Tíminn - 17.11.1993, Blaðsíða 4
4
Miðvikudagur 17. nóvember 1993
Stöðu-
gjöldin
slæmur
bisness
Gjöldin öll í kostnað
Bílastaeðasjóðs við inn-
heimtu og umstang
Innheimtukerfi stöðugjalda er
óhemju dýrt. Álagnmgin sem
Ieggst á sjö hundruð króna sekt,
sé hún greidd þremur mánuðmn
eftir tfikomu hennar, fer öll í
kostnað. Taeplega þriðjungur
allra stöðugjalda fer tfi innheimtu
hjá lögfraeðingi. Innheimtukosm-
aður hjá lögfraeðingi er um 30%
af því sem kemur inn.
Stöðugjöld eru bæði stöðu-
mælasektir og sektir fyrir að
leggja bílum ólöglega. Innheimta
stöðugjalda fer fram á þremur
stigum. Fruminnheimtan er C-
gíróseðill sem er settur á rúðuna
á bílum og tveimur vikrnn síðar
hækkar gjaldið rnn 50% og þá er
sendur út B- gfróseðill. Um það
bil þremur mánuðum síðar er
sendur út A- gnróseðill í nafni lög-
fræðistofunnar en upp á sömu
upphæð. Kostnaðurinn við þessa
þijá gíróseðla er mikill. Af sekt
sem upphaflega er 700 krónur er
kostnaðurinn 300 krónur. Álagn-
ingin á þessu stigi fer því svo til
öll í kostnað.
Um 30% af gjöldunum enda í
innheimtu hjá lögfræðingi. Sig-
urður Þóroddsson, lögfræðingur
Bflastæðasjóðs, segir að af þeim
innheimtist um helmingurinn. Á
þessu ári hefur um 25 og hálf
milljón komið tfi innheimtu hjá
lögfræðingi og af þeim peningum
hafa innheimst um 13 og hálf
milljón. Bflastæðasjóður á lögveð
í bifreiðum sem vangoldin gjöld
hvfla á og því getur hann inn-
heimt þau með uppboði á við-
komandi bifreið. Bflastæðasjóður
greiðir lögfræðistofunni um 30%
af því sem innheimtist en sam-
kvæmt samningi greiðir hann
ekki fyrir áranguriausa inn-
heimtu eða útlagðan kostnað.
Sigurður segir að menn séu oft
með mörg vangoldin gjöld. .Þeg-
ar upphæðin er komin upp í 27-
30 þúsund krónur er tekinn sami
kostnaður af innheimtunni og
venjulegum vanskilagjöldiun.
Kostnaður af lægri upphæðum
getur líka orðið mikill. Maður
sem skuldar 10 þúsund í stöðu-
gjöld getur þurft að borga 30- 40
þúsund ári seinna ef það þarf að
gera fjámám hjá honum.' -GK
Vinur
Hafnar-
fjarðar
Ferðatímaritið Farvís heldur
upp á fimm ára afmæli sitt á
þessu ári. Tímaritið er gefið út af
útgáfufyrirtækinu Farvegi hf., en
fyrir tveimur árum keypti Far-
vegur útgáfuréttinn af öðm
ferðatímariti, Áföngum, og hefur
síðan gefið út blaðið Farvís-
áfangar. Eitt aðalefni nýs tölu-
blaðs Farvís-áfanga er grein um
Hafnarfjörð sem ferðamannabæ.
í tfiefni þess vom bæjarstjóm
Hafnarfjarðar færð 100 eintök af
blaðinu til dreifingar á allar
stofnamr bæjarins. Á myndinni
sjáum við Þórunni Gestsdóttur
ritstjóra afhenda Ingvari Viktors-
syni bæjarstjóra gjpfina. -ÁG
Steingrímur J. Sigfússon, Ólafur Ragnar Grimsson og Ragnor Arnalds kynna útflutningsleið Alþýðubandalags.
Timamynd Ámi Bjarna
Ný leið Alþýðubandalags
Útflutningsleið í stað samdráttar og þenslu
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, sagði á blaða-
mannafundi í gær að einkavæðing eða ríkisrekstur væru úrelt viðhorf
og umræðan um hefðbundin efnahagsmál, kvóta, innflutning eða ann-
að í íslenskum stjómmálum væri stöðnuð. Hann sagði að hin nýja leið
flokksins, útflutningsleiðin, væri grundvöllur fiokksins í viðræðum fyr-
ir nýrri landsstjóm á íslandi.
Á landsfundi Alþýðubandalags-
ins, sem haldinn verður í næstu
viku, verður lagt fyrir þingfulltrúa
120 síðna tfilögugerð sem forusta
Ðokksins hefur tekið saman nm
þessa nýju útflutningsleið.
Þessi nýja stefna var formlega
kynnt opinberlega í gær og þar
kom m.a. fram að Alþýðubanda-
lagið hyggst blása tfi nýrrar sóknar
þar sem ekki aðeins er verið að
móta stefnu flokksins tfi lengri
tíma, heldur einnig að skapa
grundvöll að víðtækri samstöðu
þjóðarinnar um endurreisn efna-
hagslífs, jafnari skiptingu lífsgæða
og nauðsynlega siðbót í stjómkerfi
ríkis og fyrirtækja.
