Tíminn - 23.09.1993, Síða 3
Fimmtudagur 23. september 1993
Tíminn 3
SUS gagnrýnir
atvinnu-
miðlun Al-
þýðuflokksins
„Síðustu misserin hefur Alþýðu-
flokkurinn hins vegar slegið öll
fyrri met í pólitískum embættisveit-
ingum og hreinlega slegið eign
sicni á embætti sem losna í utan-
ríkisþjónustu og einnig banka-
stjóra- og ráðuneytisstöður. Eru
auglýsingar embætta sem ráðherrar
Alþýðuflokksins veita nú orðnar
hreint sjónarspil," segir í ályktun
sem Samband ungra sjálfstæðis-
manna hefur sent frá sér um „at-
vinnumiðlun Alþýðuflokksins".
í ályktuninni eru embættisveiting-
ar Alþýðuflokksins harðlega gagn-
rýndar. Skorað er á forystumenn Al-
þýðuflokksins að láta af þessari „her-
fangastefnu" í embættisveitingum
eins og það er kallað. Slík vinnu-
brögð eigi heima í bananalýðveld-
um.
Vikið er sérstaklega að ráðningum
heilbrigðisráðherra á Karli Steinari
Guðnasyni í starf forstjóra TVygg-
ingastofnunar. Ungir sjálfstæðis-
menn telja að aðrir umsækjendur
um stöðuna og þjóðin öll hafi verið
höfð af fíflum við þessa embættis-
veitingu. -EÓ
Hveragerði:
Nýtt eld-
Sjaldgæft mun að fleltl bankastjórar sltjl saman tll borðs en var I gær þegar vaxtasklptasamnlngamlr voru undlrrltaðlr I gær. Ásamt þrem bankastjórum
Seðlabankans sjáum vlð héma helstu stjómendur allra viöskiptabankanna sem landsmenn hafa trúaö fyrir að ávaxta þá 126 mllljarða sem sem þeir eiga
lnni á bankareikningum. Að meðtöldum 28 milljarða Innlánum I sparisjóðunum samsvarar upphæðin I kringum 600.000 kr. bankalnnlstæöu á hvem ein-
stakling í landinu. Tfmamynd Áml BJama
Vaxtaskiptasamningum Seðlabanka og innlánsstofnana ætlað að ná meiri
stöðugleika á vexti:
hús við
Heilsustofn-
unina
Guðmundur Ámi heilbrigðisráð-
herra opnaði í vikunni nýtt eldhús
og borðsal við Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags íslands í
Hveragerði. Nýja húsnæðið bætir
mjög alla aðstöðu stofnunarinnar
til að taka á móti gestum. Kostn-
aður við bygginguna er um 120
milljónir.
Framkvæmdir við eldhúsið hóf-
ust 1988 og unnið hefur verið þar
með hléum síðan. Húsið er tæp-
lega 1.000 fermetrar að stærð.
I framtíðinni er stefnt að bygg-
ingu húss fýrir endurhæfingastarf-
semi Heilsustofnunarinnar. Þar er
um að ræða læknastofur, sjúkra-
þjálfun, sjúkranudd, íþróttastarf-
semi og fleira. Þá hafa forráða-
menn stofnunarinnar einnig mik-
inn hug á að reisa nýja gistiálmu,
en elstu gistiálmumar eru að
verða úr sér gengnar.
Að sögn Áma Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Heilsustofnun-
arinnar, er fyrirhugað að markaðs-
setja starfsemi stofnunarinnar er-
lendis f framtíðinni.
-sbs/EÓ
Seðlabankinn „veðjar“ á
2% verðbólgu til áramóta
Seðlabankinn hefur gert svokallaða vaxtaskiptasamninga við
bankana og Lánastofnun sparisjóðanna. Markmið þeirra er að
draga úr þeirri vaxtaáhættu sem skapast af misvægi milli verð-
tryggðra eigna og skulda sem bankastjórar hafa oft og lengi kvart-
að undan. Samningunum er ætlað að stuðla að því að bankar og
sparisjóðir geti ákveðið vexti sína án tillits til skammvinnra
sveiflna í verðbólgu og þannig aukið stöðugleika og jafnvel stuðl-
að að lækkun vaxta. Fyrsta fjögurra mánaða samningstímabiiið
(sept./des.) er gengið út frá því að verðbólga verið um 2% og
ákveðinni 24,5 milljarða viðmiðunarfjárhæð.
