Tíminn - 15.07.1993, Page 3
Fimmtudagur 15. júlí 1993
Tíminn 3
Maturinn ennþá að mestum hluta innlend framleiðsla en nær allt ann-
að sem við kaupum innflutt:
Innlendar vörur að-
eins 1/3 af öllum
vörukaupum heimila
Innlendar vörur eru aöeins orðnar lítið brot, og stöðugt minnkandi,
af innkaupum íslenskra heimila, öðrum en matvælum. Af þeim
rösklega helmingi (54%) heimilisútgjaldanna sem fjölskyldur verja
að jafnaði til vörukaupa fer nú tæplega þríðjungur til kaupa á mat-
ar- og drykkjarvörum. Þessar vörur eru ennþá að stærstum hluta
framleiddar á fslandi, þótt sá hluti þeirra sem kemur tilbúinn beint
frá útlöndum hafi stækkað úr 13% upp i 19% á síðustu fimm árum.
Af öllum öðrum vörukaupum íslenskra heimila eru hins vegar rúm-
lega 87% innfluttar vörur. Innlendar vörur eru þvi aðeins orðnar
tæplega 13% af öðrum vörukaupum en mat og drykk og það hlut-
fall hefur minnkað úr rúmlega 17% fyrír fimm árum.
Af þeim fjármunum sem íslensk
heimili verja samtals til ailra vöru-
kaupa hefur stöðugt stærri og stærri
hluti farið til kaupa á tilbúnum inn-
fluttum vörum. Hlutur innlendra
framleiðsluvara af heildar vörukaup-
um íslenskra heimila hefur hins vegar
minnkað úr tæplega 44% niður í tæp-
lega 35% á aðeins fimm ára tímabili
(kannski ekki furða að atvinnuleysi
hafi verið að aukast?). Þessar hlut-
fallstölur má lesa út úr þróun á grund-
velli framfærsluvísitölunnar sem Hag-
stofan reiknar út En hann byggist
sem kunnugt er á víðtækum neyslu-
könnunum mörg hundruð íslenskra
heimila og á þar með að gefa góða vís-
bendingu um það hvemig innkaup
meðalheimila skiptast á milli ein-
stakra vöruflokka. Núgildandi vísi-
tölugrundvöllur var tekinn í notkun
fyrir aðeins hálfu ári, en sá næsti þar á
undan fyrir fimm árum, þ.e. vorið
1988. Auk vörukaupanna (53,5%) fer
hátt í þriðjungur (31,5%) heimilisút-
gjaldanna til kaupa á þjónustu og
rúmlega 15% í húsnæðiskostnað.
Eftirfarandi tölur sýna hvemig hlut-
föll einstakra vöruflokka hafa breyst
(samkvæmt neyslukönnunumMsi-
tölugrundvelli Hagstofunnar) frá júní
1988 og þar til nú í byrjun júlí.
Andlát:
Sigurður Ólafsson
söngvari og hestamaður
Sigurður Ólafsson, hinn landsþekkti
söngvari og hestamaður, er látinn.
Sigurður var fæddur í Reykjavík 4.
desember árið 1916 og var einn
þekktasti söngvari þjóðarinnar.
Söngferill Sigurðar Ólafssonar
spannaði ríflega 50 ár en hann söng
með kórum, bæði sem kórmeðlimur
og einsöngvari, með danshljóm-
sveitum, á söngskemmtunum af
ýmsu tagi, í kirkjum og á óperusviði.
Þannig tók Sigurður þátt í fyrstu
óperuuppfærslu Þjóðleikhússins á
Rigoletto og í söngleikjasýningum
þar og víðar. Þá söng hann inn á
fjölda hljómplatna.
Sigurður Ólafsson var mikill hesta-
maður og átti marga fræga gæðinga,
svo sem hryssumar Glettu og Litlu-
Glettu sem vom um árabil ósigrandi
skeiðhross á kappreiðavöllum.
Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er
Inga Valfríður Einarsdóttir frá Mið-
dal. Þau eignuðust sex böm.
Slguröur Ólafsson.
Innlend vörukaup minnka og
minnlta
1988: 1993:
Búvömr 13,3% 9,0%
A.innl. matv. 19,8% 17,2%
Innfl.matv. 5,1% 6,2%
Matur/drykkur = 38,2% 32,4%
Áfengi/tóbak 5,8% 6,2%
BflUbflavömr 17,7% 23,7%
A.innfl.vörur 27,8% 29,1%
Innl. vömr 10,7% 8,8%
Aðrar vömr = 61,8% 67,6%
Vömkaup alls: 100% 100%
Þ.a. íslenskar: 43,7% 34,9%
Tölumar sýna glöggt hvað hlutur
matar og drykkjarvara af heildarvöru-
kaupum heimilanna hefur minnkað á
síðustu fimm ámm. .Vekur kannski
sérstaka athygli að hlutfall búvara sem
háðar em verðlagsgmndvelli hefur
minnkað um þriðjung, niður í 9%
vöminnkaupa vísitöluQölskyldunnar.
Hlutfall fullunninna innfluttra mat-
væla hefur hins vegar aukist.
