Tíminn - 16.09.1993, Page 2

Tíminn - 16.09.1993, Page 2
2 Tíminn Fimmtudagur 16. september 1993 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um 400 milljóna heilsukortaskatt heilbrigðisráðherra: Skelfilega óréttlát- ur sjúklingaskattur „Þetta er ekkert annað en nefskattur og skelfilega óréttlátur sjúk- lingaskattur," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem sæti á í heil- brigöisnefnd Alþingis um þann 2.000 kr. aögöngumiöa sem fólki veröur gert að kaupa aö heilbrigðiskerfinu á næsta ári samkvæmt fjárlagatillögu heilbrigðisráðherra. „Þessi sjúklingaskattur er skelfi- lega óréttíátur. I rauninni er þetta einhver yfirbreiðsla að hafa þennan háttinn á. Þetta þýðir það að við þurfum öll að borga þennan 2.000 kr. skatt burtséð frá tekjum og hvort sem við erum tekjulág eða tekjuhá eigum við öll að borga jafnt. Þetta er í andstöðu við þá grund- vallarreglu sem hefur verið við skattlagningu að þeir greiði mest sem mest hafi,“ segir Ingibjörg. „Það er engin spurning fyrir fólk að það hlýtur að margborga sig fyrir það að borga þessar 2.000 kr. og þurfa þá ekki að greiða þessa þjón- ustu hillu verði þegar það þarf að nota hana,“ segir Ingibjörg. „Það hefur enginn á móti því að spara í heilbrigðiskerfinu sé það hægt,“ segir Ingibjörg sem finnst árangursríkara að skera frekar nið- ur en upp eins og hún orðar það. Þar á hún við að finna matarholur þar sem illa er farið með fé. „Ég get alls ekki sætt mig við að skattlagn- ing hjá ríkinu komi jafnt niður á fólki án tillits til tekna,“ segir Ingi- björg. Þá veltir hún fyrir sér því siðferði- lega vandamáli sem starfsfólk sjúkrastofnana stendur frammi fyr- ir. „Getur það neitað einhverjum um þjónustu vegna þess að hann hafi ekki borgað eða getur það ekki gert slíkt?" spyr Ingibjörg. Ríkislögmaður segir gildar ástæður fyrir því að hann geti ekki gefið utanríkisráðherra álit í skinkumálinu: Itarlegar skýringar í bréfi til ráðherrans Gunnlaugur Classen ríkislögmaður segir að gildar ástæður séu fyrír því hvers vegna hann geti ekki oröið við eríndi Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra um álit á lögmæti innflutnings Hagkaups á skinku til landsins. Hann segir að þessar skýringar komi fram í ítarlegu máli í bréfi sem hann sendi utanríkisráðherra í fyrrakvöld. „Þetta bréf mitt inniheldur ítar- legar skýringar á því hvers vegna ég get ekki orðið við þessu erindi. Þær skýringar eru mun ítarlegri en þær sem komið hafa fram. Það er langeðlilegast að ráðherrann geri grein fyrir þeim.“ sagði Gunnlaug- ur. Jón Baldvin sagði í samtali við Ríkisútvarpið í gær að svo virtist sem embætti ríkislögmanns væri með öllu óþarft. Það væri hlutverk embættisins að skera úr þegar upp kæmu lögfræðileg álitamál. Ef embættið gæti ekki sinnt þessu hlutverki væri það óþarft. Jón Bald- vin sagði ennfremur að fjórir hæstaréttarlögmenn störíuðu hjá embættinu og reksturskostnaður þess væri 20 milljónir á ári. Þessa upphæð mætti spara. Gunnlaugur Classen vildi ekki tjá sig um þessi ummæli ráðherrans. -EÓ Endumýjuö kynnl af Kllnke slnnepsframlelðenda, vlnum hans og vandamönnum, ættu að vekja sömu vlðbrögð áhorfenda og löngum áður; óbærilega skemmtun og óstöðvandi hlátur. Spanskflugan í Borgarleikhúsinu: GRÆSKULAUS OG SÍ- GILDUR GAMANLEIKUR Gamall kunningi leikhúsgesta, gamanleikurinn Spanskflugan eftir þá Amold og Bach, verður frum- sýndur í Borgarleikhúsinu þann 17. september í leikstjóm Guðrúnar Ás- mundsdóttur. Leikritið hefur verið reglulega á fjölum Leikfélags Reykjavíkur allt frá því það var fyrst frumsýnt hér- lendis árið 1926. Hér er á ferðinni græskulaus sígildur gamanleikur misskilnings, blekkinga og undan- bragða. í hlutverki Klinke sinnepsframleið- enda er enginn annar en Bessi Bjarnason en hans góðu konu leikur Helga Þ. Stephensen. Aðrir leikend- ur eru þau Edda Heiðrún Backman, Karl Guðmundsson, Guðmundur Ólafsson, Valdimar Öm Flygenring, Marinó Þorsteinsson, Guðrún Mar- inósdóttir, Þorsteinn Guðmunds- son, Sofffa Jakobsdóttir, Ragnheiður Elfa Amardóttir, Theodór Júlíusson og Valgerður