Tíminn - 15.07.1993, Qupperneq 8

Tíminn - 15.07.1993, Qupperneq 8
8 Tíminn Fimmtudagur 15. júlf 1993 Njáluslóðir—Þórsmörk Aileg sumarferö framsóknarfétaganna I Reykjavlk veröur farín laugardaginn 14. ágúst 1993. Aö þessu sinni veröur faríö á söguslóöir Njálu og inn I Þórsmörk. Aöalleiösögumaöur feröarinnar veröur Jón Böövarsson. Feröaáætlunin er þessi: Kl. 6:00 Frá BSl. Kl. 10:00 Frá Hvolsvelli. Kl. 11:15 Frá Bergþórshvoli. Kl. 12:30 Frá Gunnarshólma. Kl. 17:00 Úr Þórsmörk. Kl. 18:45 Frá Hllöarenda. Kl. 20:00 Frá Keldum. Kl. 20:45 Frá Gunnarssteini. Kl. 22:00 Frá Hellu. Aætlað er aö vera I Reykjavlk Id. 23:30. Skráning I feröina er á skrífstofu Framsóknarflokksins I sima 624480 frá 9.-13. águst. Verö fyrir fulloröna 2.900 kr., böm yngrí en 12 ára 1.500 kr. Sumarhappdrætti Framsókn- arflokksins 1993 □rætti I Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins hefur veríö frestað til 9. ágúst n.k. Velunnarar flokksins, sem enn eiga ógreidda miða, eru hvattir til aö greiöa heims- enda glróseöla fyrir þann tima. Allar frekarí upplýsingar veittar á skrífstofu flokksins eöa I sima 91- 624480. Fjölskylduhátíð framsóknar- manna á Vesturlandi Fjölskytduhátlö framsóknarmanna á Vesturiandi veröur haldin 24. júll 1993. Mæting aö Holti, Borgarhreppi, Id. 13.30. Dagskrá: 1) Gróöursetning I landgræöslugirðingu Skógræktarfálags Borgartjaröar. 2) Haldiö I Danlelslund I landi Svignaskarös og hann skoöaöur undir leiösögn Agústs Amasonar. 3) Eftir kl. 16.30 veröur kveikt upp I stóru grilli viö sumarhús Steingrlms Her- mannssonar aö Kletti I Reykholtsdal. Takiö meö ykkur þaö sem þiö viljiö helst grilla til kvöldveröar. Margir góöir grill- meistarar veröa meö I för og svo njótum viö saman ánægjulegrar kvöldstundar I góöum félagsskap og fögnr umhverfi. Formenn framsóknarfélaganna i Vesturiandl Kópavogur— Framsóknarvist Spilum aö Digranesvegi 12 I kvöld fimmtudaginn 15. júll Id. 20.30. Góö verðlaun. Molakaffi. Freyfa.félagframsóknarkvenna Sumarvinna Kvennalistans—júlí 1993 Mánudaginn 19. júlí kl. 19:00: Atorkuráð. Þriöjudaginn 20. júlí kl. 20:30: Hópur um ríkisfjármál. Allirfundirá Laugavegi 17, 2. hæð. Ath. Sjávarútvegshópur fundar í tvennu lagi: í Reykjavík og hjá Jónu Valgerði í Hnífsdal á sama tíma. Konur, mætið allarl Tónskólastjóri / kennarí Tónskóli Patreksfjarðar óskar aö ráða skólastjóra og kennara fyrir næsta skólaár, sem hefst 1. september 1993. Góð aðstaða fyrir hendi á staðnum. Æskilegt er að viökomandi geti jafnframt sinnt starfi org- anista/kórstjóra viö Patreksfjarðarkirkju. Allar nánari upplýsingar veita eftirtaldir: Siguður Viggósson, formaður skólanefndar, sími 94-1389. Ólafur Amflörð, sveitarstjóri, sími 94-1221. Umsóknir um starfið sendist til ofangreindra í síðasta lagi fyrir 20. júlí nk. Skólanefnd AuQlýslngasfmar Tfmans Hjónaminning: Una Pétursdóttir og Ingþór Sigurbjömsson Una Fædd 16. febrúar 1896 Dáin 23. maí 1993 Ingþór Fæddur 5.júní 1909 Dáinn 27. apríl 1992 í dag, þegar ég kveð mín elskulegu móður, leitar hugurinn aftur í tím- ann. Frá því að ég var bam kveið ég mikið fyrir brottfarardegi hennar héðan af jörðinni, því að ég hafði misst föður minn fjögurra ára gömul og sett allt mitt traust og væntum- þykju á móður mína. En nú er ég þakklát guði fyrir að hafa leyst hana undan vanlíðan og elli og tekið hana til sín í sitt ríki. Óður til móður Hví skyldi ég yrkja um önnur fljóð, en ekkert um þig, ó móðirgóð, upp þú mirm hjartans óður. Því hvað er ástar og hróðurdís og hvað er engill úr paradís hjá góðri og göfugri móður? (MJ.) Móðir mín fæddist í Sauðanesi í Ásum í A-Húnavatnssýslu 16. febrúar 1896. Móðir hennar var Sigurlaug