Tíminn - 23.09.1993, Side 7
Fimmtudagur 23. september 1993
Tíminn 7
Kosið í 186 af 196 sveitarfélögum um að fækka þeim í 43 á landinu öllu:
Sveitarfélögum með færri en
500 íbúa fækki úr 142 í 3
Almennar kosningar fara
fram þann 20. nóvember
n.k. f öllum sveitarfélögum
landsins nema tíu, um að
sveitarfélögum veröi fækk-
aö um 153, eöa úr 196 niður
í 43. Verði tillögur umdæma-
nefnda samþykktar, fækkar
sveitarfélögum meö færrí
en 500 íbúa langsamlega
mest, eða úr 142 í 3. Þau
þrjú yrðu Raufarhöfn, Reyk-
hólahreppur og austanvert
Snæfellsnes. Að sögn sam-
starfsnefndar um samein-
ingu sveitarfélaga er það
höfuömarkmiðið með sam-
einingunni að treysta byggð
í landinu og efla stjóm
heimamanna, að auðveida
flutning verkefna frá ríki til
sveitarfélaga og að auka
þjónustu við íbúana og gera
sveitarfélögunum betur
kleift að takast á við núver-
andi verkefni. Þess má geta
að sveitarfélögin voru 224
fyrír 15 árum og hefur því
fækkað um 28, eða kríngum
tvö á árí.
Til þess að sameining telj-
ist samþykkt í kosningun-
um þarf meiríhluta greiddra
atkvæða.
Hljóti tillaga ekki samþykki
í öllum sveitarfélögum, sem
lagt er til að sameinist, en
að minnsta kosti í 2/3
þeirra, er viðkomandi sveit-
arstjómum heimilt að
ákveða sameiningu þeirra
sveitarfélaga sem samþykkt
hafa, enda hamli ekki land-
fræðilegar ástæður.
Verði sameiningartillaga
felld, en umdæmanefnd telji
eigi að síður að íbúar vilji
annars konar sameiningu,
þá er heimild til þess að nýj-
ar tillögur verði lagðar fram
fyrír miðjan janúar n.k. og
kosið um þær eigi síðar en
26. mars.
Tillögur umdæmanefnda
em f grófum dráttum eins
og hér verður rakið.
Vesturland
Lagt er til að sveitarfélögum
verði fækkað úr 36 í 9 á Vestur-
landi.
Akranes verði áfram sérstakt
sveitarfélag.
í Borgarfjarðarsýslu yrðu fjórir
hreppar með samtals um 600
íbúa sameinaðir í einn.
Fimm hreppar norðan Skarðs-
heiðar, með hátt í 800 íbúa, verði
sameinaðir í einn.
Öll átta sveitarfélög Mýrasýslu
verði sameinuð í eitt með tæp-
lega 2.600 íbúa.
Fjórir hreppar austast á Snæ-
fellsnesi verði sameinaðir í einn
með um 320 íbúa. Og fjórir
hreppar vestast á Snæfellsnesi
Sveitarfélög á íslandi samkvæmt tillögum umdæmanefnda
Kortið sýnir mörk þeirra 43 sveitarféiaga, sem verða I landinu efallar sameiningartillögur verða samþykktar.
verði sömuleiðis sameinaðir í
eitt sveitarfélag með um 1.900
íbúa.
Helgafellssveit sameinist Stykk-
ishólmi með rúmlega 1.300 íbúa
alls.
Sömuleiðis verði allir sjö
hreppar Dalasýslu eitt sveitarfé-
lag með tæplega 900 íbúa.
Vestfirðir
Stefrit er að fækkun sveitarfé-
laga á Vestfjörðum úr 24 í 4.
Fimm sveitarfélög í V- Barða-
strandarsýslu sameinist í eitt
með tæplega 1.700 íbúa. Austur-
Barðastrandarsýsla verði hins
vegar áfram eitt sveitarfélag:
Reykhólahreppur með um 360
íbúa.
ísafjarðarsýslur báðar, ísafjörð-
ur og Bolungarvík verði eitt
sveitarfélag, í stað tólf, með um
6.400 íbúa.
Sex hreppar Strandasýslu sam-
einist í eitt sveitarfélag með lið-
lega þúsund íbúa.
Norðurland
vestra
Fækkun úr 30 sveitarfélögum í
5 hljóða tillögumar fyrir Nl.
vestra.
Vestur-Húnavatnssýsla verði
eitt sveitarfélag með hátt í 1.500
íbúa, í stað sjö nú.
