Tíminn - 16.09.1993, Side 12
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NYTT OG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELL113-SlMI 73655
^aHabriei
HÖGG-
DEYFAR
Versliö hjá fagmönnum
GJvarahlutir
Hamarshöfða 1
Iíniiiin
FIMMTUDAGUR 16. SEPT. 1993
Guðmundur Ámi fær
greidd 6 mánaða biðlaun:
Með sex hundruð
þúsund á mánuði
Guðmundur Ámi Stefánsson
heilbrigðisráðherra er á launum
hjá Hafnarfjarðarbæ til næstu
áramóta, en hann hætti sem
kunnugt er sem bæjarstjóri
HafnarQarðar á miðju þessu ári.
Þetta er samkvæmt samningi,
sem gerður var við Guðmund
Áma fyrir sjö árum og kveður á
um biðlaun í sex mánuði, þegar
hann hverfur úr embætti.
Biðlaunin, sem Guömundur
Ámi fær, em um 285 þúsund á
mánuði, en ráðherralaunin em
um 280 þúsund. Samkvæmt
þessu em heildarlaun hans um
565 þósund á mánuði. Þessar
upplýsingar koma fram f frétt í
DV í gær. t>á em ótalin iaun sem
Guðmundur fær fýrir að sitja í
bæjarstjóm Hafnarfjarðar, en
hann gegnir áfram störfum bæj-
arfulltrúa.
Ingvar Viktorsson, bæjarstjóri í
Hafharfirði, sagði f samtali við
Tfmann að greiðsla biðlauna til
Guðmundar Áma hafi ekki kom-
ið inn á borð til sín, enda sé hér
um samningsbundin laun að
ræða.
Þegar Ingvar settíst f stól bæj-
arstjóra í sumar, var gerður við
hann samningur. Ingvar óskaði
eftir að biðiaunaréttur hans yrði
styttur í þrjá mánuði. „Þessi
samningur er til einungis tíu
mánaða og þar sem ég er í launa-
lausu leyfi frá skólanum, fannst
mér engm ástæða til að ég væri á
sex mánaða biðlaunum fyrir tíu
mánaða vinnu. Ég óskaði því eft-
ir að þetta yrðu bara þriggja
mánaða biðlaun þangað til ég
færi f kennsluna aftur. Ég ætla
hins vegar ekkert í kennsluna
aftur næsta haust, því ég ætla
mér að vera áfram bæjarstjóri
eftiv næstu kosningar," sagði
Ingvar.
Einn fulltrúi í tryggingaráði hefur efasemdir um hæfni Karls Steinars til að gegna starfi for-
stjóra Tryggingastofnunar:
TRYGGINGARÁÐ TELUR
5 UMSÆKJENDUR HÆFA
Meirihluti tryggingaráðs telur að fimm umsækjendur um stöðu
forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins séu vel hæfir til að gegna
stöðunni, en alls sóttu 13 um hana. Þetta eru Hilmar Björgvins-
son deildarstjóri, Jón Sæmundur Sigurjónsson hagfræðingur,
Karí Steinar Guðnason alþingismaður, Kristján Guðjónsson
deildarstjórí, og Pétur Blöndal tryggingastærðfræðingur.
Fulltrúi Kvennalistans í ráðinu
telur að Karl Steinar sé ekki í
hópi þeirra sem best uppfylla
skilyrði til að gegna forstjóra-
stöðunni.
Tryggingaráði ber lögum sam-
kvæmt að gefa heilbrigðisráð-
herra umsögn um umsóknir um
stöðu forstjóra TVyggingastofn-
unar. Heilbrigðisráðherra skipar
síðan í stöðuna og er hann ekki
bundinn af áliti tryggingaráðs.
Búist er við að ráðherra taki
ákvörðun í málinu fljótlega.
í umsögn tryggingaráðs til heil-
brigðisráðherra segir að ráðinu
hafi verið vandi á höndum, því
að engin sérstök skilyrði um
hæfni hafi verið sett við auglýs-
ingu stöðunnar og engin starfs-
lýsing sé til á embætti forstjóra.
Við umfjöllun um umsóknimar
lagði tryggingaráð áherslu á
menntun, starfsferil og reynslu,
stjórnun og félagsstörf, auk fleiri
atriða.
Tryggingaráð taldi þá fimm um-
sækjendur, sem áður eru nefnd-
ir, uppfylla best það mat sem
ráðið lagði til grundvallar í um-
fjöllun sinni. Sigríður Lillý Bald-
ursdóttir, fulltrúi Kvennalistans
í tryggingaráði, taldi að Karl
Steinar Guðnason og Hilmar
Björgvinsson væru ekki í hópi
þeirra sem uppfylltu best þessi
skilyrði. Hún taldi hins vegar að
Ólína Torfadóttir, eina konan í
hópi umsækjenda, uppfyllti
þetta skilyrði. -EÓ
Karl Steinar Guónason: Hæfur.
Hllmar BJörgvlnsson: Hæfur.
Kristján Guöjónsson: Hæfur.