Jósefína Jósepsdóttir gullsmiðs á Ak- ureyri. Síðar var hann bóndi í Ham- arsgerði í Skagafirði og víðar. Hann var sonur Gríms prests á Munkaþverá og Barði í Fljótum, Grímssonar græðara á Espihóli í Eyjafirði og konu hans Ingibjargar Þorvaldsdótt- ur, Gissurarsonar í Skjaldarvík við Eyjafjörð. Faðir hennar var Pétur Guðjónsson, Einarssonar bónda í Kárdalstungu í Vatnsdal, Einarssonar í Háhamri í Eyjafirði og konu hans Guðríðar Jónsdóttur. Mamma var eina bam foreldra sinna. Að Torfalæk fluttust þau með litlu stúlkuna sína á fyrsta ári og vom þar í húsmennsku í tvö ár. Síðan flytjast þau til Skagastrandar, en viðkoman var ekki löng þar. Árið 1902 flytjast þau í Skagafjörðinn, sem móðir mín hafði ávallt mikið dálæti á. Þau flutt- ust þar að Vatnskoti í Hegranesi til yndislegra hjóna, Guðrúnar Am- grímsdóttur og Guðjóns Gunnlaugs- sonar, sem mamma leit á sem sína aðra foreldra. Þeirra böm, Skúli og Þorbjörg Guðríður, urðu leiksystkin mömmu. Mömmu þótti afar vænt um bömin í Vatnskoti og hún gladdist mjög þegar ég Iét elskulega dóttur mfna heita í höfuðið á fóstursystur hennar, Gauju. Móðuramma mín var alin upp hjá Unu systur Bólu-Hjálmars og manni hennar, Áma Ámasyni, á Akureyri. Árið 1908 fluttist fjölskyldan frá Vatnskoti til Sauðárkróks, þar sem móðir mín gekk í bamaskóla og síðan unglingaskóla. Móðir mín var mikil námsmanneskja, tók hæsta próf frá unglingaskólanum 14 ára gömul. Það var hennar fyrsta raun að kveðja skól- ann sinn og geta ekki farið í Mennta- skólann á Akureyri eins og tveir skólabræður hennar. Hún sagði: „Bamið mitt, ég grét bara í hljóði." í desember sama ár missti hún móður sína. Árið 1914 fluttist móðir mín til Reykjavíkur og kynntist þar Benedikt Sveinssyni, föður mínum, ættuðum úr Skagafirði. Faðir hans var Sveinn Sigvaldason og móðir Ingibjörg Hannesdóttir frá Stóra-Dal. Foreldrar mínir bjuggu í Reykjavík og eignuð- ust þrjár dætur: Huldu Ingibjörgu f. 6. september 1916, Elínu Olgu f. 16. nóvember 1918 og Unni Rögnu f. 7. október 1922. Hulda giftist Ragnari Lovdal 29. maí 1935 og eignuðust þau fimm böm. Elín Olga giftist Bemhard de Lange 16. nóvember 1941 og eignuðust þau einn son. Unnur Ragna giftist Jóni Valgeir Guð- mundssyni 23. ágúst 1941 og eignuð- ust þau tvö böm. Móðir mín missti föður minn af slys- fömm 4. júlí 1927. Hún bjó áfram í Reykjavík með okkur dætrunum og þá tóku við erfiðir tímar. Hinn 10. nóvember 1934 giftist móðir mín Ingþóri Sigurbjömssyni málarameistara, yndislega góðum manni, og eignuðust þau einn son, Sigurbjöm hljómlistarmann. Hann var þeirra augasteinn, f. 17. júlí 1934. Þau byrjuðu sinn búskap í Reykjavík, en fluttust til Selfoss 1942 og bjuggu þar í 13 ár. Þar ráku þau verslun og sinntu áhugamálum sínum. Þau stofnuðu fyrstu bamastúku á Selfossi og sungu í kirkjukór Selfoss í mörg ár. Mamma setti upp margar skraut- sýningar fyrir bömin og stúkuna og bjó til alla búninga á þau. Mamma varð fyrsti formaður Kvenfélags Sel- foss og var gerð að heiðursfélaga þess. Mamma var mjög listræn kona, hún málaði á postulín og gamlar kist- ur, teiknaði, tálgaði út fugla úr fiski- beinum, einnig aðstoðaði hún Ingþór við að skreyta kirkjur. Við dætumar gátum alltaf ráðfært okkur við hana, því hún hafði alltaf svör á reiðum höndum. Mamma og Ingþór fluttust til Reykjavíkur 1955. Þau eignuðust hús í Efstasundi 15 og síðar á Kambsvegi 3 þar sem þau bjuggu til æviloka. Þau hjónin störfuðu alla tíð með Góð- templarareglunni og voru bæði heiðruð æðstu heiðursmerkjum regl- unnar. Mamma átti tvo hálfbræður, Krist- ján Benediktsson, f. 16. nóvember 1885, dáinn fyrir allmörgum ámm, og Valdimar Pétursson bakarameist- ara, f. 10. ágúst 1911, búsettan á Blönduósi. Mamma hafði mikinn áhuga á grasa- lækningum og bjó yfir mikilli þekk- ingu á þeim sviðum. Hún hjálpaði mörgum með þessu áhugamáli sínu og safnaði jurtum fram á síðustu ár. Hún var mikill dýravinur og hjúkraði mörgum dýmm, þ.