Tíminn - 08.07.1993, Síða 5

Tíminn - 08.07.1993, Síða 5
Fimmtudagur 8. júlí 1993 Tíminn 5 Ingi Bogi Bogason: Tvískipta starfsmenntakerfið í Sambandslýðveldinu Þýskalandi Fámennri en tæknivæddri þjóð sem íslendingum er nauðsynlegt að fylgjast með alþjóðlegri þróun á sem flestum sviðum. Spyija má í þessu samhengi hvort ýmislegt í samfélagskerfl annarra tæknivæddra þjóða geti reynst okkur happadijúgt. í þessum blaðagreinum verður litið til Þýskalands og helstu útlmur þýsks iðn- og starfsmenntakerfís dregnar með von um að efnið kveiki hugmyndir og veki spuraingar um okkar eigið iðnmenntakerfl. Atvinnulífið í Þýskalandi er flókið og háþróað og gæti ekki hafa þró- ast án vel þjálfaðra og menntaðra iðnaðarmanna. Þýskt iðnmennta- kerfi þykir því sérlega áhugavert til að draga Iærdóm af. Hafa verður þó í huga að sérhvert iðn- og verk- menntakerfi er sérstaklega tengt því hag- og þjóðfélagskerfi sem el- ur það af sér. Þess vegna er Ld. ekki hægt að yfirfæra þýska verk- menntakerfið beint á önnur lönd. Hins vegar hefúr komið í ljós að kennslufræðilegi hluti þýska verk- menntakerfisins gæti orðið fyrir- mynd í öðrum löndum. Til þess að átta sig á sjálfú iðn- menntakerfinu í Þýskalandi er nauðsynlegt að athuga hvernig grunnmenntakerfið er. Flest þýsk böm byrja í skóla 6 ára gömul og eru síðan 4 ár í barna- skóla (Grundschule). í lok bama- skólans ákveða starfsmenn skólans og foreldramir hvaða menntun er heppileg fyrir bamið. Það getur farið í „Hauptschule", sem tekur 5- 6 ár og lýkur með sérstöku prófi. Þetta er lakasta stig miðskólakerf- isins. í öðru lagi getur bamið farið í „Realschule", sem er einu þrepi ofar í menntakerfinu. Hér getur nemandinn lokið náminu eftir 6 ár og fengið skírteini um að hafa lok- ið „miðskólaprófi". í þriðja lagi getur nemandinn farið í mennta- skóla og lokið þaðan miðskólaprófi eftir 6 ár eða bætt við þremur ár- um og lokið stúdentsprófi. Að loknu miðskólanámi velja um 60- 70% nemenda iðn- eða starfsnám. Þýska verk- og iðnmenntakerfið er að stærstum hluta tvfskipt vegna þess að starfsþjálfúnin fer fram á tveim stöðum: á vinnu- staðnum og í svonefndum starfs- skóla (þ. Berufsschule). Af þessari ástæðu er það nefnt tvískipta kerf- ið (þ. Duales System). Nemandinn sækir nám í sjálfum skólanum einu sinni til tvisvar í viku þar sem hann fær fagbóklega þekkingu. Kennslan er í flestum tilfellum hnitmiðuð, þ.e. nemandinn lærir mikið á skömmum tíma (þ. In- tensiv-lemen). Við lok miðskólaprófs, þegar nemendur eru 15-16 ára gamlir, býðst þeim námsáfangi sem felur í sér almenna kynningu á atvinnu- lífinu og á að auðvelda námsfólki að velja sér starf. Nemendur era sendir til sérstakra upplýsingamið- stöðva um iðnaðarstörf þar sem þeir geta sótt sér fræðslu í hand- bækur og hjálpargögn. Á ráðning- arskrifstofum hins opinbera era síðan ráðgjafar sem nemendur geta hitt og ráðfært sig við. Ráð- gjafarnir greina nemendur og ráð- leggja þeim í framhaldi af því ákjósanlegt starfsval. Ráðgjöfin er ókeypis. í Þýskalandi er mikil eftirspum eftir því að komast í starfs- og iðn- nám. T.d. era þeir margir sem vildu gjarnan verða sveinar í hús- gagnaiðn, en fá ekki samstundis stöðu sem lærlingar í iðngrein- inni. Eftir ákveðinn tíma má þó ætla að rætist úr, m.a. vegna sér- stakra ráðningarstofnana. þeim er ætlað það hlutverk að finna ungu fólki stöðu í verksmiðju eða fyrir- tæki. Neminn gerir starfssamning við viðkomandi verksmiðju, sem foreldrar hans og forstjóri