Austur-Húnavatnssýsla verði
tvö sveitarfélög í stað tíu nú.
Annars vegar sameinist Vind-
hælis-, Höfða- og Skagahreppar í
einn með tæplega 800 íbúa. Hin-
ir hrepparnir sjö sameinist í eina
sveit með liðlega 1.700 íbúa.
í Skagafirði er mælt með sam-
einingu 12 sveitarfélaga í eitt
með tæplega 4.700 íbúa.
Norðurland
eystra
Á Nl. eystra er einnig lagt til að
fækka sveitarfélögum úr 30 í 5.
Mælt er með að 15 sveitarfélög
í Eyjafirði sameinist í eitt, sem
þá yrði annað stærsta sveitarfé-
lag landsins með tæplega 21.000
íbúa.
Átta sveitir Suður-Þingeyinga
sameinist í eina með liðlega
4.200 íbúa.
Þrír hreppar í Öxarfirði (Keldu-
nes-, Fjalla- og hluti Öxarfiarð-
arhrepps) sameinist í eina sveit
með tæplega 500 íbúa.
Hinn hluti Öxarfiarðarhrepps
sameinist Raufarhöfn ásamt
hluta Svalbarðshrepps í liðlega
400 manna sveitarfélag.
Þórshafnar-, Sauðanes- og hluti
Svalbarðshrepps sameinist í lið-
lega 600 manna sveitarfélag.
Austurland
Lagt er til að 30 sveitarfélögum
á Austurlandi verði fækkað í átta.
Þar af verði 2 núverandi sveitar-
félög, Seyðisfiörður og Djúpa-
vogshreppur (sem varð til við
sameiningu 3ja hreppa fyrir ári),
áfram óbreytt í núverandi mynd.
Á Norðursvæði sameinist
Skeggjastaða- og Vopnafiarðar-
hreppur í liðlega 1.000 íbúa
sveitarfélag.
Ellefu hreppar og bæir á Héraði
sameinist í liðlega 3.000 íbúa
sveitarfélag.
Neskaupstaður, Norðfiarðar- og
Mjóafiarðarhreppur sameinist í
liðlega 1.760 manna sveitarfélag.
Reyðarfiörður og Eskifiörður
sameinist í um 1.800 manna
sveitarfélag.
Fáskrúðsfiarðar-, Búða-, Stöðv-
ar- og Breiðdalshreppar samein-
ist í tæplega 1.500 íbúa sveitarfé-
lag.
Loks mundu sex hreppar á Suð-
ursvæði sameinast í eitt sveitar-
félag með um 2.500 íbúa.
Suðurland
Á Suðurlandi eru einnig 30
sveitarfélög, sem lagt er til að
sameinist í 7. Af þessum 30
standi 3 óbreytt: Vestmannaeyjar
og 2 hreppar V-Skaftafellssýslu.
Lagt er til að Rangárvallasýsla
skiptist í tvö’sveitarfélög. Annars
vegar sameinist 6 hreppar aust-
an Eystri-Rangár með 1.750
manns. Hins vegar fiórir hreppar
vestast í sýslunni með tæplega
1.600 íbúa.
Sömuleiðis er lagt til að Árnes-
sýsla skiptist í tvö sveitarfélög.
Lætur nærri að skiptin yrðu um
þjóðveg 1.
Átta sveitarfélög ofan þjóðvegar
sameinuðust í liðlega 2.300
manna sveitarfélag.
Átta hreppar í Flóa og Ölfusi
ásamt Selfossbæ sameinuðust í
nærri 8.700 íbúa sveitarfélag.
Suðurnes
Á Suðurnesjum eru línur skýr-
ar. Tillögumar hljóða upp á að
núverandi 7 sveitarfélög á svæð-
inu sameinist í eitt, með um
15.500 íbúa.
Höfuðborg-
arsvæðið
Tillögur gera ráð fyrir að sveit-
arfélögum fækki úr níu í fiögur á
höfuðborgarsvæðinu.
Seltjamarnes, Mosfellsbær,
Kjalarnes og Kjós sameinist
Reykjavík í eina borg, sem þá
teldi yfir 110.000 íbúa og rúm-
lega 42% allra íslendinga.
Sömuleiðis er lagt til að Garða-
bær og Bessastaðahreppur sam-
einist í einn 8.500 íbúa bæ.
Á hinn bóginn er ekki vilji til að
Kópavogur og Hafnarfiörður
sameinist einum né neinum.
- HEI