Dan. Þriggja manna hljómsveit undir stjóm Carls Möller annast undirleik söngva. Leikmynd hannaði Steinþór Sigurðsson en Þómnn Sveinsdóttir búninga. Guðrún Jóhannesdóttir samdi dansa en um lýsingu sér Ög- mundur Þór Jóhannesson. -grh llllllll I % * * ■%. # # t' Dr. Svelnbjöm Glzurarson lyQafræðlngur með frosk (höndunum sem hann notar vlð tllraunlr slnar. Tfmamynd Áma Bjama íslenskur vísindamaður flytur inn 60 froska til rannsókna og hyggst þróa nýja aðferð við bólusetningu gegnum nef sem Mun útrýma sprautunni Það þarf að færa fómir í þágu vís- indanna og það munu um sextíu froskar, sem komu til landsins í gær, fá að reyna. Dr Sveinbjöm Gizurarson lyfjafræðingur hyggst nota þá við rannsóknir en hann vinnur ásamt aðila í Kaupmanna- höfri að því að þróa nýja aðferð við bólusetningu sem ef vel gengur mun útrýma hefðbundinni bólu- setningu með sprautu. Aðferðin felst í því að úða bóluefni í nef en það á að vemda fólk betur gegn smitun en þegar bólefni er spraut- að eins og algengast er. Um ávinning þess að nota frekar nefúða en sprautu til bólusetning- ar segir Sveinbjöm, sem hefur yf- irumsjón með þessu verkefni fyrir fyrirtækið Lyfjaþróun hf.: „Bakter- ía eða veira er gripin á slímhimn- unni sjálfri áður en hún nær að smita og engin mótefni hafa myndast. Þessi áhrif fást ekki með sprautu því þá myndast mikið magn af móteftium í blóðinu." Hann segir að það sé mikilvægt að fá vemdun á slímhimnuna sjálfa þannig að bakterían sé drep- in þar og það sé því betri vemdun en fáist með bólusetningu með sprautu. Máli sínu til stuðnings nefhir hann sem dæmi nokkuð árvissa bólusetningu gegn innflúensu. Sveinbjörn segir að þeir sem myndi mótefni féi við það væga flensu án þess að verða þess varir. Hann segir að væri nefúðaaðferð- inni beitt yrði aldrei um sjúkdóm að ræða þar sem veiran er drepin áður en hún kemst í blóðið. Hann segir að þegar sé byrjað að gefa bóluefni á annan hátt en með sprautum og nefnir sem dæmi að bömum sé stundum gefið bóluefni með því að láta þau sjúga það úr sykurmola. Sveinbjörn sér þó þann ókost við inngjöf á bóluefni að maginn hleypi helst engu í gegn. Sveinbjörn hefur unnið að þess- um rannsóknum í tvö ár í sam- vinnu við aðila í Kaupmannahöfn sem ásamt Rannsóknarráði ríkis- ins stendur straum af öllum kostn- aði. Hann segir að þó að tilraunir á dýmm lofi góðu þurfi að mörgu að hyggja áður en aðferðin sé gjald- geng á mönnum. „Það má gera ráð fyrir að frá því byrjað er og þar til þetta sést á markaði líði milli sjö og tíu ár,“ segir Sveinbjöm og tel- ur þennan tíma algengan við rann- sóknir og þróun af svipuðu tagi. Sveinbjöm segir að lyf sem eigi að fara í öndunarfæri megi ekki hafa áhrif á hreinsunarhæfni bifhára þeirra. „Þegar verið er að þróa eitt- hvað sem á að fara í öndunarfærin er mikilvægt að tryggja það að þetta hafi engin skaðleg áhrif á mikilvæga starfsemi þeirra," bætir hann við. Hann segir að hagkvæmt sé að nota froska í þessar rannsóknir þar sem þeir hafi bifhár í gómi og hægt sé að fylgjast með áhrifum efnanna í gegnum stækkunargler þ.e. hvemig bifhárin hreinsi sig eftir að bóluefnum sé úðað á þau. „Hafi eitthvert lyf slæm áhrif á bifhárin sést það strax,“ bætir Sveinbjöm við. „Áður en gerðar em tilraunir á fólki verður að vera búið að tryggja það að það sé ekkert sem getur skaðað þá sem taka þátt í slíkri til- raun,“ segir Sveinbjöm og vísar til rannsóknanna á froskunum sem em undanfari frekari rannsókna á fólki. Sveinbjörn býst við niðurstöðum úr rannsóknunum á froskunum eftir að minnsta kosti tvo mánuði, gangi allt vel. Þar með lýkur ævi froskanna því samkvæmt íslensk- um reglum verður að eyða þeim. -HÞ ASÍ mót- mælir heilsu- kortum Miðstjóm Alþýðusambands fslands mótmælir harðlega öllum áformum ríkisstjómarinnar um að selja að- gang að heilbrigðiskerfi lands- manna. í ályktun frá miðstjóminni segir að gjaldtaka með þessum hætti bitni þyngst á þeim sem minnst mega sín. Kostnaði í heilbrigðiskerf- inu verði að mæta með almennri skattheimtu. -EÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.