Tíminn - 15.07.1993, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Fimmtudagur 15. júlf 1993
Njáluslóðir—Þórsmörk
Aileg sumarferö framsóknarfétaganna I Reykjavlk veröur farín laugardaginn 14.
ágúst 1993. Aö þessu sinni veröur faríö á söguslóöir Njálu og inn I Þórsmörk.
Aöalleiösögumaöur feröarinnar veröur Jón Böövarsson.
Feröaáætlunin er þessi:
Kl. 6:00 Frá BSl.
Kl. 10:00 Frá Hvolsvelli.
Kl. 11:15 Frá Bergþórshvoli.
Kl. 12:30 Frá Gunnarshólma.
Kl. 17:00 Úr Þórsmörk.
Kl. 18:45 Frá Hllöarenda.
Kl. 20:00 Frá Keldum.
Kl. 20:45 Frá Gunnarssteini.
Kl. 22:00 Frá Hellu.
Aætlað er aö vera I Reykjavlk Id. 23:30.
Skráning I feröina er á skrífstofu Framsóknarflokksins I sima 624480 frá 9.-13.
águst. Verö fyrir fulloröna 2.900 kr., böm yngrí en 12 ára 1.500 kr.
Sumarhappdrætti Framsókn-
arflokksins 1993
□rætti I Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins hefur veríö frestað til 9. ágúst n.k.
Velunnarar flokksins, sem enn eiga ógreidda miða, eru hvattir til aö greiöa heims-
enda glróseöla fyrir þann tima.
Allar frekarí upplýsingar veittar á skrífstofu flokksins eöa I sima 91- 624480.
Fjölskylduhátíð framsóknar-
manna á Vesturlandi
Fjölskytduhátlö framsóknarmanna á Vesturiandi veröur haldin 24. júll 1993.
Mæting aö Holti, Borgarhreppi, Id. 13.30.
Dagskrá:
1) Gróöursetning I landgræöslugirðingu Skógræktarfálags Borgartjaröar.
2) Haldiö I Danlelslund I landi Svignaskarös og hann skoöaöur undir leiösögn
Agústs Amasonar.
3) Eftir kl. 16.30 veröur kveikt upp I stóru grilli viö sumarhús Steingrlms Her-
mannssonar aö Kletti I Reykholtsdal.
Takiö meö ykkur þaö sem þiö viljiö helst grilla til kvöldveröar. Margir góöir grill-
meistarar veröa meö I för og svo njótum viö saman ánægjulegrar kvöldstundar I
góöum félagsskap og fögnr umhverfi.
Formenn framsóknarfélaganna i Vesturiandl
Kópavogur—
Framsóknarvist
Spilum aö Digranesvegi 12 I kvöld fimmtudaginn 15. júll Id. 20.30. Góö verðlaun.
Molakaffi.
Freyfa.félagframsóknarkvenna
Sumarvinna Kvennalistans—júlí 1993
Mánudaginn 19. júlí kl. 19:00: Atorkuráð.
Þriöjudaginn 20. júlí kl. 20:30: Hópur um ríkisfjármál.
Allirfundirá Laugavegi 17, 2. hæð.
Ath. Sjávarútvegshópur fundar í tvennu lagi: í Reykjavík
og hjá Jónu Valgerði í Hnífsdal á sama tíma.
Konur, mætið allarl
Tónskólastjóri /
kennarí
Tónskóli Patreksfjarðar óskar aö ráða skólastjóra og
kennara fyrir næsta skólaár, sem hefst 1. september
1993. Góð aðstaða fyrir hendi á staðnum.
Æskilegt er að viökomandi geti jafnframt sinnt starfi org-
anista/kórstjóra viö Patreksfjarðarkirkju.
Allar nánari upplýsingar veita eftirtaldir:
Siguður Viggósson, formaður skólanefndar, sími 94-1389.
Ólafur Amflörð, sveitarstjóri, sími 94-1221.
