Tíminn - 23.09.1993, Blaðsíða 12

Tíminn - 23.09.1993, Blaðsíða 12
Áskriftarsími Tímans er 686300 NYTTOG FERSKT DAGLEGA reiðholtsbakarí VOLVUFELL113-SlMI 73655 labriel , HÖGG- DEYFAR Versliö hjá fagmönnum <i\varahlutir Hamarshöfða 1 Tímimi FIMMTUDAGUR 23. SEPT. 1993 Hagkaup krefst 1,5 milljóna króna í skaðabætur frá ríkinu vegna skinkumálsins og útilokar ekki kröfu um miskabætur: Fúlt að þurfa að henda góðum mat „Þaö er ekki um annað að ræða en að henda dönsku skinkunni. Ekki getum við flutt hana út, því hún er fallin á tíma. Það er fráleitt aö henda góðum mat og hálf fúlt að þurfa að gera það,“ segir Þor- steinn Pálsson, framkvæmdastjórí Hagkaups, en síðasti söludag- ur dönsku skinkunnar var í gær. FVrirtækið hefur ákveðið að stefna stjómvöldum og krefja þau um 1.5 milljón króna í skaðabætur vegna skinkumálsins, en alls flutti fyrir- tækið inn eitt tonn af vörunni. Jafn- framt er lfldegt að fyrirtækið krefji ríkið einnig um miskabætur, en ákvörðun um það verður tekin seinna. Þorsteinn Pálsson segir að sú upp- hæð, sem farið er fram á að rfltið greiði í skaðabætur, sé kostnaður- inn vegna skinkunnar. „Þetta er búið að vera æði lær- dómsríkt og fór raunar í allt aðra átt en við áttum von á. Við áttum von á að fá að selja þetta kjöt og einnig að það mundu verða miklar umræður um það. Jafnframt gerðum við okk- ur grein fyrir því að það yrði lagt á okkur jöfnunargjald og það jafnvel hátt En málið tók bara allt aðra stefnu, eins og kunnugt er,“ segir Þorsteinn Pálsson. -grii SJÓNVARPIÐ ráðgerir að sýna nýja umræöuþættl kl. 13:30 á sunnudögum I vetur undir nafninu Slödegls- umræðan. Umsjónarmenn þáttanna eru þau Salvör Nordal, Gfsli Marteinn Baldursson og Magnús Bjamfreðsson. Framkvæmdastjóri Sjónvarps hefur að undanfömu haft afskipti af gerð umdelldra umræöuþátta, en hvort þessl mynd er vfsbending um að áfram elgl aö halda á þeirri braut skal ósagt látiö. Heilbrigðisráðherra bregst við harðri gagnrýni á biðlaunagreiðslur til hans: Guðmundur Árni afsalar sér biðlaunum Guðmundur Árni Stefánsson heil- brigðisráðherra hefur ákveðið að óska eftir því við Hafnarfjarðarbæ að bið- launagreiðslur til hans verði felldar niður. Þessi ákvörðun er tekin í fram- haldi af harkalegri gagnrýni, sem komið hefur fram á biðlaunagreiðslur til ráðherrans. Samkvæmt samningi, sem gerður var við Guðmund Áma fyrir sjö árum, átti hann að fá biðlaun í sex mánuði þegar hann hætti sem bæjarstjóri. Hann hefur verið á launum hjá Hafn- arfjarðarbæ síðan hann hætti sem bæjarstjóri í sumar, auk þess sem hann hefur þegið laun sem ráðherra. Með ákvörðun sinni afsalar hann sér bæjarstjóralaunum, um 285 þúsund á mánuði, sem hann hefði annars feng- ið til næstu áramóta. Samtals er hér um 1,7 milljón að ræða. f yfirlýsingu, sem heilbrigðisráð- herra sendi frá sér í gær, er umfjöllun fjölmiðla um þetta mál gagnrýnd. „í umræður um launamál mín hefur verið blandað viðfangsefhum mínum sem ráðherra heilbrigðis- og trygg- ingamála og þau gerð tortryggileg í því samhengi. Það þykir mér óvandað- ur og óviðeigandi málflutningur og ekki sæma þeim er að standa. Á sama hátt hefur verið reynt að mynda trún- aðarbrest milli mín og íbúa Hafnar- fjarðarbæjar, sem ég hef átt mjög gott samstarf við í gegnum árin og mun vonandi hafa um alla framtíð," segir í yfirlýsingu Guðmundar Áma. í yfirlýsingunni vekur Guðmundur Ámi athygli á því að hann hafi lækkað í launum við að verða ráðherra. Hann bendir jafnframt á að æðstu embættis- menn í stjómkerfinu og menn í stjómunarstöðum á hinum almenna vinnumarkaði séu á hærri launum en ráðherrar. Þetta segir hann umhugs- unarvert. Nokkurs kurrs hefur gætt innan AI- þýðuflokksins vegna þessa máls og var talið líklegt að það yrði gert að um- talsefni á flokksstjómarfundi flokks- ins, sem haldinn verður um næstu