Tíminn - 23.09.1993, Side 9

Tíminn - 23.09.1993, Side 9
Fimmtudagur 23. september 1993 Tíminn 9 Hrafnistu gefiA augnskoðunartæki Við opnun nýrrar heilsugæslu á Hrafnistu í Reykjavík, þann 8. september síðastliðinn, færðu félagar úr Kiwanisklúbl •' Heklu heimilinu að gjöf augnskoðunartæki af full- komnustu gerð. Myndin er af afhendingu augnsKoðunartækisins. Frá vinstri eru: Pálmi V. Jónsson læknir, Rafn Sigurðsson forstjóri, Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjómannadags- ráðs, Ida Atladóttir hjúkrunarforstjóri og Heklufélagamir Arthur Stefánsson, Þor- steinn Sigurðsson, Þórarinn Guðmundsson, Jón Pálsson, Ólafúr G. Karlsson formað- ur Heklu, Einar Þórir Sigurðsson, Jón Grétar Guðmundsson og Karl Lilliendahl. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Félagsstarf f Risinu f dag, fimmtudag. Bridskeppni, tvímenningur, kl. 13 í aust- ursal. Dansað f vestursal kl. 20. Lifandi músík. Tónleikar í Hafnarborg Sinnhoffer-kvartettinn frá Miinchen heldur tónleika í Hafnarborg, menning- ar- og Iistastofnun Hafnarfjarðar, í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30. Á efnisskrá tón- leikanna eru verk eftir Luigi Boccherini, Felix Mendelssohn-Bartholdy og Bedrich Smetana. Sinnhoffer-kvartettinn kom fyrst hing- að til lands árið 1977 á 150. ártíð Beetho- vens til að taka þátt í heildarflutningi á strengjakvartettum hans ásamt tveim öðrum kvartettum frá Vestur- Þýska- landi. Kvartettinn skipa: Ingo Sinnhoffer 1. fiðla, Aldo Volpini 2. fiðla, Roland Metz- ger lágfiðla og Peter Wöpke knéfiðla. Tónlistarmennimir starfa allir í Bayeri- sches Staatsorchester, sem er hljómsveit ríkisóperunnar í Múnchen. Ingo Sinn- hoffer er konsertmeistari hljómsveitar- innar. Fræðslufundur um slítgigt Síðastliðið vor stóð Gigtarfélagið fyrir fræðslufundaröð um einstaka gigtsjúk- dóma sem mjög góð aðsókn var að, en um 100 manns sóttu hvem fúnd að með- altali. Ætlunin er að halda slíku fræðslu- starfi áfram nú í haust og fjallar fyrsti fræðslufundurinn um slitgigt Þessi sjúkdómur er talinn algengastur gigt- sjúkdóma, en miðað við reynslu annarra þjóða má reikna með því að 15% fslend- inga séu á hverjum tíma með slitgigtar- einkenni. Fundurinn hefst kl. 20.30 í Ár- sal Hótel Sögu í kvöld, fimmtudag. Á fúndinum mun Helgi Jónsson, sér- fræðingur í gigtsjúkdómum, flytja erindi um helstu orsakir og meðferð fólks með slitgigt og kemur hann til með að greina sérstaklega frá nýjustu rannsóknum á sjúkdómnum. Þá ætlar Brynjólfúr Mog- ensen, sérfræðingur í bæklunarsjúk- dómum, að fjalla um þær aðgerðir sem fólki með slitgigt stendur til boða. Að- gangur er ókeypis og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Hafdís Ólafsdóttir sýnir í Gallerí Úmbni Einþrykksmyndir Hafdísar Ólafsdóttur verða til sýnis í Gallerí Úmbru, Amt- mannsstíg 1, frá 23. september til 13. október. Calleríið er opið þriðjudaga til laugardaga kl. 13-18, laugardaga kl. 14- 18. Kynningarfundur samtakanna NýDögun í kvöld, fimmtudaginn 23. sept., verður haldinn kynningarfúndur samtakanna Ný Dögun, samtaka um sorg og sorgar- viðbrögð, í Safnaðarheimili Grensás- kirkju. Kynnt verður vetrarstarf samtak- anna: fræðslustarf, nærhópavinna, síma- þjónusta. Fundurinn hefst kl. 20.30 og er öllum opinn. Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn 7. október. Samkvæmt hefð samtakanna er fyrstí fyrirlestur vetrarstarfsins „Sorg og sorgarviðbrögð". Fyrirlesari er Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur Ríkisspítala. Fyrirlesturinn verður í Safnaðarheimili Grensáskirkju og hefst kl. 20. Sama kvöld verða skráðir þátttakendur í fyrsta nærhópinn. JL Torg — Nýtt markaóstorg Fyrr í þessum mánuði opnaði nýtt mark- aðstorg á annarri hæð JL hússins að Hringbraut 121. Markaðstorgið hefur hlotið nafnið JL Torg. Undanfamar vikur hefur húsnæðið tekið stakkaskiptum; eftir lagfæringar og breytingar er með sanni hægt að segja að birta, ylur og hreint loft fylli salina. Sölubásar eru leigðir út á töluvert lægra verði en nú tíðkast og ætti því vöruverð að verða lægra en á sambærilegum mörkuðum. Mikið verður