Tíminn - 17.11.1993, Blaðsíða 8

Tíminn - 17.11.1993, Blaðsíða 8
8 Veröld Miðvikudagur 17. nóvember 1993 IRA og sambandssinnar hafna viðræðum (Reuter) Breska stjómin gaf í skyn í gær að hún myndi hafa að engu mótmaeli harðsnúinna norðurírskra mótmælenda gegn því að írski lýðveldisherinn (ERA) tæki þátt í friðarviðræðum í þeim tilgangi að binda endi á óöldina á Norður-írlandi. John Major, forsætisráherra Bretlands, sagðist í fyrradag geta samþykkt að ERA tæki þátt í frið- arviðræðum, gegn því að samtök þessi létu af hryðjuverkum. Leiðtogar norðurírskra sam- bandssinna, sem eru mótmæl- endur, lýstu því þegar á eftir yfir að þeir myndu aldrei setjast að samningaborði með Sinn Fein, stjórnmálaflokki þeim sem er stjómmálaarmur IRA. Er svo að sjá af þessu að breska stjómin sé að fjarlægjast afstöðu sambands- sinna í Norður-írlandsmálum. Gerry Adams, talsmaður Sinn Fein, hefur einnig hafnað tilboði Majors. Hann segir bresku stjómina þegar hafa rætt við IRA leynilega, en því harðneitar Sir Breskir kaupsýslu- menn vilja ekki veislumáltíðir Patrick Mayhew, norðurírlands- málaráðherra Bretlands. Endur- tók Mayhew ummæli Majors um að ekki kæmi til greina að ganga til samninga við IRA fyrr en samtökin hefðu sýnt og sannað að þau hefðu látið af ofbeldi. Mayhew sagði ennfremur að breska stjómin yrði ekki ein um að ákveða hveijir tækju þátt í að semja frið á Norður-írlandi og gaf þar með í skyn að stjóm hans liti á stjóm írska lýðveldisins sem aðila að málinu. Dick Spring, aðstoðarforsætis- ráðherra írlands, fagnaði tilboði Majors um hlutdeild IRA í samn- ingum og kallaði það „traustan gmnn að byggja á.“ John Smith, leiðtogi Verkamannaflokksins breska og þar með bresku stjóm- arandstöðunnar, kveðst standa með Major í þessu máli. ÓeirSir ó NorSur-írlandi. Eftir sí&ustu illvirkjahviSuna þar virSist Major staSróSinn í aS stilla þar til fri&ar. (Reuter) — Þreyttir kaupsýslumenn kysu heldur að elda baunir á ri- stuðu brauði á hótelherbergjunum en að borða fimm rétta máltíð á veitingahúsi. Þetta kemur m.a. fram í skoðanakönnun fyrir hótel sem birt verður í dag. Virðulegir breskir kaupsýslumenn sem svömðu spumingum Hyatt Hotels and Resorts sögðu að örbylgjuofn væri sá aukahlutur sem mikilvægastur væri, þar sem þeirra hugmynd um fullkomna kvöld- stund væri að „elda baunir á herbergjunum og missa meðvitund fyrir framan sjónvarpið'. Myndsímar, faxtæki, einkatölvur og farsímar vom líka álitnir nauð- synlegir aukahlutir á hinu fullkomna hótelherbergi 21. aldarinnar. Leysibyssa dregur úr hættu á hjarta- siúdómum fituneyt- enda (Reuter) — Leysibyssa sem brennir göt á hjartað og myndar nýjar æðar til vamar kransæðasjúkdómum hefur nú komið Bretum til hjálpar, en vegna fitumengaðs mataræðis þeirra em þeir gjamir á að fá hjartasjúkdóma, tilkynntu læknar í gær. Þessi nýja tækni, sem á uppmna sinn í Bandaríkjunum, á að geta haft sömu áhrif og skurðaðgerð en án þess að þurfi að græða æðar eða slagæðar í sjúklinginn eða nota öndunarvél. Fyrstu Bretamir tveir nutu þessarar meðferðar í þessum mánuði og sýna góð batamerki, sagði talskona læknahóps frá Lea- sjúkrahúsinu í Cambridge og grannsjúkrahúsinu Papworth, sem vom fmmkvöðlar í hjartaskurðlækningum. Nýfasistar og fyrrum kommúnistar sigurvænlegir Alessandra Mussolini - verSur Clinton að heilsa henni með handabandi? (Reuter) Borgar- og sveitar- stjómakosningar fara fram á ítal- íu á sunnudag og er kristilegum demókrötum, flokki þeim er ráð- ið hefur mestu í stjórnmálum landsins lengst af frá lokum heimsstyijaldarinnar síðari, spáð miklum hrakförum. Segir blaðið La Repubblica flokkinn óttast að kosningarnar verði banabiti hans. Kommúnistaflokknum fyrrver- andi, sem nú heitir Vinstrisinn- aði lýðræðisflokkurinn, er hins- vegar spáð drjúgum árangri og jafnvel að í kosningunum verði staðfest að hann sé fylgismesti flokkur landsins. Einnig þykir blása heldur byrlega fyrir