Tíminn - 14.07.1993, Qupperneq 2
2 Tfminn
Miðvikudagur 14. júlí 1993
Enn og aftur urðu truflanir á starfsemi Veður-
stofunnar þar sem ósamið er við aðstoðar-
menn veðurfræðinga um bakvaktir:
Einn í vinnu,
annar veikur
og aðrir í fríi
Enn og aftur urðu truflanir á starfsemi Veðurstofu íslands í gær þar
sem aðeins einn aðstoðarmaður veðurfræðinga mætti tii vinnu. Sá
sem átti aö vera meö honum var veikur og ekkl náðist í aðra sem
voru i löglegu frfi.
Hluti þelrra sem ætla að lesa upp annað kvöld. Aftast standa þelr Bragl Ólafsson, Krlstján Þóröur Hrafnsson og
Arl Gísll Bragason og á bekknum sltja Valgaröur Bragason og Gerður Kristný. Tlmamynd Aml Bjama
JÉg hef aldrei verið eins sveittur í
vinnunni," sagði Friðjón Magnús-
son, aðstoðarmaður veðurfræðinga,
sem var einn á vakt í gær og sagðist
reyna að sinna helstu öryggisverk-
unum eins og Ld. teikna kort og lesa
spána f útvarpið. Sökum manneklu i
röðum aðstoðarmanna veðurfræð-
inga varð að sæta afgangi dreifing
veðurupplýsinga til fjölmiðla, upp-
lýsingar í sfmsvarann og önnur
aukaverkefni.
En þessi þjónusta stofnunarinnar
við fjölmiðla og almenning voru á
sínum skrautfjöður í hatt veður-
stofústjóra og til marks um opin-
bera stofnun sem kynni að aðíaga
sig að nýjum tíma með aukinni
þjónustu við neytendur.
J>að er hætt við því að það verði
áfram einhverjir hnökrar á starf-
semi Veðurstofunnar að öllu
óbreyttu. Við viljum auðvitað fá ein-
hveija niðurstöðu í þetta mál. En
eins og ég segi þá mætum við á allar
okkar vaktir og allar aukavaktir sem
vitað er af, því við erum skyldug að
mæta ef það næst f okkur. Hins veg-
ar er ekkert sem segir okkar að við
verðum að ganga með símann f vas-
anum, auk þess sem það bætir ekki
starfsandann þegar menn fá þvert
nei við sfnum kröfum," sagði Frið-
jón Magnússon.
Hvorki gengur né rekur hjá aðstoð-
armönnum veðurfræðinga að ná
samningum um bakvaktir, þótt
samningur um bakvaktakerifi hafi
verið felldur inn f kjarasamning veð-
urfræðinga sl. vor. Sfðan þá hafa að-
stoðarmennimir reynt að ná samn-
ingi um bakvaktir en án árangurs til
þessa. Veðurstofustjóri og ráðuneyti
veðurstofunnar, umhverfisráðu-
neytið, telja sig ekki peningalega
umkomna til að ganga til samninga
við aðstoðarmennina sem eru í SFR,
Starfsmannafélagi ríkisstofnana.
-grh
LJÓÐ LESIN Á HRESSÓ
Ljóðaupplestur verður á Hressó í kvöld. Skáldin sem lesa upp eru þau Elísabet Jökulsdóttir, Valgarður Bragason, Sig-
urður Pálsson, Gerður Kristný, Kristján Þórður Hrafnsson, Ari Gísli Bragason, Kristín Ómarsdóttir, Jón Stefánsson
og Bragi Ólafsson.
Þeir tveir síðastnefndu hafa nýverið gefið út nýjar ljóðabækur sem þeir eiga eflaust eftir að leyfa ljóðaáhugamönn-
um að heyra úr annað kvöld. Upplesturinn hefst kl. 21:00. -GKG.
Undirbúningur flokkanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar fer hægt af stað:
Reiknað með að hefja
undirbúning í haust
Enginn formlegur undirbúningur virðist enn vera haflnn innan
stjómmálaflokkanna fyrir borgarstjómarkosningamar sem fram
fara á næsta ári. Búist er við að hann hefjist að loknum sumarleyf-
um.