á m. særðri lóu. Mamma missti einkason sinn 6. júlí 1986. Hún tók það mjög nærri sér. Eiginmann sinn, Ingþór, missti hún 27. apríl 1992. Þann sama dag þurfti hún að yfirgefa heimili sitt vegna sjúkleika. Hún fluttist inn á Borgar- spítalann og þaðan á Hjúkmnar- heimilið Skjól. Ég vil þakka fyrir alla hjálp sem hún fékk á báðum þessum stöðum. Mamma var mikill náttúmunnandi, þekkti allar íslenskar jurtir og var mikil blómakona. Hún þekkti einnig alla íslensku fúglana. Hún hafði mik- inn áhuga á ættfræði. Mamma átti einn stjúpson, Svavar Benediktsson hljómlistarmann, f. 20. maí 1912, d. 3. ágúst 1977. Hann reyndist stjúpmóður sinni mjög vel. Eg kveð mína elskulegu móður með þökk og virðingu. Ég kveð hana með ljóðlínum sem hún fór alltaf með síð- ustu lífdaga sína. Tíminn líður, trúðu mér, takþú maður vara á þér. Heimurinn ersem hálfhað gler, hugsaðu um hvað á eftir fer. Ingþór, maður mömmu, var fæddur að Kambshóli í V-Húnavatnssýslu. Foreldrar hans vom Sigurlaug Níels- dóttir og Sigurbjöm Bjömsson. Þau bjuggu á Geitlandi í V-Húnavatns- sýslu. Ég er ekki nógu vel að mér til að geta rakið ættir hans frekar. Ingþór var afskaplega góður maður og reyndist móður minni mjög vel, svo og allri fjölskyldunni. Hann vildi allt fyrir alla gera og eitt helsta áhugamál hans í þessu lífi var að hjálpa bömum í Póllandi. Bæði mamma og Ingþór pökkuðu niður fötum og ýmsu dóti og sendu bág- stöddu fólki í Póllandi. Þetta starf átti allan hug Ingþórs síðustu ár hans. Ingþór átti fjóra bræður, einn bróð- urinn missti hann ungan. Hann missti móður sína bam að aldri og syrgði hana alla tíð. Ingþór reyndist föður sínum mjög vel og skrifaði mjög fallega um hann á dánardegi og orti til hans fallegt ljóð. Ingþór var mikill hagyrðingur og eftir hann liggja ófáar stökur og kvæði. Hann var skemmtilegur maður á gleði- stundum og var alltaf tilbúinn með vísur handa hverjum og einum. Hann varð heiðursfélagi f Kvæðamannafé- laginu, svo og í Félagi málarameist- ara. Ég kveð hjónin á Kambsvegi 3 með bæninni hans Ingþórs: Af öllum mœtti óska minna, alvaldi Faðir, krýp égþér og bið þú nauðum látir linna, líknandi þeim sem villtur er. Styð þann veika vermandi höndum, veit honum lausn úr ánauðarböndum. (ingþór Sígurfijönuson) í trú, von og kærleika. Ykkar Unnur Ragna Benediktsdóttir Okkur hjónin langar að minnast föð- ursystur minnar og eiginmanns hennar, Ingþórs Sigurbjömssonar málarameistara, Kambsvegi 3, sem bæði em látin, og þakka fyrir löng kynni og yndislegar samverustundir. Það var alltaf gaman að koma í heim- sókn til þeirra hjóna, bæði á Selfossi og í Reykjavík. Una frænka var alveg sérstök kona, bráðvelgefin og skemmtileg og hafði svör á reiðum höndum í daglega líf- inu. Una og Ingþór vom bæði mjög listræn. Una málaði mikið á postulín, sem hún gaf bömum sínum og vin- um, og Ingþór skrifaði skrautskrift og orti vísur við öll tækifæri og var mjög skemmtilegur í vinahópi. Una og Ingþór vom mjög samrýmd. Þau höfðu gaman af að ferðast um landið, þekktu flesta sveitabæi sem keyrt var fram hjá og alla íslensku fuglana okkar. Þau vom bæði miklir dýravinir og höfðu yndi af allri úti- vem. Við kveðjum okkar góðu vini og ósk- um þeim góðrar ferðar á nýjum leið- um. Megi þau góðu hjón hvíla í Guðs friði. Axel R. Kristjánsson og Ágústa Sigurðardóttir

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.