Tíminn - 10.09.1993, Blaðsíða 7
Föstudagur 10. september 1993
Tíminn 7
■ II— .11— 1 1 1—!■ ——^■ .1 - w *•
Sharon Stone og William Baldwin f kvikmyndinni .Sliver".
SLIVER
Sllver ★ 1/2
Handrit: Joe Eszterhas. Byggt á sam-
nefndri skáldsögu Ira Levin.
Framlelðandl: Robert Evans.
Lelkstjóri: Phillip Noyce.
Aðalhlutverk: Sharon Stone, Wllllam
Baldwln, Tom Berenger, Martln
Landau og Colleen Camp.
Háskólabfó og Bfóhöllln.
Bðnnuð Innan 16 ára.
Það eru allt hæfir einstaklingar í
sínu fagi sem standa að baki Sliver,
en engu að síður veldur hún mikl-
um vonbrigðum. Nýjasta stór-
stjaman í Bandaríkjunum, Sharon
Stone, leikur hér í fyrstu mynd
sinni eftir hina geysivinsælu Ógn-
areðli, sem gerði hana að eftirsótt-
ustu leikkonunni í Hollywood.
Eins og í þeirri mynd fækkar hún
talsvert fötum hér og leikur í opin-
skáum kynlífssenum, en þær
höfðu þó eitthvað með söguþráð-
inn að gera í fyrri myndinni. Hér
eru þær ekkert annað en sölu-
brella sem koma fléttunni í sög-
unni ekkert við. Það er fátt jafn
ömurlegt á að horfa í kvikmynd-
um eins og þegar kynlíf og ofbeldi
er notað án þess að það hafi nokk-
urra merkingu eða þýðingu í
framvindu þeirra.
Sharon Stone leikur Carly Norris
sem í byrjun myndarinnar flytur
inn í íbúðarhús þar sem morðingi
gengur laus og flytur hún inn í
íbúð þar sem kona hafði verið
myrt stuttu áður. Hún kynnist
tveimur karlmönnum sem búa í
húsinu og báðir verða hrifnir af
henni. Annar er Jack Landsford
(Berenger), útbrunninn rithöf-
undur, en hinn er eigandi hússins,
Zeke Hawkins (Baldwin). Náin
kynni takast með Carly og Zeke,
en Jack situr eftir með sárt ennið.
Fleiri íbúar hússins deyja við
skuggalegar aðstæður og svo fer
að Carly fer að gruna þá Jack og
Zeke báða, en við eftirgrennslan
benda þeir hvor á annan.
Þetta er alls ekki slæm hugmynd
og vissulega hefði verið hægt að
vinna betur úr henni og gera
slarkfæra spennumynd. Gallinn
við Sliver er aðallega sá að hún er
aldrei spennandi nema síðustu
mínútumar. Uppbygging spenn-
unnar er lafhæg og fyllt er upp í
með löngum og tilgerðarlegum
kynlífssenum sem eins og áður
sagði koma fléttunni í sögunni
ekkert við. Leikstjórinn, Phillip
Noyce, sem áður hefur gert Patriot
Games og Dead Calm, hinar ágæt-
ustu spennumyndir, veldur mikl-
um vonbrigðum og það er vonandi
að hann komi ekki nálægt svona
lágkúrumyndum aftur, því það er
meira í hann spunnið en þetta
verk gefur til kynna. Það er fleira
hæfileikafólk sem tók þátt í gerð
Sliver, en virðist hafa verið eitt-
hvað annars hugar. Joe Eszterhas,
handritshöfundur Ógnareðlis, nær
engan veginn að gera ágætum
reyfara Ira Levin góð skil, en hann
á fátt sameiginlegt með myndinni,
og tónlist Howards Shore er væg-
ast sagt froðukennd.
Leikararnir standa sig í sjálfu sér
ekkert illa og eru í raun það skásta
við myndina. Sharon Stone leikur
Carly ágætlega, en er þó ekki jafn
eftirminnileg og í ógnareðli.