Umsóknir um starfið sendist til ofangreindra í síðasta lagi
fyrir 20. júlí nk.
Skólanefnd
AuQlýslngasfmar Tfmans
Hjónaminning:
Una Pétursdóttir og
Ingþór Sigurbjömsson
Una
Fædd 16. febrúar 1896
Dáin 23. maí 1993
Ingþór
Fæddur 5.júní 1909
Dáinn 27. apríl 1992
í dag, þegar ég kveð mín elskulegu
móður, leitar hugurinn aftur í tím-
ann. Frá því að ég var bam kveið ég
mikið fyrir brottfarardegi hennar
héðan af jörðinni, því að ég hafði
misst föður minn fjögurra ára gömul
og sett allt mitt traust og væntum-
þykju á móður mína. En nú er ég
þakklát guði fyrir að hafa leyst hana
undan vanlíðan og elli og tekið hana
til sín í sitt ríki.
Óður til móður
Hví skyldi ég yrkja um önnur fljóð,
en ekkert um þig, ó móðirgóð,
upp þú mirm hjartans óður.
Því hvað er ástar og hróðurdís
og hvað er engill úr paradís
hjá góðri og göfugri móður?
(MJ.)
Móðir mín fæddist í Sauðanesi í
Ásum í A-Húnavatnssýslu 16. febrúar
1896. Móðir hennar var Sigurlaug
Jósefína Jósepsdóttir gullsmiðs á Ak-
ureyri. Síðar var hann bóndi í Ham-
arsgerði í Skagafirði og víðar. Hann
var sonur Gríms prests á Munkaþverá
og Barði í Fljótum, Grímssonar
græðara á Espihóli í Eyjafirði og
konu hans Ingibjargar Þorvaldsdótt-
ur, Gissurarsonar í Skjaldarvík við
Eyjafjörð. Faðir hennar var Pétur
Guðjónsson, Einarssonar bónda í
Kárdalstungu í Vatnsdal, Einarssonar
í Háhamri í Eyjafirði og konu hans
Guðríðar Jónsdóttur. Mamma var
eina bam foreldra sinna.
Að Torfalæk fluttust þau með litlu
stúlkuna sína á fyrsta ári og vom þar
í húsmennsku í tvö ár. Síðan flytjast
þau til Skagastrandar, en viðkoman
var ekki löng þar. Árið 1902 flytjast
þau í Skagafjörðinn, sem móðir mín
hafði ávallt mikið dálæti á. Þau flutt-
ust þar að Vatnskoti í Hegranesi til
yndislegra hjóna, Guðrúnar Am-
grímsdóttur og Guðjóns Gunnlaugs-
sonar, sem mamma leit á sem sína
aðra foreldra. Þeirra böm, Skúli og
Þorbjörg Guðríður, urðu leiksystkin
mömmu. Mömmu þótti afar vænt um
bömin í Vatnskoti og hún gladdist
mjög þegar ég Iét elskulega dóttur
mfna heita í höfuðið á fóstursystur
hennar, Gauju.
Móðuramma mín var alin upp hjá
Unu systur Bólu-Hjálmars og manni
hennar, Áma Ámasyni, á Akureyri.
Árið 1908 fluttist fjölskyldan frá
Vatnskoti til Sauðárkróks, þar sem
móðir mín gekk í bamaskóla og síðan
unglingaskóla. Móðir mín var mikil
námsmanneskja, tók hæsta próf frá
unglingaskólanum 14 ára gömul. Það
var hennar fyrsta raun að kveðja skól-
ann sinn og geta ekki farið í Mennta-
skólann á Akureyri eins og tveir
skólabræður hennar. Hún sagði:
„Bamið mitt, ég grét bara í hljóði." í
desember sama ár missti hún móður
sína.
