Tíminn - 29.06.1993, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 29. júní 1993
Tíminn 11
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að mæta aflasamdrætti:
Af lasamdráttur og
7,5% gengisfelling
heildarafla
Á undanfömum vikum hefur farið
fram undirbúningur að ákvörðun-
um um leyfilegan heildarafla kvóta-
bundinna fisktegunda á næsta fisk-
veiðiári. Tillögur Hafrannsókna-
stofnunar gáfú til kynna að verulega
yrði að draga úr þorskafla og því
ljóst að um samdrátt yrði að ræða í
heildarafla, þrátt fyrir aukningu í
ýmsum öðrum tegundum.
Að undangenginni umfjöllun í rík-
isstjóm hefur sjávarútvegsráðherra
nú ákveðið leyfilegan heildarafla
helstu fisktegunda á næsta fiskveiði-
ári. Samkvæmt ákvörðuninni má
gera ráð fyrir að þorskafli verði 165
þúsund lestir samanborið við um
230 þúsund lestir á yfirstandandi
fiskveiðiári. Afli ýmissa annarra
botnfisktegunda gæti aukist nokk-
uð, en í heild má gera ráð fyrir að
botnfiskafli dragist saman um nær
15% milli ára, mælt í þorskígildum.
Verði loðnuafli rúmlega 1 milljón
lestir og aukist úthafskarfaafli úr 25
þúsund lestum í ár f 40 þúsund lest-
ir á næsta ári, eins og vonir standa
til, mun heildarafli og framleiðsla
sjávarafurða dragast saman um 6%
á næsta ári, að mati Þjóðhagsstofn-
unar.
Aflasamdrátturinn á næsta ári mun
hafa vemleg áhrif á hag sjávarút-
vegsins og þjóðarbúskapinn. Af-
koma sjávarútvegs er nú þegar erfið
vegna lækkunar afurðaverðs að
undanfömu, en verðlag sjávarafurða
hefur lækkað um 9% frá því gengi
krónunnar var lækkað í nóvember
s.I. Verð á botnfiskafurðum er nú
12% lægra, mælt í SDR, en meðaltal
síðustu 5 ára.
Halli á rekstri botnfiskveiða og -
vinnslu er nú áætlaður um 8% og
aflasamdráttur á næsta ári mun
valda auknum halla. Afkoma ein-
stakra greina er afar misjöfn, þar
sem samdráttur í afla og verðlækk-
un afurða bitnar mjög misjafnlega á
einstökum greinum og fyrirtækj-
um.
Samdráttur í útflutningstekjum
mun leiða til vaxandi viðskiptahalla
að öðm óbreyttu og landsfram-
leiðsla mun dragast saman, þriðja
árið í röð.
Yfiriit Horfur um afkomu sjávar-
útvegs og þjóðarbús em nú þannig
að nauðsynlegt er að bregðast við
þeim þegar í stað. Bæta þarf rekstr-
arstöðu sjávarútvegsins, létta
greiðslubyrði fyrirtækja, stuðla að
aukinni hagræðingu og jafna nokk-
uð áhrif aflasamdráttar á einstakar
útgerðir. Það er ekki síður nauðsyn-
legt að treysta samkeppnisstöðu
annarra útflutnings- ogsamkeppn-
isgreina, draga úr innflutningi til að
koma f veg fyrir vaxandi viðskipta-
halla og erlenda skuldasöfnun og
spoma gegn vaxandi atvinnuleysi í
kjölfar samdráttar. Jafnframt þarf að
gæta þess að stofna ekki stöðugleika
í hættu og halda óhjákvæmilegri
kjararýmun í lágmarki.
í ljósi þessara markmiða hafa eftir-
farandi aðgerðir verið ákveðnar:
1. Gengi krónunnar verður Iækkað
um 7,5%. Áfram verður fylgt stefnu
stöðugs meðalgengis miðað við hið
nýja gengi, með óbreyttum fráviks-
mörkum.
