Tíminn - 10.09.1993, Page 12
Áskriftarsími Tímans er 686300 NÝTTOG ^ FERSKT
Xý | reiðholtsbakarí VÖLVUFELLI 13-SlMI 73655
labriel
' ff HÖGG-
DEYFAR
Versliö hjá fagmönnum
QVarahlutir
Hamarshöfða 1
TimiiÍL
FÖSTUDAGUR 10. SEPT. 1993
Skiptar skoðanir meðal sveitarstjórnarmanna um tillögu umdæmis-
nefndar sveitarfélaga á Suðurlandi um sameiningu sveitarfélaga:
Sveitarfélögum
fækkað úr 29 í 6
Umdæmisnefnd sveitarfélaga á
Suðuriandi leggur til að sveitarfé-
lög á svæðinu verði aðeins sex í
stað tuttugu og níu. Steingrímur
Ingvarsson, formaður umdæma-
nefndarinnar, segir að skiptar skoð-
anir séu meðal sveitarstjómar-
manna tun þessa tillögu. Hann seg-
ir að framundan sé mikið verk við
að kynna þessa tillögu fyrir íbúum á
svæðinu, en kosið verður um sam-
einingu sveitarfélaga þann 20. nóv-
ember n.k.
Einn nefndarmanna í umdæmis-
nefndinni, Guðjón Ólafsson, skilaði
séráliti um Rangárvallaýslu en hann
er andvígur jafn stórtækri samein-
ingu og nefndin leggur til að þar
verði gerð.
Samkvæmt tillögum umdæma-
nefndarinnar er lagt til að tvö sveit-
arfélög verði áfram í Vestur-Skafta-
fellsýslu, Skaftárhreppur og Mýr-
dalshreppur og helgast það fyrst og
fremst af landfræðilegum ástæðum.
í Arnessýslu er lagt til að átta hrepp-
ar í uppsveitum sýslunnar verði
sameinaðir í einn og sveitarhreppar
í Flóanum og þéttbýlisstaðimiráÁr-
borgarsvæðinu sameinist í eitt sveit-
arfélag.
Ef þessar tillögur nefndarinnar
verða samþykktar í komandi kosn-
ingum verða Ölfusshreppur, Hvera-
gerði, Selfoss, Sandvíkurhreppur,
Eyrarbakka-, Stokkseyrar-, Gaul-
verjarbæjar-, Villingaholts- og
Hraungerðishreppur sameinaðir í
eitt sveitarfélag með tæplega 9 þús-
und íbúa. Við sameiningu Skeiða-
hrepps, Gnúpverja-, Hrunamanna-,
Biskupstungna-, Laugardals-,
Grímsnes-, Þingvalla- og Grafnings-
hrepps í eitt sveitarfélag, verður
íbúatala þess eitthvað um 2300
manns.
í Rangárvallasýslu er lagt til að
sveitarfélögin verði tvö. Djúpár-
hreppur, Ása- og Rangárvallahrepp-
ur auk Holta- og Landsveitar verði
eitt sveitarfélag með rúmlega 1500
íbúa. Eilítið fjölmennari verður svo
sveitarfélagið sem verður til við
sameiningu Hvols-, Fljótshlíðar-,
Vestur-Landeyja-, Austur-Landeyja-,
Vestur-Eyjaljalla- og Austur- Eyja-
fjallahreppa, með ríflega 1700 íbúa.
-grii
Á biskupsstofu trúa menn ekki spádómum nýaldar-
manna um að geimbúar lendi á Snæfellsjökli:
„Þetta er eins og
hvert annað
rugl
„Ég held að þetta geimferðatal allt saman sé ekki neitt sem hægt
sé að halda fram að kalli á einhver sérstök viöbrögð kirkjunnar
manna, heldur miklu frekar viðbrögð almennrar heilbrígðrar skyn-
seml. Almenn heilbrígð skynsemi hlýtur að álykta að þetta sé eins
og hvert annað rugl.“
Þetta segir Þorbjöm Hlynur Áma-
son biskupsritari um fullyrðingar
nýaldarsinna um komu geimvera á
Snæfellsjökul í byrjun nóvember
og bannfæringu hvítasunnumanna
á þessum meintu fyrirbrigðum í
kjölfarið. En kallar það ekki á við-
brögð kirkjunnar þegar geimvemr
em skilgreindar sem útsendarar
satans eins og Snorri Óskarsson,
safnaðarhirðir Betel í Vestmanna-
eyjum, gerði fyrir sína hönd og
sinna trúbræðra, undir formerkj-
um kristinnar trúar í Tímanum í
gær?