verk- smiðjunnar undirrita. Með því er samningurinn löglegur. Hann fel- ur í sér tímaáætlun og markmið þjálfunarinnar, lögboðin frí og ým- is starfsréttindi og skyldur. Samn- ingurinn er síðan yfirfarinn og samþykktur af viðkomandi „hand- iðnaðarráði" (þ. Handwerkskamm- er, e. Craft Chamber). Þá getur þjálfunin hafist. í starfsþjálfuninni lærir neminn grandvallaratriði starfsins, t.d. hvemig skal halda rétt á sög og hvemig skal geimeglt. Sá, sem annast þjálfunina, verður að halda áætlun, leggja viðeigandi verkefni fyrir nemann og sjá til þess að hann vinni þau rétt. Yfirmanni fyr- irtækisins ber síðan að hafa auga með þjálfuninni og fara öðra hverju yfir verkefnin, sem neminn vinnur, til að ganga úr skugga um að þau séu unnin eftir settum regl- um. Einn dag í viku skulu nemendur sækja nám í verkmenntaskóla þar sem bætt er fagbóklegu efni við verklega kennslu á verkstæði; 60% náms í skóla kemur beint við þeirri grein sem nemandinn leggur stund á. Aukið er við námið í verk- smiðjum og á verkstæðum með hópkennslu á ýmsum sviðum, t.d. í sambandi við vinnu við vélar. Þetta er gert til þess að sem mest samræmi sé í þjálfun nemenda og eins til þess að nemendum séu ljós öryggisatriði við vélavinnu. Öllum nemendum er skylt að halda vinnubók, sem í lok þjálfunarinnar er lögð fram til dómnefhdar. í lok annars árs verður neminn að gangast undir svokallað millipróf (þ. Zwischenprúfung). Fulltrúi handiðnaðarráðsins hefur yfiram- sjón með því. Prófað er í fagbók- legum þáttum efhisins, en verkleg- ir þættir prófaðir sérstaklega. Á þriðja ári tekur neminn æ ríkari þátt í venjubundnum störfum. Hann vinnur einn við vélamar og tekur einn við beiðni viðskiptavin- anna og uppfyllir hana. Hann fær stöðugt meiri innsýn inn í stjóm- unar- og rekstrarlega þætti í fyrir- tækinu — og ábyrgð hans sem starfsmanns eykst að sama skapi. Með þessu er samt ekki sagt að nemanum séu nú allir vegir færir. Ekki er víst að fyrirtækið þar sem hann hlaut þjálfun sína vanti starfsmann með viðkomar.di starfsmenntun. Það er m.ö.o. ekki sjálfgefið að nemi hljóti vinnu hjá fyrirtækinu sem þjálfar hann. Við lokaprófið útnefnir handiðn- aðarráðið ákveðna prófanefnd. Prófið er sett saman af nokkram bóklegum og verklegum þáttum, einn hluti þess felst í því að nem- inn vinni sérstakt lokaverkefni. Þetta er erfitt verk, sem sérstak- lega er getið í prófskírteininu. Þeg- ar neminn hefur lokið prófinu er hann orðinn lærður iðnaðar- og handverksmaður. Hann getur haldið áfram að læra og orðið meistari í grein sinni eða iðntækn- ir (þ. Techniker). Iðn- og starfsmenntun í Þýska- landi fylgir í stóram dráttum þess- ari skiptingu: 46% fara í starfsnám fyrir verk- smiðjuiðnað, 39% fara í nám í hefðbundnu handverki, 8% fara í sérstaka þjálfun tengda ákveðinni starfsmenntun, 4% fá þjálfún hjá opinberri þjón- ustu, 3% fá þjálfun í iðnaði tengdum landbúnaði. Höfundur er útgáfustjóri Landssam- bands iðnaðarmanna. Enskir málshættir Málgagn ása- trúarmanna The Oxford Dictionary of English Pro- verbs, compiled by W.G. Smith (ed. by F.P. Wilson). Oxford University Press, xv + 930 bls. „Orð viturra manna verða kjánum að málsháttum." Svo hermir ensk- ur málsháttur, en í þeim kennir margra grasa ekki síður en í hinum íslensku. Á miðöldum og fram yfir þær vora þeir mönnum á vöram sem viðtekin viska. Á sextándu öld og fram eftir hinni seytjándu var í tísku að skreyta með þeim mál í ræðu og riti, en á þeirri öld ofan- verðri kvað