2. Afborganir af lánum Atvinnu-
tryggingadeildar Byggðastofnunar
til sjávarútvegsfyrirtækja árin 1994
og 1995 verða færðar aftur fyrir aðr-
ar afborganir og lánstími lánanna
lengdur um 4 ár. Ríkisstjómin mun
beina þeim tilmælum til Fiskveiða-
sjóðs að hluti afborgana verði færð-
ur til á hliðstæðan hátt. Þá verði
skuldbreyting lána hjá Byggðastofn-
un og í Ríkisábyrgðasjóði einnig at-
huguð í þessu samhengi.
3. Frumvarp til laga um stofnun
Þróunarsjóðs sjávarútvegsins verð-
ur lagt fram strax í upphafi þings og
afgreitt sem sjálfstætt þingmál og
forgangsmál. Meginhlutverk sjóðs-
ins verður að stuðla að aukinni hag-
kvæmni í veiðum og vinnslu. Ríkis-
stjómin mun nú þegar gera ráðstaf-
anir til þess að afla fjár til sjóðsins í
samræmi við hlutverk hans, þannig
að unnt sé að undirbúa aðgerðir af
hálfú sjóðsins um leið og hann verð-
ur formlega stofnsettur.
4. Til að jafna mismunandi áhrif
aflaskerðingar á útgerðariyrirtæki
verður aflaheimildum Hagræðing-
arsjóðs ráðstafað með sama hætti og
gert var í kjölfar kjarasamninga í
vor. Verði öllum aflaheimildum
sjóðsins varið í þessu skyni, mun
aflamark einstakra skipa ekki skerð-
ast um meira en rúmlega 9% milli
fiskveiðiára.
Bætt staða atvinnulífs — minni
viðskiptahalli. í nóvember síðast-
liðnum var gengi krónunnar lækkað
í ljósi versnandi þjóðarhags, m.a.
vegna mikillar lækkunar á gengi
mikilvægra viðskiptamynta og verð-
lækkunar á sjávarafurðum. Við
gengislækkunina batnaði sam-
keppnisstaða útflutnings- og sam-
keppnisgreina, þ.e. raungengi krón-
unnar lækkaði og horfur voru á
áframhaldandi lækkun raungengis
vegna þess að verðlags- og launa-
breytingar hér á landi yrðu minni en
í helstu samkeppnislöndum.
Samdráttur sjávarafla um 6% og
verðlækkun á afurðum breytir veru-
lega þeim forsendum, sem miðað
var við í nóvember, og hefur afdrifa-
ríkar afleiðingar fýrir íslenskt þjóð-
arbú. Framleiðsla landsmanna mun
dragast saman og halli á utanríkis-
viðskiptum aukast Við þessu verður
að bregðast á þann hátt að það styrki
samkeppnisstöðu allra útflutnings-
og samkeppnisgreina og dragi úr
viðskiptahalla. Þess vegna er óhjá-
kvæmilegt að lækka gengi krónunn-
ar nú.
Brýnt er hins vegar að fara eins var-
lega í þessa breytingu og unnt er
vegna verðlagsáhrifa innanlands.
Einungis á þann hátt er unnt að
tryggja áframhaldandi stöðugleika
og frið á vinnumarkaði, en slíkt er
forsenda þess að aðgerðin hafi til-
ætluð áhrif til lengri tíma Iitið.
Kjarasamningar á almennum
vinnumarkaði eru í gildi til loka
næsta árs og þær aðgerðir, sem nú
hefur verið gripið til, raska ekki
kjarasamningum, með tilliti til
þeirra forsendna sem þar var miðað
við. Gengisbreytingin er langtíma-
aðgerð sem bætir hag sjávarútvegs
til frambúðar, en veldur hins vegar
óhjákvæmilega hækkun á erlendum
skuldum hans í krónum talið og
veikir þess vegna skuldugustu fyrir-
tækin til skemmri tíma litið. Á móti
því vegur skuldbreyting á stofnlán-
um sjávarútvegsins.