nýfas- istum og er sumra ætlan að Al- essandra Mussolini, frambjóð- andi þeirra til borgarstjóraemb- ættis í Napólí, nái kosningu. Fyr- irhugað er að leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims hittist í Napólí í júlí næsta ár og eru bandarískir stjórnmálamenn þegar farnir að hafa áhyggjur af að Clinton, for- seti þeirra, verði þá að taka í hendina á Alessöndru, sem er sonardóttir Mussolinis einræðis- herra. Kosið er í þetta sinn í um fjórð- ungi borgar- og sveitarfélaga ítal- íu. Ekki mun kveða þar mikið að Norðlendingabandalagi, sem hef- ur annars mestan vind í seglin ítalskra stjórnmálaflokka, því að í þetta sinn verður einkum kosið í mið- og suðurhluta landsins. 1ALGEIRSBORG - Alsírskur saksóknari krafðist þess í gær að 38 „herskáir* múslímar, ákærð- ir fyrir hlutdeild að morðum á sex lögreglumönnum í Algeirs- borg í febrúar s.l. ár, yrðu dæmdir til dauða. S.I. tæp tvö ár hafa um 1600 manns verið drepnir af pólitískum ástæðum í Alsír, flestir í skærum milli ör- yggisliðs og bókstafstrúarsinna. AÞENUBORG Andreas Papandreú, forsætisráðherra Grikk- lands, tilkynnti í gær eftir við- ræður þeirra Glafkosar Kler- ídesar, forsætisráðherra Kýpur- Grikkja, að Kýpur mundi hér eftir heyra til varnarsvæðis gríska hersins. Ef tyrkneski her- inn færði sig upp á skaftið á Kýpur, mundi það því þýða stríð milli Grikklands og Tyrklands. Tyrkir gerðu innrás á Kýpur 1974 og hertóku hluta eyjarinn- ar, og telst sá hluti síðan sérstakt ríki Kýpur-Tyrkja. Enda þótt Grikkland og Tyrkland séu bæði í Nató, hefur hvað eftir annað legið við stríði á milli þeirra út af Kýpur og rétti til auðlinda undir botni Eyjahafs. JERÚSALEM - ísraelsk- ir hermenn skutu til bana palestínskan ungling í al- Bireh á Vesturbakka og í Gaza drap óbreyttur ísraelskur borgari araba sem ráðist hafði á og stungið með hnífi tvo ísraela. Frá því að ísrael og Frelsissamtök Palestínu (PLO) gerðu frið með sér í september hafa 20 Palest- ínumenn og 11 ísraelar verið drepnir í illindum á Vesturbakka og í Gaza. 4HELSINKI - Varnar- málaráðherrar Danmerk- ur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, staddir saman á fundi í Abo (Turku), skoruðu í gær á Rússland að kveðja heim hið fyrsta allt herlið sitt í Eistlandi og Lettlandi, eins og hvatt er til í lokaniðurstöðum leiðtogaráð- stefnu Ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE) 1992. Segir í áskoruninni að mikilvægt se fyrir allt Eystra- saltssvæðið að rússneski herinn fari úr löndunum tveimur. SRINAGAR - 65 ís- lamskir uppreisnarmenn í indverska fylkinu Kasmír, sem í mánuð hafa setið umsetnir í Hazratbalmosku í Srinagar, gáf- ust í gær upp fyrir indversku herliði. Hazratbalmoska er mesti helgistaður múslíma í Kasmír og er þar varðveitt hár sem sagt er að sé af höfði Múhameðs spá- manns. Múslímar eru í meiri- hluta í Kasmír og hafa flokkar af þeirra trú verið í uppreisn gegn Indlandsstióm í um fjögur ár. ROM - Um 800.000 manns eru á flótta og ör- bjarga undan stríði Hútúa og Tútsa í Mið-Afríkuríkinu Búr- úndi, sem staðið hefur síðan valdaránstilraun var gerð þar 21. okt. s.l. Ein af stofnunum Samein- uðu þjóðanna, World Food Pro- gramme (WFP), segist þurfa 14 milljónir dollaia til að fæða flótta- fólkið næstu þriá mánuði. LUNDUNUM Evrópu- ríki flest hafa minnkað birgðir sínar af svokölluð- um venjulegum vopnum um fjórðung eða því sem næst frá því að Nató og Varsjárbandalag gerðu samning þar að lútandi 1990. Var sá samningur hinn fyrsti um venjuleg vopn sem gerður var frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari. LUNDÚNUM í nýút kominni skýrslu frá Am- nesty International segir m.a. að í íran séu konur hýddar fyrir að óhlýðnast fslömskum fyrir- mælum um klæðaburð og minni- hlutatrúflokkar og þjóðemisminni- hlutar þarlendis, t.d. Baháar, kristnir menn, Kúrdar, Balútar og arabar sæti ofsóknum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.