Tíminn - 01.07.1993, Side 12

Tíminn - 01.07.1993, Side 12
Áskriftarsími Tímans er 686300 NÝTTOG FERSKT DAGLEGA MA| ^^Jreiðholtsbakarí VÖLVUFELL113 - SlMI 73655 —J—f J i II iai labriel HÖGG- DEYFAR Verslið hjá fagmönnum Civarahlutir Hamarshofða 1 Hamarshöfða 1 Simi676744 Tíminn FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ1993 Útflutningur grásleppuhrogna til fullvinnslu erlendis hafinn á ný. Innlendar stöðvar sjá fram á mun styttri vinnslutíma vegna hráefnisskorts: Kjaftshögg á innlendan iðnað „Við höfum fenglð 300 tunnur af grásleppuhrognum til kavíar- vinnslu af 1.500 tunnum sem við ætluðum að fá, en í fyrra fengum við 1.100 tunnur. Ég geri ekki ráð fyrir að fá meira en sem nemur kannski 100-200 tunnum í viðbót að öllu óbreyttu. Það er því ekki aö undra þótt við séum í algjöru fári og kaupum hrognatunnur hvar sem við náum í þær, enda margir um hituna," segir Ólafur Kristjánsson hjá Nóru hf. í Stykkishólml. Viðskiptaskrifstofa utanríkisráðu- neytisins er aftur farin að gefa út leyfi til útflutnings á söltuðum óunnum grásleppuhrognum til fúllvinnslu erlendis. En um tíma var útgáfa útflutningsleyfa fryst, m.a. vegna þrýstings frá innlend- um kavíarframleiðendum og verkalýðshreyfingunni. Það sem af er vertíðinni er búið að veiða sem nemur 7 þúsund hrognatunnum og þar af hafa verið fluttar út um 2.200 tunnur en grunur leikur á að þær séu fleiri. Meðal innlendra kavíarframleiðenda er staðhæft að til séu þeir útflytjendur sem láti boð og bönn sig engu skipta; flytji út og sæki svo um útflutningsleyfi eftirá. Innlendir framleiðendur kavíars úr grásleppuhrognum fúnduðu í gær vegna útflutningsins þar sem fram kom megn óánægja með stefnu stjómvalda í þessu máli og þá sérstaklega vegna atvinnu- ástandsins. J þessu máli þarf að taka pólitíska ákvörðun en það virðist bara alltaf vera svo mikil hræðsla í ráðuneyt- inu við það að „stóri bróðir" útí heimi muni stíga ofan á þá.“ Hjá Nóm hf. er mest að gera í vinnslunni frá ágúst til áramóta hvert ár og þá vinna hjá fyrirtæk- inu 10-15 manns. „En við sjáum ekki fram á að vera með meiri vinnslu í ár en sem nemur einum til tveimur mánuð- um. Við byggjum okkar afkomu á vinnslu kavíars úr grásleppuhrogn- um, þannig að útflutningurinn er hið versta mál fyrir okkur." Ólafúr Kristjánsson segir að á sinn hátt sé það skiljanlegt að þeir sem hafi ástundað hrognaútflutning í gegnum tfðina og hafi sín sam- bönd, vilji halda því áfram. „Þjóðfélagslega er auðvitað ekkert vit í öðm en að fullvinna afurðimar hér heima. Sérstaklega þegar það er haft í huga að við bjóðum sama verð og sömu kjör og útflytjendur. Við útflutninginn verður þjóðarbú- ið af a.m.k. helmingi þeirra tekna sem það ella mundi fá ef hrognin væm unninn innanlands, svo ekki sé talað um margfeldisáhrifin sem það hefur á aðrar atvinnugreinar." Arthúr Bogason, formaður Lands- sambands smábátaeigenda, segir að þeir hvetji félagsmenn sína til að skipta við innlenda aðila en séu á móti boðum og bönnum í þessum efnum. Það sem af er hefur grásleppuver- tíðin gengið alveg hörmulega víð- ast hvar og hafa margir hreinlega hætt og búnir að taka upp netin. Gert er ráð fyrir að heildarveiðin verði eitthvað um 8-9 þúsund tunnur sem er um fjórðungs minni veiði en í fyrra. -grh Fyrrverandi ritstjóri