Tíminn - 08.07.1993, Qupperneq 6

Tíminn - 08.07.1993, Qupperneq 6
> 6 Tíminn Fimmtudagur 8. júlí 1993 ... Lothar Matthaus sem leikur meö þýska knattspyrnufé- laginu Bayern Munchen, er sagður á leið til ítallu aftur til að spila með Juventus. Ástæðan er sögð mikil óánægja eiginkonu hans, Lolitu, með Þýskaland og Þjóðverja f heild sinni. Uli Hö- ness, framkvæmdastjóri Munc- hen, segir að Matthaus sé aðal- maöurinn f liðinu en ef eiginkonan sé óánægð þá sé betra fyrir Matthaus að fara til ítalfu aftur! Lolita er óánægðust með að Þjóðverjar kunna ekki að umgangast stórstjörnur með virðingu eins og gert er f heima- landi hennar italfu. ...Dómarar f ensku knattspyrn- unni hóta þvf að fara f verkfall f upphafi næsta keppnistfmabils, sem hefst 14. ágúst, ef þeir fá ekki hærri laun fyrir hvern dæmdan leik. Verkfallið nær þó aðeins til neðri deildanna þar sem úrvalsdeildardómarar hafa þegar náð samkomulagi. ... Eyjaleikamir eru þessa dagana háöir á bresku eyjunni Wight og eru íslendingar þátt- takendur á leikunum. Islending- ar senda keppendur f fimm fþróttagreinar af þeim sextán sem f boði eru og eru þær eftir- farandi: badminton, fimleikar, skotfimi, sund og seglbretta- keppni. í badmintonkeppninni unnu íslendingar Orkneyjar 5-0 en töpuðu fyrir Jersey 2-3 og er ísland því úr leik. í sundinu varð Hildur Einarsdóttir f 4. sæti f 50 metra flugsundi á 31.43 sekúnd- um og Sigriður Guðmundsdóttir varð f áttunda sæti f undanúrslit- um. (fimleikum karla, skylduæf- ingum, urðu fslensku keppend- urnir ( þremur efstu sætunum en f kvennaflokki f tveimur efstu sætunum. Eyjaleikunum lýkur þann 10. júlí. ... New York maraþonhlaupið verður með breyttu sniði þegar það verður þreytt 14. nóvember næstkomandi. Breytingin snertir þó aðeins Bandarfkjamennina sjálfa þvf ef einhver Bandaríkja- maður lendir f einhverju af fimm efstu þá fær hann peningaverð- laun. Fyrir efsta sætið eru hvorki meira né minna en 7 milljónir fs- lenskra króna, 1,4 milljónir fyrir annað sætið og niður í 175 þús- und fslenskar krónur fyrir fimmta sætið. ... Brian Deane sem spilaði með enska félaginu Sheffield Utd. var f vikunni seldur til Le- eds sem borgaði fyrir hann 450 milljónir fslenskra króna. Þessi upphæð er sú næsthæsta sem borguð hefur verið fyrir enskan leikmann sem skipt hefur um fé- lög f Englandi en Blackburn borgaði Southampton 540 millj- ónir fyrir Alan Shearer. Deane, sem er fæddur f Leeds, hefur leikið tvo landsleiki fyrir Eng- lands hönd. ... Pat Jennings ætlar að að- stoða Ossie Ardiles hjá Totten- ham með þvf að sjá um að þjálfa markmenn félagsins. Jennings tekur við stöðunni af Ray Clemence sem var rekinn frá félaginu f vikunni. Steve Perryman sem eitt sinn var fyrir- liði Tottenham hefur verið til- nefndur sem aðstoðarmaöur Ardiles. ... Boxarar virðast hafa það ágætt, peningalega þar að segja, ef þeir eru með þeim bestu. Heimsmeistarinn f yfir- þungavigt, Lennox Lewis, fær hvorki meira né minna en 140 milljónir fyrir tvo næstu bardaga sfna sem fara fram f nóvember á þessu ári og f upphafi næsta árs. Svo er spurningin af hverju þessi íþrótt er ekki leyfð hér á landi?! ... Valsmenn hafa fengið afnot af aðalleikvangi Laugardalsvallar eins og kunnugt er. I kvöld mæta þeir UBK á þeim velli f 1. deild- inni og ætla þeir að spila við Þór, ÍBK og KR á sama velli. Hins vegar ætla Valsmenn að leika gegn Fylki og ÍA á Hlfðarenda. w Mjólkurbikarinn 16-liða úrslit: Urslitin samkvæmt bókinni — Fylkir, ÍA, Víkingur og Leiftur í 8-liða úrslit. Fylkir-FH 2-0 (1-0) Fylkir sendi FH úr Mjólkurbikar- keppninni í gaerkvöldi og náði því að hefna ófaranna frá því í deildarkeppn- inni þegar FH sigraði 4- 0. Leikurinn byrjaði rólega en Fylkismenn fengu vítaspymu á 26. mínútu þegar Kristni Tómassyni var brugðið innan víta- teigs. Salih Heimir Porca tók vítið og skor- aði, en tæpt var það. Hörður Magnússon fékk