Tíminn - 01.07.1993, Síða 1
Frétta-Tíminn. Frétta-síminn...68-76-48...Frétta Tíminn Frétta-síminn...68-76-48...Frétta Tíminn Frétta-síminn...68-76-48.
Fimmtudagur
1. júlí 1993
121. tbl. 77. árg.
VERÐ (LAUSASÖLU
KR. 125.-
^Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu:
íslensk stjóm-
vökl bnitu ákvæði
um félagafrelsi
á mótmæli Sigurðar og samþykkti
leyfissviptinguna. Ári síðar hafn-
aði borgardómur kröfu Sigurðar
um ógildingu leyfissviptingarinn-
ar.
Málinu var vísað til Hæstaréttar
sem komst að þeirri niðurstöðu
að skylduaðild að Frama bryti ekki
í bága við ákvæði stjómarskrár.
Hins vegar ógilti Hæstiréttur dóm
undirréttar um skylduaðild á
þeirri forsendu að lagalegan
grundvöll skorti.
í framhaldi af þessu samþykkti
Alþingi lög árið 1989 þess efnis að
ekki mætti veita mönnum leyfi til
leigubílaaksturs nema þeir væm í
viðeigandi stéttarfélagi.
Mannréttindadómstóllinn telur
Frama félag sbr 11. ákvæði mann-
réttindasáttmálans. Dómurum
þótti hins vegar ekki nauðsynlegt
að úrskurða um hvort Frami væri
verkalýðsfélag.
Þá tók dómurinn ekki gild þau
rök íslenska ríkisins að Sigurður
hefði samþykkt þá skyldu að
ganga í Frama eða hvort sú skylda
hvíldi raunvemlega á þegar hann
fékk leyfi til að aka leigubfl.
Dómurinn telur því að fram að
gildistöku laga árið 1989 hafi 11
grein mannréttindasáttmálans
verið brotin með skylduaðild og
hótun um leyfissviptingu ella.
Jafnframt efast dómurinn um
nauðsyn slíkrar lagasetningar í
lýðræðisríki.
Sigurði vom dæmdar rúmar
tvær milljónir króna í málskostn-
að.
íslensk stjómvöld brutu ellefta ákvæöi mannréttindasáttmála Evr-
ópu um félagafrelsi meö þvf aö skylda leigubílstjóra til að vera í
stéttarfélaginu Frama.
Þetta kemur fram í dómi Mann-
réttindadómstóls Evrópu sem féll
í gær og var þetta niðurstaða 8
dómara en einn var á móti. í 11.
grein mannréttindarsáttmála Evr-
ópu segir að menn eigi rétt á að
koma saman og mynda félög og
stofria og ganga í stéttarfélög til
vemdar hagsmunum sínum. Þá
skuli réttindi þeirra ekki háð öðr-
um takmörkunum en þeim sem
mælt sé um í lögum og nauðsyn-
legar séu í lýðfrjálsu þjóðfélagi.
Málavextir eru þeir að árið 1986
var Sigurður A. Siguijónsson
sviptur leyfi til aksturs leigubif-
reiðar að kröfu Frama, stéttarfé-
lags leigubifreiðastjóra. Krafan
var tilkomin þar sem Sigurður
neitaði að greiða gjöld til félagsins
og hafði sagt sig úr því.
Dómsmálaráðuneytið féllst ekki
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, um dóm
Mannréttindadómsstóls Evrópu:
Fyrst og fremst
starfsréttindadómur
Jón Stelnar Gunlaugsson lögmaöur telur að íslenska ríklnu kunni
að vera skylt aö tryggja mönnum aö þeir séu ekki beittlr félagaof-
rfki með skylduaðild aö stéttarfélögum. Benedikt Davíösson, for-
seti ASÍ, telur ofangreinda túlkun vera full frjálslega og seglr að
þetta sé fyrst og fremst starfsréttindadómur.
J’ama er verið að túlka þessa nið-
urstöðu á mun víðtækari hátt en
efni gefa til,“ segir Benedikt um
túlkun lögmannsins.
Fullyrðing lögmannsins voru við-
brögð hans við dómi Mannréttinda-
dómstóls Evrópu þar sem kveðið er
á um að íslensk stjómvöld hafi brot-
ið 11. grein mannréttindasáttmála
Evrópu sem lýtur að félagafrelsi.
