Tíminn - 08.07.1993, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 8. júlí 1993
Tíminn 9
■ DAGBÓK
104 ára
er í dag Þorfejörg Grímsdóttir, Skóla-
vörðustíg 24a. Hún dvelur nú á Drop-
laugarstöðum.
Stjömubíó sýnir „Cliffhanger"
Stjömubíó sýnir um þessar mundir stór-
myndina „Cliffhanger“ og er hún einnig
sýnd í Háskólabíói. Myndin var frumsýnd
samtímis í flestum stórborgum Evrópu.
Með aðalhlutverkið í „Cliffhanger“ fer
stórstjaman Sylvester Stallone, auk
þeirra John Lithgow, Michael Rooker,
Janine Tumer, Rex Linn, Paul Winfield
og Caroline Goodall. Leikstjórinn er ekki
af verri endanum, Renny Harlin (Die
Hard 2) og framleiðandi Alan Marshall.
Myndin segir frá hrikalegri lífsreynslu
félaga í björgunarsveit Klettafjalla í Col-
orado í Bandaríkjunum. Neyðarkall berst
og reyndustu menn sveitarinnar leggja
upp í björgunarleiðangur sem á eftir að
reyna á þá til hins ýtrasta, bæði andlega
og líkamlega, því á fjallstoppi bíður
þeirra hópur illskeyttra fanta sem svífast
einskis.
Sendiráö íslands í Bonn fær
nýtt póstnúmer
Frá og með 1. júlí breyttust póstnúmer í
Þýskalandi. Póstnúmer sendiráðs fslands
í Bonn verður af þeim sökum 53173 í
stað 5300.
Ný landsnúmer til
Eystrasaltsríkjanna
Samið hefur verið um notkun nýrra
landsnúmera þegar hringt er til Eystra-
saltsríkjanna og Moldavíu.
Nýju númerin em sem hér segir: Til
Eistlands 372, Lettlands 371, Litháen
370, Moldavíu 373.
Gamla landsnúmerið, sem var 7, verður
áfram í notkun, en símnotendur geta
vænst betri og ömggari þjónustu með
því að hringja í hin nýju landsnúmer
þessara landa, segir í fréttatilkynningu
frá Pósti og síma.
Á laugardaginn færir Jón Nordal Skál-
holtskirkju nýtt og viðamikið tónverk
fyrir einsöngvara, kór, selló, áSláttar-
hljóðfæri og orgel sem flutt verður kl. 17
og endurtekið á sunnudaginn kl. 15. Jón
nefnir verkið „Óttusöngva að vori“ og
textann samdi Matthías Johannessen út
frá erindi í Sólarljóðum, auk þess sem
brot úr latínumessutexta er notað. Fé-
lagar úr Mótettukómum syngja og
Hörður Áskelsson stjómar.
Á undan tónlistarflutningnum, á laug-
ardaginn kl. 14, flytur Jón Þórarinsson
tónskáld erindi um tónlist í Skálholti
fyrr og nú. Áætlunarferðir em í Skálholt
frá Umferðarmiðstöðinni f Reykjavík á
laugardögum og sunnudögum kl. 11.30.
Aðgangur er ókeypis að Sumartónleik-
um f Skálholtskirkju.
Níu nýstúdentar frá Laugum
Framhaldsskólanum að Laugum var slit-
ið með hátíðlegri athöfn í íþróttahúsi
skólans að loknu sjötta starfsári hans og
um leið 68. starfsári skipulagðs skóla-
halds á Laugum. 120 nemendur stund-
uðu nám við skólann í vetur. Starfræktur
var 10. bekkur, tveggja ára mála- og nátt-
úmfræðibraut, íþróttabraut og ferða-
málabrauL 28 nemendur luku gmnn-
skólaprófi. Bestum árangri í samræmd-
um prófum náði Skarphéðinn Yngvason.
Níu nemendur luku stúdentsprófi eftir 4
ára nám við skólann. Bestum árangri á
stúdentsprófi náði Sigurbjöm Ámi Am-
grímsson, stúdent af íþróttabraut Fjöl-
brautaskólinn í Garðabæ útskrifaði stúd-
entana og var Þorsteinn Þorsteinsson,
skólameistari F.G., við útskriftina. Þetta
er í fyrsta skipti sem nemendur ljúka
námi til stúdentsprófs við Framhalds-
skólann á Laugum.
Fyrirlestur í NýHstasafninu:
Töfrar á tækniöld
Hugtakið sýndarvemleiki (virtual real-
ity) hefur Ieitt af sér mikið fjölmiðlafár.
