Tíminn - 23.09.1993, Qupperneq 2
2 Tfminn
Fimmtudagur 23. september 1993
Helmut Schmídt, fyrrverandi kanslari V-Þýska-
lands, í Reykjavík:
Þeir scm áhuga hafa á þróun og
horfum í efnahags- og sfjóramál-
um Evrópu ættu að fjöJmenna í
Sólnasal Hótel Sðgu nk. laugar-
dag, 25. september, tll að hlýða á
dr. Helmut Schmidt, fyrrverandi
kanslara V- Þýskalands, flytja er-
indi um ástand mála í álfunni í
Kanslarinn fyrrverandi kemur
hmgað til iands f boði Samtaka
um vestræna samvinnu, Varð-
bergs og Germaníu. Fundurinn er
öllum opinn, en aðgangseyrir
með hádegisverði er krónur tvö
þúsund og 1100 krónur fyrir
námsmenn gegn framvísun skóla-
skírteinis.
Dr. Schmidt hefur um langt ára-
bii verið einn helsti stjómmála-
maður Vesturlanda og einn af ris-
unum f þýskri póiitfk eftirstríðs-
áranna. Hann gegndi embætti
kansiara V- Þýskalands 1974-1982
og kom m.a. í opinbera heimsókn
hingað til lands. Arið 1983 tók
hann við starfi útgefenda viku-
blaðsins Die Zeit í Hamborg sem
hann gegnir enn. Auk þess er
hann eftirsóttur fyrirlesari og
ferðast mikið um heiminn vegna
fyrirlestrahaids.
Horfur eni á að um 9% færra fé verði slátrað á næsta haustl en kemur tll
slátrunar I haust
bændur myndu reyna treysta á að
útflutningur á kjöti sem er ffam yf-
ir greiðslumark gæfi þeim einhverj-
ar tekjur. Menn vissu hins vegar
ekkert hvað þessi útflutningur
kynni að gefa af sér. Asbjöm sagðist
þó vera sæmilega bjartsýnn á að
bændur fengju einhverjar tekjur af
þessu.
Asbjörn sagði þessa miklu lækkun
á greiðslumarki ýta undir ffamhjá-
sölu á kjöti og það væri mjög alvar-
legt fyrir bændastéttina sem heild.
Asbjöm hefúr lýst efasemdum um
það kerfi ffamleiðslustýringar og
beingreiðslna sem sauðfjárbændur
búa við: „Ég hef efasemdir um ágæti
þessa framleiðslukerfis sem sauð-
fjárbændur búa við. Ég tel að það
þurfi að fara að huga að breytingum
á þessu kerfi. Ég tel að það hafi ekki
náð tilgangi sínum. Við verðum að
halda þessum beingreiðslum hvort
sem við miðum þær við greiðslu-
mark eða ffamleiðslu, en fram-
leiðsluna verðum við að gefa ffjálsa.
Ég held að það verði ekki hjá því
komist," sagði Ásbjöm. -EÓ
Ásbjörn Sigurgeirsson sauðfjárbóndi telur að lækkun greiðslumarks
ýti undir framhjásölu á kindakjöti:
Hefur mjög slæm
áhrif á kjör bænda
Asbjörn Sigurgeirsson, fjárbóndi á
Ásbjarnarstöðum í Mýrasýslu, seg-
ir að 9,2% samdráttur á greiðslu-
marki komi til með að hafa mjög
slæm áhrif á kjör bænda. Hann
segir hugsanlegt að bændur geti
bætt sér þennan tekjumissi að ein-
hverju leyti með tekjum af kjöti
sem selt yrði á erienda markaði.
Asbjörn segist tejja óhjákvæmilegt
að huga að breytingum á ffam-
leiðslustjórauninni með það að
markmiði að gefa framleiðsluna
frjálsa.
Skerðingin á greiðslumarki næsta
haust er 9,2% eða 750 tonn, fer úr
8.150 tonnum í 7.400 tonn. Bein-
greiðslur til bænda lækka um 154
milljónir króna. Þar af verður um
55 milljónum varið til markaðs-
færslu lambakjöts á innanlands-
markaði. Lækkun beingreiðslnafyr-
ir ríkissjóð verður því tæpar 100
milljónir króna.
Fyrir sauðfjárræktina í heild jafn-
gildir þessi 750 tonna framleiðslu-
samdráttur auk lægri beingreiðslna
því að meðalsauðfjárbúum í landinu
fækkaði um 99 eða úr 1.069 í 970.
Þetta þýddi að ársverkum innan
greinarinnar fækkaði um 181, úr
1.946 f 1.765.
Asbjöm sagði að bændur hefðu
takmarkaða möguleika til að bregð-
ast við þessari skerðingu. Þeir hefðu
þegar lækkað fasta kostnaðinn hjá
sér mjög mikið og óvíst að margir
gætu gert betur þar. Það myndi hins
vegar laga stöðu bænda mikið ef
hægt yrði að Iækka verð á aðföng-
um. s.s. áburði, kjamfóðri o.fl.
