegu stöðunni."
Hann segir að grundvöllur báta-
gerðar sé kominn á það stig að mjög
víða sé varla lengur útgerðarhæft.
„Þannig að ef menn ætla að lifa
þetta af þá verða þeir að taka saman
höndum og færa aflaheimildir á
milli og leggja bátum. Síðan er ég
ekki enn farinn að sjá hvemig því
verður mætt að taka lífsviðurværið
frá fólkinu í byggðinni. Að því leyt-
inu til er þetta gríðarlega alvarlegt
mál sem við stöndum frammi fyrir."
Formaður LÍÚ segir að það skipti
miklu máli að nú verði smábátum
gert að sæta skerðingu eins og öðr-
um. Hann segist ekki efast um að
það nái fram að ganga á Alþingi þvf
annars verði aflaheimildir skertar
um 12 þúsund tonn til viðbótar því
sem þegar hefur verið ákveðið.
„Þess sem ég sakna í þessu, er að
30% úreldingarheimildin í Hagræð-
ingarsjóði hafi ekki verið hækkuð
upp í 45%-50%. Útgerðin á þar um
500 milljónir króna sem við viljum
nota núna til að gefa mönnum kost
á því að hætta. En því er frestað fram
á haustið þegar þetta blessaða þró-
unarsjóðsmál verður tekið fyrir á Al-
þingi. Þá fáum við baggana á okkur;
allavega af frystingu greiðslna At-
vinnutryggingarsjóðs."
-grh
nj
aí
.
'if’jff'
>4^
'31
Persónuafsláttur
hækkar frá 1. júlí
Mánaðarlegur persónuafsláttur hækkar í 23.911 kr.
Sjómannaafsláttur á dag hækkar í 671 kr.
■ mmr
zMíDæ
fM
l__,...._
Þann 1. júlí hækka persónu-
afsláttur og sjómannaaf-
sláttur um 1,27%. Hækkunin
nær ekki til launagreiðslna
fyrir júní og hefur ekki í för
með sér að ný skattkort verði
gefin út.
Athygli launagreiðenda er
vakin á því að þeir eiga ekki
að breyta fjárhæð persónu-
afsláttar þegar um er að ræða:
• Persónuafslátt samkvæmt
námsmannaskattkorti 1993.
• Persónuafslátt samkvæmt
skattkorti með uppsöfnuðum
persónuafslætti 1993.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Ónýttur uppsafnaður persónu-
afsláttur, sem myndast hefur á
tímabilinu 1. janúar til 30. júní
1993 og verður millifærður
síðar, hækkar ekki.
Á sama hátt gildir hækkun
sjómannaafsláttar ekki um
millifærslu á ónýttum uppsöfn-
uðum sjómannaafslætti sem
myndast hefur á tímabilinu
1. janúar til 30. júní 1993.