William Baldwin og Tom Berenger
standa sig báðir þokkalega, en
leikurunum er vissulega vorkunn,
því persónur myndarinnar eru lítt
krassandi og bjóða e.Lv. ekki upp á
neinn stórleik.
örn Markússon
í skotlínu
ln the Llne of Flre ★★★ 1/2
Handrit: Jeff Maguire.
Framlelöandi: Jeff Apple.
Lelkstjóri: Wolfgang Petersen.
Aðalhlutverk: Cllnt Eastwood, John
Malkovich, Rene Russo, Dylan McDer-
mott, Fred Dalton Thompson, Gary
Cole og John Mahoney.
Stjömubló.
Bönnuö Innan 16 ára.
Harðjaxlinn Clint Eastwood leik-
ur hér nokkuð hefðbundna per-
sónu á ferli sínum, þótt ekki sé
hann lögga heldur í lífvarðasveit
forseta Bandaríkjanna. Það örlar
þó aðeins á mýkt f fari hans hér, en
það er langt frá því að þetta mikla
vígi hins harða karlmanns sýni
eitthvert veiklyndi. Það verður
kaldur dagur í helvíti þegar það
gerist
Leikstjórinn, Wolfgang Petersen,
hefur átt litlu láni að fagna síðan
hann gerði hina rómuðu spennu-
mynd Das Boot en eins og nafn
hans gefur til kynna er hann Þjóð-
verji, sem hefur starfað í Banda-
ríkjunum um nokkurt skeið, en
ekki náð verulegri hylli. Það er því
örugglega gaman hjá honum
þessa dagana, því f skotlínu er ein
af vinsælustu myndum ársins í
heiminum, enda mjög vel heppn-
uð spennumynd.
Frank Horrigan (Eastwood) er
' leyniþjónustumaður í eldri kant-
inum, sem var í lífverði Johns F.
Kennedy örlagaríkan dag nokkum
í Dallas. Samviskan hefur nagað
hann alla daga síðan, því hann tel-
ur sig hafa haft færi á að bjarga
forsetanum látna. Hann dregst aft-
ur inn í lífvarðarstarfið 25 árum
seinna þegar kaldrifjaður náungi,
sem kallar sig Booth (Malkovich),
gerir Horrigan viðvart um áætlan-
ir sínar um að myrða forsetann.
Litið er á málið í fyrstu sem aðeins
eina af 1400 morðhótunum sem
forsetinn fær á ári hverju, en fljót-
lega kemur í ljós að Booth er al-
vara um að feta í fótspor nafna
síns, sem myrti Abraham Lincoln.
Horrigan fer aftur í lífvarðasveit
forsetans og spurningin er hvort
hann nær í þetta skiptið að bjarga
honum, en Booth hringir alltaf
öðru hverju og rabbar um daginn í
Dallas um árið.
Það er mikið lagt í þetta verk, Ld.
er mikið um stór hópatriði þegar
forsetinn er á kosningaferðalagi,
en Booth hyggst einmitt láta til
skarar skríða á meðan á því stend-
ur. Öll umgjörð er mjög trúverðug
og greinilegt að handritshöfund-
urinn, Jeff Maguire, hefúr unnið
heimavinnuna sína vel hvað varð-
ar störf lífvarðanna. Myndin er
verulega spennandi og aldrei lang-
dregin, þótt vissulega hefði verið
hægt að gera hana hraðari, en Pet-
ersen tekur góðan tíma í að kynna
persónur til leiks, sem gerir mynd-
ina betri þegar upp er staðið. Það
er hins vegar frekar hvimleitt að
endilega hafi þurft að troða inn
ástarsambandi milli Horrigans og
annars lífvarðar, sem Rene Russo
leikur. Þótt Eastwood sé mikið
karlmenni, þá er hann aðeins far-
inn að eldast kallinn og ástarsam-
band við fallega og unga konu er
ekki sérlega trúverðugt. En af því
að þetta er nú einu sinni Eastwood
þá fyrirgefst þessi klisja í handrit-
inu.