Árið 1914 fluttist móðir mín til
Reykjavíkur og kynntist þar Benedikt
Sveinssyni, föður mínum, ættuðum
úr Skagafirði. Faðir hans var Sveinn
Sigvaldason og móðir Ingibjörg
Hannesdóttir frá Stóra-Dal. Foreldrar
mínir bjuggu í Reykjavík og eignuð-
ust þrjár dætur: Huldu Ingibjörgu f.
6. september 1916, Elínu Olgu f. 16.
nóvember 1918 og Unni Rögnu f. 7.
október 1922. Hulda giftist Ragnari
Lovdal 29. maí 1935 og eignuðust
þau fimm böm. Elín Olga giftist
Bemhard de Lange 16. nóvember
1941 og eignuðust þau einn son.
Unnur Ragna giftist Jóni Valgeir Guð-
mundssyni 23. ágúst 1941 og eignuð-
ust þau tvö böm.
Móðir mín missti föður minn af slys-
fömm 4. júlí 1927. Hún bjó áfram í
Reykjavík með okkur dætrunum og
þá tóku við erfiðir tímar.
Hinn 10. nóvember 1934 giftist
móðir mín Ingþóri Sigurbjömssyni
málarameistara, yndislega góðum
manni, og eignuðust þau einn son,
Sigurbjöm hljómlistarmann. Hann
var þeirra augasteinn, f. 17. júlí 1934.
Þau byrjuðu sinn búskap í Reykjavík,
en fluttust til Selfoss 1942 og bjuggu
þar í 13 ár. Þar ráku þau verslun og
sinntu áhugamálum sínum. Þau
stofnuðu fyrstu bamastúku á Selfossi
og sungu í kirkjukór Selfoss í mörg
ár. Mamma setti upp margar skraut-
sýningar fyrir bömin og stúkuna og
bjó til alla búninga á þau. Mamma
varð fyrsti formaður Kvenfélags Sel-
foss og var gerð að heiðursfélaga
þess. Mamma var mjög listræn kona,
hún málaði á postulín og gamlar kist-
ur, teiknaði, tálgaði út fugla úr fiski-
beinum, einnig aðstoðaði hún Ingþór
við að skreyta kirkjur. Við dætumar
gátum alltaf ráðfært okkur við hana,
því hún hafði alltaf svör á reiðum
höndum.
Mamma og Ingþór fluttust til
Reykjavíkur 1955. Þau eignuðust hús
í Efstasundi 15 og síðar á Kambsvegi
3 þar sem þau bjuggu til æviloka. Þau
hjónin störfuðu alla tíð með Góð-
templarareglunni og voru bæði
heiðruð æðstu heiðursmerkjum regl-
unnar.
Mamma átti tvo hálfbræður, Krist-
ján Benediktsson, f. 16. nóvember
1885, dáinn fyrir allmörgum ámm,
og Valdimar Pétursson bakarameist-
ara, f. 10. ágúst 1911, búsettan á
Blönduósi.
Mamma hafði mikinn áhuga á grasa-
lækningum og bjó yfir mikilli þekk-
ingu á þeim sviðum. Hún hjálpaði
mörgum með þessu áhugamáli sínu
og safnaði jurtum fram á síðustu ár.
Hún var mikill dýravinur og hjúkraði
mörgum dýmm, þ.á m. særðri lóu.
Mamma missti einkason sinn 6. júlí
1986. Hún tók það mjög nærri sér.
Eiginmann sinn, Ingþór, missti hún
27. apríl 1992. Þann sama dag þurfti
hún að yfirgefa heimili sitt vegna
sjúkleika. Hún fluttist inn á Borgar-
spítalann og þaðan á Hjúkmnar-
heimilið Skjól. Ég vil þakka fyrir alla
hjálp sem hún fékk á báðum þessum
stöðum.
Mamma var mikill náttúmunnandi,
þekkti allar íslenskar jurtir og var
mikil blómakona. Hún þekkti einnig
alla íslensku fúglana. Hún hafði mik-
inn áhuga á ættfræði.