Ekki er síður athyglivert hvað sá
hlutur heimilisútgjaldanna sem fer til
kaupa á nýjum bílum, bensíni, hjól-
börðum, varahlutum og öðmm inn-
fluttum vömm sem tilheyra heimilis-
bílnum stækkar og stækkar. Þessi eini
kostnaðarliður nálgast nú fjórðung-
inn af öllum vömkaupum íslenskra
heimila. Ef undan er skilið það sem
við borðum og drekkum þá slaga inn-
kaup tilheyrandi einkabflnum núorðið
hátt í öll önnur vöminnkaup heimil-
anna. Þó er þama aðeins um að ræða
þann kostnaðarhluta við heimilisbfl-
inn sem tengist innflutningi. Ótalinn
er allur sá hluti rekstrarkostnaðarins
sem stafar af margs konar keyptri
þjónustu, svo sem tryggingum, við-
gerðum, eftirliti, þrifum og þess hátt-
ar.
Varðandi erlend vömkaup má einnig
benda á að í öllum framangreindum
tölum er ótalinn allur húsnæðiskostn-
aður, bæði byggingar-, rekstrar- og
viðhaldskostnaður. En eins og flestum
mun kunnugt, em efhi til byggingar-
og viðhalds íbúðarhúsa að stórum og
stækkandi hluta innflutt, t.d. innrétt-
ingar, hurðir og málningarefni, svo
nokkuð sé nefnt.
- HEI
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Staða yfiríæknis við barnadeild FSA
er laus til umsóknar
Staðan veitist frá 1. janúar 1994.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 1993.
Meðal verkefna yfirlæknis verður undirbúningur að flutningi deildarinnar i nýtt húsnæði. Umsóknir,
ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins.
Nánari upplýsingar veitir Baldur Jónsson yfirlæknir.
70% staða sérfræðings í háls-, nef- og eymalækningum við HNE-deild FSA er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. október 1993 eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 1993.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins.
Nánarí upplýsingar veitir Eiríkur Sveinsson yfiríæknir.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyrí,
sími 96-30100.
Nýr tryggingasamningur Dagsbrúnar og VfS undirritaður af þeim Axel
ilngu
Gíslasyni, forstjóra VlS, og Guömundi J. Guðmundssynl, formanni Dags-
brúnar.
Nýr tryggingasamningur Dagsbrúnar og VÍS:
Dagsbrúnarmenn gull-
tryggðir í vinnu og frfí
Verkamannafélagið Dagsbrún í Reykjavík og styrktarsjóður félaqs-
ins hafa gert nýjan tryggingasamning við Vátryggingafélag is-
lands. Samningurínn tryggir Dagsbrúnarmönnum hærrí bætur og
meirí vemd en félagsmönnum annarra stéttarfélaga með hlið-
stæða samninga. Tryggingasamningurínn nær til allra fullgildra fé-
lagsmanna Dagsbrúnar á aldrínum 16-75 ára, alls um 4.000 manns.
Um er að ræða í grundavallaratrið-
um endumýjun á eldri trygginga-
samningi en bótagreiðslur hafa ver-
ið hækkaðar verulega og bætt við
frítímatryggingu sem tryggir Dags-
brúnarmönnum og/eða afkomend-
um þeirra dánar- og örorkubótarétt
í vinnu og í frítíma. Samkvæmt
kjarasamningum eru menn einung-
is tryggðir í vinnutíma.
Sé tekið dæmi af kvæntum tveggja
bama föður sem fellur frá vegna
slyss, hvort heldur í vinnu eða frí-
tíma, nema dánarbætur hans nú um
2,8 milljónum króna sem er um
einni milljón hærra en samkvæmt
hefðbundnum slysatrygginga-
ákvæðum.
Slasist Dagsbrúnarmaður alvarlega
í vinnu eða frítíma og hljóti varan-
lega örorku tryggir nýi samningur-
inn honum örorkubætur. Þannig
fengi hann tæpar 460 þúsund krón-
ur vegna 20% örorku til viðbótar við
bætur Tryggingastofnunar.
Styrktarsjóður Dagsbrúnar greiðir
allan kostnað vegna þessara trygg-
inga.
Bílslys í
Kúagerði
Umferðaróhapp varð í gær á Reykja-
nesbrautinni í Kúagerði þegar fólks-
bfll reyndi að fara fram úr öðmm.
Þrír menn voru fluttir á sjúkrahús
en þeir em ekki taldir lífshættulega
slasaðir -GKG.
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
Innlausnardagur 15. júlí 1993.
1. flokkur 1991 Nafnverð: 10.000 100.000 1.000.000 Innlausnarverð: 12.788 127.877 1.278.772
3. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð:
10.000 11.379
100.000 113.786
500.000 568.930
1.000.000 1.137.860
1. flokkur 1992 Nafnverð: Innlausnarverð:
10.000 11.207
100.000 112.070
1.000.000 1.120.703
5.000.000 5.603.516
2. flokkur 1992 Nafnverð: Innlausnarverð:
10.000 11.031
100.000 110.312
1.000.000 1.103.115
5.000.000 5.515.577
Innlausnarstaður:
Veðdeild Landsbanka íslands
Suóurlandsbraut 24.
c£h HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFAÐEIIO • SUOURIANOSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00