Leikhópurinn er góður og Clint
Eastwood verður sífellt betri leik-
ari með aldrinum, en hann er
þaulvanur að leika persónur eins
og Frank Horrigan. Senuþjófurinn
er að sjálfsögðu John Malkovich,
sem kemur ekki á óvart, því þess-
um frábæra leikara virðist sjaldan
eða aldrei fatast flugið og skapar
hér mjög eftirminnilegt og kald-
lynt illmenni. Rene Russo (Lethal
Weapon 3) leikur fastan lið eins og
venjulega, gallharðan kvenmann
að berjast f miðju karlaveldinu, og
gerir það ágætlega. Dylan McDer-
mott kemur skemmtilega á óvart í
hlutverki félaga Horrigans og sýn-
ir ágætan leik, en það hefur hann
ekki sést gera áður að mér vitandi.
í skotlínu er afbragðs afþreying
og boðar vonandi endurkomu
Wolfgangs Petersen í hóp betri
leikstjóra spennumvnda.
Orn Markússon
Landsþing LFK
S. Landsþing Landssambands framsóknarkvenna veröur haldið 8.-10. okt. nk.
á Hailoimsstað og hefst aö kvöldi þess 8.
Framkvæfndastjóm LFK
Framsóknarkonur Kópavogi
Aöalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna I Kópavogi, veröur haldinn miö-
vikudaginn 22. september kl. 20.30 aö Digranesvegi 12.
Venjuleg aöalfundarstörf. Dagskrá fundarins veröur nánar auglýst slöar.
Stjómki
Eftirlaunasjóður Slát-
urfélags Suðurlands
tilkynnir almennan
sjóðfélagafund
Haldinn verður almennur sjóðfélagafundur í Eft-
irlaunasjóði Sláturfélags Suðurlands föstudag-
inn 17. september 1993 kl. 17:00 í mötuneyti
SS að Fosshálsi 1, Reykjavík (gengið inn frá
Draghálsi).
Fundarefni er tillögur til breytinga á reglugerð
sjóðsins.
Breytingartillögurnar fela í sér:
a. Að sjóðstjórn verði heimilað að lengja
greiðslutíma makalífeyris við sérstakar að-
stæður.
b. Að sett verði sérstakt gildistökuákvæði vegna
endurútreiknings á lífeyri til handa lífeyris-
þegum samkvæmt breytingu á reglugerðinni
frá 4. júní sl.
Nánari upplýsingar um breytingartillögur þessar
eru veittar á skrifstofu sjóðsins að Fosshálsi 1,
Reykjavík, s: 677800.
Stjórnin
VINNU- OG DVALARHEIMILI
SJÁLFSBJARGAR
Vinnu- og dvalar-
heimili Sjálfsbjargar
óskar eftir að ráða sjúkraliða sem fyrst.
Um er að ræða 100% starf og hlutastarf.
Upplýsingar gefur Guðrún Erla Gunnarsdóttir hjúkrunar-
forstjóri, í síma 29133.
Leikskólastjóri
Leikskólastjóri óskast við leikskólann Brekkubæ,
Vopnafirði.
Um er að ræða nýjan og velbúinn leikskóla. Við leik-
skólann eru sex stöðugildi og starfar þar ein fóstra auk
leikskólastjóra. í leikskólanum eru nú um 69 böm.
Umsóknir skal senda á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps,
Hamrahlíð 15, Vopnafirði.
Upplýsingar gefur sveitarstjóri í síma 97-31122.
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum f blaðinu, er bent á, að þær þurfa
að berast a.ra.k. tveiraur dögum fyrir birtingardag.
Þœrþurfa aö vera vélritaöar.