Þann 1. janúar eiga bankamir að
borga Seðlabankanum jafnvirði 8%
nafnvaxta af upphæðinni (24,5
milljörðum) og Seðlabankinn aftur
á móti að borga bönkunum verð-
tryggingu samkvæmt lánskjaravísi-
tölu auk 6% vaxta. Standist verð-
bólguspáin munu greiðslumar líka
standast á. Reynist hins vegar verð-
bólgan meiri verða greiðslur Seðla-
bankans til bankanna meiri en þeir
ar verði verðbólga meiri eitthvert
misseri en áætlanir hafa gert ráð
fyrir.
í tengslum við undirskrift samn-
inganna í gær tilkynnti íslandsbanki
um 3-3,5% almenna lækkun nafn-
vaxta hinn 1. október, miðað við þær
forsendur sem nú liggja fyrir. Og
frekari nafnvaxtalækkanir séu síðan
fyrirhugaðar þann 1. nóvember.
Búnaðarbanki tilkynnti sömuleiðis
almenna nafnvaxtalækkun þann 1.
október. En Landsbanki og spari-
sjóðir segjast á næstunni ákveða
nafnvexti sína f ljósi hjaðnandi verð-
bólgu. - HEI
Guðmundur Aml Stefánsson hellbrigðlsráöherra og Áml Gunnarsson
framkvæmdastjóri fengu sér aö smakka hjá kokknum á Hellsustofnunlnnl.
Ekkl er vltað hvað þeim var boölð, en það munu ekkl hafa verið kalkúna-
lapplr. Tlmamynd sbs
greiða honum og síðan öfugt ef
verðbólgan verður minni.
Samningamir eru til 1. janúar
1996. En verðbólguspár verða gerð-
ar á fjögurra mánaða fresti og upp-
gjör eins og áður er lýst fer fram í
lok hvers ársfjórðungs. Viðmiðunar-
fjárhæðin er í upphafi ákveðin með
tilliti til misvægis milli verð-
tryggðra innlána og útlána banka og
sparisjóða, en verður síðan lækkuð
um 1/7 á hverju nýju 4ra mánaða
tímabili. Sú stiglækkun á að hvetja
bankana til að draga úr verðtrygg-
ingarmisvæginu á samningstíman-
um.
Samningamir ganga út frá að verð-
tryggðar skuldir bankanna (einkum
innlán) séu nú tæplega 25 milljörð-
um kr. hærri en verðtryggðar eignir
(aðallega útlán). Þetta misvægi hef-
ur haft neikvæð áhrif á afkomu
bankanna þegar verðbólga hefur
tekið skyndilegt stökk upp á við.
Þetta misvægi virðist hlutfallslega
langmest hjá Islandsbanka, þar sem
samið er við hann um 7,1 milljarð af
viðmiðunarfjárhæðinni. í samningi
við Landsbankann (sem hefur hátt í
tvöfalt meiri út- og innlán) er samið
um 6,8 milljarða viðmiðunarfjár-
hæð. Hjá Búnaðarbankanum er fjár-
hæðin 5,3 milljarðar og sú sama hjá
sparisjóðunum.
Þess má geta að það em ekki þau
innlán sem eru beinlínis verðtryggð
sem mestum vandanum valda.
Heldur eru það hinir svokölluðu
skiptikjarareikningar, sem bera
nafnvexti en njóta þó verðtrygging-
Aðalfundur Samtaka
fiskvinnslustöðva
verður haldinn í Stykkishólmi föstu-
daginn 24. september 1993 kl. 10.30.
Fundarstaður: Hótel Stykkishólmur.
Dagskrá:
Setning aðalfundar.
Skýrsla stjómar: Amar Sigurmundsson, formaður SF.
Ársreikningar 1992.
Kosning í stjórn og kjör endurskoðanda.
Erindi:
Þorsteinn Pálsson, sjávarú^/egsráðherra.
Ásmundur Stefánsson, framkvstj. (slandsbanka hf.:
Bankarnir og sjávarútvegurinn.
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri
VSÍ: Vextir og kjarasamningar.
Sighvatur Bjarnason, ffamkvstj. Vinnslustöðvarinnar hf.:
Eigum við okkur framtíð?
Tryggvi Finnsson, framkvstj. Fiskiðjusaml. Húsavíkur
hf.: Landvinnsla ( breyttum heimi.
Friðrik Pálsson, forstj. Sölumiðst. hraðfrystihúsanna:
Er ekki samkeppni örugglega alltaf til góðs?
Umræður.
Önnur mál.
Stjómin.