Jón hafði samt þann fyrirvara á að
málsatvik væm ekki sambærileg við
það sem gerðist á almennum vinnu-
markaði og félagaskylda sem þar
ríkti byggðist á samningum milli
vinnuveitenda og verkalýðsfélaga.
Þá var haft eftir Jóni að dómurinn
hlyti að hafa þau áhrif að íslenska
ríkinu væri skylt að breyta ákvæði f
lögum um skylduaðild leigubflstjóra
að félögum.
-HÞ
'.'íx-.
Hart lagt að menntamálaráðherra um lækkun útgjalda:
Utilokar ekki
skólagjöld
„Ég útiloka ekki skólagjöld," segir Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráöherra, aðspurður um spamaðaríeiðir f menntamálaráöu-
neytinu. Hann seglr aö faríð sé fram á mikla útgjaldalækkun til
menntamála og því sé erfið vinna framundan. „Þaö er ekkl þar með
sagt aö ég geti gert þaö,“ segir Ólafur.
Eins og kunnugt er var ráðherr-
um afmarkaður ákveðinn fjár-
magnsrammi til viðmiðunar sam-
hliða efnahagsaðgerðum ríkis-
stjómarinnar. Það mun lfldega
mæða talsvert á ráðherra mennta-
mála á næstunni þar sem ráðuneyti
hans er annað fjárfrekasta ráðu-
neytið með tæpa 16,7 milljarða
króna til að spila úr á þessu ári.
Ólafúr segir að innan ráðuneytis-
ins sé verið að vinna að tillögugerð
sem miði að því að halda sig við
fjárlagarammann en engar ákvarð-
anir hafi verið teknar enn sem
komið er.
Ólafur segist ekkert reikna sér-
staklega með tillögum frá sér um
skólagjöld á framhaldsskólanem-
endur en útilokar það samt ekki.
Stjóm Rithöfundasambandsins reynir að spoma gegn virðisaukaskatti á bækur:
Dimmur dagur í sögu
bókaþjóðarinnar
„Stríöiö er ekki tapað þótt þessi orrusta sé töpuð,“ sagöi Þráinn
Bertelsson, formaður Rithöfundasambandsins, í gær þegar hann
gekk í fararbroddi svartklæddrar stjómar sambandsins á fund frú
Vigdísar Finnbogadóttur forseta íslands til að biðja hana fyrir þau
skilaboö til ríkisstjómarinnar að hætta viö aö leggja virðisauka-
skatt á bækur en byrjaö veröur að innheimta hann í dag.
Þráinn sagði ríkisstjómina hvorki
hafa hlustað á vamaðarorð rithöfunda
né heldur rök þeirra gegn álagning-
unni.
Rithöfundamir létu Vigdísi hafa tíu
eintök af bókinni íslandsklukkan eftir
Halldór Laxness til að afhenda ráð-
herrum ríkisstjómarinnar.
Þráinn segir ástæðuna fyrir því að sú
bók hafi orðið fyrir valinu vera upp-
hafsorð hennar en þau eru á þessa
leið: „Sú var tíð, segir í bókum, að ís-
lenska þjóðin átti aðeins eina sameign
sem metin var til fjár. Það var klukka."
Stjóm íslenska lestrarfélagsins hefúr
einnig lýst þungum áhyggjum vegna
virðisaukaskattsins og bendir á að
slíkt geti leitt til aukins treglæsis og
að fleiri fari á mis við lestrarleikni sem
nauðsynleg sé í nútímasamfélagi.
í ályktun sem stjómin hefur sent frá
sér segin „Enginn veit hvaða afleið-
ingar skattur á lestrarefni getur haft á
læsi íslensku þjóðarinnar. Gmnur um
að illa gæti farið er nægilegur til þess
að ekki megi hætta á neitt í þeim efn-
um.“
-GKG.
Þráinn Bertelsson, Rannveig Ágústsdóttir, Sveinbjöm I. Baldvins-
son og Vigdís Grímsdóttir í stjómarráðshúsinu í gær ásamt for-
seta fslands. Timamynd: Aml Bjama