rétt á eftir dauðafæri fyrir FH-inga en skalli hans fórréttyfir. FH-ingar voru mun aðgangsharðari í síðari hálfleik og fljótlega átti Davíð Garðarsson þrumuskot að marki Fylk- is en boltinn fór rétt yfir og Jón Erling Ragnarsson fékk líka tækifæri til að gera mark en brást bogalistin. En það voru Fylkismenn sem skoruðu aftur og það gerði Salih Heimir aftur eftir glæsilegan undirbúning Þórhalls Dan Jóhannssonar. HK-ÍA 0-3 (0-3) Mihajlo Bibercic skoraði fyrsta mark leiksins fyrir ÍA eftir að hafa fengið stungusendingu frá Þórði Guðjónssyni. Helgi Kolviðsson fékk besta færi HK þegar hann komst einn inn fyrir vörn ÍA en klúðraði því. Það var síðan Luka Kostic sem bætti öðru marki Skagamanna við á 41. mínútu með skalla eftir hom- spymu Haraldar Ingólfssonar. Skagamenn héldu síðan áfram að skora, á 44. mínútu skoraði vamar- maðurinn Ólafur Adolfsson og aftur átti Haraldur Ingólfsson síðustu sendinguna fyrir sem gaf mark. Seinni hálfleikur datt svolftið niður en það var aldrei spurning hvomm megin sigurinn mundi lenda. Bikarævintýri HK er því á enda. Víðir-Víkingur 1-2 (1-1) Það var Guðmundur Steinsson sem komVíkingum yfir á 4. mínútu þeg- ar hann náði að skjóta boltanum yf- ir Gísla Hreiðarsson í Víðismarkinu. Víðir lagði þó ekki árar í bát og Grét- ar Einarsson jafnaði fyrir leikhlé. Guðmundur Steinsson náði aftur forystunni fyrir Víkinga á 65. mín- útu leiksins eftir mikinn darraðar- dans í vítateig Víðismanna og reynd- ist það sigurmark leiksins. Fyrsti sigur Víkinga í sumar því staðreynd. Höttur-Leiftur 0-1 (0-0) Þetta var fjörlegur leikur þar sem 4. deildarlið Hattar gaf ekkert eftir. Fyrri hálfleikur var markalaus en á 75. mínútu tókst Leiftursmönnum að skora og var þar að verki Pétur B. Jónsson eftir mistök markvarðar Hattar sem var kominn of langt út úr markinu þegar Pétur skoraði. Þetta var eina mark leiksins en Höttur á hrós skilið fyrir mikla bar- áttu. Mjólkurbikarinn: Síöustu leik- irnir í kvöld Síðustu leikimir í 16-Iiða úrslit- um í Mjólkurbikarkeppninni í knattspymu fara fram f kvöld. Þá verða spilaðir þrfr Ieikir sem hefjast Idukkan 20. Án efa verður fróðlegast að fylgjast með leik Vals og UBK en fyrrum þjálfari bikarmeistara Vals, Ingi Bjöm Al- bertsson, þjálfar nú UBK. ÍBK og Þór mætast f Keflavík en þessi lið gerðu nýlega jafntefli á Akureyri. KA leggur land undir fót og fer til Eyja og mætir heimamönnum þar í ÍBV en KA hefur ekki riðið feitum hesti frá 2. deildarkeppn- inni til þessa. Ólafur Ámason og félagar hans í Víkingi em komnir í 8-liða úrslit Mjólkurbikarkeppninar eftir sinn fyrsta SÍgur í SUmar. Tímamynd Pjetur Golfmót á næstunni: Mót sem kennd eru við dekk og vodka Mitsubishi-Open á Akureyri er ef- laust það golfmót sem ber hæst um næstu helgi. Þetta mót gefúr stig til landsliðs og ugglaust hafa margir kylfingar áhuga á að bæta við lands- liðsstigin sín þrátt fyrir að helsta verkefni landsliðsins þ.e.a.s. Evr- ópumótið sé að baki. Annars er mik- ill fjöldi opinna móta á dagskrá um helgina og meðal annarra má nefna Opið mót á Nesinu, Opna hjóna-og parakeppni á Suðumesjum, Fire- stone-mótið á Hellu og ICY-open í Umsjón: MAGNÚS INGVASON Borgarnesi. Kvenfólkið hefur einnig sín sér- stöku mót um næstu helgi. Þannig er Stendahl-mót í Mosfellsbæ og Clarins-mót á Akranesi. Svo er á Sel- fossi opið mót fyrir unglinga sem kennt er við Sportbæ og LEK-mót er fyrir öldunga í Grafarholtinu. Eitt kvöldiö fyrfr skemmstu máttl sjá nokkra hópa leika golf á hinum skemmtilega Hiíö- arvelli í Mosfells- bæ. Smá rigning- arsuddi og gola virtist ekki hafa áhríf á kylfingana sem voru bara þvf betur búnir. Á myndinni má sjá (jóra hressa kylf- inga sem gáfu sér tíma til mynda- töku þar sem þeir voru aö bfða á teig á 8. braut Frá vinstri: Grím- ur Laxdal, Kol- beinn Blandon, Ólafur Bjömsson og Óli Hand.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.