„Þama er nú bara hvítasunnumað-
ur að tala, sem hefur fullt frelsi til
að segja það sem honum sýnist. Það
snertir okkur lúterska menn ekk-
ert. Hann hefúr bara sínar skoðanir
og það er allt í lagi með það.“
-Nú em nýaldarsinnar og trúar-
hópar eins og hvítasunnumenn og
fleiri áberandi og hafa gert sig í
auknum mæli gildandi í umræð-
unni. Hefur kirkjan staðið sig í eig-
in markaðssetningu í ljósi þessa?
„Ég held að það sé stórlega orðum
aukið að það sé um einhvem mik-
inn uppgang svokallaðra sértrúar-
hópa að ræða. En það ber meira á
þeim, það er rétt. Það er vegna þess
að eðli fjölmiðla á íslandi hefur
breyst." - ÁG
Walter Matthau og Mason Gambe í hlutverkum Wilsons gamla og Denna f
félagsskap hundsins Ruff.
Denni dæmalausi
á hvíta tjaldinu
Denni dæmalausi er ein vinsælasta
teiknimyndapersóna sem litið hefur
dagsins ljós, en hann hefur m.a. ver-
ið fastagestur á síðum Tímans í ára-
tugi. Nú gefst landsmönnum kostur
á að kynnast þessum sex ára gamla
prakkara á hvíta tjaldinu, en Wamer
Bros. senda nú frá sér nýja leikna
mynd um Denna.
Álmenn frumsýning var í tveimur
Sambíóanna f gærkvöldi, Bíóborg-
inni og Saga-bíó. Myndin hefur
fengið góða dóma gagnrýnenda.
Með aðalhlutverk fara: Walter Matt-
hau, sem fer með hlutverk Georege
Wilsons, Mason Gamble, sem leikur
Denna sjálfan, en með hlutverk for-
eldranna, Henry og Alice, fara Ro-
bert Stanton og Lea Thompson.
-ÁG
Aðaltölur:
Ltm
Vinningstölur ,------------
miövikudaqinn: 8. sept.1993
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
El 63,6 1 / á Islandi 0 37.900.000.-
E7| 5 af 6 Lffl+bónus 0 446.743.-
fcl 5 af 6 4 87.753.-
0 4af6 303 1.843.-
ra 3 af 6 t*J+bónus 1.117 217,-
3 5 28
(29)(38)(40)
BÓNUSTÖLUR
(26) (32) (36)
Heildarupphæð þessa viku:
39.498.573.-
á Isl.
1.598.573.-
UPPLYSINGAR, SÍMSVARI91- 68 15 11
LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEO FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
...ERLENDAR FRÉTTIR...
TÚNIS — Israel og PLO samþykktu I
gær aö viöurkenna tilverurétt hvort
annars og greiddu þar með leiöina aö
friöarsamningi milli erkióvinanna I
Austurlöndum nær eftir fjögurra ára-
tuga fjandskap. I PARfS staöfesti
ráöuneytisstjóri israelska utanríkis-
ráöuneytisins, Uri Savir, aö timamóta-
samningurinn um gagnkvæma viöur-
kenningu væri I höfn og yröi nú send-
urtil Túnis og Jerúsalem til undirskrift-
ar.
METULLA, Israel/ZEMRAYA, Lfban-
on — Tveir langferöabilar með, þá
fyrstu af nærri 200 brottreknum PaÞ
estlnumönnum sem Israelar hafa leyft
aö snúa aftur, fóru yfir landamærin frá
Sýriandi til Israel aö sögn sjónarvotta.