Valgerður Gunnarsdóttir, varaþing-
maður Alþýðuflokksins, segir
flokksmenn ekki vera byrjaða að
ræða málið en óðum fari þó að líða
aðþví.
„Enn hefur enginn lýst því yfir op-
inberlega að hann ætli í framboð. Eg
vona að undirbúningur hefjist ekki
síðar enn í haust eftir sumarleyfi,"
segir Valgerður.
Formlegar umræður um borgar-
stjómarkosningar eru ekki famar í
gang innan Framsóknarflokksins og
í Nýjum vettvangi hafa kraftar
flokksmanna helst farið í að hóa
saman fólki sem vill að Sjálfstæðis-
flokkurinn missi völd sín í borginni
að sögn KristínarÁ. Ólafsdóttur.
„Ef það ekki tekst teljum við næst-
besta kostinn þann, að fólk samein-
ist um áherslur og lýsi því yfir að það
geti staðið að þeim saman. Einnig
hefur verið rætt um að sameinast
um borgarstjóraefni jafnvel þótt
ekki verði hægt að sameinast um
lista. Mér finnst Ingibjörg Sólrún al-
besti kosturinn. Mér þykir hún af-
skaplega hæfúr stjórnmálamaður og
hafa mikla þekkingu á borgarmál-
um. Að auki er hún góð í samvinnu
við annað fólk.“
Magnús L. Sveinsson hyggur að eft-
ir að sumarfríum Ijúki fari flokks-
menn að ræða borgarstjómarkosn-
ingamar fyrir alvöru. Albert Guð-
mundsson útilokaði ekki í viðtali við
Alþýðublaðið í gær að hann tæki
þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
.Albert hefur ekki talað við neinn
innan flokksins og mér skilst reynd-
ar á þessu viðtali að hann láti að þvf
liggja að það sé eðlilegt að talað sé
við hann þótt hann tali ekki við aðra.
Ég veit ekki hvort þeir í Borgara-
flokknum hafa talað við hann held-
ur,“ segir Magnús.
Eftir sumarfri ætla Kvennalista-
konur að fara að vinna í málefna-
hópum.
„Konur eru alltaf í eilífðarmálun-
um og við ætlum að reyna að finna
nýja fleti á þeim. Staða borgarsjóðs
er nú miklu verri en fyrir fjórum ár-
um þannig að nú er minna úr að
spila," segir Guðrún.
Hún vill ekki tjá sig um þá hug-
mynd að bjóða Ingibjörgu Sólrúnu
fram sem sameiginlegan borgar-
stjóra stjómarandstöðuflokkanna.
„Ingibjörg Sólrún er náttúrulega
með betri konum sem völ er á í þess-
ari borg,“ segir Guðrún. -GKG.
Tveir erlendir listamenn með sýningar í Portinu í
Hafnarfirði:
Olík áhrif lands-
ins á listina
Volker Schönwart
Tvær listsýningar standa nú yfir í
Portinu við Strandgötu í Hafnar-
firði. önnur er með málverkum
frönsku listakonunnar, Sonia Ren-
ard, en hin með grafíkverkum Þjóð-
verjans, Volker Schönwart.
„Þetta er sjötta heimsóknin mín til
íslands en sjálf er ég búsett í Þýska-
landi og vinn þar að minni lisL“ seg-
ir Sonia.
Hún segir íslandsheimsóknimar
jafnan hafa mikil áhrif á listsköpun-
ina og einkennir litagleði myndir
hennar.
ísland hefur þveröfug áhrif á lita-
valið í grafíkmyndum Volker þar
sem grár tónn er ríkjandi. Hann seg-
ir litinn sóttan f fslenskt landslag og
ekki síst hafnfirska hraunið.
Volker og Sonia tóku bæði þátt í
Listahátíð í Hafnarfirði 1991 og
dvelja nú sem gestalistamenn í
Straumi. Sonia verður hér í sex vik-
ur en Volker í tvo mánuði. -GKG.
Sonla Renard.