Tíminn - 08.07.1993, Page 12

Tíminn - 08.07.1993, Page 12
Áskriftarsími Tímans er 686300 NYTTOG FERSKT DAGLEGA reiðholtsbakarí VÖLVUFELL113-SlMI 73655 ^■abriel HÖGG- DEYFAR Verslið hjá fagmönnum GJvarahlutir Hamarshöfða 1 TVÖFALDUR1. vinningur Góðar heimtur í eftirlitsátaki sem ríkisskattstjóri ákvað hjá 1.450 fyrir- tækjum og 2.000 einstaklingum: 380 milljóna skattahækkan- ir út á 14 ársverk í eftirlit Rúmlega 282 milljónir króna I hækkuðum sköttum hafa þegar skil- aö sér eftir sérstakt eftirlitsátak sem ríkisskattstjóri skipulagði og náði til allra skattumdæma landsins. Valin voru 1.445 fyrírtæki til nánarí skoðunar meö tilliti til tekjuskatta og virðisaukaskatts og auk þess kíkt á skattgreiðslur af ökutækjastyrkjum 2.000 einstak- linga. Sigurður Jakobsson frá Hitaveitunni var að dæla vatni úr brunni við Miklubrautina í gær þegar Ijósmyndara Tímans bar þar aö garði. Bilunar hafði orðið vart og lagði þykkan gufumökk af vatn- inu yfir umferðina. Tímamynd Ámi BJama Óbreytt líðan Pótt átakinu sé ekki lokið hafa þeg- ar verið úrskurðaðar gjaldhækkanir upp á 214 milljónir kr. hjá 550 fyrir- tækjum og rúmlega 68 milljóna kr. hækkanir á sköttum af ökutækja- styrkjum 680 einstaklinga, eða rúmlega 100 þús. kr. að meðaltali á hvern þeirra. Skattstjórar telja var- lega áætlað að 100 milljónir kr. eigi enn eftir að bætast við. Tálið er að vinnan við þetta átak muni svara til 14 mannára. Hvert ársverk í skattaeftirliti gæti þannig að meðaltali skilað um 27 milljóna kr. tekjum í ríkiskassann. Mun því sennilega vandfundinn ábatasamari atvinnugrein heldur en skattaeftir- lit. Átak þetta var skipulagt á síðasta ári og listar með nöfnum umræddra 3.445 aðila sendir skattstjórum landsins í árslok 1992. Skattstjórar hófust síðan handa við skoðun hjá viðkomandi í byrjun þessa árs. Gjaldhækkanir hafa þegar verið úr- skurðaðar hjá 1.210 aðilum. Þar til viðbótar hefur 24 málum þegar ver- ið vísað til skattrannsóknarstjóra ríkisins. Fjöldi mála er síðan enn á boðunarstigi, þ.e. að hækkanir op- inberra gjalda hafa verið boðaðar gjaldendum en úrskurður liggur enn ekki fyrir. Meira en helmingur þessara við- bótarskatta eru í hækkun á tekju- sköttum 420 rekstraraðila, sem gert er að greiða rúmlega 390 þúsund kr. viðbótarskatt að meðaltali. Hæstu meðalupphæðunum er þó stolið undan í virðisaukaskatti. Um 110 aðilum hefúr þegar verið gert að greiða að meðaltali rúmlega 450 þús. kr. til viðbótar í virðisauka- skatt. Og bílastyrkir sem mörg hundruð einstaklingar virðast hafa „gleymt“ að telja fram kosta þá jafn- aðarlega yfir 100 þús. kr. viðbótar- skatt. Embætti ríkisskattstjóra hefur í samráði við skattstjóra lagt mat á væntanlega heildamiðurstöðu átaksins, þ.e. þegar tekið hefur ver- ið tillit til mála á boðunarstigi. Var- lega áætlað er talið að um 100 millj- ónir kr. eigi enn eftir að bætast við, þannig að heildamiðurstaðan gæti orðið yfir 382 milljónir kr. Skattstjórar hafa haldið sérstak- lega utan um þann tíma sem nýttur hefur verið vegna átaksins. Nú þeg- ar hefur um 11 mannárum verið varið í átakið, en áætlað er að kring- um 3 mannár eigi eftir að bætast við áður en vinnu við átakið líkur. Gangi þessar áætlanir eftir gæti af- rakstur hvers mannárs þannig slag- að hátt í þriðja tug milljóna. -HEI Líðan mannsins sem lenti undir rútu í Þjórsárdal um síðustu helgi er óbeytt og dvelur hann enn á gjörgæsludeild Borgarspítalans. Sama er að segja um líðan mannsins sem var í jeppa sem valt við Kot í Biskupstungum aðfara- nótt sunnudags. -GKG. Þjóðverjarnir farnir frá Höfn: Töpuðu bakpoka Þjóðverjamir sem lentu í sjálfheldu á syllu í Kollumúla á Lóns- öræfum héldu frá Höfn í Homafirði í gær en aðeins með einn bakpoka með sér. Kristján Friðriksson í björgun- arfélagi Hafnar í Homafirði sem leitaði Þjóðverjanna segir bak- pokana hafa fokið út af syllunni í Víðidalsá þegar þyrlan kom að sækja