Flennifyrirsagnir stórblaða svo sem
Business Week, Wall Street Joumal og
Newsweek boða tölvuvædda framtíð, þar
sem fólk með undarlega hjálma og víraða
hanska sekkur inn í fjarstæðukennda
gerviheima sem bjóða uppá hina full-
komnu afþreyingu. Sýndarvemleikinn
gerir þér kleift að leika hlutverk skapara
í draumaheimi tölvunnar þar sem allt
getur gerst.
Hvað er sýndarvemleiki? Er hann raun-
vemlegur eða er þetta enn ein afurð
gúrkutíðar fjölmiðla?
Þessum spumingum verður leitast við
að svara í Nýlistasafninu, Vatnsstfg 3b,
fimmtudaginn 8. júlf kl. 20.30, þar sem
Hannes Högnl VUhjilmsson, tölvunar-
ffæðinemi við Háskóla íslands, heldur
fyrirlestur um sýndarvemleikann, sögu
hans og framtíð.
Sumartónleikar í
Skálholtskirkju
Nítjánda sumarið í röð gefst tækifæri til
þess um helgina að eiga góða stund í
Skálholtskirkju og hlýða á öndvegistón-
list og færa flytjendur.
Tónlistarflutningurinn hefst á laugar-
dag kl. 15 með því að Helga Ingólfsdóttir
leikur á sembal svokölluð „Goldbergtil-
brigði" eftir Johann Sebastian Bach.
Þetta em 30 tilbrigði við stef (aríu) og
samin til að milda andvökunóttina fyrir
rússneska sendiherranum í Dresden um
1740. Síðan hefur þetta margslungna
verk verið mörgum hlustendum hug-
svölun og flytjendum og fræðimönnum
óþrjótandi viðfangsefni að glíma við.
Helga hefur verið brautryðjandi í flutn-
ingi og túlkun barokverka og leikur hér á
sembal sem gerður er í lfkingu hljóðfær-
is frá 18. öld.
Ófeigur gullsmiðja og listmunahús:
Ævintýraheimur í leir
Þessa dagana heldur Ingibjörg S. Torfa-
dóttir sýningu á leirmunum í Ófeigi gull-
smiðju og listmunahúsi, Skólavörðustfg
5. Sýninguna neftiir hún „Ævintýra-
heimur f leir“.
Ingibjörg er fædd 1951 og stundaði nám
f myndlistarskólum f Winnipeg í Kanada
og við MHÍ.
Hún er meðeigandi The Stoneware
Studio f Winnipeg, en það gallerí er rek-
ið af 11 sameignarfélögum sem öll vinna
eingöngu í leir. Hún hefur tekið þátt í
nærri 20 samsýningum í Manitoba og
víðar um Kanada.
Öll verk sýningarinnar eru unnin á síð-
ustu tveim árum í steinleir eða postulfn
og brennd í gasofni.
Sýningin stendur til 18. júlf. Opið er 10-
18 virka daga og 11-16 um helgar.
íbúð óskast
Skemmtileg 3ja herbergja íbúð óskast til leigu
frá 1. ágúst nk. fyrir starfsmann á Tímanum,
helst í Norðurmýri eða annars staðar á 105-
svæðinu.
Upplýsingar í síma 686300, innanhússími 46;
á kvöldin í síma 23233.
Veiöimenn, athugiö!
Stórír og sprækir laxa- og silungamaðkar til sölu.
Upplýsingar ( síma 91-673212 og 91-672822.
Ef Susan Ruttan verður að velja:
Kýs hún heldur barn-
ið en hjónabandið
Susan Ruttan, sem margir þekkja
úr sjónvarpsþáttunum LA Law,
veit ekki í hvorn fótinn hún á að
stíga þessa dagana. 19. maí sl.
rættist langþráður draumur
hennar þegar hún hélt í fyrsta
sinn á nýfædda drengnum Jack-
son Adams McDonald, sem hún
hafði fengið til ættleiðingar.
En kannski er martröð í uppsigl-
ingu á sjóndeildarhring hennar,
þar sem nú lítur út fyrir að maður
hennar, hljóðtæknimaðurinn Ran-
dy McDonald, sem hún giftist
1990 og hefur verið svo undur-
hamingjusöm með, geti ekki sætt
sig við að vera faðir ættleidds son-
ar. Og til að bæta gráu ofan á svart
lítur helst út fyrir að Susan verði
atvinnulaus með haustinu, en þá
rennur 7 ára samningur hennar
um LA-þættina út og endurnýjun
hefur ekki borist í tal enn.