æ meira að „grófum orðtökum", sem einungis fávísir tóku sér í munn. Daglega heyrðust þó málshættir, tíðum fomir, tíðum sóttir í ritað mál, tíðum orðnir að stirðnuðum orðtökum." Svo segir í inngangi þessa safns enskra máls- hátta. (Bls. viii) „í formála sínum að fyrstu útgáfu Oxford Dictionary of English Pro- verbs benti Janet Heseltine á, að málsháttakennd orðtök, alla jafna af toga heilræða, komi fyrir í trúarleg- um handritum allt frá fyrri hluta áttundu aldar, á stundum ásamt með lítill syrpu málshátta, að hálfú á hinu mælta máli, að hálfú á lat- ínu, væntanlega til að auðvelda ný- sveinum latínunám." (Bls. viii) „Meira máttu sín áhrif mælsku- manna, sem útlistuðu staðhæfingar sínar með málsháttum að tísku, sem óx úr læk í á hjá Chaucer, Go- wer og Lydgate, en í ritum þeirra endurspegla málshættir, gamlir og nýir, líf í koti og höll, í framandi löndum sem grannþorpum, þar sem vísdómsorð búandlýðs, mörg þeirra enn tungutöm, gengu frá föður tii sonar...“ (bls. viii) ,Á upphafi sextándu aldar varð áin að straumfalli. í Adagia rakti Er- asmus árið 1500 málshætti, sem vitna um sjónarmið klassískra heimspekinga fomaldar, og þekk- ingarþyrstir sem nýjungagjamir sulgu þá í sig... Hæst bar þá tísku 1579, er Lyly í Eupheus óf orðtök- um gullna sveiga og færði enskri tungu nýtt orð. (Bls. viii)... James Kelly hafði annan hátt á (0 ... Skoskum málsháttum sínum (1721) ... íhugunarefni varð hon- um, að margir málshættir, sem hann hafði álitið skoska, urðu rakt- ir til annarra landa... (Bls. bt).“ ,Á átjándu öld fengu orðvarir rit- höfundar ímugust á „þessum grófu orðtökum“ og Swift afbakaði þau. Þau hlutu andbyr, þótt í leikritum og skáldsögum úi og grúi enn af þeim, einkum þegar upp er bragðið lágkúralegu lífi. Þegar liðið var ffarn á nítjándu öld, viðhöfðu rit- höfundar þau af ráðnum hug, Scott unnvörpum, Dickens og TVollope oft og Hardy í svipmyndum í upp- rifjun liðinna tíma. Ný skosk máls- háttasöfn vora saman tekin..." (Bls. ix) ,Nýjum tökum vora (málshættir) teknir eftir útkomu safns Appersons 1929. Þau tök era söguleg og þau verða sögð að baki Oxford Diction- aiy of English Proverbs og er að- ferðin sú að tilgreina elsta dæmi um hvem upp tekinn málshátt í handriti eða bók ásamt nokkrum dæmum frá síðari öldum." (Bls. ix) Nýtt tímarit, Níu nætur, tímarit um heiðinn sið er komið út. Ritið er ársrit ásatrúarmanna og er óhætt að fullyrða að það er hið frrsta sinnar tegundar hér á landi. I ritinu era fræðilegar og almenn- ar greinar, viðtöl, skáldskapur og myndlist. Fjallað er um trúmál, fjölkynngi, sjamanisma, heiðinn sið í nútíð og fortíð og fleira sem tengist hinum forna menningar- arfi. Meðal efnis er 12 síðna mynda- saga eftir Hauk Halldórsson, skáld- skapur eftir Sveinbjöm Beinteins- son, Eyvind og Steinar Vilhjálm. Viðtal við Hilmar Örn Hilmarsson um trú og galdra. Dagur Þorleifs- son skrifar um berserki. Helgi Þör- láksson um örn og öxi. Magnús Þorkelsson veltir fyrir sér af hverju ekki era stundaðar fomleifarann- sóknir á Þingvöllum. Matthías Við- ar Sæmundsson skrifar um blótið og veraleika goðsögunnar. Bjami Þórarinsson og Tryggvi Hansen birta myndverk og texta. Auk fyrr- greindra skrifa einnig Ólafur Eng- ilbertsson, Hans Plomp, Jaquline Da Costa og ritstjórar. Ritstjórar era Þorri Jóhannsson og Jón Þorvaldur Ingjaldsson. Blaðið er 84 bls. í A4 broti. Það fæst í flestum bókabúðum og stór- mörkuðum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.