Mamma átti einn stjúpson, Svavar
Benediktsson hljómlistarmann, f. 20.
maí 1912, d. 3. ágúst 1977. Hann
reyndist stjúpmóður sinni mjög vel.
Eg kveð mína elskulegu móður með
þökk og virðingu. Ég kveð hana með
ljóðlínum sem hún fór alltaf með síð-
ustu lífdaga sína.
Tíminn líður, trúðu mér,
takþú maður vara á þér.
Heimurinn ersem hálfhað gler,
hugsaðu um hvað á eftir fer.
Ingþór, maður mömmu, var fæddur
að Kambshóli í V-Húnavatnssýslu.
Foreldrar hans vom Sigurlaug Níels-
dóttir og Sigurbjöm Bjömsson. Þau
bjuggu á Geitlandi í V-Húnavatns-
sýslu. Ég er ekki nógu vel að mér til
að geta rakið ættir hans frekar.
Ingþór var afskaplega góður maður
og reyndist móður minni mjög vel,
svo og allri fjölskyldunni. Hann vildi
allt fyrir alla gera og eitt helsta
áhugamál hans í þessu lífi var að
hjálpa bömum í Póllandi. Bæði
mamma og Ingþór pökkuðu niður
fötum og ýmsu dóti og sendu bág-
stöddu fólki í Póllandi. Þetta starf átti
allan hug Ingþórs síðustu ár hans.
Ingþór átti fjóra bræður, einn bróð-
urinn missti hann ungan. Hann
missti móður sína bam að aldri og
syrgði hana alla tíð. Ingþór reyndist
föður sínum mjög vel og skrifaði
mjög fallega um hann á dánardegi og
orti til hans fallegt ljóð. Ingþór var
mikill hagyrðingur og eftir hann
liggja ófáar stökur og kvæði. Hann
var skemmtilegur maður á gleði-
stundum og var alltaf tilbúinn með
vísur handa hverjum og einum. Hann
varð heiðursfélagi f Kvæðamannafé-
laginu, svo og í Félagi málarameist-
ara. Ég kveð hjónin á Kambsvegi 3
með bæninni hans Ingþórs:
Af öllum mœtti óska minna,
alvaldi Faðir, krýp égþér
og bið þú nauðum látir linna,
líknandi þeim sem villtur er.
Styð þann veika vermandi höndum,
veit honum lausn úr
ánauðarböndum.
(ingþór Sígurfijönuson)
í trú, von og kærleika.
Ykkar
Unnur Ragna Benediktsdóttir
Okkur hjónin langar að minnast föð-
ursystur minnar og eiginmanns
hennar, Ingþórs Sigurbjömssonar
málarameistara, Kambsvegi 3, sem
bæði em látin, og þakka fyrir löng
kynni og yndislegar samverustundir.
Það var alltaf gaman að koma í heim-
sókn til þeirra hjóna, bæði á Selfossi
og í Reykjavík.
Una frænka var alveg sérstök kona,
bráðvelgefin og skemmtileg og hafði
svör á reiðum höndum í daglega líf-
inu. Una og Ingþór vom bæði mjög
listræn. Una málaði mikið á postulín,
sem hún gaf bömum sínum og vin-
um, og Ingþór skrifaði skrautskrift og
orti vísur við öll tækifæri og var mjög
skemmtilegur í vinahópi.
Una og Ingþór vom mjög samrýmd.
Þau höfðu gaman af að ferðast um
landið, þekktu flesta sveitabæi sem
keyrt var fram hjá og alla íslensku
fuglana okkar. Þau vom bæði miklir
dýravinir og höfðu yndi af allri úti-
vem.
Við kveðjum okkar góðu vini og ósk-
um þeim góðrar ferðar á nýjum leið-
um. Megi þau góðu hjón hvíla í Guðs
friði.
Axel R. Kristjánsson og
Ágústa Sigurðardóttir