heigi. Ekki er talið að það verði eftir þá ákvörðun sem Guðmundur Ámi hefiir nú tekið -EÓ ...ERLENDAR FRÉTTIR... MOSKVA — Bóris Jeltsln, forseti Rússlands, hristi af sér áskorun keppinautar slns og varaforseta, Alex- anders Rútskoj, og hét þvl aö vinna stjómmálabaráttuna I Rússlandi án þess að til blóðsúthellinga kæmi. Ró var á götum Moskvu I gær, fólk sinnti daglegum störfum og engin merki vom um óróa eöa liðsfiutninga eftir aö Jeitsln sagðist ætla að leysa upp þingið og efna til kosninga i desem- ber. Jeltsfn hefur aukið öryggisvörslu viö útvarps- og sjónvarpsstöðvar og viö aörar .hemaðariega mikilvægar* byggingar til aö koma I veg fyrir að öfgamenn nái yfirhöndinni, að sögn talsmanns hans. Jeltsln útnefndi Jeg- or Gajdar starfandi efnahagsráðherra, auk nýja starfsins hans sem fyrsti að- stoðarforsætisráðherra. Leiðtogar NATÓ og vestrænna rlkja, þ.á m. Bill Clinton Bandarikjaforseti, sögöust styðja Jeltsln I baráttu hans fyrir völdum. KIEV — Fyrrum sovétiýðveldi studdu gerðir Jeltsins, en rússneska sjálf- stjómartýöveldiö Udmurtia tók sér meira vald en þaö áður haföi. Það eru höröustu viðbrögð nokkurs aissnesks héraðs við tilkynningu Jeltslns enn sem komið er. TBUSI, Georgiu — Uppreisnarmenn Abkhaza brutust I gær mörgum sinn- um gegnum ytri vamarilnur georgiska hersins, sem enn heldur velli i Svarta- hafsborginni Sukhumi, áður en tókst að hrekja þá aftur tilbaka, aö sögn ge- orgiskra embættismanna. BRÚSSEL — Sáttasemjaramir Owen lávaröur og Thorvald Stoltenberg sögöu NATÓ að bandalagið kunni að verða aö grfpa til vopna, ef það sendir um 50.000 hermenn til Bosníu, og að hermennimir ættu að vera velvopnaö- ir og komnir á sinn stað skjótlega. Owen sagðist bera ugg I brjósti vegna framtlöarinnar eftir að pólitiskir og hemaöariegir forystumenn Bosniu- múslima neituöu aö styöja alþjóðlega friöaráætiun fýrir fyrrum júgóslav- neska lýöveldiö. ZAGREB — Króatar sögöust ætla aö biöja friöargæsluliða S.þ. að fara I næstu viku, nema Sameinuðu þjóðim- ar fallist á kröfu þeirra um að afvopna serbneska hermenn, sem hafa her- tekiö þriöjunginn af lýðveldinu. ALEXANDRÍA, Egyptalandl — Haf- ez al-Assad Sýriandsforseti lykilmaö- urinn f friðarumleitunum I Miöaustur- löndum, kom I gær til Egyptalands til viöræöna við egypskan starfsbróður sinn, Hosni Mubarak, um mögulegan friöarsamning Sýriendinga og fsraela. AMMAN — Frelsishreyfmg Palestinu- manna sagöi að moröiö á Gaza á Abu Shaaban, lögfræöingi og háttsett- um félaga I Fatah-deild PLO, væri I engum tengslum viö sjálfstjómar- samning PLO viö Israel. KIRYAT SHMONA, fsrael — Eld- flaug, sem var i gær skotiö frá Llban- on, lenti i norðurhluta fsraels án þess að valda skaða eða meiöslum á fólki, sagði útvarpsstöð I gær. Israelski her- inn sagöist vera aö kanna fregnina nánar. Þaö væri i fyrsta sinn, sem eld- flaug væri skotið yfir landamærin frá þvi áhlaupi fsraela á skæruliða I Llb- anon lauk 31. júii meö vopnahléi. JÓHANNESARBORG — Hvítir hægrisinnar, sem hlynntir em aðskiln- aðarstefnu, hótuðu I gær þinginu aö ringulreiö yrði eftir aö fjöldamorö á a.m.k. 30 þeldökkum varpaöi myrkum skugga á leiöina að meirihlutastjóm blakkra. VARSJÁ — Tveir stærstu vinstrisinn- uðu flokkar Póllands vógu og mátu stöðuna i felum f gær, áður en þeir tækju ákvörðun um hvort þeir tækju aftur til viö aö reyna að mynda fyrstu vinstrisinnuðu rikisstjómina frá þvl aö bundinn var endi á stjóm kommúnista 1989. STOKKHÓLMUR — Sænsk yfirvöld sögöu i gær aö Irakar ætluöu aö leysa úr haldi þrjá slmaverkfræöinga, sem dæmdir vom I sjö ára fangelsi fyrir ári fyrir aö hafa komiö ólöglega inn I landið ffá Kúveit DENNI DÆMALAUSI „Ég hélt að Margrét gæti ekki orðið rosaiegri en hún er, en nú erhún farin að fara í klarinettutíma ofan á alltannað."

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.