Pressunnar segir að frétt komið frá Davíðsmönnum um fjárhagserfiðleika Þórðar Ólafssonar hafi . Friðrik Friðriksson neitar: „Þetta er lélegt grín íí „Þetta er bara eitthvað bull,“ segir Friðrík Fríðríksson, eigandi Pressunnar, um þau ummæli Gunnars Smára Egilssonar, fyrrver- andi rítstjóra Pressunnar, að frétt blaðsins um fjárhagslega erfið- leika Þórðar Ólafssonar, forstöðumanns bankaeftiríitsins, hafi átt upphaf sitt að rekja til Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. Gunnar Smári, sem nú ritstýrir tíma- ritinu Heimsmynd, fjallar í grein í næsta tölublaði um stöðu Davíðs sem forsætisráðherra. Þar segir Gunnar að Friðrik Friðriksson tilheyri fámenn- um hópi manna sem forsætisráðherra ráðfæri sig við. Þegar ríkisstjómin tók ákvörðun um að leggja tvo miiljarða í Landsbank- ann gagnrýndi Þórður Ólafsson þær aðgerðir í Tímanum. Forsætisráð- herra fór fram á opinbera afsökun. Gunnar Smári lætur að því liggja að Davíð hafi ekki látið sér þá afsökun nægja. Gunnar segir að stuttu eftir yf- irlýsingu Þórðar hafi verið komið til hans með ábendingu frá Davíðsmönn- um um að Þórður skuldaði mikið í bönkum og ætti erfitt með að standa í skilum. Eftir að Cunnar hætti á blað- inu hafi fréttin síðan birst og Þórði verið launað lambið gráa. Aðspurður vísar Friðrik Friðriksson því á bug að Pressan birti fréttir eftir tilmælum Davíðs Oddssonar. Hann segir ekki hægt að ásaka sig um að ganga erinda forsætisráherra á blað- inu. „Smári lýsti því yfir sjálfur þegar hann hætti, að það væri óþægileg staða sem hann vildi ekki vera í sjálfur sem eigandi svona blaðs, að vera gísl ristjórans. Hann vildi frekar eiga dósa- verksmiðju," segir Friðrik. „Ég kem á framfæri einhverjum punktum, frétta- molum sem ég hef heyrt En ég skrifa ekki blaðið og verð að una því.“ — Var þetta einn slíkur fréttamoli? „Ég man ekki eftir því. Smári ætti að vita hvemig blaðamenn vinna. Kveikj- an að þessari frétt var auglýsing sem Friörik Friöriksson birtist í Lögbirtingarblaðinu um nauðungaruppboð á hendur Þórði. Ég sá þetta þar og þá hafa strákamir séð það. Þeir hjóla þá í málið." — Var þessi frétt þá í engu samhengi við gagnrýni Þórðar á aðgerðir ríkis- stjómarinnar varðandi Landsbank- ann? „Það er alveg út í bláinn. Smári veit það alveg jafnvel og ég. Hann bara vel- ur af einhverjum ástæðum að leggja málin upp með þessum hætti. Það get- ur vel verið að hann eigi í einhverjum erfiðleikum með að selja Heims- mynd.“ — Ert þú einn af ráðgjöfum forsætis- ráðherra? ,Jfei, nei, ég er það ekki. Ég hef bara stutt hann með mínum hætti sem sjálfstæðismaður. Þetta er bara gömul lumma samsæriskenninganna. Þær eru nú svo margar í gangi," segir Frið- rik. „Hins vegar er önnur spuming at- hyglisverð. Hvað er orðið um hið svo- kallaða siðferði blaðamanna? Er það tilfellið að ef menn fari á milli miðla þá kjósi þeir að upplýsa, rangt eða rétt, um fyrrverandi heimildarmenn sína? Ég hélt að það væri það heilagasta f starfi blaðamannsins að veija heimild- armenn sína. Það er verið að leggja þetta upp þannig, að leiðin sé frá Dav- íð, í gegnum mig og til ritstjórans. Hún er ekki þannig. Þetta er bara rugl.