Gengislækkun krónunnar mun
bæta afkomu sjávarútvegs um allt
að 3 1/2% og má því áætla halla á
botnfiskveiðum og -vinnslu um 4
1/2% í kjölfar gengislækkunarinnar.
Lfklegt er að nokkur hagnaður hafi
verið í öðrum greinum sjávarútvegs
og eykst hann vegna áhrifa gengis-
breytingarinnar. Þegar líður á kom-
andi fiskveiðiár mun afkoma botn-
fiskveiða og -vinnslu versna um nær
3 1/2% vegna skerðingar aflaheim-
ilda ef aðstæður á mörkuðum fyrir
sjávarafurðir batna ekki. Frestun af-
borgana mun á hinn bóginn minnka
greiðslubyrði fyrirtækjanna og er
talið að hún geti minnkað um 1800-
2000 milljónir króna hvort ár 1994
og 1995.
Hagræðing í sjávarútvegi. Þróunar-
sjóðurinn mun stuðla verulega að
hagræðingu í sjávarútvegi og út-
hlutun aflaheimilda Hagræðinga-
sjóðs til jöfnunar mun milda áhrifin
af mikilli skerðingu þorskaflans.
Ríkisstjómin mun einnig beita sér
fyrir því að treysta atvinnu í sjávar-
útvegi með því að efla starf við þró-
un og nýsköpun í greininni, jafnt
með nýtingu þeirra tegunda, sem nú
eru vannýttar, sem með aukningu
verðmæta úr þeim stofnum, sem nú
eru nýttir.
Með þeim aðgerðum, sem nú hafa
verið ákveðnar, eru sjávarútvegin-
um sköpuð skilyrði og möguleikar
til að takast á við erfiðleika vegna
aflaminnkunar á næstu misserum.
Sjávarútvegurinn og atvinnulífið
allt veit nú við hvaða skilyrði hann
mun búa af hálfu stjómvalda.
Ríkisfjármál — vextir. Vegna sam-
dráttar útflutningstekna mun við-
skiptahalli fara vaxandi að öðru
óbreyttu. Þess vegna er mikilvægt
að aðgerðir miði að því að koma í
veg fyrir slíkt Þetta er eitt megin-
markmiðið með gengislækkun
krónunnar, eins og áður sagði. Jafn-
framt er nú enn brýnna en áður að
draga úr ríkisútgjöldum og halla á
ríkissjóði, svo opinber Iánsfiárþörf
leiði ekki til hækkunar á raunvöxt-
um.
Með þeim aðgerðum, sem nú hafa
verið ákveðnar, eiga að skapast for-
sendur þess að raunvextir geti lækk-
að á næstu misserum. Ríkisstjómin
hefur ákveðið að skipa nefnd sér-
fræðinga til að kanna vaxtamyndun
á lánsfjármarkaði, einkum með til-
liti til þess hvort uppbygging og
skipulag markaðarins, Ld. víðtæk
verðtrygging, hindri eðlilega vaxta-
myndun.
Ríkisstjómin hefur ítrekað fyrri
markmið um að fjárlagahalli næsta
árs verði verulega minni en áætlað-
ur halli á þessu ári. Á næstu vikum
verður unnið að endaniegum undir-
búningi fjárlagafrumvarps í sam-
ræmi við þau markmið.
í tengslum við kjarasamninga f maf
var ákveðið að auka útgjöld ríkis-
sjóðs til atvinnuskapandi aðgerða,
einkum fjárfestinga og viðhalds, um
1000 milljónir króna frá því sem
ákveðið var f fjárlögum ársins. Þessu
fé verður einkum varið til viðhalds
og endurbóta á opinberum bygging-
um og til nýbygginga. Ríkisstjómin
mun á næstunni gera nánari grein
fyrir hvemig þessu fé verður ráðstaf-
að.