Jón Sæmundur Slgurjónsson: Hæfur.
Pétur Blöndal: Hæfur.
...ERLENDAR FRÉTTIR...
JERÚSALEM — Jitzhak Rabin, for-
sætisráöherra Israels, beindi athygli
sinni aö Sýrlandi eftir komuna til Isra-
els I gær eftir aö hafa undirritaö fríöar-
samkomulag viö PLO og óvænta við-
komu I Marokkó.
JERÚSALEM — Palestlnskur byssu-
maöur var drepinn og þrir israelskir
hemnenn særöir I bardaga I bænum
Hebron á hemumda vesturbakkanum
á þriöjudag, aö þvl er israelski herínn
sagöi I gær. Hjá Sameinuöu þjóöurv
um ræddi formaöur PLO, Jassir Ara-
fat, aukiö hlutverk S.þ. á hemumdu
svæöunum sem innan tföar eiga aö
falla undir heimastjóm Palestlnu-
manna, á fundi með Boutros Boutros-
Ghali aöalrítara.
KAlRÓ — Muammar Gaddafi, leiötogi
Llbýu, h'itti tvo leiötoga Palestlnu-
manna sem eru andsnúnir friöar-
samningi PLO og Israels, sagöi I til-
kynningu hinnar opinberu libýsku
tféttastofu JANA I BAGDAD átti
Farouk Kaddoumi, yfirmaöur eríendra
málefna hjá PLO sem neitaöi aö und-
irrita samninginn viö fsrael á mánu-
dag, viöræöur viö háttsetta embættis-
menn I Irak, aö sögn dagblaöa I
Bagdad.
ZAGREB — Bardagar hjöönuöu þeg-
ar fríöargæsluiiöar Sameinuöu þjóö-
anna bjuggu sig undir aö koma fyrir
liöi á vfglínum Serba i suöurhluta
Króatiu, aö þvf sagt var (króatiska út-
varpinu I gær.
BANJA LUKA, Bosníu — Uppreisn-
arhermenn I næststærstu borg Bo-
snfu hafa boðiö leiötoga Serba, Rado-
van Karadzic, byrginn meö kröfu um
aö sjálfskipuö stjórn hans segi af sér
og kosningar fari hið fýrsta fram.
TBUSI, Georgiu — Þingiö í fynver-
andi sovétlýöveldinu Georgiu sam-
þykkti i gær aö fella niöur fundi f tvo
mánuöi til aö koma til móts viö kröfu
Eduards Shevardnadze, leiötoga Ge-
orgiu, og koma I veg fyrir aö hann
segi af sér.
GRANDVILLE, Frakklandl — Rót-
tækir franskir bændur settu uþþ veg-
artálma á þjóðvegum umhverfis Paris
(gær til að leggja áherslu á kröfu sina
um aö stjómin beiti neitunarvaldi gegn
viöskiptasamningi um landbúnaöar-
vörur milli Bandarikjanna og EB, sem
er lykilatriöi i GATT- samningi um
heimsviöskipti.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR — Llbýu-
menn sögöu I gær aö mennimir tveir,
sem sakaöir eru um aö sprengja upp
farþegaflugvél Pan Am yfir Lockerbie I
Skotlandi, gætu komiö fyrir rétt I Bret-
landi eöa Bandarlkjunum aö þvf tilskildu
aö lagaleg meöferö málsins væri sann-
gjöm og refsiaögerðum S.þ. yrði aflétt
jafnskjótt og þeir gæfu sig fram.
VARSJÁ — Sérfræöingar Lufthansa
hófust I gær handa viö aö leita aö vls-
bendingum til aö skýra ástæöur þess
aö ein flugvéla þeima brotlenti I Var-
sjá. Tveir létust og 45 slösuöust
TÓKÝÓ — Ráðstafanir Japana til að
örva efnahagslifiö veröa birtar (dag
og er búist viö aö féö, sem til þeirra
veröi varið, nemi um sex trilljón jenum
(56,6 milljöröum dollara), sagöi I vlö-
lesnu dagblaöi I gær.
LISSABON — Rlkisstjóm Angólu
hvatti Sameinuöu þjóöimar til aö beita
uppreisnarhreyfinguna UNITA refsiaö-
geröum. UNITA lét sér fátt um hótan-
imar finnast og sagöi refsiaögerðir
ekki geta haft áhrif á bardagagetu
hreyfingarinnar.
HANOI — Vfetnam undir stjóm
kommúnista er á réttri braut til aö
komast aö samningum snemma f
október viö Alþjóöasjóöinn, sem mun
setja landiö aftur aö boröi alþjóöafjár-
mála, sögöu diplómatar og banka-
menn I gær.
LOS ANGELES — 13 ára strákurinn,
sem sakar Michael Jackson um aö
hafa misnotað sig kynferöislega, hefur
lagt fram kæru þar sem búist er viö aö
hann fari fram á margar milljónir doll-
ara f skaðabætur.
DENNI DÆMALAUSI
„Komdu nú, Wilson! Við getum ekki farið í eltingaleik
nema fá einhvem tilað elta.“