Susan hefur alla tíð dreymt um
að verða móðir, en í þrem hjóna-
böndum hefur henni ekki auðnast
það. Hún er að vísu guðmóðir 5
bama og á 14 systkinaböm, en það
fullnægði ekki Susan. Hún hafði
þegar fengið lögfræðing til að
vinna að ættleiðingu fyrir sig þeg-
ar ættingi hennar lét hana vita af
bamshafandi stúlku á þrítugsaldri,
sem væri atvinnulaus og sæi ekki
fram á að geta séð bami sínu far-
borða. Susan náði góðu sambandi
við hina verðandi lífmóður og þær
áttu miklar og mikilvægar sam-
ræður á síðustu tveim mánuðum
meðgöngunnar, s.s. hvernig Susan
hugsaði sér að ala barnið upp,
hvaða trúarbrögð og skólagöngu
barnið ætti í vændum og síðan var
Susan viðstödd fæðinguna sjálfa.
Nær fannst henni hún ekki geta
komist því að ala sjálf barnið í
þennan heim.
Það er ekki víst að Susan hefði
átt svo auðvelt með að fá ættleitt
barn eftir venjulegum leiðum.
Kannski hefði aldurinn vegið
henni í óhag, hún er orðin hálf-
fimmtug. Og kannski liggur fyrir
henni að verða einstætt foreldri,
sem ekki er talið æskilegt. En Sus-
an segir eðlilegt að æ algengara
verði að einstaklingar ættleiði
börn. „Við skulum bara viður-
kenna staðreyndir," segir hún,
„flest okkar verða einstæð með
Susan Ruttan giftist Randy McDon-
ald 1990. Nú eru helst líkur á því aö
hann vilji ekki vera faöir ættleidds
barns og Susan veröi einstæö
móöir.
tímanum."
Susan gerir sér þó enn vonir um
að hjónaband hennar og Randys
eigi eftir að standast þetta álag.
Randy hefur heilsað upp á Jackson
oftar en einu sinni og dyrnar
standa upp á gátt ef hann ákveður
að flytjast aftur heim. Jackson ber
líka eftimafn Randys og það verð-
ur engin skriffinnska í sambandi
við það ef fjölskyldan sameinast
aftur.
Og móðir Susan, sem ekki var
sátt við ákvörðun dóttur sinnar, er
nú yfir sig hrifin af litla snáðanum
og prjónar hosur í gríð og erg.
Hún hefur alltaf verið ánægð með
Randy sem tengdason og gerir sér
ekki síður en dóttirin vonir um að
fjölskyldan verði heil og ham-
ingjusöm. En lokaniðurstaða Sus-
an er sú að hún óski þess að
drengurinn eigi föður, en hún óski
þess ekki síður að hann eigi heim-
ili þar sem ekki er rifist daginn út
og daginn inn.
W
Stóri-Georg er dauður:
Varð að gjalda glæpa sinna
Susan var viöstödd fæöingu Jacksons Adams og finnst allt til vinnandi aö
veröa móöir hans. Ættleiöingin veröur ekki fullfrágengin fyrr en I október,
Susan þarf fyrst að sýna fram á aö hún sé fær um aö gegna móöurhlut-
verkinu.
Krókódfllinn Stóri-Georg í Loza-
hatchee-ánni í Jonathan Dickinson-
þjððgarðinum í Flóridá hefur
tekinn af Iífi. Hann fyrirgerði lífi
sínu með því að verða 10 ára dreng
að bana.
Stóri-Georg hafði látið sitt rétta
eðli í ljós fyrir 11 árum. Þá drap
hann stóran séfer-hund, en emb-
ættismenn garðsins ákváðu að
þyrma Iífi hans. Nú gekk hann hins
vegar of langt þegar hann réðst á
Bradley Weidenhamer, 10 ára dreng
sem var að vaða í ánni til að draga
kanó föður síns yfir sandrif. Stóri-
Georg sló Bradley á kaf í ána og
hrifsaði höfuð hans í ginið. Faðir-
inn reyndi að ná syni sínum og aðr-
ir viðstaddir lömdu krókódílinn
með ámm þangað til hann varð að
sleppa Bradley, en það var of seint
og við komuna á sjúkrahúsið var
drengurinn látinn.
Stóri-Georg var leitaður uppi eftir
þennan atburð og þá var ekki að
spyrja að leikslokum, hann var
skotinn.
Krókódlllinn Stóri-Georg var ekkert lamb aö leika viö, 200 kllóa þungur og
meira en þriggja metra langur. Drápseðlið bar hann ofurliöi og hann varö
aö gjalda fyrir meö llfi slnu.