Asbjöm sagðist telja að margir
Húseigendur
styöja húsa-
leigubætur
Sfjóm Húseigendafélagsins hefur
sent frá sér ályktun þar sem lýst er
yfir stuðningi við að húsaleigu-
bætur verði teknar upp. Félagið
Unnið að endurskoðun á bifreiðamálum lögreglunnar í Reykjavík:
Maríurnar þykja
dýrar í rekstri
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í
Reykjavík, segir að því sé ekki að
leyna að þessar svokölluðu JHaríu-
bifreiðar" lögreglunnar hafi verið
mjög dýrar í rekstri. Hann segir að
ef hægt sé að draga úr rekstri á
þeim og mæta þörfum lögreglunnar
með öðram hætti, þá sé alveg sjálf-
sagt að gera það, ef það er ódýrara.
Að frumkvæði lögreglustjórans
hefúr starfshópur innan lögreglunn-
ar unnið að endurskoðun á bifreiða-
málum embættisins í nokkum tíma.
Lögreglustjóri segir að ef hægt sé að
spara í þessum efnum án þess að
verða fyrir einhverjum skakkaföll-
um, þá sé það auðvitað hið besta
mál.
„Ég gekk svo langt að biðja þá að
líta á þetta út frá því sjónarmiði að
þeir hefðu lögregluna í Reykjavík
bfllausa og hvernig þeir myndu
fullægja þörfúm okkar í þeim eftium
frá grunni. Þetta er nú það sem ver-
ið er að vinna að og þeir era búnir að
gera ansi margt gott og eiga eftir að
gera meira,“ segir Böðvar Bragason
lögreglustjóri. -gríi
bendir á að skattfrelsi leigutekna
leiði til mestu hagsbóta fyrir leigj-
endur og sé hagkvæmasti kostur-
inn fyrir samfélagið. Skattfrelsi
leigutekna stuðli að hóflegri húsa-
leigu og sé tíl þess fallið að örva
leigumarkaðinn og auka ffamboð á
leiguhúsnæði.
Stjóm Húseigendafélagsins telur
að stuðningur hins opinbera við
efnalitla leigjendur létti húsnæðis-
kostnað þeirra. Húsaleigubætur
séu einnig fallnar til að auka öryggi
og festu í leiguviðskiptum. Stjóm
félagsins telur að þær tölur sem
liggja fyrir um fjölda þeirra sem
húsaleigubóta kunna að njóta og
fjárhæðirnar sem nefndar hafa ver-
ið gefi ekki ástæðu til að ætla að
bætumar hafi umtalsverð áhrif á
leigumarkaðinn eða fasteignaverð.
Félagið telur hins vegar að húsa-
leigubætur án nauðsynlegra breyt-
inga á reglum um skattlagningu
leigutekna nái ekki tilgangi sínum
heldur hljóti þvert á móti að leiða
til hækkunar á húsaleigu. -EÓ
Forysta Alþýðubandalagsins verður óbreytt
næstu tvö árin:
Ólafur Ragnar
sjálfkjörinn
Ólafur Ragnar Grímsson verður
formaður Alþýðubandalagsins
næstu tvö árin þar sem enginn
bauð sig fram gegn honum. Stein-
grímur J. Sigfússon verður sömu-
leiðis áfram varaformaður flokks-
ins þar eð ekkert mótframboð
kom gegn honum.
Alþýðubandalagið breytti í sumar
reglum um kjör formanns og vara-
formanns í þá vera að almennir
flokksmenn skyldu kjósa forystu
flokksins en ekki einungis fulltrú-
ar á landsfundi. En þar sem Ólafur
Ragnar og Steingrímur J. buðu sig
einir fram verður ekki efnt til
kosninga meðal flokksmanna.
-EÓ
BÆJARFÉLÖGIN á Akranesi, Kópavogl og Selfossl hafa samráð um tónllstarkynningu I skólum bæjanna
I vetur. Haldnir verða mánaðartegir tónleikar, með mörgu af besta llstafólki landsins, sem ætlaðir eru grunnskóla-
og framhaldsskóianemum sem og almennum bæjarbúum. Hér má sjá helstu aðstandendur tónleikanna.
Leiklistarsamband
íslands:
Byggingu
dómshúss
harölega
mótmælt
Leiklistarsamband íslands
mótmælir harðlega fyrirhug-
aðri byggingu nýs dómshúss á
homi Ingólfsstrætis og Lindar-
götu.
Þetta kemur fram í nýlegri
ályktun leiklistarþings. Þar er
varað við skipulagsslysi sem
eigi sér stað þegar þrengt sé að
stóram og fögram byggingum
sem hafi menningarhlutverki
að gegna. Þar er vísað til Þjóð-
leikhússins og Borgarleikhúss-
ins sem glöggs dæmis um
þetta.