DAMASKUS — Andófehópar Palest-
Inumanna ieita nú leiöa til aö valda
friöarsamkomulagi Jassirs Arafat og
Israela skaöa og aö koma fram með
annan valkost en PLO, sagöi róttækur
förystumaöur Palestinumanna.
JÓHANNESARBORG — Byssumenn
létu skothriö úr sjálfvirkum skotvopn-
um rigna yfir bila I grennd viö Katle-
hong-bæ austan viö Jóhannesarborg
I gær. Tveir blökkumenn féllu og var
þar með tala látinna i pólitfskum of-
beldisverkum næturinnar komin uþþ I
25. Lögregla sagöi aö með siöustu at-
buröum væri komin upp i næstum
150 tala þeirra sem drepnir hafa veriö
eftir friöardag I slöustu viku þegar
Suöur-Afrikumenn af öllum kynþáttum
lögöust á bæn og báöu fyrir endalok-
um ofbeldisverka.
JÓHANNESARBORG — Afrlska
þjóöarráöiö hefur sagt aö þaö muni
krefjast þess að þeim refeiaögeröum
sem enn ern I gildi fyrir Suöur- Afrlku
og komiö var á á tfmum kynþáttaaö-
skilnaöar veröi aflétt ekki siöar en um
næstu mánaöamóL ICANBERRA
sagöi ástralski utanrikisráðherrann
Gareth Evans aö Samveldisþjóöimar
kunni aö aflétta viöskiptabanni á S.-
Afriku innan tveggja vikna og hraöa
þvf að efnahagslegar refeiaögeröir
veröi felldar úr gildi.
SARAJEVO — Hemnenn múslima
leituöu f gær hælis hjá breskum sveit-
um S.þ. eftir aö þeir töpuöu land-
svæöi I miöhluta Bosnlu I höröum
bardögum viö Króata, aö þvl er tals-
maöur S.þ. sagöi. Vamariiö Króata
var sagt hafa náö á sitt vald hemaöar-
lega mikilvægum fjallshrygg á svæö-
inu og þorpunum Grbavica og Divjak I
sóknaraögeröunum.
BELGRAD — Eldar, sem álitiö er aö
róttækir Serbar hafi kveikt, brenndu til
grunna a.m.k. tvær moskur I höfuövlgi
þjóöemissinnaðra Serba i Bosniu,
Banja Luka, aö sögn embættismanns
Alþjóöa Rauöa krossins.
ZAGREB — Yfirmaöur liös S.þ. I fyrr-
um Júgóslavíu fagnaöi loforöi Bills
Clinton Bandarikjaforseta um aö
senda bandaríska hermenn til Bosniu
en vildi ekki segja neitt um hvemig yf-
irstjóminni yröi hagaö framvegis.
KIEV — Forsætisráðherra Úkrafnu,
Leónid Kutsma, lagöi fram afeögn
sina f gær og sagöist ekki geta starf-
aö lengur undir árásum á tilraunir
hans til að koma á markaðsumbótum.
Þá hóf Leónid Kravtsjúk forseti at-
höfn til minningar um hungursneyöina
i Úkralnu á flóröa áratugnum og sagði
hana hafa veriö úthugsaöa tilraun yflr-
valda i Moskvu til aö gereyða úkra-
Insku þjóöinni. En hann varöi sljóm
slna gagnvart ásökunum um aö anr>-
ar efnahagslegur harmleikur heföi
orðiö til viö efnahagslegt hrap Úkrainu
viö hmn Sovétrlkjanna.
AÞENA — I Grikklandi veröur fyrir-
varalitiö aö efna til kosninga i október
eftir aö fjölmargir Ihaldssamir þing-
menn geröu uppreisn og sögöu skiliö
við Konstantin Mitsotakis forsætisráö-
herra. Uppreisnarmennimir segja for-
sætisráðherrann stefna landinu i
þjóöarógæfu.
DENNI DÆMALAUSI
„Ég er bara að plata Denni. Þú skemmdir þetta ekki. Þetta
er púsluspil."