Á síðastliðnu hausti var einnig
ákveðið sérstakt átak til atvinnu-
skapandi framkvæmda, alls 1850
milljónir, og stærstum hluta þeirrar
fjárhæðar var varið til vegafram-
kvæmda. Áhrif af þessum aðgerðum
á atvinnuástand munu halda áfram
að koma fram á næstu mánuðum og
vinna þannig gegn áhrifum af al-
mennum samdrætti í þjóðarbú-
skapnum. Gert er ráð fyrir að at-
vinnuleysi á árinu 1993 verði að
meðaltali um 5% af mannafla, en
tölur síðustu mánaða vekja þó vonir
um að það geti orðið heldur minna.
Á vegum þriggja ráðuneyta eru
hafnarviðræður við Húsnæðisstoín-
un, viðskiptabanka, sparisjóði og líf-
eyrissjóði um greiðsluerfiðleika
fólks, sem misst hefur atvinnu sína
vegna langvarandi veikinda eða at-
vinnubrests.
Þrátt fyrir áframhaldandi samdrátt
er ekki búist við að atvinnuleysi
aukist að marki. Mikilvægast er nú
að stemma stigu við aukningu at-
vinnuleysis og búa í haginn fyrir
næstu ár, þannig að hagvöxtur geti
hafist á ný og atvinnuástand batnað
þegar ytri skilyrði þjóðarbúsins lag-
ast og aðstæður í viðskiptalöndum
okkar batna.
Við gerð kjarasamninga í vor lýsti
ríkisstjómin sig reiðubúna til sam-
starfs við samtök launafólks og at-
vinnurekenda með það að markmiði
að treysta íslenskt atvinnulíf. Þar
var m.a. haft í huga að efla rann-
sókna- og þróunarstarf, bæta skipu-
lag kynningar á íslenskum vömm
og þjónustu á erlendum vettvangi
og stuðla að fjárfestingu erlendra
fyrirtækja á íslandi.
Undirbúningur að þessum aðgerð-
um er hafinn og stefnt er að því að
mótaðar tillögur, sem unnið verður
að í samvinnu við samtök launafólks
og vinnuveitenda, liggi fyrir í hausL
í því sambandi mun ríkisstjómin
m.a. auka framlag til rannsókna
með sérstakri áherslu á nýsköpun.
Einnig verður komið á vettvangi til
umfjöllunar um nýjungar í atvinnu-
lífi og hvað gera þurfi til þess að nýj-
ar atvinnugreinar geti vaxið og dafn-
að hér á landi.
Þær ákvarðanir um afla, gengi og
ríkisfjármál, sem nú hafa verið tekn-
ar, em mikilvægar forsendur um af-
komu þjóðarbúsins á næsta ári.
Þótt önnur framleiðsla til útflutn-
ings en sjávarafurðir gæti aukist
eitthvað á næsta ári, er Ijóst að út-
flutningur vöm og þjónustu í heild
mun dragast saman.
Þróun viðskiptakjara hefur verið
óhagstæð að undanfömu, einkum
vegna mikillar lækkunar á verði
sjávarafurða. Mikil óvissa ríkir um
verðþróun á næstunni, en nokkur
von er þó til þess að markaðir fyrir
sjávaraftirðir verði í betra jafnvægi á
næsta ári og verðlag sjávarafurða
geti hækkað fremur en lækkað.
Þannig standa vonir til þess að við-
skiptakjör geti batnað lítilsháttar
eftir mikla rýmun á þessu ári.