“ — Það ber semsagt ekki að taka fyrr- verandi ritstjóra Pressunnar alvarlega í þessu máli. „Þetta er lélegt grín í mínum huga." GS. ...ERLENDAR FRETTIR... DENNI DÆMALAUSI SARAJEVO Á ánum fljóta lík Lik flutu niöur ár frá múslimabænum Maglaj I miöhluta Bosnlu sem sætti áköfum fallbyssuárásum I gær, aö þvi er skýrt var ffá I Sarajevo- útvarpinu. Llkin sáust I ánni eftir sprengiárás Serba og Króata aö öllum llklndum. SARAJEVO — Harönandi bardagar og samdráttur I framlögum gjafaþjóöa merkja aö skammturinn af þeirri neyöar- aðstoð sem meira en einni milljón manns I miöhluta Bosniu er ætlaöur veröi skorinn niöur um helming, aö sögn Sameinuöu þjóöanna. Peter Kessler, talsmaöur æðsta yfirmanns flótta- mannastofriunar S.þ., sagöi aö niður- skuröurinn hæfist I dag, fimmtudag, og mætti búast viö að hann stæöi yfir I meira en tvo mánuöl. , ZAGREB — Thorvald Stoftenberg, sáttasemjari S.þ., sagðist eiga von á aö umboð 10.000 friöargæslumanna S.þ. I Króatlu yröi framlengt um þrjá mánuöi. ZAGREB — Sænski hershöfðinginn Lars-Eric Wahlgren, sem nú hefúr látiö af störfum yfirmanns vamariiös S.þ. I fyrrverandi Júgóslavlu, kvaddi I gær viö eirrfalda athöfn I Zagreb. BAGDAD Forystan gagnrýnd Dagblaö Irösku rlkisstjómarinnar sagöi I gær aö forystunni heföi oröiö á þegar hún lét undan kröfum S.þ. um aö eyör- leggja langdrægar eldflaugar Iraks. I forsföugrein I AkJumhouriyah sagöi þremur dögum efdr stýriflaugaárás Bandarikjanna á Bagdad aö forystu- menn Iraks heföu gert .herkænskumis- tök* þegar þeir gengust undir vopna- hléssamningana vegna Persaflóastriös- ins 1991 þar sem þess var krafist aö vopnabúriö yröi eyöilagt. MOGADISHU Skotiö á vopnaverksmiöju Bandarlskar Cobra-árásarþyriur skutu eldflaugum aö meintri vopnaverksmiöju I Mogadishu og sjónarvottar segja hana hafa orðiö alelda. Alitiö var aö búðimar væm I eigu Osman Atto, sem útvegar strlösherranum Mohamed Farah Aide- edfé. MOSKVA Sovétfáni dreginn aö húni á Svartahafsflota Yfirmaöur Svartahafsflotans gaf öllum skipum fyrimiæli I gær um aö draga aö húni skipsfána ffá Sovéttfmanum þegar hann reyndi aö bæla niöur mótmæli yfir- manna gegn ákvöröun um aö deila flot- anum jafnt milli Rússlands og Úkralnu. MOSKVA - Rfkisstjóm Rússlands dió I grófum dráttum upp útgjaldaáætiun fyrir þaö sem eftir l'rfir ársins 1993 og varaöi fhaldssamt þingið viö þvi aö landsins biöi ekkert annað en hörmungarástand nema þvl aöeins aö þingmenn sam- þykktu fjárhagsáætlunina. BAKÚ, Azerbajdzjan Uppreisnarforingi valinn forsætisráöherra Þing Azera kaus I gær uppreisnarfor- ingjann Suret Guseinov I embætti for- sætjsráðherra og setti vamar-, innanrlk- is- og öryggisráöuneyti landsins beint undir stjóm hans. KAlRÓ Einingarsamtök Afríku álykta Einingarsamtök Afriku luku 30. leiötoga- fundi slnum meö samþykkt um drög að aögeröum til aö fást viö fjölmörg ágrein- ingsmál Afrlku. MADRID Kóngur ræóir viö stjórn- málaforingja Jóhann Karl konungur hóf I gær viöræö- ur viö stjómmálaleiötoga Spánar með þaö markmiö að fara þess á leit viö Felipe Gonzalez, foringja sóslallsta, aö hann myndi nýja stjóm. JÓHANNESARBORG Reynt aö rjúfa þrátefli Lýöræðissamningamenn streittust I gær viö aö rjúfa þrátefli vegna stjómarskrár fýrir Suöur-Afflku .eftir kynþáttaaðskiln- aö‘, undir meirihlutastjóm blakkra. „Ég held að það taki einhvern tíma fyrir mann að venjast þessum nýja strék. “

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.