mennina þar eð þeir pöss- uðu ekki nógu vel upp á þá. „Við fundum aðeins annan pok- ann sem marraði í kafi í ánni. Allt sem hafði verið utan á hon- um var flotið burt og ég held að þar með talið hafi verið tjald. Við sáum hvorki tangur né tetur af hinum bakpokanum," segir Kristján. -GKG. Staöan pr. 1. júli 1993 Hækkun á tekjusköttum rekstraraöila Hækkun á viröisaukaskatti Hækkun vegna ökutækjastyrks Samtals Samtals Fj- Meðal hækkun aðila hækkun kr. 164.400.000 420 391.400 kr. 49.600.000 110 450.900 kr. 68.400.000 680 100.500 282.400.000 1210 ...ERLENDAR FRÉTTIR... TÓKÝÓ Samþykkja tollalækkun Fjögur mestu viðskiptaveldi heims komu sér i gær saman um aö lækka tolia á margvislegum vamingi og Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði aö sú aðgerð hefði leyst hnút i leitinni að samkomu- lagi um GATT- samninginn sem lengi hefur verið i strandi. En embættismenn Clintons og GATT vömöu við þvi að þó aö samkomulagiö um tollalækkun værí vel þegið væm enn alvartegar hindranir i vegi nýs alþjóðlegs viöskiptasamnings. TÓKÝÓ — Leiötogar sjö helstu iön- rfkja heims (G7) samþykktu viðan ramma um umdeildan tveggja milljarða dollara sjóð til aö aöstoða Rússland viö að endurskipuleggja og einkavæöa rik- isfyrirtæki, að sögn franska efnahags- ráöherrans Edmond Alphandery. SARAJEVO Þrýstingur eykst á mús- lima Keppinautamir I Bosnfu böröust á stór- um svæðum f gær og múslimar voru beittir vaxandi þrýstingi frá öllum hliðum um að sam þykkja þriklofning fyrrum júgóslavneska lýðveldisins. BRUSSEL — NATO samþykkti að hefjast handa við að senda sprengju- flugvélar og flugvélar til aö styöja árásir á jöröu niðri til flugvalla á Italfu frá og meö helginni sem undirbúning aö leið- angri til aö verja heriið S.þ. f Bosnlu, hefur Reuters eftir heimildum innan bandalagsins. JÓHANNESARBORG Enn heldur blóöbaöiA áfram Pólitísk ofbeldisverk I tveim bæjum svartra i grennd viö Jóhannesarborg höfðu i gær kostað 91 mannslif frá þvl á föstudag, að sögn lögreglu. 53 létu lifiö I hinu eldfima Natal- héraöi og höföu þá a.m.k. 144 látiö lifið I Suöur-Afriku frá þvi lýöræðissáttasemjarar ákváðu á föstudag að fyrstu kosningamar I land- inu fyrir alla kynþætti fari ffam 27. aprfl 1994. LAGOS SkriAdrekar á vettvang Herforingjastjómin i Nlgeriu flutti skrið- dreka á aöalátakastaöina f Lagos i gær i þeim tilgangi aö binda enda á pólitisk- an óróa sem hefur lamaö viöskipti I höf- uöborginni. Skýrt var frá að ný átök hefðu brotist út á a.m.k. einu svæði i dreiföri borginni eftir að hermenn sem gengiö höföu til liðs við lögregluna virt- ust hafa stöðvað tveggja daga bardaga. TBLISI, Georgfu StríA í uppsiglingu? Eduard Shevardnadze, leiötogi Georg- lu, sagöi I gær aö strið landa hans viö uppreisnarmenn f Abkhaslu væri að komast á alvariegt stig. MOGADISHU Aftökur á mönnum S.þ.? Byssumenn skutu i gær til bana tvo Sómala sem störfuðu fyrir friöargæsluliö S.þ. i Mogadishu og sögðu talsmenn S.þ. aö morðin liktust helst aftöku. TALLINN, Eistlandi Meri neitar aö undirrita lög Lennart Meri, forseti Eistlands, hefur neitað að undimta lög sem kveiktu deil- ur um réttindi rússneska minnihlutans i Eystrasaltsrikinu og hefur send þau aft- ur til þingsins til endurathugunar. BONN Stjórnmálamenn vilja staðreyndir Þýskir stjómmálamenn sem em búnir að fá sig fullsadda af uppnáminu eftir blóðugan byssubardaga lögreglu viö gmnaða skæmliöa, hvöttu I gær emb- ættismenn dómsmála til aö fá á hreint staðreyndir i máli sem kemur rikisstjóm- inni illa. KIEV Kravtsjúk styöur hald á kjarnorkuvopn Leonid Kravtsjúk, forseti, sagði i gær að hann styddi tillögur um aö kjamorku- vopn fymim Sovétrlkja á úkrainsku landsvæöi væm yfiríýst eign þjóöarinnar um sinn. DENNI DÆMALAUSI JKfhverju er alltaf veríð að segja að morgundagur- inn sé að koma þegar ég er ekki búinn með daginn í dag?u

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.