Eftir breytingu á gengi nú verður
gengi krónunnar haldið stöðugu
innan sömu fráviksmarka og áður
hafa gilt, þ.e. 2 1/4% til hvorrar átt-
ar. Á þessum forsendum og miðað
við líklega verðlagsþróun á íslandi
og í helstu viðskiptalöndum mun
raungengi krónunnar lækka um-
talsvert. Þannig er reiknað að raun-
gengið á mælikvarða verðlags verði
rúmlega 7% lægra á þessu ári en í
fyrra og lækki enn um 3 1/2% milli
áranna 1993 og 1994. Samkeppnis-
staða íslenskra atvinnuvega á hinn
almenna mælikvarða raungengis
mun því batna verulega á þessum
tveimur árum og verður reyndar
betri á þennan kvarða mælt en allan
síðasta áratug og það sem af er þess-
um áratug. Mikilvægt er að þessum
árangri verði ekki fómað á næstu
árum, svo unnt verði að nýta þessa
stöðu til aukinnar sóknar í atvinnu-
málum.
Verðlagshorfúr mótast annars veg-
ar af nýgerðum kjarasamningum og
ráðstöfúnum ríkisstjómarinnar í
tengslum við þá og hins vegar af
gengislækkun krónunnar nú. Sam-
kvæmt þessum forsendum má
reikna með að vísitala framfærslu-
kostnaðar hækki um rúmlega 4%
milli áranna 1992 og 1993 og um
rúmlega 3% milli áranna 1993 og
1994.
Þetta em heldur meiri verðbreyt-
ingar en gert hefur verið ráð fyrir og
stafar það af gengislækkun krón-
unnar. Hins vegar er rétt að vekja at-
hygli á því að OECD spáir 4,1%
verðbólgu í Evrópu á þessu ári og
3,9% á því næsta. Af þessu má sjá að
gangi spá OECD eftir, verður verð-
bólgan hér á landi á þessu ári svipuð
og í Evrópu og nokkru minni á ár-
inu 1994.
Gert er ráð fyrir því að almenn
launaþróun á árinu 1994 verði í
samræmi við nýgerða kjarasamn-
inga. Miðað við líklega tekjuþróun
að öðm leyti felur þetta í sér að
kaupmáttur ráðstöfúnartekna á
mann verði um 4% minni 1994 en á
þessu ári.
Útgjöld þjóðarinnar munu dragast
saman á næsta ári, enda er slíkt
óhjákvæmilegt í kjölfar rýmandi
þjóðartekna. Áætlanir benda til þess
að viðskiptahalli á árinu 1993 nemi
2,5% af landsframleiðslu, sem er
nokkm minna en árið 1992 og nær
helmingi minna en árið 1991. Á
þeim forsendum, sem hér hefúr ver-
ið Iýst, má gera ráð fyrir að við-
skiptahalli minnki á næsta ári og
verði innan við 2,5% af landsfram-
leiðslu.
Síðustu áætlanir benda til þess að
landsframleiðslan dragist saman um
nálægt 1% á árinu 1993. Samdrátt-
urinn verður meiri á næsta ári
vegna meiri samdráttar útflutnings
en í ár. Þjóðartekjur em taldar
minnka um rúmlega 2 1/2% á þessu
ári vegna mikillar rýmunar við-
skiptakjara. Á árinu 1994 gæti
landsframleiðslan orðið um 2%
minni en á þessu ári og rýmun þjóð-
artekna yrði svipuð eða heldur
minni ef viðskiptakjör batna.
Áframhaldandi samdráttur mun
óhjákvæmilega hafa áhrif á atvinnu-
ástandið. Síðustu tvo mánuði hefúr
heldur dregið úr atvinnuleysi. Þann-
ig vom 6700 manns skráðir at-
vinnulausir í mars s.I. eða 5,4% af
mannafla, en 5200 manns f maf eða
4% af mannafla. Að nokkm leyti
stafar þessi fækkun af því að at-
vinnuástand batnar árstíðabundið á
vorin, en einkum má þó rekja þetta
til átaksverkefna sveitarfélaga og At-
vinnuleysistryggingasjóðs.
Akvðröun um