um uppákomur. NBA- skiptimyndabás, fjör í portinu, uppboð kl. 15 alla daga sem opið er. Kynningar- salur þar sem fyrirtækjum gefst kostur á að kynna vöru sína eða þjónustu. Kafft- húsið verður lánað út til líknar- og fé- lagasamtaka eina helgi í senn og verður því fjölbreytni í kaffimeðlæti. JL Torg er opið alla laugardaga og sunnudaga frá kl. 11-17. Sýning FerðaUúbbsins 4x4 í LaugardalshöII: „Ferðabílar og fagurt land 1993“ Sýningin „Ferðabílar og fagurt land 1993“, jeppa- og útivistarsýning Ferða- klúbbsins 4x4, verður haldin dagana 24., 25. og 26. september í Laugardalshöll- inni og á útisvæði. Staðið verður fyrir ýmsum uppákomum sem tengjast jepp- um og tæknibúnaði þeirra. Ferðaklúbb- urinn 4x4 býður allt áhugafólk um jeppa og ferðamennsku velkomið á þessa stærstu sýningu klúbbsins til þessa. Ferðaklúbburinn var stofnaður 1983 og er því 10 ára f ár. Margt hefur verið gert í tilefni afmælisins. Haldinn var Jeppadag- ur fjölskyldunnar í mars, þar sem 700 til 800 jeppar tóku þátt, eins og frægt er, og haldið var viðamikið námskeið í ferða- mennsku í tengslum við Jeppadaginn. Ferðaklúbburinn er þessa dagana að gefa út kvikmynd, þar sem fjallað er um starf- semi klúbbsins og farið á fjöll með fé- lagsmönnum. Myndin, sem nefnd er „Vegir liggja til alíra átta", verður til sölu á sýningunni „Ferðabílar og fagurt land“, sem verður mjög vönduð og umfangs- mikil í tilefni afmælis klúbbsins. Flugleiðir munu bjóða sérstaka helgar- pakka þessa helgi til að auðvelda áhuga- mönnum á landsbyggðinni að sækja sýn- inguna. Opnunarathöfh fer ffam klukkan 16 þann 24. september, og mun Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra opna sýninguna að viðstöddum boðs- gestum. Sýningin verður opnuð fyrir al- menning klukkan 18 sama dag. Sýningin er opin frá klukkan 10 til 22 Iaugardag og sunnudag. Listasafn íslands: Grafikverkstæói í fyrirlestrasal Meðan á yfirlitssýningu á grafíkverkum Braga Ásgeirssonar stendur verða safn- gestum kynntar ýmsar hliðar grafíklist- arinnar. Eftirgreindir félagar í „fslenskri grafík", samtökum íslenskra grafíklista- manna, munu standa fyrir sýnikennslu í safninu um helgar kl. 15-17. Sýnikennsl- an fer fram í Sal 5, fyrirlestrasal. 26. septemben Ríkharður Valtingojer, Messótinta. 3. október Ingunn Eydal, 1/lÆting. 10. októben Hafdís Ólafsdótt- ir, 1/1 TVérista. 17. október Sigrid Valt- ingojer, Æting. 24. október Magdalena Margrét Kjartansdóttir, 1/2 Dúkrista. Að- alheiður Skarphéðinsdóttir, TVérista. 31. október Valgerður Hauksdóttir, Æting og einþrykk. 25.000 aödáendur tenórsöngvarans Lucianos Pavarotti voru saman komnir I göröum og á grasflötum við Leeds- kastaia til að hlýöa á hinn óviöjafnanlega söngvara og varö aö beita ýmsum tæknilegum ráðstöfunum til aö þeir mættu njóta sem best. Pavarotti heill- ar 25.000 áheyrendur Fyrir skömmu hélt hinn óviðjafnanlegi ten- órsöngvari Luciano Pa- varotti tónleika á lend- unum við Leeds-kastala og þar sem þetta eru einu tónleikarnir, sem hann heldur í Englandi í ár, vildu fáir láta þá fram- hjá sér fara. 25.000 manns fengu miða og komu sér vel íyrir á stór- um grasflötum og í grónum görðum. Var þar margt frægðarmennið saman komið. Tónleikarnir hófust á slaginu hálfátta um kvöldið og í tvær stundir stanslaust glöddu Pava- rotti, söngkonan Cynthia Lawrence og Fflharmón- íuhljómsveitin og kór skilningarvit viðstaddra með tónlist eftir Puccini, Mascagni og Leonca- vallo. Var samdóma álit viðstaddra að Pavarotti hefði sjaldan sungið bet- ur að undanfömu. Sarah Ferguson naut veöurbllðunnar og fögru tónlistarinnar f flutningi stórsöngvarans. I hópi áheyrenda mátti sjá m.a. popparann Bob Geldof, sem stóð fyrir Band-Aid tónleikum um árið, og David Mellor, fyrrum ráöherra, sem gefinn var titillinn ngleöi- málaráðherra", þar sem honum þóknaöist ekki að ganga nógu hægt um gleðinnar dyr. Honum varö aö falli að vera f slagtogi með nútímakonu, sem gerði sér grein fyrir hvílfk markaösvara það væri að lýsa sérkennilegum tiltektum hans þegar þau voru tvö ein saman.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.