Ólafur Ragnar Grímsson segir að
með þessari nýju leið sé flokkurinn
að hafna bæði samdráttarleið nú-
verandi rfldsstjómar, sem kennd er
við fijálshyggju og svokallaðri
þensluleið sem kennd er við fram-
sóknararatugina.
Þess í stað boðar forustan leið sem
viðurkennir að útflumingssókn sé
gangvél hagkerfisins. Samkvæmt
því fær aukinn útflutningur for-
gang í öllu hagkerfinu, þjónusm-
greinum, mennta- og fjármálalífi
og einnig með margvíslegum
breytingum í skattakerfi, sjóðum
og bankastofnunum. Stefnumót-
tm einstakra atvinnugreina verður
í höndum atvinnulífs, Iaunafólks
og stjómvalda í trausti þess að
þjóðartekjur fari vaxandi með
aukinni framleiðslu og sölu á er-
lendum mörkuðum. Markmiðið
er að minnka halla rfldssjóðs,
skapa stöðugjeika og festa fulla at-
vinnu í sessi.
Meðal annars er lagt tfi að stofn-
aður verði sérstakur áhættulána-
sjóður og að veitt verði sérstök
skattfríðindi handa þeim sem
skara fram úr við að afla erlendra
markaða fyrir útflutningsafurðir.
Formaður flokksins sagði að þess-
ar hugmyndir væm sóttar í smiðju
þjóða eins og t.d. Japans, Hollands
og Danmeikur og rit fjölmargra er-
lendra fræðimanna. -GRH
Biðlaunaréttur fyrir Héraðsdómi
Átta láglaunakonur innan SFR leita réttar síns
»Ég lít á þetta sem spumingu
um réttlæti og nú reynir á það
fyrir Héraðsdómi. Hér er ekki um
að ræða biðlaun ráðherra eða
bæjarstjóra heldur láglaunafólks
sem á rétt á þeim samkvæmt
samningum við Landakot út frá
lögunum um réttindi og skyldur
opinberra starfsmanna. Að vissu
leyti er hér um prófmál að ræða
því nú reynir í fyrsta skipti á það
að Landakotsspítali standi við
gerða samninga fyrir dómi,' seg-
ir Sigríður Kristinsdóttir, formað-
ur Starfsmannafélags rfldsstofn-
ana.
í gær hófst skýrslutaka fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur í máli
átta ófaglærðra kvenna í SFR
gegn St. Jósefsspítala, Landakots-
spftala, sem sagt var upp störfum
í fyrra. Þá var sagt upp störfum
tæplega 20 manns innan SFR.
Konumar átta krefjast réttar síns
til biðlauna auk desembempp-
bótar, en því hefur spítalinn
hafnað. Konumar sem leita rétt-
ar síns fyrir Héraðsdómi em m.a.
fyrrverandi ræstingarstjóri, síma-
kona og skrifstofufólk sem var
með að jafnaði 50-65 þúsund
króna mánaðarlaun.
Vilborg Halldórsdóttir, ein af
konunum átta, segir að sín biðla-
unakrafa hljóði upp á að fá
greiddar 40 þúsund krónur brút-
tó í sex mánuði. En hún hafði
unnið á Landakoti í 15 ár þegar
henni var sagt upp störfum á síð-
asta ári.
Sigríður Kristinsdóttir segir að
upphæð biðlauna fari eftir starfs-
aldri og launum. Auk þess eigi
eftír að greiða af þeim skatta og
önnur gjöld. Hún segir að spítal-
inn hafi alfarið hafnað að greiða
þessu fófid biðlaun vegna þess að
stjómendur spítalans töldu sig
ekki hafa lagt niður stöður þess-
ara kvenna og vom með allskon-
ar millifærsluleiðir í því sam-
bandi. Það fólst m.a. í því að þeg-
ar lögð var niður staða einnar
manneskju þá var henni boðin
staða annarrar sem áttí að hætta.
,Við blásum á millifærsluleiðina
og viðurkennum hana ekki því
teljum að þama hafi menn verið
að leggja niður stöður.'
Sigríður segir að það sé ekkert
skemmtíefni að þurfa að leita
réttar síns fyrir dómstólum. Þar
fyrir utan kostí það töluverða
fjármuni sem stjóm BSRB hefur
samþykkt að greiða.
Formaður SFR segir að Landa-
kotspítali hafi ekkert gert tfi að
hjálpa ófaglærða fólkinu að fá
aðra vinnu við sitt hæfi á meðan
annað hafi verið uppi á teningn-
um gagnvart fagfólkinu.
Það er Ragnar H. Hall sem sæk-
ir málið en veijandi er fram-
kvæmdastjóri Landakotsspítala,
Logi Guðbrandsson. Dómari er
Allan Vagn Magnússon héraðs-
dómari.
-GRH